Morgunblaðið - 08.07.2009, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.07.2009, Qupperneq 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn „Senda inn efni“ veljið „Senda inn minningargrein“ þar sem fram koma nánari leiðbeiningar. Skilafrestur Minningargrein sem á að birta á útfarardegi verður að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Birting getur dregist þó greinin berist innan skilafrests þar sem pláss er takmarkað. Sami skilafrestur er á greinum vegna útfarar í kyrr- þey. Allar greinar birtast jafnframt á vefnum www.mbl.is/minningar Lengd Hámark 3.000 slög. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, „Hinstu kveðju“, 5–15 línur. Formáli Nánustu aðstandendur skulu rita formála og senda inn, skv. leið- beiningum á mbl.is Undirskrift Minningargreinahöfundar noti skírnarnöfn sín undir greinunum. Minningargreinar og skil Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skoðið leiðbeiningar á mbl.is ÍSLENDINGAR eru slyngir sláttumenn t.d. rónarnir sem ráfa um bæinn í leit að ein- hverjum til að fjárfesta með þeim í einni flösku þó ekki sé nema af hár- spíra eða kardi- mommudropum. Aðrir slíkir eru stór- tækari; á hálfum ára- tug tókst örfáum útrás- arvíkingum að slá lán upp á meira en 10 þúsund milljarða króna. Fyrir þau keyptu þeir sér glæsivillur um allan heim, einkaþotur, lystisnekkj- ur og fyrirtæki sem nú eru verðlítil eða verðlaus því viðskiptavit vantaði veslingana þótt slátturinn hafi verið tær snilld. Spurningin er hvort al- menningur geti ekki bara borgað skuldir þeirra. Nei, skuldirnar nema meira en 100 milljónum króna á hverja með- alfjölskyldu og hún á þær ekki og hefur enga von um að eignast þær. Enda setti ríkisstjórnin og forsetinn lög um að þau ætluðu sér ekki að borga megnið af þessum skuldum sem þau hvöttu útrásarvíkingana til að taka. Það á eftir að reyna á þessi einhliða lög fyrir dómstólum en þó að þau geri það fyllilega skuldar þjóðin samt a.m.k. 3 þúsund millj- arða króna. Getum við borgað þær skuldir? Við eigum fyrir þeim því þetta eru ekki nema 10 milljónir á mann eða sem svarar góðri húseign á hverja fjölskyldu og við getum búið í snjó- húsum. En samt ekki borgað lánin, því hver á að kaupa húsin? Skuld- irnar eru líka ekki í krónum heldur í gjald- eyri. Til að geta greitt þessar skuldir þarf að afla gjaldeyris með því að flytja út eitthvað sem útlendingar vilja kaupa, t.d. þýfi eins og hvalkjöt eða makríl- mjöl. Íslendingar flytja nú loksins út jafnmikil vöruverðmæti og þeir flytja inn, sem sýnir að krónan er nú rétt skráð. Árum saman tókst þremur óhæf- um seðlabankastjórum að halda krónunni helmingi of hárri með stöð- ugri skuldasöfnun. Til að geta borg- að þær skuldir dugar auðvitað ekki að halda krónunni réttri heldur verður nú að skrá hana a.m.k. helm- ingi lægra svo nægur vöruskipta- afgangur verði til að greiða þessar skuldir og vextina af þeim. Þjóð sem velur sér óhæfa seðlabankastjóra þótt völ sé á hæfum manni eins og Þorvaldi Gylfasyni sem varaði við skuldasöfnuninni í áratugi á ekki betra skilið en gjaldþrot. Til að ein kynslóð geti greitt skuld upp á 3 þúsund milljarða króna þarf vöruskiptaafgang upp á 300 millj- arða króna og svo mikill er nettóút- flutningurinn ekki. Ein kynslóð gæti því ekki borgað þá skuld þótt stöðv- aður væri allur innflutningur til ann- arra en fyrirtækja í útflutningi. Vaxtagreiðslan af þeirri skuld er þúsund sinnum hærri en sá ágóði sem Landsvirkjun taldi fyrirfram að mundi verða af Kárahnjúkavirkjun. Sem betur fer er megnið af þessari 3 þúsund milljarða króna skuld í hönd- um einkaaðila eins og bygginga- vöruverslana, skipafélaga eða bif- reiðaumboða. Varla þarf almenningur og skattgreiðendur að borga þær líka? Kannski ekki beint, en þær verða að greiðast af sama vöruskipta- afganginum, Séu þær greiddar, ger- ir almenningur það á endanum með lægra gengi krónunnar og hærri húsnæðislánum. Séu þær ekki greiddar gerist ekkert verra en það að erlendir kröfuhafar yfirtaka fyr- irtækin, en líklegast er að fjármunir sem lagðir eru í gjaldþrota fyrirtæki (til að styrkja atvinnulífið?) tapist eins og 350 milljarðarnir sem óhæfu seðlabankastjórarnir veittu bönk- unum dagana fyrir hrun þeirra. Ótalið er svo Icesave-lánið, en bara vextirnir af því eru 40 millj- arðar króna á ári. Icesave-reikning- urinn er þó ekki nema brot af heild- arskuldinni. Verði hann eða bara einhver skuld ríkisins ekki greidd á réttum tíma gjaldfellur öll Icesave-skuldin og Hollendingar yfirtaka eignir ríkisins t.d. Landspítalann, Háskólann, Landsvirkjun og Orkustofnun. Að vísu er ekkert verra að Bretar og Hollendingar eignist allar auðlindir Ísendinga en að Landsvirkjun gefi alræmdum álfyrirtækjum þær og út- gerðir þurrausi þær eða leggi undir í fjárhættuspili. Áratugum saman hefur Landsvirkjun selt stóriðjunni rafmagn undir kostnaðarverði og tekið til þess lán sem hún getur aug- ljóslega ekki borgað. Treystir bara á ríkistryggingu til að geta tekið ný lán þegar skuldin gjaldfellur. Þjóð sem horfir upp á slíkt og ger- ir Jakob Björnsson að orkumála- stjóra á ekki skilið að eiga neinar orkuauðlindir. Ekki heldur fiski- stofna og aðrar náttúruauðlindir ef hún ofnýtir þær bara eða gefur einkavinum. Ég er ekki viss um að vöruskipta- afgangur verði nægilegur til að borga vextina og einhverjar afborg- anir þótt evran verði hækkuð í 500- 1.000 krónur, en það má reyna. Út- flutningur eykst tæpast í evrum þó hún hækki og hefur einhverra hluta vegna minnkað verulega á þessu ári. Og þótt stöðva megi innflutning á bensíni, lyfjum og öðrum óþarfa er þriðjungur innflutningsins ágóði og rekstrarvörur fyrir stóriðjuna (sú- rál) sem ekki er hægt að stöðva. Landsvirkjun og ríkisstjórnin gætu líka reynt að gera nýjan út- sölubækling „Lowest property pri- ces“ til að bæta viðskiptajöfnuðinn, en útlendingar eru varla mjög ginn- keyptir fyrir fasteignum á Íslandi ef hægt er að fá þær næstum eins ódýrt í Zimbabwe. Fyrirgef oss vorar skuldir Eftir Einar Júlíusson » Verði hann eða bara einhver skuld ríkis- ins ekki greidd á rétt- um tíma gjaldfellur öll Icesave-skuldin og Hollendingar yfirtaka eignir ríkisins… Einar Júlíusson Höfundur er eðlisfræðingur. EITT þungbærasta og erfiðasta mál síðari tíma er án nokkurs vafa hvernig greiða skuli úr Icesave- deilunni. Málið er þannig vaxið að það mun valda okkur þung- um búsifjum hvernig sem fer. Verkefnið er því fyrst og fremst að tryggja að sú lausn sem fæst sé frekar til þess fallin að við náum vopnum okk- ar að nýju frekar en að draga það á langinn. Íslensk stjórnvöld hafa náð sam- komulagi í deilunni og bíður það staðfestingar Alþingis. Hér verður hvorki lagt mat á þá atburðarás sem leiddi til þessa samnings né hvort unnt hefði verið að ná annarri nið- urstöðu. Um það má þræta enda- laust og úr því verður aldrei skorið. Nú stöndum við frammi fyrir þeim vanda að ákveða hvort samning- urinn fái brautargengi á Alþingi með samþykkt frumvarps um ríkis- ábyrgð. Hvað sem segja má um einstök at- riði Icesave-samninganna þarf ekki að fara í grafgötur með hve mikil- vægt það er að ná lendingu í þessu erfiða máli. Niðurstaðan liggur fyrir og er vissulega fengin við erfiðar að- stæður og undir þrýstingi frá al- þjóðasamfélaginu. Við stöndum frammi fyrir miklum efnahagslegum vanda. Stærsta og mikilvægasta verkefni okkar er að efla og treysta atvinnulífið hratt og örugglega svo það geti aflað þjóð- arbúinu tekna til þess að standa undir skuldbindingum sínum. End- urreisa verður traust alþjóða- samfélagsins á því íslenska en það er forsenda þess að íslensk fyrirtæki geti átt eðlileg viðskipti við umheim- inn. Það er líka forsenda þess að ís- lenskt fjármálakerfi komist fætur og eðlileg fjármálaviðskipti við útlönd geti hafist. Takist þetta ekki fljótt og vel verða afleiðingarnar fyrir at- vinnulífið, heimilin og þjóðfélagið allt alvarlegar og gera illt verra. Þess vegna á Alþingi ekki annan kost en að samþykkja frumvarpið. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda að deil- ur um Icesave dragist á langinn með tilheyr- andi frystingu lánafyr- irgreiðslu til Íslands, áframhaldandi óþol- andi óvissu og viðvar- andi útistöðum Íslands við nágrannaríki. Það að hafa slíkt hangandi yfir sér leiðir til frekari einangrunar Íslands og dýpkar og lengir kreppuna. Engin fyr- irtæki geta búið við slíka óvissu, ís- lenskt atvinnulíf getur ekki búið við einangrun. Það getur þjóðin ekki heldur. Sem betur fer eru ýmis teikn á lofti um að við séum að ná tökum á ástandinu og getum farið að horfa fram á veginn. Stöðugleikasáttmáli hefur verið undirritaður á vinnu- markaði og lausnin í Icesave-málinu sem liggur á borðinu hefur greitt fyrir lánafyrirgreiðslu og fram- kvæmd efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Næsta skref er að endurfjármagna nýju bankana svo þeir geti sinnt því grundvallarhlutverki sínu að þjóna íslenskum fyrirtækjum. Þau geta þá skapað atvinnu og fært þjóðarbúinu dýrmætar tekjur. Það væri að mínu mati glapræði að stefna þessum ár- angri í tvísýnu. Stundum koma upp erfið mál sem verður að leysa en enginn kostur virðist góður. Þeim verður samt ekki slegið á frest. Það verður að taka af skarið, takmarka tjónið eins og unnt er og eyða óvissu. Án þess verður ekki haldið fram á við. Icesave er orðið þannig mál. Eftir Jón Steindór Valdimarsson » Það verður að taka af skarið, takmarka tjónið eins og unnt er og eyða óvissu. Án þess verður ekki haldið fram á við. Icesave er orðið þannig mál. Jón Steindór Valdimarsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Óvissan er versti óvinurinn HINN 1. júlí breyttu stjórnvöld lögum um almanna- tryggingar, nr. 70/ 2009. Breytingarnar eru liður í ýmsum ráðstöfunum í ríkis- fjármálum til að mæta yfirstandandi erfiðleikum í efna- hagslífinu. Breyttar greiðsluáætlanir eru nú þegar aðgengileg- ar á þjónustuvefnum tryggur.is. Lífeyrisþegum verða síðan sendar nýjar greiðsluáætlanir í lok júlí. Með breytingunum eru kjör tekju- lægstu lífeyrisþeganna varin með sérstakri uppbót til framfærslu sem sett var með reglugerð á síð- asta ári. Með henni eru lífeyr- isþegum sem búa einir tryggðar 180.000 kr. á mánuði en öðrum 153.500 kr. á mánuði. Breyting- arnar hafa fyrst og fremst áhrif á greiðslur til lífeyrisþega sem njóta tekna úr lífeyrissjóðum eða af at- vinnu til viðbótar greiðslum al- mannatrygginga. Þannig lækka bætur þeirra með vax- andi tekjum og falla alveg niður þegar heildartekjur ná tæp- um fjórum milljónum króna á ári. Helstu breytingar eru raktar hér á eftir: Varðar ellilífeyrisþega: Tekið er upp frí- tekjumark á lífeyr- issjóðstekjur, 10.000 kr. á mánuði, við út- reikning tekjutrygg- ingar. Frítekjumark vegna at- vinnutekna ellilífeyrisþega við útreikninga tekjutryggingar lækk- ar og verður 40.000 kr. á mánuði. Varðar örorkulífeyrisþega: Aldurstengd örorkuuppbót skerðist vegna tekna. Varðar alla lífeyrisþega: Afnám heimildar til að velja á milli frítekjumarks og þess að telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutrygg- ingar. Lífeyrissjóðstekjur hafa áhrif á útreikning grunnlífeyris. Skerðingarhlutfall tekjutrygg- ingar hækkar úr 38,35% í 45%. Mikilvægt er að tekjuáætlanir líf- eyrisþega sem Tryggingastofnun miðar útreikninga lífeyris við séu vandaðar. Með vandaðri tekju- áætlun er hægt að koma í veg fyr- ir ofgreiðslur eða vangreiðslur sem þarf að leiðrétta síðar. Starfsfólk Tryggingastofnunar á Laugavegi 114 í Reykjavík og um- boða um allt land veitir upplýs- ingar og aðstoðar gjarnan við endurskoðun og gerð tekjuáætl- unar. Eftir Þorgerði Ragnarsdóttur Þorgerður Ragnarsdóttir »Með breytingunum eru kjör tekju- lægstu lífeyrisþeganna varin með sérstakri uppbót til framfærslu sem sett var með reglu- gerð á síðasta ári. Höfundur er framkvæmdastjóri Þjónustu- og kynningarsviðs Tryggingastofnunar. Breytingar á lögum um almannatryggingar Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.