Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009 Í vinnuna H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 9 -0 3 6 3 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur sigrunerna@mbl.is FARIÐ var yfir sex hektara af byggi með jarðtætara og er kornið gjöreyðilagt. Kornakurinn stendur nálægt Háfi í Þykkvabæ en deilur standa yfir milli eiganda jarðarinn- ar og annarra bænda á svæðinu um eignarhald yfir skik- anum. Málið hefur verið kært til lögreglu. Lögin tekin í eigin hendur „Akurinn er gjöreyðilagður. Það var farið með jarðvél og byggið tætt ofan í moldina svo það er ónýtt. Þetta hef- ur verið gert í skjóli nætur,“ segir Karl Ólafsson, bóndi í Háfi. Nota átti byggið til svínaeldis og nam þriðjungi af öllu fóðri. ,,Þetta er tjón upp á milljón,“ segir Karl. Skik- inn hefur lengi verið bitbein milli Karls og kartöflubænda á svæðinu sem telja sig eiga skikann og hafa notað hann fyrir kartöflur. „Ólíkt Karli sem sáði þarna byggi í vor í skjóli nætur þá fórum við og herfuðum klukkan tvö eftir hádegi á föstudag,“ segir Markús Ársælsson í Hákoti. „Fyrst sýslumaðurinn tekur ekki á þessu neyðumst við til þess,“ segir hann. Markús segir að Karl hafi á sínum tíma verið kærður fyrir eignaspjöll er hann sáði í landið en ekki hafi verið tekið á því. „Við erum orðnir lang- þreyttir á að þurfa að reyna að sýna ábúendum á Háfi fram á eignarhald á svæðinu. Landið er okkar,“ segir Markús. Eignaspjöll á annarra manna eignum teljast skemmdarverk og eru brot á hegningarlögum. Það þarf þó að vera skýrt hver eigandi eignar er. Farið yfir byggakur og kornið tætt niður í jörð Deilur milli bænda í Þykkva- bæ um landskika magnast Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Spjöll Sex hektarar af korni voru plægðir ofan í mold- ina við bæinn Háf. Myndin tengist ekki fréttinni. Árás í Breiðholti RÁÐIST var á ungan mann í Jafnaseli í Breið- holti í fyrrakvöld. Árásarmennirnir voru tveir og töldu sjón- arvottar sig sjá hnífi beitt í átök- unum. Var því mikill viðbúnaður vegna málsins. Meintur hnífur fannst þó aldrei. Fjöldi lögreglumanna fór á vett- vang, meðal annars sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra. Raunar voru árásarmennirnir ekki á því að hætta þótt lögregla væri komin á staðinn og kom því til átaka. Eftir að mennirnir höfðu verið yf- irbugaðir og handteknir voru þeir fluttir í fangageymslu og yfirheyrð- ir á sunnudagsmorgun. Í kjölfarið var þeim sleppt. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru árásarmennirnir hinir sömu og réðust inn á heimili gull- smiðs við Barðaströnd á Seltjarn- arnesi í vor. Þar héldu þeir húsráð- anda föngnum og misþyrmdu honum auk þess að ræna skart- gripum í hans eigu. Þá tengjast þeir fleiri afbrotum sem framin hafa verið á síðustu mánuðum. sbs@mbl.is Barðastrandarræn- ingjarnir aftur á ferð FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ÞÆR hugmyndir eru uppi á borði hjá fjármála- ráðuneytinu, samkvæmt heimildum blaðsins, að HS orka verði í meirihlutaeigu opinberra aðila og í tæplega helmingseigu Magma Energy. Fulltrúar stjórnvalda, Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur og Magma Energy hafa átt í við- ræðum um framtíðarskipulag HS orku síðustu daga þar sem þessar hugmyndir hafa verið rædd- ar. Forsenda nýrra framkvæmda Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og aðrir þungavigtarmenn innan Vinstri grænna hafa lagt á það mikla áherslu að tryggt verði að meiri- hluti HS orku verði í almenningseigu. Heimildir Morgunblaðsins herma að forsvars- menn Reykjavíkurborgar hafi lýst yfir sömu af- stöðu. Stjórnvöld gera sér hins vegar grein fyrir að erlend fjárfesting skiptir miklu máli í því árferði sem nú ríkir á Íslandi og meta því mikilvægi þess að Magma komi með fjármagn inn í rekstur HS orku, enda er slík fjárfesting talin forsenda þess að fyrirtækið geti ráðist í nýjar framkvæmdir. Íslenskir ráðamenn hafa fundað nokkrum sinn- um með Ross Beaty, forstjóra og aðaleiganda Magma, í vikunni til að reyna að komast að ein- hverskonar samkomulagi um framtíðareignarhald HS orku. Aukin fjölbreytni kaupenda Meðal þess sem stjórnvöld vilja leggja áherslu á er að fjölbreytni í hópi orkukaupenda HS orku verði aukin og að sérstök áhersla verði lögð á að fá umhverfisvænni stórkaupendur en nú kaupa af fyrirtækinu, en í dag eru þeir fyrst og fremst ál- ver. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Magma Energy tekið undir þessar áherslur. Mikil áhersla á ríkiseign  Stjórnvöld telja erlenda fjárfestingu mikilvæga en vilja halda meirihlutanum  Magma Energy gæti orðið eigandi að tæplega helmingshlut í HS orku Frestur Orkuveitu Reykjavíkur til að taka til- boði Magma í hlut OR í HS orku rennur út í dag. Forsvarsmenn OR hafa verið að kalla eft- ir svörum frá ríkinu. ÞRÍR voru fluttir á slysadeild, að því er talið var með minniháttar meiðsli, eftir árekstur tveggja bíla í Lögbergsbrekku á Suðurlandsvegi í gærmorgun, að sögn lögreglu. Báðir bílarnir voru óökufærir eftir áreksturinn og voru fluttir af vett- vangi með kranabílum. Var fjöl- mennt lið lögreglu og sjúkraflutn- ingamanna sent á staðinn. Þrír meiddir eftir harðan árekstur NOKKRAR konur sem munu keppa um titilinn sterk- asta kona Íslands sýndu krafta sína á Ingólfstorgi um helgina með því að velta risastórum hjólbörðum á und- an sér. Keppnin sjálf mun fara fram í Vetrargarðinum í Smáralind hinn 17. október og þegar hafa 18 konur skráð sig til leiks. Ljóst er að íslenskar íþróttakonur sækja í sig veðrið á fleiri sviðum en knattspyrnunnar og verður spennandi að fylgjast með þeim sterku. Morgunblaðið/Árni Sæberg KVENNAKRAFTAR Í KÖGGLUM TÖLUVERÐUR erill var hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt og mikið um útköll vegna ölvunar. Átta gistu fangageymslur vegna ölvunar og óspekta. Þá voru þrír ökumenn teknir grunaðir um ölvunarakstur. Að sögn lögreglu var talsvert um útköll í Mosfellsbæ fram eftir nóttu en þar var bæjar- hátíðin „Í túninu heima“ um helgina. Átta teknir vegna óláta og ölvunar Ríkisfjármála- nefnd sem skipuð er forystumönn- um ríkisstjórn- arflokkanna, helstu fulltrúum stjórnarflokk- anna í fjár- laganefnd og embættismönn- um fundaði allan daginn í gær. Farið var yfir gerð fjárlaga fyrir næsta ár, sem eru að taka á sig mynd. Forsendur liggja þó enn ekki allar ljósar fyrir, það er tekjur og útgjöld. Miðað er við 5% niðurskurð í vel- ferðarmálum, 7% í menntamálum og 10% á öðrum sviðum. Einstaka ráðu- neyti útfæra niðurskurðinn frekar. „Framhaldið er handavinna sem ræðst af áherslum í hverju ráðu- neyti. Í raun liggur ramminn fyrir og nú er verið að fylla út í þá mynd. Fjárlagagerðin byggir mikið á skýrslu um ríkisfjármál sem lögð var fram í vor og stöðugleikasátt- málanum,“ segir Guðbjartur Hann- esson, formaður fjárlaganefndar. sbs@mbl.is Fjárlög næsta árs taka á sig mynd Guðbjartur Hannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.