Morgunblaðið - 08.07.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.07.2009, Qupperneq 23
Umræðan 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 Á heimsráðstefnu á vegum „Make Roads Safe“ um öryggi vega sem haldin var í Róm fyrr í þessum mánuði var kynnt herferð til fækkunar banaslysa í umferðinni á heims- vísu undir kjörorðinu „Call for a decade of action for road safety – eða – Ákall fyrir áratugar aðgerðir til að gera vegi örugga.“ Herferð þar sem allir eiga að geta lagt sitt að mörkum s.s. rík- isstjórnir, sveitarfélög, fé- lagasamtök sem og almenningur allur. Í ræðu formannsins Lord Ro- bertson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra NATO kom fram hve mikilvægt það er að herferðin skili árangri en í dag eru dauðsföll í umferðarslysum meira en helmingi fleiri en vegna alnæmis og margfalt fleiri en t.d. vegna malaríu og berkla svo eitthvað sé nefnt. Í framhaldi gerði framkvæmdastjóri Alþjóðabankans skilmerkilega grein fyrir þeim gríðarlega efnahagslega árangri sem aðgerðir til fækkunar slysa skila. En til að það gerist verða pólitískar umræður að færast úr orðum í aðgerðir og þá munum við sjá árangur. Alheimsátak Með samstilltu alþjóðlegu átaki á heimsvísu er markmiðið að fækka látnum í umferðinni um 5 milljónir og 50 milljónum frá alvar- legum áverkum og markar þessi áætlun mikilvægan áfanga í baráttunni. Ef ekkert verður aðhafst er gert ráð fyrir að banaslys- um fjölgi um 10% á ári frá árinu 2010 til árs- ins 2020 eins og fram kemur á meðfylgjandi töflu og verði 1,9 millj- ónir árlega. Með að- gerðum er hins vegar stefnt að því að snúa þessari þróun við og í stað fjölgunar banaslysa á hverju ári þá muni þeim fækka á ársgrundvelli frá árinu 2012 til 2020 þannig að heildarfjöldi látinna verði 900.000 þúsund á ári eða rúmlega 50% færri en núgildandi áætlanir gera ráð fyrir. Eins og fram kemur í ályktun Umferðarráðs hefur á tveimur und- anförnum árum átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun banaslysa í umferðinni, en aldrei hafa þau orðið færri tvö ár í röð á síðustu 40 ár- um. Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa á þessu tímabili er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi. Vonandi tekst að halda áfram á sömu braut á þessu ári með aukinni vitund fólks um mikilvægi ýmissa öryggisþátta í akstri. Þennan ár- angur má þakka hinum ýmsu að- ilum sem hér vinna óeigingjarnt starf í forvarnarmálum í umferðinni ásamt samstilltu átaki FÍB, Um- ferðarstofu, samgönguyfirvalda og fleiri. Eftir 9 ára aðkomu að um- ferðaröryggismálum hafa hag- munaaðilar aldrei unnið eins vel saman og nú er gert en það er grundvöllur árangurs. Öflugt forvarnastarf FÍB Á vegum Félags íslenskra bif- reiðaeiganda er í dag unnið öflugt starf í forvörnum m.a. með tilkomu EuroRAP (European Road Assess- ment Program), sem er gæðaúttekt á öryggi vega. Umhverfi vega er skoðað og staðlað mat lagt á öryggi vegarins, eigi óhapp sér stað. Veg- unum eru gefnar stjörnur fyrir ör- yggi, hliðstætt því sem bílum er gefið í árekstraprófunum EuroN- CAP, sem er systurverkefni Euro- RAP á vegum aðildarfélaga FIA. Saman stuðla þessi kerfi að há- marksöryggi vegfarenda, þ.e. 5 stjörnu bílar á 5 stjörnu vegum með 5 stjörnu hegðun ökumanna. Með þessu verkefni FÍB, markviss- um stuðningi yfirvalda og forvarn- arstarfi Umferðarstofu, Vegagerð- arinnar, tryggingarfélaga og annarra má ná enn betri árangri hér á landi. En til að ná árangri verðum við að hafa skýr markmið og hefur stjórn FÍB nú lagt fram svipaða framtíðarsýn eins og al- heimssamtök í umferðarörygg- ismálum hafa gert en hér er stefn- an sett á Ísland án banaslysa í umferðinni á heilu ári fyrir árið 2015. Þannig yrði Ísland fyrsta landið í heiminum til ná þeim ár- angri sem allir hljóta á endanum að stefna að. Vitundarvakning Fjölmiðlar vilja því miður frekar ræða umferðarmál og leiðir í bar- áttunni um fækkun slysa í kjölfar alvarlegra slysa í stað þess að auka umræðuna þegar árangur er hvað mestur og sjáanlegur. Fram til þessa hafa umferðarör- yggismál ekki náð inn á þjóðþing landa og Sameinuðu þjóðanna á sama hátt og mörg önnur mál sem að almenningi beinast. Þetta er nú að breytast og er það vegna mark- vissar vinnu Lord Robertson og Commission for Global Road Sa- fety. Markhóparnir eru stjórn- málamenn og fjölmiðlafólk. Með því að koma umferðaröryggismálum á dagskrá á faglegan hátt er lagður grunnur að árangri til framtíðar. Fjöldi stjórnmálamanna og ann- arra hefur lagt þessu máli lið á undanförnum misserum. Þar má nefna Bill Clinton, Michael Schu- macher, Tony Blair, Desmond Tutu, Michelle Yeoh og marga fleiri. Tími til aðgerða Meðfylgjandi áætlun hefur nú verið sett upp myndrænt og verður formlega afhent samgöngu- ráðherra, Kristjáni Möller, á næstu vikum. Samhliða munum við bjóða hæstvirtum samgönguráðherra að vera viðstaddur stefnumarkandi fund alheimssamtakanna „Make Road Safe“ sem haldinn verður í Moskvu í nóvember nk. þar sem við munum kynna metnaðarfulla fram- tíðarsýn Íslendinga. Í dag hefur Ísland möguleika á að láta rödd sína heyrast á alþjóð- legum vettvangi með jákvæðum ár- angri sem leiðandi þjóð í árangri í fækkun umferðarslysa. Höldum áfram góðu starfi í þágu öryggis á vegum landsins. Það er komin tími til aðgerða – tími til að taka forystu í umferðarörygg- ismálum á heimsvísu. Ísland án banaslysa í umferðinni fyrir árið 2015? Eftir Steinþór Jónsson » Á vegum FÍB er unnið öflugt starf í forvörnum með tilkomu EuroRAP. Umhverfi vega er skoðað og staðlað mat lagt á öryggi vegarins. Steinþór Jónsson Höfundur er formaður FÍB og Samstöðu. Breyttar aðferðir Áratugs starf að bættu umferðaröryggi getur skilað miklu ‘00 ‘05 ‘10 ‘15 ‘20 2.500.000 2.000.000 1.500.000 1.000.000 500.000 U m fe rð ar da uð sf öl lí he im in um 1.900.000 900.000 Markmið um 50% fækkun dauðaslysa Aðgerðarleysi 10 ára aðgerðir 5.000.000 dauðsföll 50.000.000 illa slasaðir Þróunarlöndin Spá um dagleg dauðsföll barna, 5-14 ára ‘05 ‘15 ‘30 12.000.000 10.000.000 8.000.000 6.000.000 4.000.000 2.000.000 0 22 16 4 2 22 20 4 1 1 2 2327 Malaría Berklar Eyðni Umferðarslys Í Morgunblaðinu birtist athyglisverð grein 26. maí sl. eftir Jón H. Karlsson við- skiptafræðing um „Einn lífeyrissjóð fyr- ir alla“. Daginn eftir sýndi íslenzka sjón- varpið þýzka heimild- armynd um óhugnan- legar afleiðingar rándýrskapítalismans, þar sem sjálfsögð mannréttindi eins og vatn, rafmagn og heilbrigð- isþjónusta höfðu verið einkavædd í þágu hinna ríku. Þessi nýi kapítal- ismi a la Thatcher hefur einnig haft skelfileg áhrif á Íslandi. Það verður því áhugavert að sjá hvort siðræn gildi fái tímabæra uppreisn þegar græðgi, sjálfsdýrkun og hroki hafa riðið Íslandi á slig. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég hefði fengið sömu meðferð í líf- tryggingamálum hjá Læknafélagi Íslands í dag og á sínum tíma. Fyr- ir tíu árum sagði ég frá því í blaða- grein að mér hefði verið hafnað, þegar ég sótti um aðild að hóplíf- tryggingu lækna nokkrum árum áður. Tengdaföður mínum, lækni á eftirlaunum, var svo brugðið við að lesa þetta að hann bað mig leyfis að fjalla um málið í Læknablaðinu. Þar skrifaði hann tvær greinar og fannst í þeirri síðari sem hann væri á eintali við sjálfan sig. Þá loks kom svar frá framkvæmda- stjóra Læknafélags Íslands þar sem efnislega sagði að varla tæki því að fást um þetta: Telja mætti þá fáu sem fengju synjun vegna heilsuleysis á fingrum annarrar handar. Ég var ein- faldlega of þungur baggi á mínum heilsu- hraustu félögum og því skilinn eftir. Tengdaföður mínum varð mjög um þann skort á bræðralagi, kollegíaliteti, sem honum þótti afstaða Læknafélags- ins bera vitni um. Sjálfur hef ég tekið þessu eins og hverju öðru hundsbiti. Síðan þetta gerðist hef ég lært tvö ný orð sem notuð eru í heilsu- hagfræði um þá sem tryggja á. Orðin eru hrakval og freistnivandi. Síðarnefnda orðið hef ég nýlega séð sem þýðingu á enskunni moral hazard. Ég þykist vita að annað hvort þessara fyrirbæra hafi orðið mér fótakefli. Hrakval er líklegra. Kannski bæði. Ég veit samt að það hefði engu breytt um afstöðu míns góða tengdaföður sem nú er látinn. Á ég að gæta bróður míns? Eftir Jóhann Tómasson » Það verður áhuga- vert að sjá hvort sið- ræn gildi fái tímabæra uppreisn þegar græðgi, sjálfsdýrkun og hroki hafa riðið Íslandi á slig. Jóhann Tómasson Höfundur er læknir. Í KASTLJÓSINU sást hvernig maður rústaði húsi er hann áður átti með Frjálsa Fjárfestingabank- anum (FF). Í frétt- unum á undan Kast- ljósinu var sagt frá því, að eignarhlutur heimila í „eigin“ hús- næði hefði minnkað verulega mikið. Mig minnir að meðaltalið 2008 hafi ver- ið 65%, en sé nú komið í 45%. Er ekki viss, hvort ég man þetta rétt, en allavega var meðaltalið komið vel niður fyrir 50%. Hjá þeim yngri, sem nýlega tóku lán, er staðan enn verri. Margir hafa tap- að mestöllu eigin framlagi. Remb- ast svo við að borga af fasteign, sem þeir eiga nokkur prósent í á sama tíma og eignarhlutur þeirra fer minnkandi, þó svo staðið sé í skilum. Svo eru aðrir sem skulda meira í húsnæðinu en fæst fyrir fasteignina á uppboði líkt og hjá manninum á Álftanesinu. Órétt- lætið liggur í þessari eigna- tilfærslu. Hún er tilkomin bæði vegna vit- lausrar mælingar á verðtryggingu og þess að myntkörfulán lenda ein- göngu á lántakanda. Vitleysan í verðtryggingunni er sú að hún miðast við stöðuna, eins og hún var í fortíðinni en ekki við stöðuna í dag. Höfuðstóll fasteignalána hækkar því í stað þess að lækka. Hann lækkar kannski, þegar nú- verandi eigandi er flúinn úr landi. Myntkörfulán, sem bankar, eins og FF mæla með við sína við- skiptavini, lenda 100% á lántak- anda og bankinn eignast meira og meira í fasteigninni. Að lokum hirðir hann íbúðina eða húsið á nauðungaruppboði. Jafnvel langt innan við markaðsverð og held- ur áfram að elta fyrr- verandi meðeiganda sinn telji hann kröfu sína ekki að fullu greidda. Afleiðingar þessa eru að fjöldi fólks á ekki lengur fyrir skuldum. Fólk, sem alltaf hefur staðið í skilum lendir á van- skilaskrá og á sér ekki viðreisnar von. Fær stöðugt gluggaumslög frá bankanum, sem með því telur kröfu sína vakandi, ef viðtakandi skyldi einhvern tíma eignast eint- hvað sem fengur væri í fyrir bank- ann. Fjöldi fólks er kominn í svona stöðu. Heiðvirt fólk, sem ekki hef- ur átt neinn þátt í að koma þjóð- inni í þá stöðu, sem hún er í. Á sama tíma virðast fyrrverandi bankastjórar og bankastarfsmenn komast upp með hvað sem er. Taka út milljónatugi af lífeyri án þess að greiða skatt og hinir, sem „keyptu“ hlutabréf til að græða á því að falsa gengi bréfanna virðast friðhelgir. Eru allir ránfuglar á Ís- landi friðaðir? Hafi smáfuglunum Jóni og Gunnu tekist að öngla ein- hverju saman í séreignarsparnað til mögru áranna mega þau taka hann út í áföngum og greiða skatt. Þau skulu líka standa skil á bíla- lánum hafi þau verið svo ólánsöm að taka slíkt lán hjá ráðgjafanum í bankanum sínum. Fá það hvorki fellt niður né flutt í Jón & Gunna ehf. Ég heyrði fyrst minnist á Frjálsa Fjárfestingabankanum, þegar Grafarholtið var að byggjast upp. Þá kom kreppa og margir verktakar urðu gjaldþrota. Graf- arholtið var kallað grafreitur verk- takanna. Sagt var að FF ætti ann- að hvert hús í Grafarholti. Maður heyrði margar ljótar sögur af framgöngu bankans. Lögfræð- ingum hans virtist ekkert heilagt í þeirri viðleitni sinni að FF sýndi sem mesta arðsemi. Ástand eins og nú er í þjóðfélag- inu er kjöraðstæður fyrir fyrirtæki, eins og Frjálsa Fjárfestingabank- ann, sem rekinn er áfram af græðgi og gróðafíkn. Bankanum hefur tekist svo vel upp við að not- færa sér bágindi skuldunauta sinna, að hann stofnað dótturfélag til útleigu íbúða. Íbúða sem hann hefur flestar hirt á nauðungarupp- boðum. Í fæstum tilfellum eru leigjendur fyrri meðeigendur bank- ans, enda eignalausir á van- skilaskrá. Jafnvel hundeltir af Frjálsa Fjárfestingabankanum telji hann sig ekki vera búinn að fá nóg. Maðurinn á Álftanesinu var greinilega búinn að fá nóg. Hafði misst fyrirtækið, húsið og kominn á vanskilaskrá hjá FF. Áður hafði heyrst í ýmsum á blogginu, en það voru hjáróma raddir miðað við gjörninginn á Álftanesinu. Ekki er hægt að mæla með fleiri slíkum. Betra er að fá útrás við að skrifa í blöðin. Segja frá reynslu sinni og samskiptum við starfsmenn bank- ans. Frjálsi Fjárfestingabankinn og eignarétturinn Eftir Sigurð Oddsson Sigurður Oddsson » Ástand eins og nú er í þjóðfélaginu er kjöraðstæður fyrir fyrirtæki eins og Frjálsa Fjárfestinga- bankann, sem rekinn er áfram af græðgi og gróðafíkn. Höfundur er verkfræðingur. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.