Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is MIKIL vakning er í siglinga- íþróttum á Sauðárkróki. Þar hefur verið stofnaður siglingaklúbbur sem kenndur er við Drangey og siglinganámskeið eru vinsæl í Sumar T.Í.M., tómstundadagskrá sem sveitarfélagið heldur úti fyrir 6 til 11 ára börn. Siglinganámskeið hafa verið haldin á Sauðárkróki í tvö ár og komið hafa reyndir þjálfarar frá siglingaklúbbnum Nökkva á Ak- ureyri og Siglunesi í Reykjavík. Fyrirtaksaðstaða varð til þegar lokið var við lagningu suðurgarðs Sauðárkrókshafnar í vor. Nú er komið skjól fyrir sunnanáttinni. Höfnin er öll iðandi af lífi á góð- viðrisdögum. Bátarnir finnast „Það kom í ljós að hér var til bátakostur sem lá í geymslum hjá sveitarfélaginu. Við höfum verið að finna bátana og koma þeim í stand,“ segir Jakob Frímann Þor- steinsson, formaður siglinga- klúbbsins Drangeyjar. Félags- menn eru nú að nálgast fimmtíu. Flotbryggja var einnig til og nú hefur lítið aðstöðuhús verið flutt á staðinn. „Við erum að stíga okkar fyrstu skref. Það er feiknamikill áhugi á þessu, krökkunum þykir þetta spennandi,“ segir Ingvar Páll Ingvarsson stjórnarmaður. Hann hóf þátttöku í gegnum börnin og uppgötvaði að siglingar geta verið skemmtileg íþrótt fyrir alla fjöl- skylduna. „Það er skemmtilegast að fá að vera úti á sjó, á einhverju sem þú getur stjórnað. Það er ekki erfitt, ekki þegar þú ert búinn að læra á seglbát,“ segir Tinna Björk, dóttir Ingvars sem hefur sótt siglinga- námskeiðin frá því áður en hún hafði aldur til. Hægt að læra margt í siglingum Jakob kennir útivistarfræði við Háskóla Íslands og Hólaskóla og er hrifinn af siglingum. „Ég tel að það geri öllum gott að vera úti að glíma við áskoranir, í ákveðnu ör- yggi. Það felst í því mikið nám. Mér finnst vera of lítið af verk- efnum í frístundastarfi í almenna skólakerfinu sem fela í sér tæki- færi til náms og þroska. Sigling- arnir eru eitt af þeim viðfangs- efnum sem henta vel. Glíman við vindinn, bátinn og sjálfan þig fær- ir þér upplifun sem veitir þér mikla gleði,“ segir Jakob. Hann segir einnig mikilvægt að þjálfa börnin í að umgangast sjó- inn og náttúruna almennt og sigl- ingarnar séu góð leið til þess. Hægt sé að færa þennan lærdóm yfir á margt í lífinu. Glímt við vindinn  Siglingar eru nýjasta æðið á Sauðár- króki  Fimmtíu félagar eru í nýjum siglingaklúbbi og margir sækja nám- skeið  Nýja smábátahöfnin iðar af lífi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skemmtilegt Þegar siglinga- námskeiðin eru í gangi er mikil um- ferð um nýju smábátahöfnina. Þar skapaðist aðstaða þegar Suð- urgarður var lagður. Svifið Tinna Björk Ingvarsdóttir stýrir bátnum um höfnina. Hún er búin að læra undirstöðuatriði siglingaíþróttarinnar og segir þau ekki erfið. GIRÐINGAR BYGGINGADEILD VERSLANIR VÉLADEILD Henta jafnt heimilum, fyrirtækjum og stofnunum. Hafið samband og leitið tilboða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.