Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 23
Velvakandi 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VILTU SMAKKA? HANN ER MEÐ TÚNFISKBRAGÐI GRIMM GÓRILLAN BER SIG Á BRJÓSTIÐ VOFF! EN VANDRÆÐALEGTHÚN KASTAR AFTUR HÖFÐINU OG URRAR ÓGURLEGA! ÉG VILDI AÐ VIÐ BYGGJUM Í ÓBYGGÐUM MONTANA. ÞAR ER ÞETTA AUÐVELDARA ÞVÍ SANDFOKIÐ VELDUR ÞVÍ AÐ BEININ VERÐA SÝNILEG HÉRNA ÞARF MAÐUR BARA AÐ BYRJA AÐ GRAFA OG ÞESS VEGNA GERIR ÞÚ ÞETTA KERFIS- BUNDIÐ? JÁ, EN ÉG HELD AÐ ÉG ÞURFI AÐ FÆRA ÞETTA TRÉ HÉRNA FANNSTU EINHVER RISAEÐLUBEIN? NEI VONA ÞAÐ BESTA DREKKTU MJÓLKINA ÞÍNA? AF HVERJU? VILTU EKKI VERÐA STÓR OG STERKUR EINS OG PABBI ÞINN? EN ÞAÐ SEM ÞÚ DREKKUR ALLTAF ER EKKI EINU SINNI HVÍTT? KLÓNARNIR MÍNIR FÓRU FYRIR MIG FÓRU ÞEIR ALLIR? ÞETTA VERÐUR ALLT Í LAGI AFSAKIÐ... ÞÚ ÞARFT AÐ SITJA EFTIR ALLAN NÆSTA MÁNUÐ GRÍMUR, ÁTT ÞÚ EKKI AÐ VERA Í HLÝÐNISKÓLANUM? LALLI, VILTU AÐ VIÐ SPILUM Í FANGELSINU? ER ÞAÐ EKKI HÆTTULEGT? MAMMA MÍN ER Í SJÁLFBOÐA- VINNU ÞAR OG EKKERT HEFUR KOMIÐ FYRIR FRÆNKA MÍN KENNDI Í FANGELSINU Í MÖRG ÁR ÁN VANDRÆÐA JÁ, ÞETTA ER ÖRUGGLEGA RÉTT. VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ HAFA NEINAR ÁHYGGJUR EIGUM VIÐ EKKI BARA AÐ TAKA ÞESSU? ÉG VILDI BARA AÐ ÉG HEFÐI EKKI HORFT SVONA MIKIÐ Á „OZ“ ÁÐUR EN ÉG LEITA AÐ M.J. ANNARS STAÐAR ÆTLA ÉG AÐ KÍKJA HEIM TIL KRANDIS EF KÓNGULÓARMAÐURINN ER ENN Á LÍFI OG STÍGUR FÆTI INN Í HÚSIÐ MITT... ER ÚTI UM HANN! Það er með ólíkindum hvað haustar hratt, fuglarnir fljúga suður á bóginn, landinn fær vöðvabólgu og kvef. Sjórinn skvettist upp á steinhlöðurnar og kona mætti nokkrum mótbyr meðan hún gekk meðfram Sæbraut. Morgunblaðið/Kristinn Veðrið versnandi fer Séra Jón og Jón OFT þegar sýnt er frá hálftómum sal Alþingis hefi ég velt fyrir mér: Hvar er allt liðið, sem við höfum ráðið til að gæta landsins gagns og nauðsynja? Nú hefur komið fram að einn skrapp í golf með mat og drykk á eftir. Allt í boði einka- banka líkt og tíðkaðist á „góðæris“tímabilinu. Eftir veitingarnar mætti hann aftur í vinnuna. Fullur. Varð Alþingi okkar Íslend- inga og sjálfum sér til ævarandi skammar. Til að bæta gráu ofan á svart neitaði hann að hafa verið full- ur. Játaði svo að hafa drukkið vín með matnum, en hann hefði ekki fundið á sér. Nú hefur hann beðist afsökunar á mistökum sínum. Ekki fannst mér koma fram mikil iðrun í afsökunarbeiðninni. Það var eins og hann hefði verið beðinn um að biðj- ast afsökunar. Beiðni sem hann varð góðfúslega við, en er það nóg? Ætti hann ekki af segja að sér? Finnst vinnufélögum hans á þingi allt í lagi að menn sé fullir á hinu háa Alþingi okkar Íslendinga? Jón okkar Bjarnason sagði trúr samvisku sinni að hann myndi tala gegn aðild Íslands að ESB. Þá krafðist ráðherra Samfylking- arinnar að hann segði af sér. Jón lagði þá til að viðræðum við ESB yrði frestað. Þá krafðist flokksbróðir hans á þingi að hann segði af sér. Hvar eru þessir siðapostular núna? Finnst þeim og öðrum þingmönnum allt í lagi að menn sé fullir í vinnunni? Hvað segir Jóhanna? SOS. Fjölskylduhjálp – húsaleiga HVAÐ gerist ef Fjöl- skylduhjálp Íslands leggst niður? Kannski væri það best, svo borgin og stjórn- málamenn færu að gera eitthvað fyrir þetta fólk sem leitar þangað. Geta starfs- menn Fjölskylduhjálp- ar endalaust verið í sjálfboðavinnu? Er það rétt að þau borgi 100.000 kr. í húsaleigu á mán- uði? Þetta er skammarlegt. Þau eru að þjóna fólkinu í borginni. Af öllum þessum hjálparstofnunum virðist Fjölskylduhjálpin mest hjálpa fólki – tala af reynslu. Samt fær hún minnst. Gerir fólk/stjórnmálamenn sér grein fyrir t.d. hvað formaður Fjölskylduhjálpar er í mikilli sjálf- boðavinnu fyrir borgina. Mér finnst líka mjög óréttlátt á sínum tíma þeg- ar hún ein var þvílíkt í fjölmiðlum því hún var látin fleygja fullt af út- runnum vörum, þrátt fyrir að það hafi átt við um allar hjálparstofn- anirnar, líka Hjálpastarf kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd. Ég leyfi mér að segja að stjórn- völd og ekki síst borgin (borg- arstjórn) ættu að skammast sín og kannski að lækka laun sín enn meir. Ein reið.        Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofur eru opnar kl. 9-16, félagsvist kl. 13.30. Innritun á námskeið nk. vetur hafin; postulíns- málun, myndlist, útskurður, bókmenna- klúbba. Skráning fer fram á staðnum og í síma 411-2702. Árskógar 4 | Bað kl. 8-15-16, smíði/ útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30. Púttvöllurinn opinn. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, fótaaðgerð, kaffi/dagblöð. Línudans á morgun kl. 13.30. Skráning á haust- námskeiðin er hafin. Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Skrán- ing í aðventuferðina 3.-6. des. Uppl. í síma 898-2468. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bridds og kaffitár kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnust. opin með leiðbeinanda til há- degis, lomber kl. 13 og kanasta kl. 13.15. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- línshópur kl. 9, ganga kl. 10, handa- vinnustofan opin, leiðbeinandi frá kl. 13. Félagsvist kl. 20.30. Félagsmiðstöðin Vesturgötu 7 | Mynd- listarnámskeið verður í vetur kl. 9.15-16. Skráning í s. 535-2730. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur kl. 11, matur, kaffi, síðustu dagar sýningar Höllu Har. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Farið verður á Listasafn Árnesinga í Hveragerði og á Kaffi Klett í Biskups- tungum á morgun, 1. sept. Lagt verður af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum. Skráning í síma 586-8014, eftir hádegi og í síma 692-0814. Félagsstarf í Gerðubergi | Vinnustofur eru opnar kl. 9-16.30, m.a. tréútskurður og handavinna. Frá hádegi er spilasalur opinn, fundur hjá Gerðubergskór kl. 14.30. Á morgun hefst glerskurður og postulínsnámskeið. Uppl. á staðnum og síma 575-7720. Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13-16 í Setrinu, kaffi. Hraunsel | Ganga kl. 10, pútt við Hrafn- istu kl. 13, félagsvist kl. 13.30, blöðin, spjalla og kaffi. Sjá febh.is Hvassaleiti 56-58 | Matur, brids kl. 13. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Myndlist, veð- urhópur, skák, söngur, tónlistarhópur, postulín, tölvuleiðb., framsögn, út- skurður, hannyrðir, bókmenntir, kvik- myndahópur, leikfimi, leiklist, línudans, Íslendingaspjall o.fl. S. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30-13. Uppl. í síma 564- 1490, 554-5330, 554-2780 og á heima- síðu Glóðar glod.is Vesturgata 7 | Myndmennt og postu- línsmálun hefst miðvikudaginn 2. sept. kl. 13-16. Leiðbeinandi er Hildur. Ensku- námskeið hefst fimmtudaginn 3. sept. kl. 10.15, kennari er Peter. Skráning og uppl. í s. 535-2740. Handavinna kl. 9.15, matur og kaffi. Hárgreiðsla og fótaað- gerðir kl. 9-16. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgun- stund kl. 9.30, handavinnustofan opin, spilað. Skráning á haustnámskeiðin stendur yfir. Leiðb. í prjónaskap er við alla daga í handavinnust. Uppl. í s. 411- 9450.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.