Morgunblaðið - 15.06.2009, Síða 36
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 166. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
Staksteinar: Óafturkræft óréttlæti?
Forystugreinar: Agi í ríkisfjár-
málum | Gjörðir skattsins tíundaðar
Pistill: Ábyrgðarleysi vinstri
grænna
Ljósvaki: Fölsuð undirskrift
Heitast 15 °C | Kaldast 8 °C
Fremur hæg breyti-
leg átt eða hafgola,
skýjað með köflum og
sums staðar skúrir.
Hiti yfirleitt 8 til 15 stig. » 10
Gagnrýnandi mælir
með því að fólk horfi
frekar á Fatal
Attraction en nýjustu
mynd Matthews
McConaughey. »30
KVIKMYND»
Frekar Fatal
Attraction
FÓLK»
Flugan fór í leikhús og á
tónleika um helgina. »28
Ný ljósmyndabók
Thorstens Henn
nefnist Ísland í nær-
mynd og hefur að
geyma myndir af
landi og þjóð. »32
AF LISTUM»
Ísland
í nærmynd
FÓLK»
David Carradine var bor-
inn til grafar í gær. »30
LEIKLIST»
Gagnrýnandi hreifst af
víkingum á Vínlandi. »29
Menning
VEÐUR»
1. Læknar neituðu að taka röntgen
2. Aftur jafntefli Ísland Noregur
3. Brúðkaupið breyttist í martröð
4. United sagt íhuga tilboð í Torres
»MEST LESIÐ Á mbl.is
ÍSLENSKU landsliðsmennirnir í handbolta, Björgvin Gústavsson mark-
vörður og Þórir Ólafsson, leyndu ekki vonbrigðum sínum eftir jafntefli,
34:34, gegn Norðmönnum í Laugardalshöllinni í gær. Íslendingar geta með
sigri gegn Makedóníu á þjóðhátíðardaginn tryggt sér rétt til að leika á Evr-
ópumótinu. „Við vildum tvö stig en fengum eitt. Nú eigum við skemmtileg-
asta leik ársins eftir,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson í leikslok. | Íþróttir
Vonbrigði eftir jafntefli gegn Norðmönnum í undankeppni EM
Morgunblaðið/Eggert
„Eigum skemmtilegasta leik ársins eftir“
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„MÉR finnst árangurinn alveg stórkostlegur og ég er
ánægður með hvernig til hefur tekist,“ segir Sverrir
Ingólfsson á Ystafelli í Köldukinn. Hann er einn sjö Ís-
lendinga sem á síðustu misserum hafa farið í færnibæt-
andi aðgerðir á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg
í Svíþjóð. Í aðgerðunum eru sinar fluttar til og tengdar
lömuðum vöðvum. Útkoman er sú, að fólk sem hefur
verið lamað, nær að hreyfa fingur og nota hendur að
nýju.
„Fyrir mér var í raun opinberun að sjá að þetta væri
hægt,“ segir Sigþrúður Loftsdóttir, iðjuþjálfi á Grens-
ásdeild Landspítalans, sem hefur haft umsjón með
þessu verkefni þar.
Fyrsti Íslendingurinn fór í svona aðgerð árið 2006.
Fleiri fylgdu í kjölfarið og líklegt er að áfram verði
haldið. Ef sjúklingur ákveður að fara í aðgerð flýgur
hann út á sunnudegi og er kominn heim í lok sömu
viku. Endurhæfing fer fram hér heima.
„Fingurnir öðlast mátt. Sjúklingurinn þarf síðan að
haga æfingunum þannig að höndin kenni heilanum að
nú sé hægt að hreyfa fingurna aftur,“ segir Sigþrúður
og bætir við að aðgerðirnar hafi aukið lífsgæði fólks til
muna. | 8
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sverrir Ingólfsson Sverrir er ánægður með árangur af
aðgerð sem hann fór í vegna mænuskaða.
Sjö Íslendingar hafa farið
í aðgerðir til Gautaborgar
Mænuskaðaðir fá mátt-
inn í hendurnar að nýju
BROTAHÖFUÐ
eftir Þórarin
Eldjárn rithöf-
und hefur nú
verið gefið út í
Danmörku og
fara gagnrýn-
endur margra af
virtustu fjöl-
miðlum þar í
landi lofsam-
legum orðum um verkið.
Gagnrýnandi Politiken segir sög-
una meðal annars búa yfir „öllu því
sem gerir bókmenntir norðursins
einstakar“. | 27
Brotahöfuð fær
lof í Danmörku
Þórarinn Eldjárn
DAVÍÐ Phuong
Xuan Nguen frá
Víetnam er einn
þeirra sem
fengu nem-
endaverðlaun
menntaráðs
Reykjavíkur í
gær. Hann hefur
sýnt frábæran
árangur í leik
og starfi í skól-
anum. „Davíð hefur jákvæða sýn á
tilveruna,“ segir systir hans, Em-
ilía. | 6
Davíð hefur jákvæða
sýn á tilveruna
Davíð Phuong
Xuan Nguen
Skoðanir
fólksins
’Hvernig dirfist varaformaðurSjálfstæðisflokksins og ráðherra íríkisstjórn, sem ber óumflýjanlegaábyrgð á áðurnefndu samkomulagi, að varpa af sér og flokki sínum allri
ábyrgð af eigin verkum yfir á aðra?
» 18
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
’Sí og æ segja talsmenn útgerðará undanförnum mánuðum ogjafnvel árum að „útgerðin sé öflug ogvel rekin“. Að gefa annað í skyn sérangt og illmælgi. » 18
JÓN ÁRMANN HÉÐINSSON
’Allt frá þeim tíma sem norskir afbrotamenn námu land hér á níundu öldinni er ljóst að sakamanna-blóð hefur runnið í æðum Íslendinga.Það skýrir að hluta til sérstaka að-
dáun þjóðarinnar á vígum og vík-
ingum. » 18
BJÖRN ÞORLÁKSSON
’Flestir sem gefa gaum að ís-lenskri náttúru þekkja dæmi umþróunina á þessu sviði og minkur oglúpína hafa lengi verið á allra vitorðisem vágestir. » 19
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON
’Á síðustu þremur árum hafa mjögmargar erfðabreyttar plöntuteg-undir verið prófaðar í Evrópu með úti-ræktun. Nægir hér að nefna tegundireins og appelsínutré, agúrku, maís,
baðmull, kartöflur, plómur, bygg,
repju, sykurrófu, ösp og birki. » 20
BJÖRN LÁRUS ÖRVAR
’Að mati Orkustofnunar er greini-lega ástæða til að rannsaka beturhvort orkuframleiðsla á Hellisheiðifyrir orkufrekan iðnað geti talist end-urnýjanleg og sjálfbær. » 20
ÁRNI FINNSSON
’Þetta er hópur listafólks sem erað ferðast um landið þessa dagana til þess eins að leyfa fóki aðnjóta hæfileika sinna. Þau kalla sig„Shoebox tour“. Mig langar að þakka
þeim fyrir einstaka gjöf þar sem hugur
minn fékk að hvílast og skynjunin að
vakna. » 20
SIGRÚN GUNNARSDÓTTIR
’Í samrekstri skóla felast spenn-andi tækifæri í sveigjanleika ámilli skólastiga og samþættinguskóla- og frístundastarfs. Í því skyniverður sem fyrst hafin bygging hús-
næðis við Úlfarsbraut 118-120 sem
hugsað var sem framtíðarhúsnæði
leikskóla í hverfinu. » 20
ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR
KJARTAN MAGNÚSSON
SKOÐANIR»