Morgunblaðið - 08.07.2009, Page 9
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÉG lít á það sem alvarleg svik við Al-
þingi að halda þessu til hliðar. Það er
óskiljanlegt hvernig skjal af þessum
toga, sem stílað er sérstaklega á utan-
ríkisráðherra og er til í stjórnkerfinu,
verður útundan við samantekt á
gögnum í málinu,“ segir Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, um skýrslu Mischon de Reya.
Skýrslan bendi til þess að ríkið hafi
ekki ábyrgst skuldbindingar inn-
stæðutryggingasjóðs, en þvert á móti
sé í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
ríkisábyrgðina gengið út frá því að
svo sé. Þetta veki grun um að skjalinu
hafi skipulagt verið haldið til hliðar.
Þór Saari, þingmaður Borgara-
hreyfingar, tekur í sama streng og
segir að ásælni Samfylkingarinnar í
ESB-aðild sé óspart notuð sem vog-
arafl af Bretum og Hollendingum.
Svo geti farið að það áhugamál verði
mjög dýrkeypt fyrir þjóðina.
Báðir segja þeir það útúrsnúning af
hálfu fjármálaráðuneytisins, sem
fram kom í fréttatilkynningu í gær, að
skýrsla Mischon hafi engu bætt við
fyrirliggjandi röksemdir í málinu.
Verið sé að koma sér undan því að
taka mið af áliti sem geti skipt mjög
miklu máli.
„Það virðist vera einbeittur vilji
þeirra sem ráða í þessu máli að taka
stanslaust upp málstað þeirra sem
vilja gera okkur lífið erfitt. Það er
óskiljanlegt því við hljótum öll að vera
í sama bátnum,“ segir Bjarni.
Fulltrúar minnihlutans í utanríkis-
málanefnd kröfðust í gær gagna um
afstöðu bæði Englandsbanka og AGS
í Icesave-málinu, sem vitnað hefur
verið til í umræðu síðustu daga.
Alvarleg svik við Alþingi
Koma sér undan því að taka mið af mikilvægu lögfræðiáliti
Morgunblaðið/Eggert
Skuldaklafinn Margir hafa lýst óánægju sinni með, að þjóðin skuli sitja uppi með Icesave-skuldina, meðal annars á
mótmælafundum á Austurvelli. Hér hefur einn reiknað það út fyrir sína parta hverjar byrðarnar verða.
ÖSSUR Skarp-
héðinsson utan-
ríkisráðherra
segist aldrei hafa
fengið greiningu
bresku lög-
mannstofunnar
Mishcon de Reya
frá 29. mars, sem
stíluð er á utan-
ríkisráðherra, en
þar kemur meðal
annars fram að þess finnist ekki
staður í lögum að Íslendingar beri
ábyrgð á Tryggingasjóði innstæðna
vegna Icesave og lagt er til að lög-
mannsstofan verði fengin til þess að
kryfja málið frekar.
Á forsíðu greiningarinnar, sem
Morgunblaðinu hefur borist, segir
að þetta sé „trúnaðarúttekt fyrir
Össur Skarphéðinsson, utanríkis-
ráðherra Íslands“.
Össur segist hafa setið fund
nokkrum dögum síðar, þar sem
fulltrúar lögmannsstofunnar voru
þátttakendur, en þar hafi ekkert
komið fram um þessa hlið mála.
„Hafi hún verið lögð fram á þess-
um fundi, þá hafði ég hana ekki
með mér af fundinum. Þessi fundur
var haldinn í kaffianddyri hótels
með formanni samninganefndarinn-
ar og fulltrúum Landsbankans í
London. Þær umræður sem ég tók
þátt í á þessum fundi, þar sem ég
átti stutta viðdvöl, lutu að laga-
tæknilegum atriðum vegna fryst-
ingar Breta á eignum og mögu-
leikum til að fá henni aflétt og
sömuleiðis að eignastöðu Lands-
bankans. Þær snerust fyrst og
fremst um Landsbankaleiðina sem
samninganefndin var að velta fyrir
sér að fara. Ég var að heyja mér
efnivið í ýmsa aðra fundi sem ég
átti ytra og það var markmiðið með
þessum fundi.“
– Hafðirðu ekkert heyrt af þessu
áliti?
„Nei, en mér er sagt það sé til,
ekki í mínu ráðuneyti, heldur í fjár-
málaráðuneytinu.“
– Af hverju var það ekki lagt
fram?
„Að því er okkur varðar í utan-
ríkisráðuneytinu, þá er það einfald-
lega vegna þess að gögnin voru ekki
þar og menn kannast ekki við þau.“
– Þú veist ekki af hverju fjár-
málaráðuneytið lagði þau ekki
fram?
„Nei, ég hef ekki vitað af þessu
og það er klárt að ég fór ekki með
það af þessum fundi.“
Össur sagði í viðtali á Mbl.is í
gær, að þessir punktar breyttu
engu um stöðu málsins: „Það hafa
verið efasemdir og deilur meðal Ís-
lendinga um það hverjar skuldbind-
ingar okkar eru, en flestir þessara
punkta sem eru í frétt Morgun-
blaðsins varðandi þessi atriði, þeir
eru ekki nýir og ég geri engar at-
hugasemdir við þá.“
„Mér er sagt það sé til“
Össur
Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson segir að það, sem hafi komið fram
í frétt á mbl.is, breyti í engu stöðunni í Icesave-málunum
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
Í samantekt bresku lögmannsstof-
unnar Mischon de Reya í London,
einnar virtustu lögmannsstofu Bret-
lands, sem hefur unnið fyrir þjóðríki
og stórfyrirtæki á borð við Micro-
soft, fjallar annar kaflinn um
„Ábyrgð íslenskra stjórnvalda sam-
kvæmt tilskipun 94/19/ESB“. Þar
segir orðrétt:
2.1.
Bresk og hollensk stjórnvöld
halda því fram að Ísland sé ábyrgt,
samkvæmt EES-samningnum og
tilskipuninni, til að bæta Icesave-
innstæðueigendum sem nemur lág-
marksupphæð sem tryggja á sam-
kvæmt tilskipuninni, ef til þess
komi, að hinn íslenski Trygg-
ingasjóður innstæðueigenda og fjár-
festa standi ekki undir bótum sem
nemur þeirri upphæð. Spurningin
lýtur að því, hvort Íslandi beri sam-
kvæmt tilskipuninni að tryggja að
Icesave-innstæðueigendur fái lág-
marksgreiðslu, eða Íslendingum
beri einfaldlega að koma upp og
stýra kerfi sem gegni sama tilgangi.
2.2.
Við höfum fengið og erum með til
skoðunar nokkur lögfræðiálit sem
lúta að þessu viðfangsefni, en okkur
skilst að fyrri ríkisstjórn Íslands
hafi aldrei óskað eftir formlegu
bresku lögfræðiáliti um þetta efni.
Við höfum skoðað grannt tilskip-
unina og þau lög sem lúta að mál-
inu. Samkvæmt okkar bráðabirgða-
áliti, þrátt fyrir fáguð lögfræðiálit
breskra og hollenskra stjórnvalda,
þá höfum við ekki sannfærst um að
þau veiti afdráttarlaust svar við
þessari spurningu, einkum þegar
litið er til yfirlýsts markmiðs tilskip-
unarinnar. Evrópskar tilskipanir
eru ekki alltaf fullkomlega skýrar
og þessi er engin undantekning þar
á, og það eru röksemdir á báða
bóga. En við höfum enn ekki fundið
skýr svör sem sýna fram á að Ís-
landi beri skylda til að ábyrgjast
greiðslur Tryggingasjóðs innstæðu-
eigenda og fjárfesta. Þess vegna
teljum við að það sé höfuðatriði fyr-
ir íslensk stjórnvöld að fela okkur
að vinna afdráttarlaust lögfræðiálit
frá leiðandi málafærslumanni.“
2.3.
Okkur skilningur er sá, að bresk
stjórnvöld sæki það fast að ekki sé
skorið úr málinu fyrir óháðum dóm-
stólum. Þess vegna leggjum við til
að óvissan sem felst í afstöðunni,
sem skírskotað er til hér að ofan,
ásamt tregðu Breta til að hætta á
óhagstæðan úrskurð fyrir óháðum
dómstóli, gætu reynst gagnleg
samningatæki.
2.4.
Bresk stjórnvöld kunna að halda
því fram, að hvort sem Íslandi beri
samkvæmt lögum að gera það, þá
hafi Ísland í raun samþykkt að bæta
innstæðueigendum sem nemur lág-
markinu sem kveðið er á um í til-
skipuninni. Það eru nokkrar villandi
og mótsagnakenndar yfirlýsingar í
bréfaskrifum viðskiptaráðuneyt-
isins, þar á meðal bréf sem dagsett
eru 20. ágúst 2008, 5. október 2008
og 16. desember 2008. Engu að síð-
ur álítum við að þessar yfirlýsingar,
þótt þær hjálpi ekki upp á sakirnar,
geri það ekki að verkum, að það sé
lagalega bindandi fyrir Ísland að
fara umfram lagalegar skuldbind-
ingar sínar samkvæmt EES-
samningnum og tilskipuninni.
2.5.
Samþykktu viðmiðin frá 16. nóv-
ember 2008 virðast okkur vera
„kjarni“ málsins, sem voru einfald-
lega lyktir deilunnar á þessum tíma.
Þar er einungis sagt að tilskipunin
eigi við um Ísland á sama hátt og
önnur ESB-ríki. Eftir að tilkynnt
var um samþykktu viðmiðin, gáfu
nokkrir ráðherrar engu að síður
ákveðnar yfirlýsingar sem fólu í sér
að Ísland væri skuldbundið til að
tryggja greiðslur frá Trygg-
ingasjóði innstæðueigenda og fjár-
festa. En við lítum ekki svo á að
þær yfirlýsingar hafi nein rétt-
aráhrif.
2.6.
Hvað varðar minnisblað um sam-
komulag við hollensk yfirvöld, þá
var gengið út frá því í því skjali, að
skilmálar yrðu útfærðir frekar í
öðru skjali. En ekkert slíkt skjal var
unnið og Hollendingar færðu aldrei
neinar fjárhæðir til Tryggingasjóðs
innstæðueigenda og fjárfesta eins
og kveðið var á um í minnisblaðinu.
Ennfremur, þá var ekkert minnis-
blað nokkurn tíma samið milli Ís-
lands og Bretlands.
2.7.
Í stuttu máli, þá höfum við hvorki
fundið neina skriflega staðfestingu
þess að Ísland hafi formlega und-
irgengist að ábyrgjast skuldbind-
ingar Tryggingasjóðs innstæðueig-
enda og fjárfesta, hvað varðar
Icesave-innstæðurnar, né undir-
gengist aðrar skuldbindingar en
þær sem felast í tilskipuninni eins
og hún var innleidd í lögum 98/
1999.“
Ábyrgð Íslands á
Icesave ekki skýr
Í HNOTSKURN
»Í samantekt úttektar Mis-hcon de Reya segir:
„Bráðabirgðaálit okkar er
ósammála lögfræðiálitum sem
við höfum fengið og voru unn-
in fyrir Breta og Hollendinga
með hliðsjón af tilskipuninni.
Okkar álit er að tilskipunin sé
ekki skýr og að það séu gild
rök á báða vegu. Með öðrum
orðum, við erum ekki sam-
mála því að ábyrgð Íslands sé
skýr samkvæmt EES-samn-
ingnum og við teljum að það
væri mjög gagnlegt fyrir ís-
lensk stjórnvöld að fá okkur til
að útvega lögfræðiálit leiðandi
málafærslumanns í þessu efni
til að bæta úr því ójafnvægi
sem til staðar er út frá laga-
legu sjónarmiði.“
„ÞAÐ er ótrúlegt að stjórnvöld ætli að
berja hausnum við steininn eftir að
hafa séð þetta lögfræðiálit og að
hlusta á útskýringar Össurar Skarp-
héðinssonar um að þetta komi Icesave
ekki við,“ segir Höskuldur Þórhalls-
son, þingmaður Framsóknarflokks-
ins.
„Sérstaklega í ljósi þess að það er
tiltekið í greinargerðinni sjálfri með
frumvarpinu um Icesave-samninginn
að það hafi verið leitað til þessarar
lögmannsstofu út af Icesave-málinu.“
Höskuldur kom með fyrirspurn í þinginu í síðustu viku
um hvort það ætti eftir að leggja einhver gögn fram sem
vörpuðu frekara ljósi á málið. „Því miður staðfestir þetta
grun minn um að stjórnvöld leggi ekki fram gögn sem
eru þeim óþægileg. Nú benda menn hver á annan, Össur
bendir á fjármálaráðuneytið en einhver er ekki að fara að
með rétt mál.“
Hann segir að þess hafi verið krafist í fjárlaganefnd í
gær að öll gögn yrðu lögð fram eins og hann hefði krafist
frá upphafi. „Það er þingmanna að meta hvort þau eigi
erindi í umræðuna. Það mætti halda að ríkisstjórnin væri
með höfuð úr grjóti og að það eigi að keyra í gegn þessa
samninga, jafnvel þótt öll rök mæli gegn því. Nú hefur
bresk lögmannsstofa tekið undir það sjónarmið sem Stef-
án Már Stefánsson prófessor og Lárus Blöndal hæsta-
réttarlögmaður hafa haldið fram. Og ég hef ekki heyrt
neinn íslenskan lögmann halda því fram að íslenska ríkið
beri ábyrgð á Icesave-innstæðunum umfram það sem var
í innstæðutryggingasjóði.“
Berja hausnum við steininn
Höskuldur Þórhallsson segir ráðherra benda hver á annan og
telur ríkisstjórnina ekki vilja leggja fram óþægileg gögn
Höskuldur
Þórhallsson
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsala
LAXÁ Á REFASVEIT
Það var að losna holl 19.-21. júlí
Eigum laust: 1 holl í ágúst · 4 holl í september
Upplýsingar veitir Stefán í síma 898-3440