Morgunblaðið - 08.07.2009, Síða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
91>
91>
?
?
91>
!>
?
?
@"A4"(
B C
?
?
$-
@>
?
?
91> 91>
?
?
Þetta helst ...
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
styrktist lítillega í viðskiptum gær-
dagsins, eða um 0,36%. Lokagildi vísi-
tölunnar var 746,29 stig.
Mest velta var með bréf Alfesca án
þess að breyting yrði á gengi bréfanna.
Nam veltan 38,7 milljónum króna, en
heildarvelta með hlutabréf í Kauphöll-
inni nam rúmum 46 milljónum króna.
Bréf Marels lækkuðu um 0,9% en Öss-
ur styrktist um 0,88%. bjarni@mbl.is
Lítil velta í Kauphöllinni
● SÆNSKIR bank-
ar, sem eru
stærstu lánveit-
endur Eystrasalts-
landanna, gætu
verið að stofna í
hættu björgunar-
aðgerðum í Lett-
landi með því að láta útibúin í landinu
ekki fá fé til útlána, samkvæmt vinnu-
skjali frá framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins og Bloomberg greinir frá.
Merki er um að dótturfélög sænskra
banka séu að endurgreiða móð-
urfélögum lán, sem skapar verulegt út-
flæði á evrum, samkvæmt vinnuskjal-
inu. Björgunaraðgerðum í Lettlandi er
stefnt í hættu ef evrur eru þurrkaðar út
í landinu, segir í skjalinu.
helgivifill@mbl.is
Sænskir bankar ógna
stöðugleika í Lettlandi
● VÍKINGUR AK hefur verið notaður til
að flytja afla af miðunum suðaustur af
landinu þar sem mjög góð síld- og mak-
rílveiði hefur verið.
Samkvæmt vef HB Granda fór Vík-
ingur tvívegis til Færeyja síðastliðna
helgi, fyrst á föstudagskvöldið með
rúmlega 1.000 tonna afla og síðan til
Fuglafjarðar í fyrrinótt með svipað
magn.
Aflinn er afrakstur veiða Faxa RE og
Ingunnar AK. Lundey NS var á Vopna-
firði á sunnudag og þar var landað um
1.530 tonna afla samkvæmt vef HB
Granda. bjorgvin@mbl.is
Víkingur flytur afla
af miðunum í land
Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson
Landað Faxi flutti aflann í Víking.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
„VIÐ sáum að það var möguleiki fyr-
ir hendi til að fara inn í HS Orku sem
lítill hluthafi með rúmlega tíu prósent
eignarhlut og um leið hjálpa Geysi
Green Energy og HS Orku fjárhags-
lega,“ segir Ross Beaty, stjórnarfor-
maður og forstjóri kanadíska fyrir-
tækisins Magma Energy, sem ætlar
að kaupa 10,8 prósent hlut í HS Orku.
Kaupin eru hluti af stærra sam-
komulagi milli Reykjanesbæjar og
Geysis Green Energy (GGE). Ef af
þeim verður mun GGE eiga rúmlega
helmingshlut í HS Orku.
Hluturinn gæti orðið stærri
Beaty leggur mikla áherslu á að
Magma Energy ætli sér ekki að
verða ráðandi aðili í HS Orku sem
stendur og hafi engin áform um að
skipta sér af rekstri orkuvera fyrir-
tækisins.
„Hlutur okkar gæti orðið stærri,
en þetta var sá hlutur sem var í boði
núna. Eftir að þetta skref klárast
gætu skapast tækifæri til að auka
eignarhlut okkar lítillega en við verð-
um bara að horfa á þau þegar þau
bjóðast. Það er ekki rétt að gera það í
dag. Við ætlum okkur ekki að koma
með neinum hætti að rekstri virkjana
HS Orku. Þau eru rekin af einhverj-
um færustu jarðvarmasérfræðingum
í heimi. Þar höfum við engu við að
bæta. Við ætlum okkur heldur ekki
að falast eftir fulltrúa í stjórn félags-
ins. En það sem við getum bætt við
þetta er fjármagn. Við getum bætt
við tækifærum fyrir þá Íslendinga
sem starfa í þessum jarðvarmageira
til að taka þátt í verkefnum á alþjóða-
vísu. Takmark mitt er að byggja upp
heimsklassa fyrirtæki,“ segir for-
stjórinn. Beaty staðfestir að Magma
Energy hafi verið í sambandi við Arc-
tica Finance, sem sér um mögulega
sölu á hlut Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) og Hafnarfjarðar í HS Orku, en
saman eiga þessir aðilar um 32 pró-
sent. „Ég held reyndar að þeir
[innsk. blaðam. OR] hafi sent upplýs-
ingar sínar til um 30 fyrirtækja og við
vorum bara eitt þeirra. Það eru
margir aðrir sem gætu verið áhuga-
samir um að kaupa þann hlut. En það
eru önnur tækifæri innan HS Orku til
að auka hlut okkar lítillega með því
að setja aukið fjármagn inn í fyrir-
tækið í gegnum hlutafjáraukningu.
Með því værum við að hjálpa öllum
hluthöfum fyrirtækisins.“ Ítarlegra
viðtal við Beaty mun birtast í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins á morg-
un.
Magma ætlar sér ekki að
verða ráðandi í HS Orku
Ross Beaty, forstjóri og stjórn-
arformaður Magma Energy.
Ross Beaty, for-
stjóri Magma
Energy, sér tæki-
færi í HS Orku
ÚTLÁN Íbúðalánasjóðs (ÍLS) dróg-
ust saman um 30% á fyrstu sex mán-
uðum ársins, samanborið við sama
tímabil fyrir ári. Útlánin námu 17,4
milljörðum króna á tímabilinu. Í júní
námu lánin rúmlega 2,6 milljörðum
króna. Þar af voru rúmir 1,9 millj-
arðar vegna almennra lána og rúmar
700 milljónir vegna leiguíbúðalána.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu
sjóðsins. Þar kemur fram að ÍLS
keypti safn skuldabréfa af Byr,
tryggðu með veði í íbúðarhúsnæði að
fjárhæð um 2,7 milljarðar króna.
ÍLS greiddi 79% af uppreiknuðu
virði safnsins með afhendingu íbúða-
bréfa. Eftirstöðvarnar, eða 21%, eru
krafa Byrs á Íbúðalánasjóð sem mun
verða gerð upp eftir átta ár. „Til-
gangur þessa er væntanlega að
verja ÍLS fyrir hugsanlegum af-
skriftum,“ segir greiningardeild Ís-
landsbanka. helgivifill@mbl.is
Byr selur
ÍLS skuldir
Útlán ÍLS dragast
saman um 30%
MEÐALVERÐ léna hefur hækkað
37% milli ára í 1.757 pund, sam-
kvæmt upplýsingum frá bandaríska
uppboðsfyrirtækinu Sedo, sem sér-
hæfir sig í lénum.
Í frétt Telegraph segir að nokkur
lén hafi verið seld fyrir háar fjár-
hæðir í ár: Toys.com var selt á 5,1
milljón dollara til leikfangakeðj-
unnar Toys R Us, sem gerir það
fjórða dýrasta lén sögunnar, og
Fly.com var selt á 1,8 milljónir doll-
ara. Dýrasta lén sögunnar er Sex-
.com, selt 2006. helgivifill@mbl.is
Lén hækka
í verði
Fjórða dýrasta lén
sögunnar selt í ár
Ríkisstjórinn, Arnold Schwarz-
enegger, hefur sjálfur sagt að fjár-
hirslur ríkisins séu nú tómar. Hefur
ríkið því gripið til þess ráðs að
greiða sumar skuldbindingar sínar
með skuldaviðurkenningum í stað
reiðufjár. Eru það helst smærri
einkafyrirtæki, sem unnið hafa fyr-
ir ríkið, sem fá greitt með þessum
hætti. Er hugsunin sú að viðtak-
endur geti farið með þær í banka
og fengið þeim skipt fyrir reiðufé,
en Kalifornía greiði svo bankanum
skuldina, með vöxtum, síðar.
Segist Kaliforníuríki munu
greiða þær út í október, að því
gefnu að eitthvað verði til inni á
bankareikningum ríkisins.
Ekki eru allir sannfærðir um að
svo verði, því nokkrir bankar neita
nú að taka við skuldaviðurkenning-
unum. Þá hefur ávöxtunarkrafa á
skuldabréf ríkisins Kaliforníu
hækkað töluvert og er nú um 6%.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MATSFYRIRTÆKIÐ Fitch Ratings
hefur lækkað lánshæfiseinkunn
Kaliforníuríkis í BBB. Einkunnin er
því aðeins einum flokki yfir ein-
kunn Íslands og tveimur flokkum
yfir því sem kallað hefur verið
„draslflokkur“.
Er þetta enn ein birtingarmynd
þess gríðarlega fjárhagsvanda sem
ríkið stendur frammi fyrir, en
hallarekstur Kaliforníu á síðasta
fjárlagaári (sem lauk um síðustu
mánaðamót) nam rúmum 26 millj-
örðum dala, andvirði um 3.330
milljörðum króna.
Lánshæfiseinkunn Kaliforníu-
ríkis lækkuð og framtíðin ótrygg
Fé Skuldaviðurkenningar eru nú
notaðar í stað peninga í Kalíforníu.
Eftir Helga Vífil Júlíusson
helgivifill@mbl.is
GJALDEYRISFORÐINN minnk-
aði um 10% milli mánaða, frá maí til
loka júní. Það er skörp minnkun,
því sé litið til minnkunar forðans frá
áramótum til júní nemur hún 11%.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam
384,1 milljarði króna í lok júní.
Seðlabirgðir og innstæður minnk-
uðu um 49,8 milljarða króna eða um
tæp 25% en erlend verðbréf hækk-
uðu um 7,7 milljarða króna í júní,
samkvæmt nýbirtum gögnum
Seðlabankans.
Seðlabankinn vildi ekki útskýra
minnkunina nánar en að um hreyf-
ingar á gjaldeyrisreikningum inn-
lendra banka í Seðlabankanum væri
að ræða. Sagði starfsmaður Seðla-
bankans í samtali við Morgunblaðið
að lesa mætti úr nýbirtu efnahags-
yfirliti Seðlabankans að bankar
væru að færa erlendan gjaldeyri frá
Íslandi á reikninga erlendis.
Víkjum aðeins að öðrum þáttum
efnahagsyfirlitsins: Nettó innstæð-
ur ríkissjóðs og ríkisstofnana
minnka um 28% milli mánaða og
námu 129,4 milljörðum við lok síð-
ustu mánaðamóta. Meðal ástæðna
þess er að gjalddagi var á ríkisbréf-
um 12. júní en á sama tíma var ekki
selt eins mikið af nýjum ríkisbréf-
um. Aukinheldur aukast almennar
innstæður innlánsstofnana um 43%
sem skýra má með sama hætti í
kjölfar gjalddaga á ríkisbréfum;
ekki var fjárfest í mánuðinum í öðr-
um bréfum, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins.
Grunnfé Seðlabankans minnkaði
um 10% á milli mánaða og nam
322,9 milljörðum króna við lok síð-
asta mánaðar.
Grunnfé er samsett af skuldum
við innlánsstofnanir og seðlum og
mynt í umferð.
Seðlabirgðir og innstæður í Seðlabanka minnkuðu um 25%
Bankar færa háar
fjárhæðir til útlanda
%
&
#EF#G/%
*
(
(
"
+
(( 0
#
#
&# ( , "* , , ( , ,
(, %
% #
● ÁVÖXTUNARKRAFA helstu skulda-
bréfaflokka ríkissjóðs og Íbúðalána-
sjóðs lækkaði í gær, en afar mikil velta
var á skuldabréfamarkaði. Nam hún
22,6 milljörðum króna.
Þrátt fyrir lækkunina er ávöxt-
unarkrafa á tvo lengstu flokka rík-
isskuldabréfa enn yfir hæstu vöxtum á
innlánsreikningum ríkisbankanna.
Á bréfum sem koma á gjalddaga árið
2019 er krafan 8,83%, en 8,76% á bréf-
um sem koma á gjalddaga árið 2025.
Hæstu innlánsvextir ríkisbankanna eru
hins vegar um 8,5%.
Ávöxtunarkrafa stystu ríkisbréf-
anna, þeirra sem koma á gjalddaga í
upphafi næsta árs, hækkaði hins vegar
um 0,10% og er nú 5,97%.
Frá því í upphafi júnímánaðar hefur
ávöxtunarkrafa hækkað smám saman
þar til hún náði ákveðnu hámarki fyrir
helgi. bjarni@mbl.is
Ávöxtunarkrafa lækkaði
í miklum viðskiptum