Morgunblaðið - 08.07.2009, Page 40

Morgunblaðið - 08.07.2009, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 HEIMSFRUMSÝNING! SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SACHA BARON COHEN SNÝR AFTUR Í EINHVERRI SNARKLIKKUÐUSTU OG FYNDNUSTU MYND SÍÐARI ÁRA MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF „BETRI EN BORAT. HHHH COHEN ER SCHNILLINGUR!“ – T.V. KVIKMYNDIR.IS „Þið sem að héldu að The Hangover væri það fyndnasta sem komið hefur út árið 2009, bíðið bara og sjáið hvað Brüno gerir af sér“ – T.V. - kvikmyndir.is ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI BRUNO kl. 4D - 6D - 8D - 9D - 10D - 11D - 12D 14 DIGITAL TRANSFORMERS 2 kl. 6D 10 DIGITAL THE HANGOVER kl. 4 - 6 - 8- 10:20 12 DIGITAL BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8D - 8:30 - 10:10D - 10:30 14 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:50 12 TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:50 10 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L DIGTAL 3D Þetta ár í breskri popptónlistvirðist ætla að markast afendurnýjun. Byrjað er að halla undan fæti hjá stúlkna- og strákasveitunum og athyglin virð- ist vera að beinast aftur að for- vitnilegum persónum, þá aðallega að skapandi stúlkum rétt yfir tví- tugt með einkennandi stíl. Það er svo líka forvitnileg stað- reynd að á sama tíma og fókusinn virðist vera að færast af grúppum og aftur að einstaklingum þá er að mótast hefð fyrir því að nefna sólóverkefni sitt hljómsveit- arnöfnum. Þar má nefna La Roux, Little Boots og svo Natösku Khan (sem hér verður gerð að umfjöll- unarefni) sem einhverjir þekkja ef til vill betur sem Bat for Lashes.    Þrátt fyrir að tónlist hennarberi þess lítil merki er Na- tasha Khan fædd í Pakistan. Upp- eldi hennar í sjávarbænum Brig- hton við suðurströnd Englands hefur þó án efa haft mikil áhrif á listsköpun hennar. Borgin sem er aðeins í klukkustundar fjarlægð frá höfuðborginni með lest hefur öðlast heldur frjálshyggjulegan stimpil í gegnum tíðina. Hvergi er hærra hlutfall samkynhneigðra í Bretlandi og listalíf hefur verið í blóma um langt skeið. Það er engin tilviljun að skapandi lista- fólk á borð við Nick Cave og Em- ilíönu Torrini hafa kosið að gera borgina að heimili sínu. Tónlistarferill Natöshu fór nokkuð seint af stað. Hún útskrif- aðist úr listaháskóla með gráðu í sjón- og tónlist og fékk fyrst út- rás fyrir sköpunargleði sína með gjörning-um byggðum á hljóð- skúlptúrum og myndbandalist, oft undir töluverðum áhrifum frá nú- tímatónskáldinu Steve Reich og fjöllistakonunni Susan Hiller. Eftir námið gerðist hún leik- skólakennari og heillaðist að óhefluðu hugmyndaflugi barnanna. Frítíma sinn nýtti hún svo til þess að semja tónlist. Khan hefur lýst því að þegar hún semji lög sé það oft út frá ímynduðum myndum eða aðstæð-um er hún mótar í höfði sér áður en hún sest niður við hljóðfæri sín. Þetta gæti skýrt af hverju það reynist gagn- rýnendum svo erfittað festa einn merkimiða á tónlist hennar. Natasha var 27 ára þegar fyrri plata hennar, Fur and Gold, kom út fyrir tveimur árum. Þó að vissulega mætti heyra strax þá áhrif frá hinum og þessum lista- mönnum á borð við Kate Bush, Fleetwood Mac, Tori Amos, Shangri-Las, Dead Can Dance, Cocteau Twins, Annie Lennox og Tom Waits, er sá kokteill bland- aður svo ólíkum bragðefnum að ómögulegt er að renna fingur á hvort staðsetja eigi blönduna sem mjólkurvöru, djús, léttvín eða gos. Þetta er þó engin ógeðsdrykkur. Heldur bragðgott popp sem sekk- ur óvenju djúpt og er nægilega tilfinningahlaðið til þess að hreyfa við steingervingum. Ekki skemm- ir fyrir að hún syngur eins og engill. Bat for Lashes hefur verið líkt ítrekað við Björk en tónlistin ber þó allt annan blæ. Þar er frekar verið að vitna til þess að Natasha rammar sig ekki inn hvað hljóð- færaskipun eða listrænt útlit varðar. Önnur breiðskífan, Two Suns, er í þann mund að gera Bat for Lashes að súperstjörnu. Í tón- listarumhverfi þar sem flestir eyða ævinni í að elta hvorn annan er nýr frömuður akkúrat það sem vantar. Nauðsynlegur tónlistarfrömuður AF LISTUM Birgir Örn Steinarsson » Þetta er þó enginógeðsdrykkur. Held- ur bragðgott popp sem sekkur djúpt og er nægilega tilfinninga- hlaðið til þess að hreyfa við steingervingum. Bat for Lashes Er slagarinn Daniel óður til aðalpersónu Karate Kid?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.