Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 4
Fundað var í gær um Icesave- málið á milli samninganefnd- arinnar og fjárlaga- og utanrík- isnefndar auk skilanefndar og skiptastjórnar Landsbankans. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins náðist engin niður- staða á fundunum heldur var málið kynnt frá öllum hliðum. Fundað verður áfram í málinu og fleiri boðaðir til álitsgjafar á samningnum. M.a. mun InDe- fence hópurinn, sem gagnrýnt hefur samkomulagið harðlega, ganga á fund Icesave-samn- inganefndarinnar í dag. Allar hliðar Icesave 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009 Mér er rétt og skylt að greina frá því að nafngiftin á skýrslu þeirri, sem Davíð Oddsson gerði að umræðuefni í viðtali sem ég tók við hann sl. föstu- dag og birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins, er mín, ekki Davíðs. Mér hafði áður verið sagt af tilvist ofangreindrar skýrslu og að hún hefði verið unnin af nefnd á vegum OECD og formaðurinn í þeirri nefnd hefði verið Jean-Claude Trichet, nú- verandi seðlabankastjóri Seðlabanka Evrópu. Mér fannst við vinnslu viðtalsins að það væri ekki nógu skýrt um hvaða nefnd væri að ræða, og segi því í óbeinni ræðu og byggði á því sem mér hafði verið sagt um tilurð skýrsl- unnar: „Davíð finnst það sæta nokk- urri furðu að sérstök skýrsla, sem ís- lensk stjórnvöld hafi undir höndum, um tryggingamál og innstæðutrygg- ingasjóði, sem hafi verið unnin af evr- ópskri nefnd á vegum OECD undir stjórn núverandi seðlabankastjóra Seðlabanka Evrópu, hafi ekki verið gerð opinber.“ Þar sem ég hef verið í litlu frétta- sambandi yfir helgina og vissi ekki fyrr en á sunnudagskvöld að viðtalið hefði valdið miklu fjaðrafoki og að Davíð hafi verið sakaður um að vita ekki um hvaða skýrslu hann var að tala, vil ég árétta að umrædd skýrsla var ekki rétt feðruð í viðtali mínu við Davíð Oddsson og að mistökin eru mín. Þá vil ég, vegna orða Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, um að viðtalið við Davíð hafi verið tekið 18. júní, greina frá því að ásláttarvilla var í viðtalinu hjá mér, sem mér yf- irsást við yfirlestur, en þar sagði ég eftir Davíð „í gær“ þar sem hann vís- aði til ummæla Jóhönnu Sigurð- ardóttur á Austurvelli. Þar átti að standa í júní. Biðst ég velvirðingar á ofan- greindum mistökum. Agnes Bragadóttir Mistökin voru mín SMÍÐI togarans Helgu RE er nú lokið í Taívan og hélt skipið úr höfn áleiðis til Íslands þann 3. júlí síðastliðinn. Smíði skipsins seinkaði um tvö ár en henni átti að ljúka í júní 2007, að sögn Ár- manns Ármannssonar útgerðarmanns. „Við seldum hina Helguna rétt áður en þessi átti að koma og höfum verið án skips síðan. Auð- vitað hefur þetta komið sér illa,“ segir Ármann en útgerð hans, Ingimundur hf., hefur fengið greiddar dagsektir frá Taívan vegna seinkunar- innar. Ástæður hennar telur Ármann vera litla reynslu Taívana af smíði jafntæknilegs skips og Helgan er. „Tækin eru öll vestræn. Það er ekk- ert í skipinu frá þeim nema stálið sem er heit- galvaníserað. Skipið á þess vegna að ryðga minna.“ Helga RE er 29 m langt skip, rúmlega 9 m breitt og 364 brúttótonn. Skipið er væntanlegt til Íslands upp úr miðjum ágúst. ingibjorg@mbl.is Tæknilega mjög fullkomin en smíðinni seinkaði um tvö ár Helga RE loksins lögð af stað heim frá Taívan FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „MÉR finnst það allt með miklum ólíkindum hvernig staðið er að vinnslu þessa máls, að áður en búið er að útkljá deilu við ESB-ríki um niðurstöðu Icesave-samninganna séu menn að leggja upp með það að við Íslendingar leggjum inn umsókn um Evrópusambandsaðild,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins. Fundað var í utanríkismálanefnd Alþingis um kvöldmatarleytið í gær þar sem teknar voru fyrir tillögurnar tvær um ESB-aðild. Þjóðin eigi síðasta orðið Að sögn Bjarna var á fundinum hreyft við ólíkum áherslum flokk- anna til málsins en enn sé óljóst hvernig málum lykti í meðförum nefndarinnar. „Við ítrekuðum fyrri afstöðu okkar og ályktun landsfundar Sjálfstæð- isflokksins um að rétt væri að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hefja ætti aðildarviðræður og eins að ekki komi annað til greina en að þjóðin eigi síðasta orðið í mál- inu.“ Bjarni segist eftir sem áður þeirr- ar skoðunar að ítarlegar umræður um ESB-aðild séu í raun og veru tímaeyðsla eins og málin standa þessa stundina. „Ég tel að það sé al- veg einsýnt að aðildarumsókn verði ekki tekin alvarlega og það sé ein- faldlega óraunhæft að leggja fram umsókn með Icesave-málið óafgreitt. En það virðist vera uppleggið hér á þinginu að hafa þessa forgangsröðun á málinu.“ Hænuskref á hverjum fundi Valgerður Bjarnadóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar og varafor- maður utanríkismálanefndar, segir að lítil skref séu tekin á hverjum fundi en nefndarmenn vilji að sjálf- sögðu vanda sig við umfjöllunina. Boðað hefur verið til áframhald- andi funda um ESB-aðild á morgun og stefnt að því að málið verði tekið aftur til umfjöllunar Alþingis innan skamms. „Við hittumst dag eftir dag til að vinna að þessu sem hlýtur að vera vísbending um í hvað stefnir.“ Fundað fram á kvöld um ESB  Tímaeyðsla að ræða ESB mál í þaula þegar Icesave-deilan er óleyst, segir formaður Sjálfstæðisflokks  Málið þokast á hverjum fundi og stefnt er að því að taka það aftur fyrir á Alþingi á næstu dögum Stífir fundir eru í utanrík- ismálanefnd Alþingis um bæði Icesave-samningana og tvær til- lögur að ESB-umsóknaraðild. Niðurstöðu enn ekki náð. Valgerður Bjarnadóttir Bjarni Benediktsson EKIÐ var á átta ára dreng á Reykjanesbraut við Ásvelli í Hafnarfirði á fjórða tímanum í gær. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu var drengnum haldið sofandi í öndunarvél í gærkvöld og var líðan hans sögð stöðug. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni er talið að drengurinn hafi hlaupið út á götu í veg fyrir bílinn. ingibjorg@mbl.is Drengur sem ekið var á í gær í öndunarvél Frá Vallahverfi í Hafnarfirði. MANNBJÖRG varð þegar leki kom að sex tonna báti á Skagafirði í dag. Einn var um borð en hátt í 20 björg- unarsveitarmenn á Sauðárkróki og Hofsósi komu til bjargar ásamt nærstöddum bát- um. Talið var líklegt að báturinn, Eyfjörð ÞH-203, myndi sökkva en vel heppnaðist að toga hann í land. Maður hætt kominn í sökkvandi bát Drangey Leki kom að bát á Skagafirði BÖRN eru nú að meðaltali 6,9 ára gömul þegar þau prófa netið í fyrsta sinn, skv. nýrri könnun frá SAFT. Netnotkun hefur því færst neðar í aldri frá því síðasta könn- un var gerð 2007. Einnig eiga tölu- vert fleiri börn sína eigin tölvu nú en áður. Litlar breytingar hafa hins- vegar orðið á því hversu oft börn og unglingar nota netið frá 2007. Fleiri foreldrar nota netið Sambærileg könnun sem lögð var fyrir foreldra barnanna leiddi í ljós að hlutfall foreldra sem nota netið daglega eða næstum daglega hefur aukist milli kannana úr 83% í 92%. SAFT-verkefnið leggur áherslu á að kortleggja veru barna og ung- linga á netinu og öðrum miðlum og stuðla að öruggri notkun. Þátttak- endur voru 991 nemandi úr 4.-10. bekk. Börn yngri þegar þau prófa netið MSN Börn læra ung að nota netið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.