Morgunblaðið - 31.08.2009, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.08.2009, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ UppbyggingÍslandsbyggist ekki á því að selja orkuverin og einkavæða orku- auðlindir til al- þjóðlegra auð- magnseigenda. Uppbyggingin byggist þvert á móti á opinberu innlendu eignarhaldi,“ skrifaði Þorleifur Gunnlaugsson, borg- arfulltrúi Vinstri grænna, í grein hér í blaðinu í síðustu viku. Honum fannst „dapur- legt“ að Morgunblaðið skyldi hafa gagnrýnt áform ráðherra Vinstri grænna um að hindra fjárfestingu kanadíska fyrir- tækisins Magma Energy í HS orku. „Sannast sagna trúði ég því að eftir hrun fjármálakerfisins sæju flestir mikilvægi þess að fela fallvöltu fjármálakerfi ekki yfirráð yfir auðlindum okkar; dæmin sýndu að grunnþjón- ustan ætti ekki að vera gróða- öflum til ráðstöfunar. Morgun- blaðinu finnst greinilega ekki fullreynt að þau séu ekki traustsins verð. En hvenær skyldi Morgunblaðinu finnast nóg komið?“ spurði Þorleifur. Svarið er að Morgunblaðið hefur áfram trú á einka- framtakinu. Hrun fjár- málakerfisins breytir engu um að það var fyrir tilstilli einka- framtaksins, sem Íslendingar urðu rík þjóð og það er fyrir til- stilli einkaframtaks, sem þjóðin mun koma sér aftur út úr erf- iðleikunum. Opinber rekstur og eignarhald á atvinnufyrir- tækjum er ekki leiðin. Þá leið er búið að prófa; hún mistókst og mistökin voru mun stærri á mælikvarða sögunnar en hrun íslenzka bankakerfisins á síð- asta ári. Morgunblaðið hefur heldur ekki misst trúna á erlendri fjár- festingu. Ef eitt- hvað er hefur hún verið alltof lítil hér á landi undanfarin ár og áratugi. Skortur á erlendri fjárfestingu er ein orsök þess að hér varð til óheilbrigð samþjöppun eignarhalds og krosseigna- tengsl, sem stuðluðu að falli ís- lenzka fjármálakerfisins. Ís- land mun ekki heldur vinna sig út úr kreppunni án erlendrar fjárfestingar og erlends fjár- magns. Af þessum sökum meðal ann- ars hefur Morgunblaðið talið fullkomlega misráðið að leggj- ast nú gegn því að erlent einka- fyrirtæki fjárfesti í orkuvinnslu á Íslandi. Ef það væri satt, sem VG heldur iðulega fram, nú síð- ast í ályktunum flokksráðs- fundar um helgina, að erlend einkafyrirtæki væru að eignast íslenzkar auðlindir, kynni að vera ástæða til að staldra við. En hér hafa verið sett lög, sem girða fyrir að einkafyrirtæki, erlend eða útlend, geti eignazt orkuauðlindirnar sjálfar og dreifiveiturnar, sem selja al- menningi orku. Einkafyrirtæki geta hins vegar tekið að sér orkuvinnsluna, sem byggist á afnotarétti af orkuauðlindunum gegn gjaldi. Ef menn vilja tryggja arð al- mennings af þessum auðlind- um, er miklu nær að fara þá leið, sem Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra hefur náð samkomulagi við Magma um að fara og Morgunblaðið sagði frá fyrir helgi; að semja um hærra auðlindagjald og skemmri leigutíma. En fjármálaráðherr- ann ætti alls ekki að hlusta á ályktanir eigin flokksráðs um að bola burt erlendum fjár- festum, einmitt þegar Ísland þarf mest á þeim að halda. Ekki bola burt erlendum fjárfestum þegar landið þarf mest á þeim að halda} Erlent einkaframtak Morgunblaðiðhefur að und- anförnu talsvert fjallað um utan- vegaakstur á há- lendinu og fjölgun slóða, sem merktir eru inn á rafræn kort. Þessi umfjöllun hófst eftir að Kolbrún Halldórsdóttir, fyrr- verandi umhverfisráðherra, skrifaði grein hér í blaðið þar sem hún gagnrýndi að slíkir slóðar væru merktir inn á kort og þannig ýtt undir spjöll á landinu. Sitt sýnist augljóslega hverjum um þessa umfjöllun og margir hafa gagnrýnt sjónar- mið Kolbrúnar. Morgunblaðið hefur tekið undir með Kolbrúnu, um að það verður að koma böndum á ut- anvegaaksturinn, skilgreina hvaða slóða megi aka og hverja ekki og stöðva hina „stjórn- lausu vegagerð“ á hálendinu. Það er afstaða, sem er tekin út frá nátt- úruverndarsjón- armiðum. Á málinu er hins vegar líka önnur hlið, sem fjallað var um í Morgunblaðinu á laugardag. Þar var sagt frá ungu pari, sem ók slóða merkt- an inn á GPS-kort, erfiða leið og hættulega þar sem oft þarf að aka úti í vatni og lítið þarf út af að bera til að fólk lendi í sandbleytu og þar með veru- legri hættu. Það er ábyrgðarhluti að merkja slíka slóða inn á kort án sérstakra viðvarana. Ein- hverjar takmarkanir á hinni stjórnlausu vega- og kortagerð á hálendinu snúast ekki aðeins um náttúruvernd, heldur líka öryggi vegfarenda. Það er ábyrgðarhluti að merkja hættulegar leiðir inn á kort} Ófærur á korti Í kjölfar bankahruns lentum við Íslend- ingar í milliríkjadeilu sem jaðraði við stríð. Og krömdumst undir hælnum á stórþjóðum. Umdeilt er hvort nokkurn tíma var gripið til varna, en það fór að minnsta kosti hljótt. Við kyngdum stolti og sannfæringu og yfirdráttur í erlendum bönkum vegna íslensku útrásarinnar lendir á íslenskum almenningi af fullum þunga. Svo var gengið til samninga um greiðsluskilmálana. Án þess að nokkuð væri horft til viðmiða, sem fólu í sér allt aðrar forsendur, samkvæmt Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, þáverandi utanríkisráðherra; viðmiða sem áttu að liggja til grundvallar samningnum eftir milligöngu ESB. Það var uppleggið sem Alþingi samþykkti. En í stað þess var byggt á viljayfirlýsingu sem Geir H. Haarde forsætisráðherra hafði þegar tilkynnt Hollendingum að yrði ekki byggt á. Niðurstaðan var glæsileg. Að minnsta kosti fyrir Breta og Hollendinga, því látið var undan kröfum þeirra um flest. Og það er skilj- anlegt, því Svavar Gestsson, formaður íslensku samninga- nefndarinnar, nennti ekki að hafa þetta hangandi yfir sér lengur. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra barðist síðan hatrammlega fyrir því að fá samningana samþykkta, eftir að hafa barist hatrammlega gegn því að farið yrði í viðræður, enda segist hann greiða atkvæði öðruvísi ef hann er í stjórnarandstöðu. En Alþingi gerði fyrirvara við ríkisábyrgðina, sem fjármálaráðherrann sem fulltrúi meirihluta Alþingis hafði lofað að veita, án samráðs við sama meirihluta, og nú þarf hann að útskýra hvernig á því stendur fyrir Bretum og Hol- lendingum. Þetta er samt allt í lagi, því fjár- málaráðherrann segir Íslendinga vel hafa efni á því að greiða tugi milljarða úr ríkissjóði vegna Icesave. Þó er framundan mesti nið- urskurður í lýðveldissögunni af því að engir peningar eru til í þessum sama ríkissjóði. Lof- að var fyrir kosningar að slá skjaldborg um heimilin, en hingað til hefur aðeins verið slegið skjaldborg um skuldirnar. Líka gjaldeyris- lánin sem hafa rúmlega tvöfaldast og eru hugs- anlega lögbrot. Til að bæta gráu ofan á svart grefur verðtryggingin enn frekar undan skuld- urum, sem greiða hærri skatta til að tryggja bankabækur og peningamarkaðssjóði fjár- magnseigenda. Talað er um forsendubrest og leiðréttingu. En kynslóðin sem tapað hefur húsnæðinu hlýtur að spyrja um réttlæti. Alltaf minnkar svigrúmið til aðgerða í þágu heimila, eins og Lilja Mós- esdóttir hagfræðingur hefur bent á, og ef bankarnir kom- ast í eigu kröfuhafa kann tækifærið að renna stjórnvöldum endanlega úr greipum. Hvað verður um íslenskt samfélag ef allt þetta unga fólk lendir á götunni eða í ævilöngu skuldafangelsi? Það á auðvitað kost á greiðsluaðlögun og inni í pakkanum er nafnbirting í Lögbirtingablaðinu, klipping fyrir greiðslukortin, að ógleymdum tilsjón- armanninum sem vonandi er viðfelldnari en sá sem bíóhúsagestir fá að kynnast þessa dagana í Karlar sem hata konur. Þetta er tær snilld. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Tær snilld Skoða fleira en fryst- ingar á bílalánum FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is S amkvæmt samtölum við forsvarsmenn bíla- fjármögnunarfyrirtækja hafa engar ákvarðanir verið teknar um að lækka höfuðstól lánanna, líkt og bankarnir hafa sumir hverjir verið að skoða í tengslum við erlend og verðtryggð íbúðalán. Hins vegar er verið að skoða hvort grípa eigi til annarra úr- ræða en frystingar lána og greiðslu- dreifingar. Aðallega er þó beðið eftir því að hvort stjórnvöld ákveði ein- hverjar almennar aðgerðir, en nefnd er að fjalla um tillögur að nýjum úr- ræðum fyrir fólk í greiðsluvanda. Eftirstöðvar bílalána eru í mörgum tilvikum komnar langt upp fyrir verð- mæti bílanna. Aðeins tæpur helm- ingur þeirra sem eru með bílalán hafa þó nýtt sér úrræði fjármálafyrirtækj- anna, þar sem lánin eru fryst í allt að átta mánuði, með því að greiða hluta af afborgunum en greiða yfirleitt vextina áfram. Lánstíminn hefur þá lengst eftir því hversu mikil eða löng frystingin hefur verið. Minna hefur borið á vörslusviptingu bíla í van- skilum en fyrst eftir bankahrunið, þegar einkum stórir bílar voru teknir til baka. Í annarri stöðu en bankarnir Fyrirtækin benda á að þau séu ekki alveg í sömu stöðu og stóru við- skiptabankarnir sem hafi boðið er- lend íbúðalán. Þar hafi verið meira af erlendum lánum en skuldum og einn viðmælandi blaðsins hélt því fram að bankarnir væru að reyna að bjarga eigin efnahagsreikningi frekar en að hugsa um hag sinna viðskiptavina, með því að skipta erlendum lánum yf- ir í óverðtryggð lán í íslenskum krón- um. Már Másson, upplýsingafulltrúi Ís- landsbanka, segir bílalánin vera til skoðunar líkt og íbúðalánin. Verið sé að skoða ýmsar leiðir til að finna var- anlega lausn á þessum málum. „Við höfum orðið vör við einhverja aukningu á vanskilum en þó ekki í samræmi við það sem ætla mætti. Það hefur til dæmis ekki verið mikil aukning í töku fullnustueigna hjá ein- staklingum síðustu vikur,“ segir Már og telur að þau úrræði sem Íslands- banki fjármögnun býður sínum við- skiptavinum hafi skilað sér í minni vanskilum. Komið hafi verið til móts við lántakendur með því t.d. að lækka greiðslur í 50% hlutfall í átta mánuði og lengja lán um fjóra mánuði. Halldór Jörgensson, fram- kvæmdastjóri Lýsingar, tekur ekki afstöðu til þeirra leiða sem bankarnir hafa skoðað í tengslum við íbúða- lánin. „Lýsing er bundin reglum Seðlabankans og ber meðal annars samkvæmt þeim skylda til að halda gjaldeyrisjafnvægi. Það eitt og sér takmarkar okkur í að grípa til þeirra úrræða sem eru til umfjöllunar,“ seg- ir Halldór. Hann segir færri einstaklinga nýta sér frystingu nú en fyrst eftir banka- hrunið. Nú séu um 1.600 ein- staklingar af um 16 þúsund með slíka samninga, en flestir voru þeir á bilinu fjögur til fimm þúsund. Halldór segir vanskilahlutfallið ekki hafa hækkað að neinu ráði. „Fjöldi einstaklinga er í erfiðleikum, og við drögum ekki dul á það, en aðalvandinn er greiðsluerf- iðleikar fyrirtækja. Við verðum að einbeita okkur að því að koma at- vinnulífinu á réttan kjöl,“ segir Hall- dór hjá Lýsingu. Morgunblaðið/Golli Bílalán Líkt og með íbúðalán er beðið eftir tillögum stjórnvalda um hvernig og hvort komið verður til móts við þá sem skulda bílalán í erlendri mynt. Greiðsluvandi þeirra sem hafa tekið bílalán er til skoðunar hjá stjórnvöldum og fjármálafyr- irtækjum. Dæmi eru um lán sem komin eru upp í 12 milljónir. Um 120 milljarðar króna eru úti- standandi í ríflega 53 þúsund bíla- lánum á markaðnum, þar af eru um 112 milljarðar í um 40 þúsund myntkörfulánum. Meðalupphæð samninga er 2,3 milljónir króna en dæmi eru um bílalán sem standa í allt að 12 milljónum króna. Oftast hafa lánin verið tekin til fimm ára. Morgunblaðið/Golli Nefnd sem félagsmálaráðherra skip- aði til að fjalla um stöðu skuldsettra heimila er að skoða öll lán og greiðsluúrræði þeim tengd, bílalán þar á meðal. Meðal atriða sem hafa komið til skoðunar er innheimtu- kostnaður og meðhöndlun vanskila, og einnig hvort grundvöllur sé fyrir lengingu lánanna og minni greiðslu- byrði. Niðurfelling lána yfir línuna hefur ekki verið rædd. Morgunblaðið/Valdís

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.