Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009 Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Réttað var á Hlíð- arrétt í gærmorgun með rúm 2 þús- und fjár og nokkur hundruð gesta. Að venju er þetta viðburður sem dregur brottflutta Mývetninga á heimaslóð og gefur tilefni til að eiga saman notalega morgunstund í almenningnum eða í veitingatjaldi slysavarnakvenna þar sem borð svignuðu undan fjölbreyttum veit- ingum. Einnig fyrir erlenda ferða- menn að sjá eitthvað alveg nýtt og sérstakt í íslensku mannlífi. Þeir voru annars heldur fúlir gangnadagarnir tveir og verulega leiðinlegir til smölunar, köld norð- anátt og töluvert mikil úrkoma. Samt var gott útlit á fénu og gam- alreyndur fjárbóndi sagði fréttarit- ara að hann heyrði það á þrótt- miklu jarmi fjárins að það kæmi vel vænt af fjalli að þessu sinni, vænna en á undanförnum haustum. Stöðugt fleiri bændur eru með fé sitt í lokuðum beitarhólfum og því fækkar fé sem kemur til sameig- inlegra fjallskila. Þess vegna er Baldursheimsrétt ekki svipur hjá sjón og umstangið á Hlíðarrétt fer einnig minnkandi. Sundurdráttur hófst kl. 10 og réttin var þögnuð upp úr kl. 13. Með breyttu skipulagi gangna og bættum samgöngum er nú svo kom- ið að gangnamenn mývetnskir gista heima hjá sér að loknu hverju dags- verki og kvöldið í gangnakofanum heyrir sögunni til. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Safnið Stöðugt fleiri bændur eru með fé sitt í lokuðum beitarhólfum. Fyrstu réttir haustsins í Mývatnssveit Göngur í norðanátt og slagveðursregni Eftir Sigurð Sigmundsson Síðustu helgi fór fram árlegt lands- mót Smalahundafélags Íslands, á Miðengi í Grímsnesi. Nítján kepp- endur tóku þátt í þremur flokkum og komu þeir hvaðanæva að, allt frá Dalatanga og Langanesi, vestur að Grundarfirði. Keppt í þremur flokkum Á landsmóti er keppt í þremur flokkum; A-flokki vanra hunda fjögurra ára og eldri, B-flokki minna vanra hunda 2-4 ára, og C- flokki unghunda 3 ára og yngri. Sjö hundar kepptu í A-flokki, fjórir í B- flokki og átta í C-flokki. Fóru leik- ar svo að í A-flokki sigraði Hilmar Sturluson, Móskógum í Árborg, með Dot frá Wales, í B-flokki sigr- aði Reynir Þór Jónsson, Hurð- arbaki í Flóanum, með Tútú frá Daðastöðum og í C-flokki ung- hunda sigraði Gísli Þórðarson, Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi, með tíkina Kötu frá Daðastöðum. Áhugavert er að geta þess að sami maður var með hunda í 2. og 3. sæti í A-flokki, Þorvarður Ingi- marsson á Eyrarlandi í Fljótsdal, en hann var með Mac frá Skotlandi og Lísu frá Hafnarfirði. Þurfum stundum konu „Þegar við rekum fé í réttir þurf- um við ekki á öðru að halda en úr- valshundi. Og stundum konu,“ seg- ir Þorvarður og glottir. Þorvarður hefur lengi verið áhugamaður um smalahundaræktun og var lengi Ís- landsmeistari með hundinn Tígul sem þótti einstakur smalahundur. Gaf hann farandbikar í minningu Tíguls, Tígulbikarinn. Þorvarður sagði að þörf væri á fleiri úrvals- hundum hérlendis og hefur hann til dæmis sjálfur flutt inn hundinn Mac sem lenti í 2. sæti í A-flokki. Mac er sjö ára gamall og kemur frá Bretlandi og kostaði hann 800.000 krónur, kominn úr ein- angrun. Undan honum hafa nú komið sjö got og um fimmtíu hundar. Mac er af border-collie- kyni eins og allir hundar sýning- arinnar. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hundakúnstir Þorvarður Ingimarsson sést hér með hundinn Mac sem lenti í 2. sæti í A-flokki. Mac er mikill ræktunarhundur og undan honum hafa þegar komið sjö got og um 50 hundar. Glæsileg tilþrif hjá smalahundum  Landskeppni Smalahundafélags Íslands fór fram um helgina  Nítján hundar tóku þátt í keppninni Sigurvegarar í B-flokki Reynir Þór Jónsson, Hurðarbaki, Valgeir Þór Magnússon, Grundarfirði, og Gísli Þórðarson, Mýrdal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.