Morgunblaðið - 08.07.2009, Page 2

Morgunblaðið - 08.07.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 fyrir alla sem www.gottimatinn.is fituminnstagrillsósan! loksinsfáanlegiraftur! góðir með grillmatnum – Tilbúnir til notkunar! Þarf í mesta lagi að setja þá í skál. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -1 0 9 7 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is Á AUÐRI lóð við Ánanaust stendur lítið kúlutjald og garðstólar faldir milli illgresis og ætihvannar. Við fyrstu sýn mætti halda að þar hefði sérkennilegur staður verið valinn fyrir söluútstillingu en við nánari skoðun gefa tómar matarumbúðir og föt á snúru annað til kynna. Raunin er sú að í þessu tjaldi hef- ur kona á miðjum aldri komið sér fyrir og búið undanfarnar 5 vikur við heldur þröngan kost. Áður sótti hún meðal annars skjól í Konukoti, þar til hún kaus að koma sér heldur fyrir á eigin vegum á hin- um svokallaða Héðinsreit, þar sem áður stóð til að reisa lúxusíbúðir fyr- ir eldri borgara. Kúlutjaldið er öllu lágreistara en íbúðirnar sem deili- skipulagið gerði ráð fyrir en það hef- ur þó ekki farið fram hjá íbúum í nærliggjandi húsum við Vesturgötu sem hafa ítrekað haft samband við bæði lögreglu og félagsmálayfirvöld vegna ástandsins á reitnum. Að sögn íbúa sem Morgunblaðið ræddi við fara börnin í nágrenninu ekki jafnfrjálslega ferða sinna og áð- ur vegna ástandsins. Þá sé það lítil prýði við áður niðurníddan reit að þar rísi byggð heimilislausra. Lögreglan hefur hinsvegar ekki séð ástæðu til beinna afskipta og segist í raun ekki hafa forsendur til að grípa inn í mál sem þessi nema hætta stafi af fólkinu. Heimilisleysi ekki lögreglumál Lögreglan segist í sjálfu sér lítið geta gert gagnvart heimilislausum annað en að hafa auga með þeim til að ganga úr skugga um að allt sé í lagi. Allt umfram það er á könnu fé- lagsmálayfirvalda. Gagnvart hjálp- arstofnunum er málið hinsvegar ekki svo einfalt heldur, þegar um er að ræða einstaklinga sem virðast ekki vilja þiggja hjálp. Að sögn Kristínar Guðmunds- dóttur, verkefnisstjóra hjá Rauða krossinum, getur oft virst í svona til- fellum sem ekkert sé gert fyrir þá sem eigi undir högg að sækja. Þá þurfi hinsvegar að hafa í huga að fólk hafi sjálfræði til að velja og ekki sé hægt að þvinga aðstoð upp á þann sem ekki vill þiggja hana. Kom sér fyrir í kúlutjaldi  Heimilislaus kona hefur búið sér heimili í tjaldi við Ánanaust  Nágrönnum líst illa á þróunina og hafa ítrekað haft samband við lögreglu og félagsmálayfirvöld Morgunblaðið/Eggert Heimili? Í óræktinni stendur tjaldið og skammt frá búslóðin undir plastdúk. „STAÐAN er mjög viðkvæm í þjóðfélaginu og ég get alveg ímyndað mér að það séu mjög margir sem fyllist reiði við tilhugs- unina,“ segir Þórður B. Sig- urðsson, formað- ur Hagsmunasamtaka heimilanna. Fréttablaðið sagði frá því í gær að Björgólfsfeðgar hefðu gert Kaup- þingi tilboð um að greiða 40-50% af 6 milljarða skuld sinni við bankann. Í kjölfarið varaði Vilhjálmur Bjarna- son við því í Kastljósi að yrði Kaup- þing við óskum Björgólfsfeðga væri hætt við því að út brytist borgara- styrjöld. Þórður segir mat Vilhjálms á ástandinu ekki úr lausu lofti gripið. Reiðin sé mikil og hugrenninga- tengsl við Icesave óhjákvæmileg. „En burtséð frá því hver á í hlut verða allir að sitja við sama borð. Við stöndum frammi fyrir kerfisbundnu vandamáli og það ber að leysa á kerfisbundinn hátt.“ una@mbl.is Varað við borgara- styrjöld Jafnt verður yfir alla skuldara að ganga Björgólfsfeðgar vilja borga 50%. ALLS höfðu 118 fasteignir verið seldar nauðung- arsölu hjá sýslu- manninum í Reykjavík á þessu ári nú í lok júní. Þar af voru 6 seldar í janúar, 29 í febrúar, 37 í mars, 20 í apríl, 15 í maí, 11 í júní. Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna fasteigna voru í lok júní 1.125; þar af 216 í janúar, 156 í febrúar, 187 í mars, 134 í apríl, 207 í maí, 225 í júní. Árið 2008 var 161 fasteign seld nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík. Alls voru 2.277 nauðung- arsölubeiðnir skráðar 2008. 118 eignir seldar nauð- ungarsölu Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is KARLMAÐUR var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í átta ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og gróf kynferðisbrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Heimilisofbeldið stóð í tæp tvö ár, á árunum 2006 til 2008. Neyddi hann konuna til samræðis og annarra kyn- maka við ellefu aðra karlmenn. Myndir og myndbönd sýndu merki um miklar barsmíðar. Þá fólst hluti ofbeld- isins í því að maðurinn fékk ókunnuga karlmenn, sem stundum voru fleiri en einn, til að hafa samræði við kon- una gegn hennar vilja. Þetta ljósmyndaði hann eða tók upp á myndband og var jafnvel þátttakandi í athöfnunum sjálfur. Ætlar að áfrýja dómnum Í niðurstöðu héraðsdóms segir að brot mannsins eigi sér enga hliðstæðu í réttarframkvæmd hér á landi og að hann eigi sér engar málsbætur. Ennfremur segir að maðurinn hafi markvisst brotið niður mótstöðuafl sambýliskonu sinnar og gert hana sér undirgefna. Athygli vekur í dómnum að ekki voru aðrir ákærðir í málinu Fram kom hjá Huldu Elsu Björgvins- dóttur saksóknara í fréttum Stöðvar 2 í gær að konan hefði borið vitni um að hún hefði ekki látið í ljós við menn- ina að kynmökin væru gegn vilja hennar þar sem hún hefði þá óttast að maðurinn beitti hana ofbeldi. Þar kom einnig fram að maðurinn hyggst áfrýja dómnum. Átta ár fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot Brotin voru talin án hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd Í HNOTSKURN »Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hafaráðist á föður sinn og hótað honum lífláti. »Manninum er gert að greiða konunni 3,8 millj-ónir króna í miskabætur. »Þyngstu dómar sem fallið hafa á Íslandi fyrireinstaka nauðgun eru fjögurra ára fangelsi. » Í þessu máli var maðurinn talinn hafa gerstsekur um fimmtán nauðgunarbrot. SÁRALÍTIÐ hefur rignt á Akureyri síðasta mán- uðinn, nema einstaka nótt. Nýlega var tyrfð hljóðmön meðfram Miðhúsabraut og í því skyni að halda lífi í grasinu hefur verið gripið til þess ráðs að vökva það hressilega. Máni Jóhannesson verktaki var þar á ferð um níuleytið í gærkvöldi. AKUREYRI VÖKVUÐ Í KVÖLDSÓLINNI Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.