Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009 Sudoku Frumstig 4 7 9 5 8 6 8 1 9 8 5 3 1 2 6 1 4 8 6 5 7 3 1 2 4 5 2 7 6 7 3 4 7 1 6 9 8 9 5 8 3 1 2 9 7 3 2 4 2 8 3 6 7 8 5 6 4 2 4 1 6 8 4 7 2 3 7 2 1 5 9 5 7 2 6 8 1 4 3 9 1 4 6 9 3 7 5 2 8 8 3 9 5 4 2 7 6 1 7 8 5 3 9 4 2 1 6 3 2 1 7 5 6 8 9 4 6 9 4 1 2 8 3 7 5 2 1 8 4 6 3 9 5 7 4 5 7 2 1 9 6 8 3 9 6 3 8 7 5 1 4 2 2 6 7 5 1 4 3 8 9 9 3 1 6 2 8 5 4 7 5 8 4 9 7 3 1 2 6 1 4 2 8 6 7 9 3 5 7 9 8 3 5 2 6 1 4 6 5 3 4 9 1 8 7 2 8 2 9 1 4 6 7 5 3 4 1 5 7 3 9 2 6 8 3 7 6 2 8 5 4 9 1 3 5 2 9 7 1 4 8 6 1 9 8 5 6 4 3 7 2 7 6 4 2 3 8 9 5 1 2 7 9 1 5 3 8 6 4 4 1 5 8 2 6 7 9 3 8 3 6 7 4 9 2 1 5 5 4 1 3 9 7 6 2 8 6 8 7 4 1 2 5 3 9 9 2 3 6 8 5 1 4 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 7. júlí, 188. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.“ (Sálm. 16, 2.) Víkverji er mikill áhugamaður umensku knattspyrnuna og meðan spark liggur niðri yfir hásumarið er forvitnilegt að fylgjast með kaupum og sölum á leikmönnum. Úrvals- deildarfélögin berjast nú um á hæl og hnakka í því augnamiði að styrkja sig fyrir komandi átök. Með mis- jöfnum árangri eins og gengur. Mest hefur gengið á hjá Man- chester City enda veit félagið ekki aura sinna tal eftir að það komst í eigu arabískra auðkýfinga. Vand- fundinn er sá leikmaður sem ekki hefur verið orðaður við félagið á síð- ustu vikum og mánuðum. Illa hefur þó gengið að læsa klónum í spark- endur í allra fremstu röð og nú síð- ast virðast áform City um að krækja í John Terry, fyrirliða Chelsea, hafa runnið út í sandinn. Samkvæmt fjöl- miðlum var City ekki aðeins reiðubúið að gefa rúma sex milljarða króna fyrir kappann heldur ætlaði það jafnframt að greiða honum rúm- ar sextíu milljónir króna í laun – á viku. Víkverji ber mikla virðingu fyrir sparkendum sem náð hafa sömu hæðum og John Terry, þar að baki liggur ekki lítil vinna, en tekur þetta ekki út yfir allan þjófabálk? x x x Breska pressan, prent- og net-miðlar, eru kapítuli út af fyrir sig í þessum efnum. Vangaveltur hennar eru oft ævintýralegar og á köflum án minnstu stoða. Það er engu líkara en að sumir miðlar hafi einsett sér að selja ákveðna leik- menn – sama hvað það kostar. Í því sambandi koma upp í hugann Cesc Fàbregas og Emmanuel Adebayor, leikmenn Arsenal. Sögur af meint- um vistaskiptum þeirra yfir í Barce- lona og AC Milan hafa gengið fjöll- unum hærra í allt sumar og breytir þá engu þótt leikmennirnir beri þær iðulega viðstöðulaust til baka, m.a. á opinberri heimasíðu Arsenal. En allt kemur fyrir ekki, aðeins fáum dög- um síðar eru sögurnar aftur komnar á kreik. Annars beina sparkelskir augum sínum ekki síst að meisturum Man- chester United sem hafa úr dágóð- um fúlgum að moða eftir metsöluna á Cristiano Ronaldo. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 tiktúru, 4 óþétt, 7 strengjahljóð- færið, 8 hökur, 9 ferskur, 11 vítt, 13 fugl, 14 kynja- skepna, 15 manneskjur, 17 flenna, 20 aula, 22 blundar, 23 varðveita, 24 nemur, 25 eldstæði. Lóðrétt | 1 blettir, 2 brúkum, 3 bráðum, 4 jarðsprungur, 5 dæmd- ur, 6 flón, 10 skreytinn, 12 þreif, 13 brodd, 15 þegjandaleg, 16 læsir, 18 ull, 19 á skipi, 20 púkar, 21 lítil alda. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 smaragður, 8 gulli, 9 illur, 10 sær, 11 sorti, 13 sinni, 15 hnakk, 18 ánann, 21 ugg, 22 undin, 23 asann, 24 fagurgali. Lóðrétt: 2 mælir, 3 reisi, 4 geirs, 5 ullin, 6 Ægis, 7 þrái, 12 tík, 14 iðn, 15 haus, 16 aldna, 17 kunnu, 18 ágang, 19 aðall, 20 nána. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. d4 cxd4 3. c3 dxc3 4. Rxc3 Rc6 5. Bc4 e6 6. Rf3 Rge7 7. De2 Rg6 8. Be3 a6 9. a3 Dc7 10. Hc1 Rf4 11. Df1 Bd6 12. g3 Rg6 13. De2 b5 14. Ba2 Db8 15. O-O O-O 16. Hfd1 Be7 17. h4 Rge5 18. Rxe5 Rxe5 19. f4 Rc6 20. e5 f6 21. exf6 Bxf6 22. Re4 Bd8 23. Rc5 d5 24. Rxe6 Bxe6 25. Hxc6 Bf7 26. Bd4 He8 27. Dg4 g6 Staðan kom upp á 2. minning- armóti Sven Johannessen sem lauk fyrir skömmu í Osló í Noregi. Heimamaðurinn Hallvard V. Ådnøy (2.299) hafði hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Braga Þorfinnssyni (2.383). 28. Bxd5! Bxd5 29. Hxg6+ Kf8 30. Hg8+! og svartur gafst upp enda óverjandi mát. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Engin ágiskun. Norður ♠K10843 ♥K642 ♦ÁDG ♣9 Vestur Austur ♠2 ♠65 ♥D1098 ♥75 ♦8642 ♦K10973 ♣ÁG84 ♣7632 Suður ♠ÁDG97 ♥ÁG3 ♦5 ♣KD105 Suður spilar 6♠. Vestur trompar út gegn slemmunni og sagnhafi virðir fyrir sér dýrðina í borði með velþóknun – það þarf mikið að ganga á til að þetta spil tapist. Samt er rétt að vanda sig. Eftir tvær umferðir af trompi virðist rökrétt næsta skref að spila laufi úr borði. En það er ekki gallalaus leikur. Varnarspilarar hafa fyrir löngu til- einkað sér forna speki J. S. Simons, sem segir að það borgi sig að dúkka í svona stöðu með ásinn – duck like a man! Sagnhafi getur því alls ekki treyst því að vestur sé með ásinn þótt austur fylgi með smáu. Hvort sem kóngur eða lítið fer í slaginn, þarf að giska í framhaldinu þegar vestur skilar tígli. En hér þarf ekkert að giska, bara að leggja niður tígulás áður en laufi er spil- að á kóng. Þá kemur úrslitaslagurinn á silfurfati. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er einfaldleikinn sem felur í sér tærustu snilldina og bestu lausnina. Ekki stressa þig, leyfðu örlögunum að sjá um sitt. (20. apríl - 20. maí)  Naut Tafir og truflanir í vinnunni hafa haldið aftur af þér að undanförnu. Hin andlega leit byrjar og endar hjá sjálf- um þér. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ef þú þjálfar þig í því sem þú gerir vel, verður veröldin betri staður. Farðu þér hægt í erfiðum málum því flas er ekki til fagnaðar. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Vertu viðbúinn tölvuvandræðum eða öðrum tæknivandamálum í vinnunni í dag. Meiri tími út af fyrir þig er forsenda hamingju í sambandi. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Svo virðist sem dagurinn í dag verði þér einstaklega ánægjulegur og gefandi. Millibilsástand þarfnast aðlög- unar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Hugsaðu um hvernig þú getur gert hlutina á nýjan hátt svo það gagn- ist ekki aðeins þér heldur líka öðrum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Fjárhagsleg markmið eru yfirvof- andi og þú verður að ná þeim. Leggðu þig fram um að líta vel út þannig að þér líði betur á allan hátt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú eyðir bróðurparti dags- ins í að gera meira en til er ætlast af þér. Reyndu að halda ró þinni annars áttu bæði á hættu að missa eignina og góðan vin. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú getur ekki endalaust leikið einleik þinn, þótt góður sé. Til að forðast vandræði skaltu telja upp á tíu áður en þú talar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er hætt við að þú sýnir samstarfsfólki þínu of mikla kröfu- hörku í dag. Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn svo þú getir sofið rólegur. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú nýtur kumpánlegra sam- skipta við vini þína í dag og ert stað- ráðinn í að deila því sem þú uppgötvar með öllum sem þú þekkir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Stundum virðist allt vera á móti manni og þá er gott að flýja á vit dag- draumanna. Að sjálfsögðu mun fólk endurgjalda þér vinsemdina. Stjörnuspá 7. júlí 1869 Kvenfélag Rípurhrepps í Skagafirði var stofnað. Þetta var fyrsti félagsskapur kvenna hér á landi. 7. júlí 1941 Bandaríkjaher kom til lands- ins og annaðist vernd landsins til stríðsloka, ásamt Bretum. Erlendir hermenn á Íslandi munu flestir hafa orðið um 60 þúsund en landsmenn voru þá rúmlega 120 þúsund. Síðustu bandarísku hermennirnir fóru í apríl 1947. 7. júlí 1974 Kútter Sigurfari, sem var smíðaður í Englandi 1885, kom til Akraness frá Fær- eyjum. Hann var settur á byggðasafnið að Görðum og er eini kútterinn sem varð- veittur er hér á landi. Sig- urfari var í eigu Íslendinga í byrjun aldarinnar. 7. júlí 2008 Surtsey var samþykkt á heimsminjaskrá Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), en fjór- um árum áður komust Þing- vellir á skrána. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Bergþóra Hlín Sigurðardóttir, Jóhann Þór Gunnarsson og María Celeste Bravo Herrera héldu tom- bólu við Eiðistorg og söfnuðu 17.917 kr. sem þau færðu Rauða krossinum. Hlutavelta „ÉG er hérna í Mosfellsdalnum og ég verð hérna með fjölskyldunni. Við gerum okkur glaðan dag en ég býst ekki við að það verði nein stórveisla í þetta sinn,“ segir Óli Jón Gunnarsson, sem í dag fagnar sextugasta afmælisdegi sínum. Óli Jón hefur starfað í byggingariðnaði og gerir ráð fyrir að hefjast handa að nýju um leið og hann snýr aftur úr fríinu. „Það verður tekið til hendinni þegar ég kem heim aftur í lok vikunnar.“ Í sumar reiknar Óli Jón ekki með að ferðast til útlanda en ætlar að reyna þeim mun meira að ferðast innanlands. „Ég ætla að reyna eins mikið og ég get að vera í sumarhúsinu okkar í Stykkishólmi. Ég hef farið þangað nokkrum sinnum í sumar og ætla að halda því áfram.“ Óli Jón nefnir ferðalög einmitt sem sitt megináhugamál. „Ég hef gaman af að ferðast og skoða fallega staði, hvort sem er hér heima eða erlendis. Ég ferðast töluvert mikið innanlands.“ Hann nefnir jafnframt, að íþróttir séu ofarlega á blaði yfir áhuga- málin. „Það er helst körfuboltinn og þar styð ég Snæfell í Stykkis- hólmi. Það er orðið svo langt síðan maður spilaði með Tindastóli í gamla daga!“ Óli Jón Gunnarsson er sextugur í dag Ferðalög og körfuboltinn Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.