Morgunblaðið - 07.07.2009, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 7. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
182. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«MYND UM SIGRÍÐI NÍELSDÓTTUR
„HEF BARA ALLTAF
VERIÐ AÐ LEIKA MÉR“
«LÍF OG FJÖR Í SIGLINGUNUM
Beggja skauta byr
á Sauðárkróki
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
REKSTRARKOSTNAÐUR nýju
ríkisbankanna þriggja, Íslandsbanka,
Landsbankans og Kaupþings, er um
þriðjungi of mikill miðað við tekjur og
umfang bankastarfseminnar í land-
inu, eftir hrun bankanna í október í
fyrra. Þetta kom fram í máli Sveins
Haralds Øygaard seðlabankastjóra á
fundi um endurreisn bankakerfisins í
Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Samtals eru starfsmenn í bönkun-
um þremur um 3.000. Um 900 í Ís-
landsbanka og Kaupþingi en nær
1.100 í Landsbankanum.
Sem flestir haldi vinnunni
Friðbert Traustason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjármálafyr-
irtækja (SFF), segir stóran hluta
starfsmanna vera starfsfólk í útibúum
og annarri hefðbundinni þjónustu.
Því muni starfsmönnum ekki endi-
lega fækka um þriðjung heldur verði
að líkindum fækkað á þeim stöðum
innan bankanna þar sem seglin hafa
dregist mest saman: „Vonandi halda
sem flestir vinnu í gegnum endur-
skipulagningartímabilið sem fram-
undan er.“ Friðbert sagði smærri
fjármálafyrirtæki einnig takast á við
erfiðan tíma. Um 4.500 manns eru nú
félagsmenn í SFF en þeir voru flestir
um 6.000.
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri
FME, sagði að líkur stæðu til þess að
ríkið þyrfti að leggja nýju bönkunum
til 280 milljarða í eigið fé hinn 17. júlí í
stað 385 milljarða eins og áður var
áformað. | 6
Ríkisbankarnir þrír verða minni að umfangi en áður var
áætlað Rekstrarkostnaðurinn er um þriðjungi of mikill
Þriðjungi of dýrir í rekstri
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
„Í stuttu máli þá höfum við hvorki fundið neina
skriflega staðfestingu þess að Ísland hafi formlega
undirgengist að ábyrgjast skuldbindingar Trygg-
ingasjóðs innstæðueigenda, hvað varðar Icesave-
innstæðurnar, né undirgengist aðrar skuldbinding-
ar en þær sem felast í tilskipuninni eins og hún var
innleidd í lögum 98/1999.“
Þetta stendur í áður óbirtu áliti sem lögmanns-
stofan Mischon de Reya í London skilaði Össuri
Skarphéðinssyni utanríkisráðherra 29. mars sl. Þar
er vegið og metið hvort Íslandi beri að ábyrgjast
lágmarksinnstæður á Icesave-reikningum eða
hvort nóg sé að stofna innstæðutryggingasjóð í
sama tilgangi. Í greinargerð með Icesave-frum-
varpinu kemur fram að samninganefndin hafi notið
aðstoðar Mischon de Reya, en þar er álitsins hvorki
getið, né fylgir það gögnum sem lögð voru fram.
„Að lokum, hvað sem öðru líður, þá er það okkar
skilningur, af þeim íslensku lögfræðiálitum sem
okkur hafa verið fengin, að slíkt samkomulag um að
ábyrgjast Tryggingasjóð innstæðueigenda myndi
alltaf þurfa lögformlegt samþykki Alþingis Íslend-
inga til að verða lagalega bindandi.“
„Fáguð“ lögfræðiálit ekki afdráttarlaus
Morgunblaðið hefur undir höndum eintak af
skýrslunni, þar sem segir að þrátt fyrir að lögfræði-
álit breskra og hollenskra stjórnvalda séu „fáguð“,
þá liggi ekki fyrir að þau veiti „afdráttarlaust svar“
við þessari spurningu, einkum þegar litið sé til yf-
irlýsts markmiðs tilskipunarinnar. „Evrópskar til-
skipanir eru ekki alltaf fullkomlega skýrar og þessi
er engin undantekning þar á, og það eru röksemdir
á báða bóga, en við höfum enn ekki fundið skýr svör
sem sýna fram á að Íslandi beri skylda til að ábyrgj-
ast greiðslur innstæðutryggingasjóðsins. Þess
vegna teljum við að það sé höfuðatriði fyrir íslensk
stjórnvöld að fela okkur að vinna afdráttarlaust
lögfræðiálit af leiðandi málafærslumanni.“
Jafnframt segir að „ruglingslegar“ og „mót-
sagnakenndar“ yfirlýsingar stjórnvalda í bréfum
viðskiptaráðuneytisins í fyrra „hjálpi ekki upp á
sakirnar“, en þó sé ekki lagalega bindandi fyrir Ís-
land að ganga lengra en tilskipunin og EES-samn-
ingurinn mæli fyrir um. „Viðmiðin frá 16. nóvember
eru kjarni málsins að okkar mati, sem voru einfald-
lega lyktir deilunnar á þessum tíma. Þar er einungis
sagt að tilskipunin eigi við um Ísland á sama hátt og
önnur ESB-ríki.“ Lögmannsstofan telur að yfirlýs-
ingar ráðherra síðan þá og viljayfirlýsing Íslands og
Hollands frá því í október hafi ekki nein réttaráhrif.
Óvíst um ábyrgð á Icesave
Áður óbirt álit breskrar lögmannsstofu sem unnið var fyrir utanríkisráðherra
„Mótsagnakenndar“ yfirlýsingar stjórnvalda ekki taldar hafa réttaráhrif
ÚTSÝNIÐ úr Hallgrímskirkjuturni er fallegt. Nú fer turninn sjálfur að
verða fallegri því að stefnt er að því að byrja að rífa efstu vinnupallana við
kirkjuna nú í vikunni. Eftir er að kústa svokallaðan millimúr með hvítum
múr og verða vinnupallarnir fjarlægðir jafnóðum og múrararnir vinna sig
niður. Kústuninni lýkur í haust og er búist við að síðustu vinnupallarnir
hverfi í október eða nóvember. Turninn var tekinn í notkun 1974.
Morgunblaðið/Ómar
„DRAUMUR æsku minnar hefur
ræst,“ sagði portúgalska knatt-
spyrnustjarnan Cristiano Ronaldo
þegar hann ávarpaði 80.000 stuðn-
ingsmenn spænska knattspyrnu-
liðsins Real Madrid í gær. Hann var
þá formlega kynntur fyrir stuðn-
ingsmönnum liðsins sem troðfylltu
Santiago Bernabau-leikvanginn í
Madríd. Aldrei í sögunni hafa fleiri
áhorfendur komið saman á knatt-
spyrnuleikvangi í þeim tilgangi ein-
um að bjóða leikmann velkominn.
Um 75.000 manns söfnuðust saman
á heimavelli Napoli á Ítalíu fyrir 25
árum þegar Diego Maradona var
kynntur til sögunnar. »íþróttir
Metfjöldi fagnaði komu Ro-
naldo á Santiago Bernabau
FLUGFÉLAGIÐ Ryanair hefur
óskað eftir leyfi til að fá fjarlægja
öftustu sætaraðirnar úr vélum sín-
um á stuttum
flugleiðum –
þegar flugtím-
inn er undir
einni og hálfri
klukkustund –
og koma þar fyr-
ir í staðinn eins-
konar stæðum.
Michael O’Leary, forstjóri Ryan-
air, fékk hugmyndina frá kínverska
flugfélaginu Spring en hann áætlar
að með þessu megi fjölga farþegum
um 50%, draga úr kostnaði um 20%
og lækka flugfargjöld.
baldura@mbl.is
Standandi flugfarþegar
„Ég tel að það sé alveg einsýnt að
aðildarumsókn verði ekki tekin al-
varlega og það sé einfaldlega
óraunhæft að leggja fram umsókn á
meðan Icesave-málið er óafgreitt,“
segir Bjarni Benediktsson.
Fundað var í utanríkismálanefnd
um ESB-tillögur í gærkvöldi og aft-
ur verður fundað í dag. Búast má
við því að málið verði brátt tekið
aftur til meðferðar á þingi. »4
Tímaeyðsla að ræða ESB á
meðan Icesave er óleyst