Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009 – meira fyrir áskrifendur Fjármál heimilanna og einstaklinga Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Nú hefur aldrei sem fyrr þurft að huga að fjármálum heimilanna og einstaklinga, hvað er til ráða, hvað á að gera og hvað hentar. Þessum spurningum reynum við að varpa ljósi á í þessu sérblaði. Viðskiptablaðs Morgunblaðsins sem tekur á þessu málefni í veglegu sérblaði 10. september næstkomandi • Hvaða úrræði standa venjulegum heimilum til boða til að rétta úr kútnum? • Hvaða leiðir eru færar til að spara í útgjöldum heimilisins án þess að draga úr lífsgæðum? • Kunna Íslendingar að fara með peninga eða kunna þeir ekki að varast gildrurnar? • Hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem vilja geyma spariféð sitt? • Hvaða kostir og gallar eru við það að lengja í lánum? Þetta sérblað Viðskiptablaðs Morgunblaðsins er líklegt til að vera mikið lesið utan síns venjulega markhóps vegna efnis síns. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir 569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is Auglýsendur! Auglýsingapantarnir eru í síma 569 1134 eða sigridurh@mbl.is til 7. september. Staðan á hreindýrasvæðunum á Austurlandi er að verða nokkuð góð, nema á svæði 9, sem er syðst. Þar hefur að sögn Jóhanns gengið illa að finna hreindýrin og til stendur að fljúga yfir við fyrsta tækifæri til að skoða svæðið betur og leita að hreindýrunum. Hornafjörður, Mýrar og Suð- ursveit (áður Mýrahreppur og Borgarhafnarhreppur) tilheyra svæði 9 en það hefur jafnan þótt erfitt yfirferðar. Nú á lokaspretti tímabilsins þarf veður að vera hag- stætt til að takist að veiða upp í kvótann, alls 1.333 dýr. Stendur til að fljúga yfir svæði 9 DREGIST hefur úr hófi að ganga frá skiptum þrotabús Einars Guðfinns- sonar hf. í Bolungarvík, að sögn skiptastjóra búsins, Páls Arnórs Pálssonar. „Síðustu árin hefur framtaksleysi okkar því miður valdið töfum á frá- gangi búsins,“ segir hann. Fyrstu ár- in hafi málarekstur, þ. á m. vegna riftunarkrafna, verið nokkur. Þá hafi þetta bú verið eitt það fyrsta sem tekið var til skipta eftir breytingar á gjaldþrotalögum, sem hafi flækt úr- lausnina. Segir hann að sýslumaður og hér- aðsdómur hafi nú rekið á eftir því að skiptum ljúki og búast megi við að það gerist á næstu mánuðum. Segir hann að útlit sé fyrir að forgangskröf- ur fáist allar greiddar og veðkröfur að mestu, en almennar kröfur fáist hins vegar ekki greiddar nema að litlu leyti. Stærsti kröfuhafi búsins er Lands- bankinn, en eigendur E.G. gagn- rýndu bankann harðlega á sínum tíma fyrir að krefjast gjaldþrota- skipta. bjarni@mbl.is Óhóflegur dráttur Í HNOTSKURN »Einar Guðfinnsson hf. vartekið til gjaldþrotaskipta vorið 1993. »Á sama tíma voru Hólarhf. teknir til gjald- þrotaskipta. »Alls misstu á bilinu 130-140 manns vinnuna. Skiptastjóri þrotabús Einars Guðfinnssonar hf. á Bolung- arvík segir framtaksleysi skýra drátt á frágangi málsins SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs sló taktinn fyrir fer- fætta vin mannsins, hundinn, í árlegri göngu Hunda- ræktarfélags Íslands niður Laugaveginn í Reykjavík. Að venju var líflegt um að litast þó að sumir hundar gengju lengra en aðrir í tilraun til að draga að sér at- hyglina. Í göngunni voru m.a. leitarhundar Slysa- varnafélags Íslands og heimsóknavinir Rauða kross Íslands. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hundar gengu fylktu liði niður Laugaveginn Ferfætti vinurinn fékk bumbuslátt BÚIÐ er að veiða tæplega 800 hreindýr af þeim 1.333 sem fella má í haust. Staðan hefur batnað á flestum svæðum, að sögn Jóhanns G. Gunn- arssonar, starfsmanns veiðistjórn- unarsviðs Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum, en veiðitímabilinu lýk- ur 15. september nk. Veiðarnar gengu vel um helgina, á laugardag veiddust 48 dýr og 26 í gær. Óhagstætt veður, þoka og rigning hefur hamlað veiðum á mörgum veiðisvæðum. Jóhann sagði að í gær hefði verið þokkalegt veður víðast hvar og veitt á flestum svæðum. Þannig fóru nokkuð margir til veiða í gærmorgun. Jóhann taldi að staðan væri vel viðráðanleg á veiðisvæðum 1 og 2, sem eru langstærstu veiðisvæðin, og að kvótinn myndi klárast þar. Á þeim svæðum voru samtals gefin út 824 leyfi, eða fyrir 558 kúm og 266 törfum. Jóhann sagði að menn hefðu verið orðnir nokkuð svartsýnir á svæði 8 en svo hefðu dýrin komið fram þegar kólnaði. Á laugardag voru veidd þar 16 hreindýr. Góð hreindýraveiði eystra um helgina Veiðin hefur glæðst á flestum svæðum Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hreindýr Veiðitímabilinu lýkur 15. september en það fór treglega af stað vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Veiðin var hins vegar góð um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.