Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 19
✝ Sigmundur Guð-mundsson fæddist á Steinum í Grindavík 9. janúar 1923. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ 19. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Tómasson, f. 9. júní 1900, d. 18. apríl 1984 og Steinunn Gísla- dóttir, f. 4. júní 1901, d. 21. apríl 1984. Sig- mundur var næst- elstur fimm systkina. Hin eru: Eyrún, gift Helga Jón- assyni, látinn, Tómas, látinn, maki Ingeburg Wohlers, Steinunn og Margrét, gift Guðmundi Eggerts- syni. Eiginkona Sigmundar er Þórdís Eggertsdóttir frá Hofstöðum í Miklaholtshreppi, f. 17. desember 1927. Þau gengu í hjónaband fyrsta vetrardag, 28. október 1967. Sonur þeirra er Hafþór Freyr, kvæntur Kristínu Helgu Ólafsdóttur. Börn þeirra: Steinar Orri, Ólöf, Þórdís og Sigmundur Freyr. Fyrir átti Þórdís Sigríði sem Sigmundur gekk í föður stað þegar þau hófu hjúskap. Sig- ríður er gift Sigurði Hafsteini Steinarssyni. Börn þeirra: Ingibjörg, sambýlismaður Arnar Benjamín Ingólfsson og Þórir Björn, sam- býliskona Helena Rún Pálsdóttir. Langafa- börnin eru fjögur. Lengst af starfaði Sigmundur við sjó- mennsku og við störf sem tengdust fisk- veiði. Hann hlaut stýrimannsréttindi frá Stýrimannaskól- anum 1949. Meðal þeirra skipa sem hann starfaði á voru Hrafn Sveinbjarnarson II, Víkingur og síðast starfaði hann sem stýrimaður á Vigra. Eftir að í land kom hélt hann áfram að vinna hjá útgerðarfyrirtæki Vigra, Ög- urvík, fyrst í stað en síðustu árin vann hann í Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjunni á Kletti í Reykjavík. Sigmundur og Þórdís bjuggu all- an sinn hjúskap í Hraunbæ 92 en síðustu árin naut Sigmundur að- hlynningar á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útför Sigmundar verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag, 31. ágúst, kl. 15. Nú er upp runnin kveðjustundin og þrátt fyrir að henni fylgi tregi og söknuður þá finn ég fyrst og fremst til þakklætis. Þær minningar sem ég á um pabba eru mér fjársjóður. Margar þeirra tengjast þeim tíma þegar ég var yngri, t.d. ferðalögum og veiðum. Þá var það alltaf tilhlökkunarefni að skreppa til Grindavíkur og þá kom pabbi gjarnan við á bryggjunni þegar bátarnir komu að landi. Það brást heldur ekki að menn færðu honum í soðið enda flestir þeirra gamlir vinir og kunningjar frá fyrri tíð. Einu sinni, eftir slíka ferð komum við heim með skottið fullt af fiski. Það var metafli í þessum túr. Þegar búið var að ganga frá aflanum í frysti sá pabbi að ekki hefði allur aflinn náðst í hús. Grásleppur sem honum höfðu áskotnast fundust ekki og svo sem lítið við því að gera. Þær fundust þó síðar, löngu síðar og náðu að gera vart við sig með því að gefa frá sér lykt sem ekki verður með orðum lýst. Það var því lítill fögnuður þegar pabbi veiddi pokann með gráslepp- unum upp úr skottinu. Fyrstu árin mín var pabbi enn á sjó og því fylgdu siglingar til útlanda sem auðvitað var spennandi fyrir lít- inn gutta. Fyrstu tvö hjólin sem ég fékk voru keypt í slíkum siglingum – það fyrra var með gegnheilum gúmmídekkjum sem vitaskuld þurfti Sigmundur Guðmundsson aldrei að bæta lofti í og seinna hjólið var gult og allt of stórt, eins og það væri ekki nóg að það væri gult! Pabbi tók það svo að sér að kenna mér að halda jafnvægi á hjólinu en þrátt fyr- ir að hann hafi vafalítið gert allt rétt þá stórsá á hjólinu eftir fyrstu skipt- in. Þegar barnabörnin fóru að bætast í hópinn fengum við að upplifa hvern- ig pabbi lifnaði við í hvert sinn sem þau komu í heimsókn. Hann sóttist eftir því að fara út í göngutúra og hafa þau með sér í kerru nú eða fara bara út í garð til að leika. Eitt af því sem ég er óendanlega þakklátur fyrir er að pabbi gat á brúðkaupsdegi mínum staðið við hlið mér í kirkjunni. Á þeim tíma var heilsu hans tekið að hraka en þennan dag var hann stálsleginn. Þennan dag skilaði hann ekki bara af sér þokkalega vel heppnuðum syni held- ur fékk hann tengdadóttur sem átti eftir að laða fram hjá honum ótal mörg bros og gagnkvæm væntum- þykja fór ekki fram hjá neinum. Væntumþykja er einmitt orð sem er auðvelt að nota um það viðmót sem við öll mættum hjá pabba og henni fylgdi yfirleitt vænn skammtur af glettni. Hann sagði oft eitthvað í hálfkæringi og hló svo og bætti þá yf- irleitt við: „Ég er nú bara að gera að gamni mínu“. Ég upplifi það sem mína gæfu í líf- inu að hafa eignast þá foreldra sem komu mér í þennan heim. Mamma kveður nú eiginmann til ríflega fjöru- tíu ára, vin og góðan samferðamann. Margoft upplifði ég það að ef pabbi vissi ekki upp á hár hvar mamma var varð hann órólegur, í hennar návist leið honum vel. Það var okkur dýr- mætt að fá að halda í höndina á hon- um þegar hann kvaddi þennan heim. Alúðarþakkir færum við starfs- fólkinu á hjúkrunarheimilinu Skóg- arbæ en síðustu þrjú ár ævinnar naut pabbi umönnunar þar. Guð blessi minningu pabba. Hafþór Freyr. Í dag verður borinn til grafar tengdafaðir minn, Sigmundur Guð- mundsson. Kynni okkar hófust fyrir rétt tæpum 20 árum þegar sonur hans, Hafþór Freyr, kynnti mig fyrir foreldrum sínum. Það var ekki laust við að ég kviði því að hitta foreldra mannsins sem ég var svo hrifin af en sá kvíði var með öllu óþarfur. Mér var strax tekið opnum örmum og á sömu stundu hófst innileg og kær- leiksrík vinátta sem hefur haldist all- ar götur síðan. Það má segja að heilsan hafi fjarað frá tengdaföður mínum síðustu árin. Ég var ekki alltaf viss um að hann þekkti mig þegar ég heimsótti hann á Skógarbæ. En þegar ég hafði setið hjá honum í smá stund leitaði hann yfirleitt eftir að halda í hönd mína og ég vil trúa því að hann hafi áttað sig á því hver ég var og væri með þessu móti að láta mig vita. Sigmundur var hlýr og gefandi maður sem gott var að njóta sam- vista við. Aldrei hef ég hitt nokkurn sem var eins barnelskur og hann. Þegar barnabörnin voru í heimsókn áttu þau hug hans allan. Þegar heils- an leyfði þá gat hann setið tímunum saman og horft á börnin þar sem þau voru að leik. Sigmundur var alltaf jákvæður og ég hafði mjög gaman af því að slá á létta strengi með honum. Við áttum sérstakar stundir í kringum þorrann en þá bar hákarl oftar en ekki á góma. Hann stóð fastar á því en fót- unum að hákarl væri ekki ætlaður til átu og um þetta gátum við skeggrætt ár eftir ár og höfðum alltaf jafn gam- an af. Í hjarta mínu takast á tilfinningar, annars vegar söknuður eftir kær- leiksríkum tengdaföður og yndisleg- um afa barna minna og hins vegar þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Sigmundi. Fyrir það er ég ríkari kona. Kristín Helga Ólafsdóttir. ✝ María Ágústs-dóttir fæddist á Geiteyjarströnd í Mý- vatnssveit 13. desem- ber 1918. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri 22. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Benediktsdóttir, f. 23.6. 1899, d. 27.4. 1990, og Ágúst Sig- urgeirsson, f. 4.4. 1882, d. 11.2. 1969. Systkini Maríu eru Helgi, f. 30.7. 1921, d. 23.1. 1995. Sigríður, f. 12.12. 1923, d. 5.4. 2009 og Stefanía, f. 10.4. 1927. María giftist 18. júní 1942 Sig- urði G. Jóhannessyni kennara, f. 22.5. 1912, d. 27.6. 1988. Foreldrar hans voru Bergrós Jóhannesdóttir og Jóhannes Bjarnason. Börn Mar- Tekla Mist og Guðlaugur Tristan. b) Heiðrún Gígja Ragnarsdóttir, f. 1971, maki Sigurgeir Orri Sig- urgeirson. Sonur þeirra er Ragnar Orri. 3) Hrafnhildur Guðbjörg, f. 1954, maki Gísli Pálsson, f. 1949. Synir þeirra eru: a) Páll Rúnar, f. 1976, sambýliskona Kolbrún Ein- arsdóttir. Sonur þeirra er Bjarki Freyr. Fyrir átti Kolbrún Magneu Lind Óðinsdóttur. b) Þorgils, f. 1983. María ólst upp á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit. Um tvítugt fór hún í Húsmæðraskólann á Laugum í Reykjadal og síðan lá leið hennar í Eyjafjörð en þar kynntist hún eig- inmanni sínum á Grund er hún vann þar þá sem vinnukona og hann sem kennari. Lengst af bjuggu þau hjónin í Þingvallastræti 6 á Akureyri en áður á Hrafnagili. María dvaldi síðustu þrjú árin á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri. Útför Maríu verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 31. ágúst, og hefst athöfnin kl. 13.30. íu og Sigurðar eru: 1) Bergrós Hólmfríður, f. 1944, maki Þór- arinn S. Magnússon, f. 1943, d. 1999. Börn þeirra eru; a) Sig- urður, f. 1967, maki Þóra Magnúsdóttir. Synir þeirra eru Sindri og Snorri. b) Helga María, f. 1971, maki var Gunnar G. Gunnarsson, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Ragna Sif og Kristján Gunnar. c) Arnar, f. 1975. 2) Hallur Þorgils, f. 1953, maki Björk Sigurjónsdóttir, f. 1949. Synir þeirra eru Sigurjón, f. 1980, og Gunnar, f. 1982, sam- býliskona Berglind Jónsdóttir. Fyr- ir átti Björk. a) Guðmund Jóhanns- son, f. 1968, maki Hjördís H. Guðlaugsdóttir. Börn þeirra eru Kveðja til móður Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum – eins og þú. Ég flyt þér, móðir, þakkir þús- undfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands bestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna, blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Börn og tengdabörn, Bergrós Hólmfríður, Hallur Þorgils og Björk, Hrafnhildur Guðbjörg og Gísli. Í dag kveðjum við barnabörnin okkar elskulegu ömmu Maríu í hinsta sinn. Amma var fjörug og lífsglöð, sem nú er fallin frá níræð að aldri og minnumst við hennar með söknuði. Hún amma okkar var einstök, hún var kjarnakona – skipulögð og mik- ill dugnaðarforkur, hún var alltaf að og gekk í öll verk, hangs var aldrei valkostur og lærðum við barnabörnin mikið af henni. Amma var ákveðin og hreinskilin en jafnframt hjálpsöm og hjartahlý. Hún var mikil fjöl- skyldumanneskja, alltaf boðin og búin að aðstoða okkur, hvort sem það var við heimilisstörf eða leið- sögn um lífið. Velferð fjölskyldunn- ar var henni alltaf efst í huga og fylgdist hún vel með lífi okkar og störfum – gladdist þegar vel gekk eða gaf klapp á öxlina og nokkur hughreystandi orð þegar þannig lá við. Henni var í mun að við eign- uðumst falleg heimili, rétt eins og hún átti fallegt og töfrakennt heim- ili með spilandi saumaborði og fal- legum blómum. Blómunum sinnti hún af sömu alúð og okkur, enda blómstruðu blómin einstaklega vel hjá henni. Það var alltaf ljúft að heimsækja ömmu í Þingvallastrætið og svo seinna í Hrafnagilsstrætið. Alltaf bar hún fram kaffi og helling af bakkelsi sem hún töfraði fram, enda mikil húsmóðir. Amma var líka dugleg að úthluta okkur barna- börnunum verkefnum og þannig mynduðust yndislegar hefðir og góðar minningar. Börnin okkar nutu líka góðs af því hvað amma var mikið fyrir sæt- indi og laumaði hún alltaf einhverju gotti að þeim og svo dró hún fram dótakassann góða sem börnin léku sér með svo tímunum skipti – alltaf var gaman að heimsækja ömmu Maríu enda var hún hrókur alls fagnaðar og gestrisin. Ömmu Maríu leið afar vel í Mý- vatnssveitinni þaðan sem hún var ættuð og hafði þar hjólhýsi ásamt systrum sínum í svokölluðum Systrahvammi. Þaðan eigum við barnabörnin öll góðar minningar. Í Systrahvammi var hún amma alltaf að brasa eitthvað, dytta að, klippa og snyrta gróðurinn milli þess sem hún bar góðgæti á borð fyrir okkur og hló með okkur. Á kvöldin spil- uðum við og spjölluðum saman og ósjaldan hlýddi hún okkur yfir ör- nefnin í sveitinni góðu. Það er erfitt að sjá á eftir þeim sem manni þykir vænt um, en efst er okkur þó í huga þakklæti fyrir þau ár sem við nutum samvista við ömmu í Þingó. Minningarnar ylja okkur um hjartarætur og gera kveðjustund- ina léttbærari. Með ást og virðingu kveðjum við þig, elsku amma og biðjum guð að varðveita þig. Fyrir hönd barnabarnanna, Helga María Þórarinsdóttir. Með nokkrum orðum langar mig að kveðja hana Maríu frænku og góða vinkonu mína. María frænka var mikill fyrirmyndarunglingur, þegar ég fyrst kynntist henni. Hún var 19 ára að aldri er ég sá hana fyrst og ég aðeins 14 ára hnáta. María var falleg ung stúlka og með áberandi fallegt hár, sem hún flétt- aði þannig að tekið var eftir. Hún var ákveðin en þó ávallt kurteis. Ég ákvað fljótt eftir að ég fyrst sá hana að kynnast henni betur og rættist það sumarið eftir, er við unnum saman í kaupavinnu. Tengdumst við strax þá vináttu- böndum sem aldrei slitnuðu. María var mjög dugleg og við sem yngri vorum nutum ávallt forsjár hennar. Síðan liðu árin og María fjarlægð- ist. Ég bjó í Reykjavík en hún á Norðurlandi. En aldrei slitnuðu tengslin og vinskapur okkar hélst þrátt fyrir fjarlægðina á milli. Seinna þegar börnin stálpuðust fórum við að hittast aftur, bæði fyr- ir sunnan og norðan. Ætíð stóð heimili Maríu og Sigurðar okkur opið. Gestrisni og kærleikur þróað- ist milli heimilanna. Elsku María mín, margar eru minningarnar úr Systrahvammi og frá Akureyri. Eins varstu mikill gleðigjafi ásamt systur þinni hér á mínu heimili og í sumarbústaðnum við Þingvallavatn. Heimilið þitt á Akureyri stóð fjölskyldu minni ávallt opið og ekki tókstu í mál að gist væri annars staðar á Akureyri, ef einhverjir fjölskyldumeðlimir áttu erindi þangað. Börnin mín og fjölskyldur þeirra eiga margar góð- ar minningar frá dvöl sinni á heim- ili þínu gegnum árin. Þá á ég góðar minningar frá Spánarferð okkar, þar sem þú varst kletturinn og hjálparhellan, þegar við stelpurnar eins og þú kallaðir okkur Siggu vorum ekki eins og þér líkaði. Elsku vinkona! Við söknum þín öll og biðjum góðan Guð að blessa ættingja þína og vini. Ég vil gjarnan lítið ljóð, láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð, ég alltaf mun þín sakna. (G.V.G.) Margrét Ingunn (Unna). María Ágústsdóttir Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009 Við erum þakklát fyrir að hafa átt Sigmund afa og þann tíma sem við höfum átt með honum. Afi var alltaf tilbúinn til að fara í göngutúra og fara með okkur út á leikvöll þegar okkur hentaði. Takk fyrir allt. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Steinar Orri, Ólöf, Þórdís og Sigmundur Freyr. HINSTA KVEÐJA ✝ Eiginmaður minn, stjúpsonur, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN BRODDASON, Lágholti 2b, Mosfellsbæ, lést mánudaginn 24. ágúst. Útförin fer fram frá Neskirkju í Reykjavík þriðju- daginn 1. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaheill. Guðríður Steinunn Oddsdóttir, Friðrika Gestsdóttir, Vin Þorsteinsdóttir, Daníel Karl Ásgeirsson, Daði Þorsteinsson, Maria Helen Wedel, Oddur Broddi Þorsteinsson, Stefán Broddi Daníelsson, Eir Lilja Daníelsdóttir, Sunna Daðadóttir Wedel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.