Morgunblaðið - 07.07.2009, Qupperneq 33
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
49.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
HHH
„Ísöld 3 er kjörin fjölskyldumynd sem á örugglega eftir
að njóta vinsælda hjá flestum aldursflokkum”
- S.V., MBL
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
/ AKUREYRI
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 10
THE HANGOVER kl. 8 - 10 12
/ KEFLAVÍK
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 Powers. kl. 11 10
ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 8 L
MANAGEMENT kl. 10 7
/ SELFOSSI
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 Powers. kl. 11 10
YEAR ONE kl. 8 10
TERMINATOR SALVATION kl. 10 14
hefði spáð því, þegar ég byrjaði að
vinna með Marinu fyrir 20 árum, en
hún gerir afar róttæk performans-
verk, að hún myndi vera með sýn-
ingu í Museum of Modern Art? Auð-
vitað vissum við það ekki, en við viss-
um hinsvegar að hún var í fylkingar-
broddi performans-listamanna af
hennar kynslóð og hún er fyrsti per-
formans-listamaðurinn sem var boð-
ið að sýna í MoMA. Vonandi þýðir
það að við skildum snemma mik-
ilvægi verkanna og studdum lista-
manninn. Í gegnum súrt og sætt.“
Að lokum má ég til með að spyrjaSean Kelly að því hvernig hon-
um hafi fundist Feneyjatvíæring-
urinn að þessu sinni, og um list-
kaupstefnuna kunnu í Basel sem er
nýlokið. Hann hugsar sig um.
„Ég hef farið til Feneyja í næstum
of langan tíma,“ segir hann svo og
hlær. „Þetta eru að verða 30 ár …
Ég verð að segja að ég varð fyrir
miklum vonbrigðum að þessu sinni.
Vitaskuld eru góðir hlutir þarna en
við þurfum ekki að fara til Feneyja
til að vita að Bruce Nauman er frá-
bær listamaður. Það var vel við hæfi
að hann fengi þessa athygli og ynni
til helstu verðlauna. En yfir höfuð
varð ég fyrir vonbrigðum með flesta
skálana. Sá tékkneski var góður,
eins sá kanadíski og sá ástralski var
áhugaverður. Ég dáist að Ragnari
Kjartanssyni og þótti hann standa
sig vel í íslenska skálanum. En yf-
irleitt var listin ekki mjög áhuga-
verð. Mér þóttu sýningarnar sem
sýningastjórarnir settu saman vera
frekar þunnar. Lítið bit í þeim.
Að þessu sinni fór ég ekki frá Fen-
eyjum með það á tilfinningunni að
ég hefði kynnst einum einasta nýjum
frábærum listamanni.
Það var ákveðinn léttir að fara til
Basel því allir sem tóku þátt þar
urðu að koma með það besta sem
þeir áttu, þeir urðu að hugsa vand-
lega um markaðinn. Og þótt þetta
hafi ekki verið besta listkaupstefnan
í Basel frá upphafi, hvernig gæti
hún hafa verið það í þessu efnahags-
umhverfi? Hún var svo sannarlega
traust og þarna voru dásamlegir
hlutir að sjá og upplifa. Ætli þetta sé
ekki besta ókeypis sýning sem hald-
in er í heiminum?
Þeir sem voru að selja verk bjugg-
ust við hinu versta en útkoman var
miklu betri en þeir bjuggust við. En
þetta var ekki 2007, svo sannarlega
ekki, en heldur ekki eins og nið-
ursveiflan 1989. Markaðurinn er
furðu traustur.“
Við Kelly stöndum upp af bekkn-
um og hann beinir spurningunum
aftur að mér: „Hvaða listamenn hér
eru góðir? Og af hverju eru þeir ekki
þekktari erlendis en raun ber vitni?“
Býsna góðar spurningar.
þetta vel
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
NÚ er haldin á mbl.is ljósmyndasamkeppni mbl.is og Canon.
Mynd vikunnar í ljósmyndasamkeppninni vikuna 5. til 11. júlí nefnist
„Svíf á vængjum drauma“ en á myndinni má sjá Jessicu Ísól nýkomna
heim af spítalanum, sofandi í sínu fyrsta rúmi í fyrsta skiptið. Ljósmynd-
arinn heitir Linda Björk Sigurðardóttir og er búsett á Akureyri.
Ljósmyndasamkeppnin er opin öllum áhugamönnum um ljósmyndun.
Mynd vikunnar
ÞAÐ voru hljómsveitin Hjaltalín og
píanóljónið Víkingur Heiðar Ólafs-
son sem hleyptu af stokkunum Ís-
lensku tónlistarsumri í tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu við Reykjavík-
urhöfn í gær en Íslenskt tónlistar-
sumar 2009 er samstarfsverkefni
Samtóns og fjölmiðla.
Veglegum flygli og hljóðkerfi var
komið fyrir í tónleikasal á 3. hæð
hússins og gæddu gestir sér á heitri
súpu og brauði í tónleikahléi. Mið-
borgarstjórinn Jakob Frímann
Magnússon, formaður Samtóns,
STEFs, FTT og aðalskipuleggjandi
tónleikanna, var kampakátur þegar
blaðamaður ræddi við hann í gær.
Handklæði á trommusettið
Jakob sagði þetta hafa verið
„sögulega stund“ og að það væri ein-
læg sannfæring aðstandenda tón-
leikanna að bygging tónlistarhúss-
ins væri eitthvað það besta sem væri
að gerast á Íslandi um þessar mund-
ir og myndi virka sem segulkraftur í
framtíðinni á gesti frá öllum heims-
hornum. Gæsahúðin hefði hríslast
um tónleikagesti þegar Víkingur
Heiðar hóf tónleikana með mögn-
uðum flutningi sínum á íslenska
þjóðsöngnum og hefði nýtt sér vel
„ódempaða bergmálskosti“ hússins.
Jakob segir hljómsveitina Hjaltalín
ekki síðuar hafa höndlað hljómburð
vel, m.a. haldið hljómstyrk í skefjum
með því að leggja handklæði yfir
trommusettið.
Fjölmargir tónlistarviðburðir í
boði á næstu dögum og vikum, m.a.
hádegistónleikar forsprakka
Sprengjuhallarinnar, Snorra Helga-
sonar, og lúðrasveitar á þaki Hljóm-
skálans í hádeginu í dag og garð-
veislutónleikar Megasar og
Senuþjófanna í Hljómskálagarð-
inum, föstudagskvöldið n.k., 10. júlí,
kl. 20.30. Nánari upplýsingar á ftt.is,
samtonn.is og fih.is.
helgisnaer@mbl.is
Hjaltalín Vel búin undir hljómburðinn lögðu þau handklæði á trommusettið. Víkingur Heiðar Sló hvergi af á flyglinum, flutti m.a. þjóðsöng Íslands.
Hjálmar Það er ekki á hverjum degi sem menn fá að spila í hálfkláruðu tónlistarhúsi með ódempaða bergmálskosti.
„Söguleg stund“
Vel tókst að nýta „ódempaða berg-
málskosti“ tónlistar- og ráðstefnu-
hússins á hádegistónleikum í gær
Tískan í dag? Köflótt, gult og bassi.
Morgunblaðið/Heiddi