Morgunblaðið - 08.07.2009, Side 1

Morgunblaðið - 08.07.2009, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. J Ú L Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 183. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is Umsóknarfrestur um nám á Bifröst rennur út á föstudaginn. umsóknar-fresturertil10. júlí Skráðu þig núna í dag á bifrost.is E N N E M M / S ÍA / N M 3 8 5 5 9 «BÆJARPRÝÐI Á SAUÐÁRKRÓKI SAGAN LIFNAR VIÐ Í NÝJUM KAFFI KRÓK «FEGURÐARBÚÐIR SNORRA Sjálfsmynd þjóðar endurhönnuð Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SJÓVÁ átti ekki fyrir vátrygg- ingaskuld sinni og leggja þurfti fé- laginu til fé svo það gæti staðið undir henni. Það er helsta ástæða þess að sérstakur saksóknari rannsakar nú hvort færsla á fjárfestingaeignum úr móðurfélaginu Milestone inn í Sjóvá á síðastliðnum tveimur árum varði við lög um hlutafélög, lög um starf- semi tryggingafélaga eða séu um- boðssvik. Húsleitir voru fram- kvæmdar vegna rannsóknarinnar á tíu stöðum í gær. Meðal annars var leitað í höfuðstöðvum Milestone og Sjóvá og á heimilum helstu stjórn- enda félaganna tveggja. Milestone eignaðist Sjóvá að fullu í byrjun árs 2006. Á næstu tveimur árum voru færðar fjárfestingaeignir inn á efnahagsreikning félagsins sem bókfærðar voru sem 50 millj- arða króna virði. Þessum eignum fylgdu vaxtaberandi skuldir að upp- hæð um 40 milljarðar króna. Þorri þeirra skulda var í erlendum gjald- miðlum. Bæði fjárfestingarnar og vaxtaberandi skuldirnar voru geymdar í dótturfélagi Sjóvár sem var stýrt af félaginu Milestone. Þegar hrun varð á fasteignamark- aði á síðasta ári og íslenska krónan hrundi á sama tíma þá lækkaði virði fjárfestingaeigna Sjóvár afar mikið á sama tíma og skuldirnar ruku upp. Þetta varð til þess að skilanefnd Glitnis þurfti að setja háar upphæðir inn í Sjóvá til að félagið gæti staðið við vátryggingaskuld sína. Heimildir Morgunblaðsins herma að sú upp- hæð hafi numið allt að tíu milljörðum króna. Sjóvá skuldaði í bótasjóð » Morgunblaðið sagði frá rannsókn á Sjóvá í maí » FME vísaði málinu þá til sérstaks saksóknara » M.a. eru grunsemdir uppi um umboðssvik  Sjóvá átti ekki fyrir vátryggingaskuld  Fjárfestingar félagsins hrundu í verði en skuldir hækkuðu  Húsleitir á tíu stöðum í gær vegna rannsóknarinnar  Átti ekki fyrir | 14 STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir sjálfsagt að verða við öllum óskum þingmanna um að- gang að skjölum, bæði drögum, minn- ispunktum og fullkláruðum gögnum, sem varða Icesave-málið. Unnið hafi verið að því að upplýsa um öll gögn, en skýrsla bresku lög- mannsstofunnar Mischon de Reya fyrir utanríkisráðherra hafi aldrei verið á öðru formi en minnispunktum og álitið hálfklárað skjal. Það hafi verið háð mati þeirra sem þekktu viðkomandi skjöl hvort þau ætti að birta op- inberlega. Aðspurður hvort ekki sé rétt að Alþingi fái upplýsingar um öll fyrirliggjandi gögn svo þingmenn geti sjálfir metið hverju þeir þurfi aðgang að, játar Stein- grímur því. „Þessari lagaóvissu, sem stofan bendir á, var haldið fram af hálfu Íslands allan tímann og það var reynt alveg til hinstu stundar, en fékk aldrei neinar undirtektir,“ seg- ir Steingrímur um skýrslu Mischon. „Menn hafa því væntanlega hugsað sér að það bætti ekki við nýrri vitn- eskju fyrir okkur að þessi óvissa væri fyrir hendi.“ Hann segir það hafa verið ákvörðun samninganefndar ríkisins í Icesave-málinu, að ekki var keypt frekari þjónusta frá Mischon. Nefndin hafi haft mikið frelsi til að velja og hafna ráðgjöf, en enginn hörgull hafi verið á þeim sem vildu selja ráðgjöf sína dýru verði.  Alvarleg svik við Alþingi | 9 Þingmenn fái að sjá öll Icesave gögn - líka þau hálfkláruðu Lagaóvissan var ekki ný Steingrímur J. Sigfússon ASKUR Yggdrasils rammar inn sýningu um hinn forna hugmyndaheim norrænna manna sem opnuð verður á morgun á Iðavöllum, setri norrænn- ar goðafræði í Hveragerði. Miðgarðsormurinn bítur í sporð sér í forgrunni. Við heimstréð eru Ingunn Ásdísardóttir, hugmyndahöfundur sýning- arinnar Urðarbrunns, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, höfundur myndanna, og Guðbrandur Gíslason, framkvæmdastjóri Iðavalla. | 18 SEGJA GOÐSÖGUR Í URÐARBRUNNI Morgunblaðið/RAX  Guðrún Norberg, sem nýlega varð 67 ára og lækkaði starfshlut- fall sitt á leikskóla í 50%, telur sér ekki annað fært en að fara aftur í fullt starf. Það er vegna breytinga á frítekjumarki sem samþykktar voru á Alþingi í síðustu viku. Guð- rún segist engan fyrirvara hafa fengið heldur hafi hún séð skerð- ingu ellilífeyrisins í heimabank- anum um síðustu mánaðamót: „Ég var reyndar búin að fylgjast svolítið með umræðunni inni á Alþingi en mér fannst það óskaplega furðulegt að það var engar upplýsingar að finna á TR eða neitt slíkt heldur birtist þetta bara svona, í heima- bankanum án fyrirvara.“ »8 Getur ekki minnkað vinn- una vegna skerts lífeyris Í vinnunni Guðrún Norberg ásamt börnunum á leikskólanum.  KONA á miðj- um aldri hefur búið um sig í kúlutjaldi á auðri byggingarlóð við Ánanaust í Reykjavík þar sem til stóð að reisa lúxusíbúðir. Íbúar í hverf- inu eru ósáttir við stöðu mála og segja börn í nágrenninu skelkuð en lögregla og félagsmálayfirvöld segjast hinsvegar í raun lítið geta aðhafst gagnvart heimilislausum á meðan þeir kjósa sjálfir að þiggja ekki aðstoð. »2 Heimilislaus í kúlutjaldi og búslóðin undir plastdúk  Rætt hefur verið um að tveir af mörgum sparisjóðum sem nú eru í vanda, Sparisjóður Keflavíkur (SPKef) og Byr sparisjóður, verði sameinaðir ríkisbönkum. SPKef yrði hluti af Landsbankanum og Byr rynni saman við Íslandsbanka. Þetta er samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. »6 Mögulegt að Byr og SPKef renni inn í ríkisbankana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.