Morgunblaðið - 08.07.2009, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
RANNSÓKN sérstaks saksókn-
ara á málefnum Sjóvár á sér tölu-
verðan aðdraganda. Hún snýr að því
að fé úr vátryggingarekstri félagsins
hafi verið notað í fjárfesting-
arstarfsemi þess. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að þetta komi
nokkuð skýrt fram í ársreikningi Sjó-
vár fyrir árið 2008, sem hefur enn
ekki verið birtur, en þar er staðfest
að tap á rekstri félagsins var gríð-
arlegt. Það markast af því að fjár-
festingar á borð við fasteignir og
fasteignaþróunarverkefni sem settar
höfðu verið inn í félagið hrundu í
verði á sama tíma og vaxtaberandi
skuldir þess, sem voru að mestu leyti
í erlendum gjaldmiðlum, ruku upp
þegar íslenska krónan féll. Þessi þró-
un varð til þess að vátrygginga-
starfsemi Sjóvár var ekki lengur
sjálfbær, enda hefur skilanefnd
Glitnis staðfest að hún hafi þurft að
leggja nýju félagi sem stofnað var
um tryggingareksturinn til afar háar
fjárhæðir þar sem það átti ekki fyrir
vátryggingaskuld sinni, hinum svo-
kallaða bótasjóði. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að skilanefndin
hafi lagt félaginu til allt að tíu millj-
arða króna en vátryggingaskuld þess
var rúmir 23 milljarðar króna í árs-
lok 2007.
Inni í efnahag en án yfirráða
Þegar Milestone keypti Sjóvá var
tekin meðvituð ákvörðun um að að-
skilja fjárfestingarstarfsemi félags-
ins frá vátryggingastarfseminni til að
ekki væri hægt að stoppa upp í tap-
rekstur af tryggingarekstrinum með
fjárfestingarhagnaði. Milestone sá
ætíð um fjárfestingarhlutann en
stjórnendur Sjóvar sáu um trygging-
arnar. Fjárfestingunum var hins
vegar haldið á efahagsreikningi Sjó-
vár, þótt félagið kæmi ekkert að
þeim.
Í árslok 2005, skömmu áður en
Milestone eignaðist Sjóvá að fullu,
námu eignir félagsins um 36 millj-
örðum króna. Vátryggingaskuldin
nam þá um 20,7 milljörðum króna og
stærð hennar var því um 60 prósent
af eignum félagsins. Á þessum tíma
skuldaði Sjóvá lánastofnunum 150
milljónir króna. Það var með öðrum
orðum afar venjulegt tryggingafélag.
Tveimur árum síðar námu eignir
98,9 milljörðum króna. Þar af voru
svokallaðar fjárfestingareignir sagð-
ar um 50 milljarða króna virði. Það
voru fasteigna- og þróunarverkefni
víðs vegar um heiminn, meðal annars
í Macau og Milwaukee. Þegar á
reyndi voru þessar eignir ekki nærri
jafn mikils virði og bókfært virði
þeirra sagði til um. Vaxtaberandi
skuldir Sjóvár við lánastofnanir
höfðu aukist gífurlega á þessum
tveimur árum eða í um 40 milljarða
króna. Á sama tíma hafði vátrygg-
ingaskuldin/bótasjóðurinn vaxið um
2,6 milljarða og einungis um 23 pró-
sent af eignum félagsins.
Viðskiptaskuld gerð upp
Hluti þeirra fjárfestingareigna,
sem voru settar inn í Sjóvá, kom það-
an frá Milestone, m.a. til að jafna út
viðskiptaskuld. Forsvarsmenn Sjó-
vár og Milestone hafa ekki viljað
svara því hvernig hún varð til. Aðrar
eignir sem komu inn keypti Sjóvá af
Askar Capital, fjárfestingarbanka
samsteypunnar. Þessar tilfærslur á
eignum eru til rannsóknar hjá emb-
ætti sérstaks saksóknara en rök-
studdur grunur leikur á um brot á
hlutafélagalögum, lögum um starf-
semi tryggingafélaga og að umboðss-
vik hafi verið framin.
Tryggingafélagið Sjóvá átti ekki
lengur fyrir vátryggingaskuld
Sérstakur saksóknari rannsakar eignatilfærslur frá Milestone Áhættufjárfestingar felldu Sjóvá
Vaxandi skuldir og fallandi eigna-
virði áhættufjárfestinga varð til
þess að Sjóvá átti ekki fyrir vá-
tryggingaskuld sinni. Þetta er
það sem er undir í rannsókn sér-
staks saksóknara á Sjóvá og
Milestone.
RÚV
Húsleitir Á þriðja tug manna á vegum sérstaks saksóknara leitaði víða
vegna rannsóknarinnar, í fyrirtækjum og á einkaheimilum.
Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
FULLTRÚAR embættis sérstaks
saksóknara fóru fyrir hádegi í gær í
húsleit á sjö stöðum í tengslum við
rannsókn á fjárfestingum og lána-
starfsemi vátryggingafélagsins Sjó-
vár – Almennra trygginga.
Þegar leið á daginn var leitað á
þremur stöðum til viðbótar. Þar á
meðal á tveimur stöðum þar sem
tvö félög tengd Sjóvá og Milestone
eru hýst og að lokum hjá inter-
netfyrirtæki sem hýsir tölvupóst-
þjóna, sem tengjast umræddum fyr-
irtækjum.
Haldleggja gríðarlegt magn
„Það er verið að haldleggja gríð-
arlegt magn af annars vegar raf-
rænum gögnum og hins vegar af
pappír. Og síðan fer næst fram úr-
vinnsla á því,“ sagði Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari, í
viðtali við mbl–sjónvarp í gær.
Í tilkynningu frá embætti Ólafs
kom fram að til rannsóknar væri
grunur um meint brot á lögum um
hlutafélög, brot á lögum um vá-
tryggingastarfsemi og eftir atvikum
brot á auðgunarbrotakafla hegning-
arlaga í tengslum við ráðstafanir á
fjármunum Sjóvar.
25 manns tóku þátt í húsleitum
Alls tóku um 25 manns þátt í að-
gerðunum í gær. Auk starfsmanna
embættis sérstaks saksóknara tóku
þátt lögreglumenn frá lögreglu-
stjóranum á höfuðborgarsvæðinu og
efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra auk starfsmanna frá
Fjármálaeftirlitinu.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var leitað að gögnum hjá
Milestone, Sjóvá og Askar Capital.
Milestone réð yfir Sjóvá og Askar í
gegnum sænska félagið Moderna.
Að auki var farið inn á heimili
Þórs Sigfússonar, fyrrverandi for-
stjóra Sjóvár, Guðmundar Ólasonar,
forstjóra Milestone, og Karls Wern-
erssonar, stjórnarformanns Mile-
stone. Ekki var leitað heima hjá
bróður Karls, Steingrími Werners-
syni, sem einnig er í stjórn Mile-
stone samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Að auki var farið inn á skrifstofur
Samtaka atvinnulífsins, þar sem
Þór Sigfússon gegnir formennsku,
og leitað í tölvu hans þar.
!" #
!
"
#
$
$
% %
& '
(% )
( &*"
+ %" ,-
(
&. (% '%/
%, ,. (% '0
'
1
( "("&( ) ,
2 3 4 5 6
7 8 5 9 : ; 2
: 2 < ! = 2
Fóru samtímis inn í
húsleit á sjö stöðum
Fóru inn í internetfyrirtæki sem hýsir tölvupóstþjóna
ÞÓR Sigfússon, fyrrverandi for-
stjóri Sjóvár, segir að ekki verði
tekin ákvörðun um framtíð hans í
formennsku Samtaka atvinnulífsins
fyrr en það liggi fyrir hver staða
hans í yfirstandandi rannsókn er.
Í tilkynningu frá Samtökum iðn-
aðarins í gær segir að Þór sé í sum-
arfríi og taki ekki þátt í störfum SA
á meðan. Vonast sé til að þegar
hann komi aftur úr fríi undir lok
mánaðarins liggi réttarstaða hans í
málinu fyrir.
„Við erum bara leitarþolar, ekki
sakborningar, eins og staðan er í
dag,“ segir Þór.
Aðspurður að hverju var verið að
leita segist hann gera ráð fyrir því
að verið sé að skoða fjárfestingar
Sjóvár og hvernig þær hafa þróast.
„Ég veit ekki til þess að neitt
óeðlilegt hafi farið þar fram eða
lögbrot. Í mínu tilfelli hef ég staðið
heiðarlega að öllu sem ég hef tekið
mér fyrir hendur,“ segir hann.
„Mitt verkefni var fyrst og
fremst að sinna vátrygginga-
starfsemi félagsins. Eigendur höfðu
með höndum fjárfestingarstefn-
una.“
Guðmundur Ólason, forstjóri
Milestone, sem átti Sjóvá í gegnum
sænska félagið Moderna, er að
sumu leyti ánægður að þetta mál sé
skoðað ofan í kjölinn. Allar upplýs-
ingar hafi lengi verið uppi á borð-
um enda starfsemin háð ströngu
opinberu eftirliti.
Guðmundur segist fyrst hafa
fengið staðfestingu á því að sér-
stakur saksóknari hefði þessi mál
til rannsóknar. Hann hafi ekkert
heyrt frá starfsmönnum embættis-
ins og ekki verið boðaður í viðtal.
Jóhannes Sigurðsson, aðstoð-
arforstjóri Milestone, segist hafa
afhent fulltrúum sérstaks saksókn-
ara, sem gerðu húsleit á skrif-
stofum félagsins í gær, öll umbeðin
gögn.
Hörður Arnarson, sem tók ný-
lega við forstjórastarfinu af Þór
Sigfússyni, segir að hald hafi verið
lagt á ýmiskonar gögn fyrirtæk-
isins.
Hörður segir að fulltrúar sér-
staks saksóknara hafi í raun verið í
gagnasöfnun vegna fjárfesting-
arstarfsemi félagsins en ekki
tryggingastarfseminnar. Hann seg-
ir að erfitt sé að gera sér grein fyr-
ir því hversu mikið magn gagna
hafi verið lagt hald á þar sem flest
gögnin séu í tölvutæku formi.
Einnig var leitað heima hjá Karli
Wernerssyni, sem er annar aðaleig-
andi Milestone ásamt bróður sínum
Steingrími Wernerssyni. Ekki náð-
ist í Karl í gær til að spyrja hann út
í rannsóknina.
bjorgvin@mbl.is, guna@mbl.is,
helgivifill@mbl.is
Framtíð Þórs hjá
SA ræðst eftir að
réttarstaða er ljós
Segir eigendur
hafa ráðið fjár-
festingum Sjóvár
Karl Wernersson
Guðmundur Ólason Hörður Arnarson
Þór Sigfússon
Húsleitir vegna Sjóvár