Morgunblaðið - 07.07.2009, Page 15
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Tónlist Hjónabandið í góðum gír á fallegu sumarkvöldi í Fljótshlíðinni
„Sumarið er tíminn“ segir Bubbi
Mortens og ég er sammála honum.
Ég veit fátt betra en að vera úti í
góðu veðri. Þegar sólin skín er
það plús og þá er skemmtilegt að
halla sér á bekk og loka augunum
og hlusta á hljóðin í umhverfinu.
Það breytist nefnilega allt þegar
sólin skín. Þar gelti hundur, lítill
krakki grætur, hamarshljóð í
næsta garði og þarna er einhver
að slá. Gleðihróp barna að leik og
nú mjálmar kisi og þá þagnar
fuglasöngurinn sem var eins og
undirspil við öll hin hljóðin.
Dásamlegt, allir eru glaðir, hver
að sýsla í sínum heimi.
Á meðan ég ligg á bekk og læt
sólina skína á mig eru aðrir á fullu
í framkvæmdum og þrátt fyrir allt
krepputal er ýmislegt í gangi í
sveitarfélaginu. Nú er t.d. verið að
leggja lokahönd á byggingu nýs
tónlistarskóla og vekur byggingin
athygli vegfarenda, er gul eins og
fífill í haga.
Úlfar Gíslason smiður er byrjaður
að smíða blokk, við sem héldum að
nóg væri búið að byggja af íbúð-
um á Íslandi fyrir næstu 100 árin.
En svo er ekki á Hvolsvelli, hér er
alltaf eftirspurn eftir litlum íbúð-
um og vonandi gengur vel að
byggja blokkina og selja íbúð-
irnar.
Framkvæmdir við Landeyjahöfn
eru á fullu og ganga vel. Niður að
hafnarstæðinu er stöðugur
straumur fólks þrátt fyrir að
bannað sé að aka um svæðið. Nú
hefur Siglingastofnun sett upp
vefmyndavél sem sendir mynd á
mínútu fresti inná vefsíðuna sigl-
ing.is. Þar geta nú fróðleiksfúsir
fylgst með varnargörðunum lengj-
ast dag frá degi.
Öllum stórframkvæmdum fylgir
mikið rask og voru margir mjög
efins um að stórfelld efnistaka á
Hamragarðaheiði væri skyn-
samleg. Það má auðvitað deila um
það en kosturinn er sá að nú er
kominn mjög greiðfær vegur uppá
heiðina og tekur bara örskots-
stund að fara í 600 metra hæð og
þá er hægt að virða fyrir stórkost-
legt útsýnið. Vestmannaeyjar og
Suðurland í allri sinni dýrð. Þetta
er jákvæði pósturinn við svona
framkvæmdir.
Tónlistarlíf er í miklum blóma hér
í sveit og alltaf er að bætast í flór-
una. Margir minnast enn með
gleði stórvelheppnaðrar blúshátíð-
ar í vor og segja aðstandendur
hennar að þetta verði framvegis
árlegur viðburður. Nú er í und-
irbúningi árleg djasshátíð á Skóg-
um sem kallast Djass undir Fjöll-
um og Hjónabandið er nýbúið að
gefa út sinn annan geisladisk með
frumsömdu efni.
Og síðast en ekki síst er stór-
merkilegt framtak hjónanna á
Stokkalæk, þeirra Ingibjargar og
Péturs, til tónlistar, þar sem tón-
listarfólki er sköpuð aðstaða til
æfinga og tónleikahalds. Þetta á
án efa eftir að skipta miklu máli,
ekki bara fyrir tónlistarfólkið,
heldur á samfélagið vafalítið eftir
að njóta góðs af þessu frábæra
framtaki.
HVOLSVÖLLUR
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
fréttaritari
Daglegt líf 15ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
Þá eru hvalveiðar hafnar á ný.Ekki fer hjá því að margir
sleiki út um við tilhugsunina um
hrefnukjöt á diski og í þeim hópi er
Pétur Stefánsson:
Sólarríka sumardaga,
sæll ég glóðarsteikur ét.
Gómsætt er í munn og maga
marinerað hrefnuket.
Sigrún Haraldsdóttir er líka í
sumarskapi:
Himinninn víður er blikandi og blár
og blærinn er hlýr og sætur.
Ég sit út í móa með sólþurrkað hár
og svolítið brennda fætur.
En það er Hreiðar Karlsson ekki,
sem veltir fyrir sér stöðu þjóðmála:
Allt er líkt og áður var,
ekki miklar nýjungar.
Aldraðir og aumingjar
eiga að bera klyfjarnar.
Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd gerir hinsvegar að yrkisefni
geðbrigði manna:
Svört eru veður í sálum oft,
sést það á ýmsum háttum.
Hugsun sem þekkir ei heilnæmt loft
hlýtur að tapa áttum.
Og hann las grein um hryðju-
verk:
Blóði vætt er veröld öll,
vegir flestir tæpir.
Hefjast yfir hæstu fjöll
hræðilegir glæpir.
Af hrefnu og klyfjum
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
HUNDRAÐ ára gamalt málverk af Helga Hálfdanarsyni
sálmaskáldi prýðir nú virðulegan vegg Biskupsstofu.
Málverkið hefur undanfarin fimmtíu ár sett svip á stofu
Jóns Helga Hálfdanarsonar, meðhjálpara í Hveragerði,
sem gaf Bisskupsstofu þetta merka málverk af langafa
sínum, við litla athöfn í gær.
Mikilsvirt sálmaskáld
Helgi Hálfdanarson fæddist árið 1826 og var eitt mik-
ilsvirtasta sálmaskáld og sálmaþýðandi landsins. Við
hann var einnig kennt svonefnt Helgakver sem notað var
lengi við fermingarfræðslu. Sonur Helga, Jón Helgason
biskup, lét mála málverkið að föður sínum látnum. Mynd-
in var máluð eftir ljósmynd af dönskum málara sem „sig-
nerar“ málverkið með upphafsstöfum sínum, CB.
Jón Helgi Hálfdanarson segir málverkið hafa gengið í
karllegg frá Jóni biskupi til sonar hans, Hálfdanar pró-
fasts á Mosfelli og að lokum hafnað í stofunni hjá þeim
hjónum í Hveragerði. „Mér finnst nú satt að segja mál-
verkið eiga betur heima á Biskupsstofu en heima í stofu.
Ég veit líka að börnin mín ásælast ekki málverkið. Ungt
fólk vill ekki hafa gamla mynd af karli inn í stofu hjá sér,
hversu merkilegur sem karlinn nú annars var,“ segir Jón
Helgi hlæjandi.
Í minningu föður síns
Málverkið gefa þau hjónin Jón Helgi og Jóna Ein-
arsdóttir í minningu föður Jóns, Hálfdanar Jónssonar
prófasts á Mosfelli. Hann segir föður sinn hafa dáið um
aldur fram, 56 ára, og bar dauða hans sviplega að. „Við
vorum að keyra yfir Hellisheiðina í kolvitlausu veðri þeg-
ar pabbi dó skyndilega, fékk hjartaáfall. Hann hefur þó
skynjað feigðina því skömmu fyrir dauða sinn var hann
beðinn um að bjóða sig fram til biskups en hafnaði því al-
farið, mörgum til undrunar.“
Braut prestlegginn
Jón Helgi er af miklum prestaættum. „Ég er sá níundi
í karllegg en brýt prestlegginn. Hins vegar hef ég verið
meðhjálpari í Hveragerði frá því kirkjan var byggð 1972.
Þá var ég með útfararþjónustu Suðurlands í 30 ár.“
Jón Helgi segist munu sakna langafa síns af veggnum í
stofunni sinni. „Hann hefur þolað ýmislegt með okkur,
m.a. tvo Suðurlandsskjálfta. Það verður vonandi rólegra
hjá honum á Biskupsstofu sem ég veit að er verðugur
eigandi þessa merka málverks og mun veita því sóma.“
Málverkið á betur heima á
Biskupsstofu en heima í stofu
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Líkir Jón Helgi við málverkið af langafa sínum, Helga
Hálfdanarsyni. Ekki leikur vafi á að þeir eru líkir.
800 7000 • siminn.is
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
38
49
4
Það er
Þú geturtalað fyrir12.000 kr.1.000 kr. inneigná mánuði í eittár fylgir.
Einstakur
sumarsími
SONY ERICS
SON G502
Ódýr og flo
ttur 3G sím
i með MP3
spilara, FM
útvarpi, tón
listargreini
og Active S
ync stuðnin
gi. Farðu á
M-ið í síman
um og skoð
aðu Gmail
eða Hotmai
l póstinn hv
ar og hvenæ
r
sem er.
Símalán – ú
tborgun: 90
0 kr.
Aðeins 2.00
0 kr. á mán
uði í 12 má
nuði.
Verð: 24.90
0 kr.