Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 3 1. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
235. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Við höldum með
stelpunum okkar
Ítarleg umfjöllun um
EM 2009 í Morgunblaðinu
«HUNDAKÚNSTIR
SMALAHUNDARNIR
REYNDU MEÐ SÉR
«MENNING
Stjörnur munu
skína í Reykjavík
FH er enn í lykilstöðu á Íslands-
mótinu í fótbolta en KR-ingar eiga
enn von um að hampa Íslandsmeist-
aratitlinum eftir 3:1 sigur á heima-
velli gegn Fram í gær.
ÍÞRÓTTIR
Enn líf í titilvonum
KR eftir 3:1 sigur
Eiður Smári Guðjohnsen fer í lækn-
isskoðun í dag hjá franska liðinu
Mónakó samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Í kjölfarið verður
gengið frá tveggja ára samningi.
Eiður Smári fær-
ist nær Mónakó
Hlynur Bæringsson var kallaður
inn í körfuboltalandsliðið vegna
veikinda Fannars Ólafssonar. Tveir
tapleikir í Evrópudeildinni í Smár-
anum í Kópavogi.
Landsliðin náðu
ekki markmiðinu
UM 120 milljarðar króna eru úti-
standandi í bílalánum, í alls 53 þús-
und samningum. Þar af eru um 40
þúsund samningar í myntkörfu-
lánum, fyrir um 112 milljarða
króna. Meðalupphæð hvers samn-
ings er um 2,3 milljónir króna en
dæmi eru um eftirstöðvar bílalána
upp á 12 milljónir króna. Oftast
hafa lánin verið tekin til fimm ára.
Nefnd sem félagsmálaráðherra
skipaði til að fjalla um stöðu skuld-
settra heimila er að skoða bílalánin
sem öll önnur lán og úrræði til að
leysa greiðsluvanda fólks. »16
Dæmi um að bílalán standi
í allt að 12 milljónum króna
Morgunblaðið/Ómar
MARGT bendir til þess að kveikt
hafi verið í einni rótgrónustu
myndbandaleigu landsins, Laug-
arásvídeói, sem brann í fyrrinótt.
Fólk sem bjó í húsinu varð fyrst
eldsins vart og hljóp út á nærklæð-
unum. Um 40 þúsund kvikmyndir
eyðilögðust og miklar skemmdir
urðu á innanstokksmunum mynd-
bandaleigunnar. Eigandinn telur
að tjónið nemi um 200 milljónum.
Fimm eftirlitsmyndavélar voru í
Laugarásvídeói og á upptökum sést
hvar maður kastar tusku inn um
lúguna og eldur blossar upp í kjöl-
farið. »4
Tugir þúsunda kvikmynda
eru ónýtir eftir bruna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HÁVÆR krafa er um það innan raða Vinstri grænna að einhverskonar
opinber rannsókn fari fram á þeim viðskiptum sem hafa átt sér stað með
eignarhluti í Hitaveitu Suðurnesja (HS) frá ársbyrjun 2007, en þá seldi ís-
lenska ríkið sinn hlut í fyrirtækinu.
Ekki hefur þó verið tekið ákvörðun um það hvernig sú krafa verður sett
fram, en rætt hefur verið um að borgarfulltrúar flokksins geri það í krafti
eignarhluta Orkuveitu Reykjavíkur í HS. Málið kom m.a. til umfjöllunar á
þingflokksfundi Vinstri grænna í gærkvöldi. thordur@mbl.is
Krafa um rannsókn
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
HS orka verður í meirihlutaeigu op-
inberra aðila og í tæplega helmings-
eigu Magma Energy ef hugmyndir
sem nú eru uppi á borðinu hjá fjár-
málaráðuneytinu ganga eftir, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Fulltrúar fjármála- og iðnaðar-
ráðuneytis, Reykjavíkurborgar,
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og
Magma Energy hafa átt í viðræðum
um framtíðarskipulag HS orku frá
því snemma í síðustu viku og er
ofangreind niðurstaða afrakstur
þeirra viðræðna. Frestur OR til að
taka tilboði Magma í 32,32% hlut
fyrirtækisins í HS orku rennur út í
dag.
Hugmyndin er sú að Magma
kaupi þá hluti sem fyrirtækið hefur
þegar sóst eftir að kaupa og verði
eftir það eigandi tæplega helmings
eignarhlutar í HS orku.
Síðan mun íslenska ríkið, lífeyr-
issjóðir og sveitarfélög, m.a.
Grindavík, reyna að eignast um
55% hlut í HS orku sem nú er í eigu
Geysis Green Energy (GGE), en að-
alfundur þess fyrirtækis er í dag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun Landsbankinn, Ís-
landsbanki og lífeyrissjóðir reyna
að fá allt að fjóra menn skipaða í
nýja fimm manna stjórn GGE á
þeim fundi og ná þar með meiri-
hluta, en fjárhagsstaða fyrirtækis-
ins er veik og framtíð þess í hönd-
um helstu lánardrottna þess, sem
eru ofangreindir bankar. Stjórnar-
menn Landsbankans verða að nafn-
inu til stjórnarmenn Atorku, sem í
dag er stærsti eigandi GGE, en
verða skipaðir af bankanum.
Til vara að kaupa hluti Magma
Gangi þessi leið ekki eftir herma
heimildir Morgunblaðsins að
stjórnvöld vilji að tryggt verði í
samningum að þau geti gengið inn í
kaup á 20 prósent af þeim 32,32
prósentum sem Magma hyggst
kaupa af OR. Hugmyndir um að ís-
lenska ríkið, Reykjavíkurborg og
OR myndu kaupa allan þann hlut
sem Magma ætlar sér í HS orku
hafa verið lagðar til hliðar, en þær
voru ræddar af töluverðri alvöru
fyrr í mánuðinum.
Rík áhersla | 2
Meirihluti í HS
orku verði frá
hinu opinbera
Ríkið, sveitarfélög og lífeyrissjóðir vilja
eignast hlut Geysis Green í HS orku
» Tæpur meirihluti
Magma í HS orku
» Ríkisbankar vilja
fá fjóra menn í stjórn
FYRSTU réttirnar þetta haustið voru haldnar í Hlíðarrétt í Mývatnssveit í
gær. Nokkur hundruð gesta mættu en algengt er að brottfluttir Mývetn-
ingar mæti á svæðið og fylgist með. Að þessu sinni voru réttuð tvö þúsund
fjár. Sundurdráttur hófst klukkan tíu að morgni og réttin var þögnuð
klukkan eitt. | 15
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
FYRSTU RÉTTIRNAR
ÍHALDSSTJÓRNIN í Japan
missti völdin í gær eftir rúmlega 50
ára valdatíð. Jafnaðarmannaflokk-
urinn fékk rúmlega 300 sæti af 480
mögulegum. Frjálslyndi jafnaðar-
mannaflokkurinn fékk 115 sæti eða
um þriðjung fyrri sætafjölda. Leið-
togi Jafnaðarmannaflokksins,
Yukio Hatoyama, hefur lofað þjóð-
inni umfangsmiklum samfélags-
breytingum og að horfið verði frá
hörðum kapítalisma. Efasemdir eru
um að Hatoyama, ríkasti þingmað-
ur Japans, muni standa við lof-
orðin. | 14
Stjórnin
féll í Japan