Morgunblaðið - 31.08.2009, Side 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Hreinræktaðir Vizslu hvolpar til
sölu. Tilbúnir til afhendingar.
Frábærir fjölskyldu- og veiðihundar.
Einstaklega barngóðir og fljótir að
læra. Uppl. í síma 860 4280 eða í
gegnum: kiddyoli@gmail.com
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis
á Akureyri - Þrjú svefnherbergi
(78 fm). Rúm fyrir sjö. Verönd og
heitur pottur. Glæsilegt útsýni yfir
Pollinn. Frítt netsamband. Uppl. á
www.saeluhus.is eða í s. 618 2800.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is,
www.theta.is
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 34.900. Hljómborð frá kr.
8.900. Trommusett kr.69.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Atvinnuhúsnæði
Fellihýsi - Hjólhýsi -
Tjaldvagnar. Tökum til geymslu
fellihýsi, hjólhýsi,tjaldvagna og
húsbíla. Engin stærðartakmörk.
Leigutími september til 15. maí.
Upphitað fyrsta flokks húsnæði í
hjarta Reykjavíkur. Uppl. í s:
544-5466/ 893-1162 /660- 4560.
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í
símum 561 6521 og 892 1938.
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám
Windows Server 2008 Administrator
nám hefst 14.9. Verð kr. 229.000 fyrir
341 st. nám. Upplýs. og skráning á
www.raf.is og í síma 863 2186.
Rafiðnaðarskólinn.
LEIRKRÚSIN
Ný námskeið í leirmótun á haustönn;
handmótun, rennsla, rakúbrennsla.
Einnig er hægt að leigja vinnu-
aðstöðu, með öllu. Uppl. www.leir.is
S. 555 1809 / 661 2179.
Óska eftir
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Viðgerðir
Ýmislegt
Mjög vandaðir og fínir
dömuskór úr leðri, lakkaðir. Stærðir:
36-41. Litur: Svart lakk. Verð 8.300.-
Mjúkar og þægilegar
leðurmokkasíur á lágum hæl.
Stærðir: 36-40. Litur: Svart.
Verð 10.950.-
Mjúkar og þægilegar
leðurmokkasíur með gúmmísóla.
Stærðir: 36-41. Litur: Svart.
Verð 11.950.-
Vandaðir og þægilegir
götuskór úr leðri með gúmmísóla og
höggdeyfi í hæl. Stærðir 36-41.
Litur: Svart. Verð 8.875.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Mjög flottur í DE-skálum á kr. 3.950,
boxer buxur í stíl á kr. 1.950.
Þessi ROSA góði nýkominn aftur í
CDE-skálum á kr. 3.950, buxur í stíl á
kr. 1.950.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vélar & tæki
Vélaleiga og hellulagnir
Traktorsgrafa, minigrafa og vörubíll.
Hellulagnir, drenlagnir og jarðvegs-
skipti. Margra ára reynsla og vönduð
vinnubrögð. Mr vélar, símar 698 1710
og 616 1170.
Bátar
Strandveiðimenn
Fiskiker gerðir 300, 350, 450
og 460. Línubalar 70 og 80 l.
Allt íslensk framleiðsla í hæsta
gæðaflokki.
www. borgarplast.is
Völuteig 31,
Mosfellsbæ,
s: 561 2211.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Raðauglýsingar
Tilboð/Útboð
Lóðir & lagnir
Einn verktaki í allt verkið
Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir,
húsfélög og einstaklinga. Dren, skolp-
lagnir, hellulagnir, lóðafrágangur, jarðvegs-
skipti, snjóbræðslulagnir, grunnar og efnis-
sala, fleyganir, smágröfuleiga o.fl.
Gerum föst verðtilboð.
Guðjón, sími 897 2288.
ist svo oft en verður svo skýrt þegar
þeir kveðja sem mótuðu mann og
reyndust vel. Ég kveð Immu með
hlýju, söknuði og þakklæti fyrir sam-
fylgdina. Ef það er hestagirðing á
himnum er hún þar í góðu yfirlæti og
ekki verra ef það er berjabrekka ein-
hvers staðar nálægt. Það væri henn-
ar himnaríki.
Steinunn Birna.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að alast að miklu leyti upp hjá
ömmu minni og afa en Imma var
stóra systir hans. Ég eyddi því
ófáum stundum hjá Immu í Bakka-
gerðinu sem hafði einstakt lag á að
láta gestum sínum líða vel og belgdi
þá út af kræsingum. Í eldhúsinu varð
allt að gulli sem hún snerti, enda
enginn samur eftir að hafa smakkað
bakkelsið hennar Immu. Ég lærði
þetta snemma og átti það því til að
ganga rakleiðis að ísskápnum henn-
ar áður en ég heilsaði, ömmu minni
til mikillar skelfingar.
Ég sóttist mikið eftir því að fá að
fara til Immu sem barn, hvort sem
var í næturgistingu eða í stutta
heimsókn með ömmu. Þótt kræsing-
arnar hafi sjálfsagt spilað þar stóra
rullu, var svo margt annað sem heill-
aði mig við hana Immu mína. Hún
var hvunndagshetjan mín og kona
góðra gamalla gilda. Hún var nægju-
söm, hógvær og kunni vel að meta
rólegheit í rökkrinu þar sem við tók-
um í spil eða spjölluðum saman.
Imma talaði aldrei undir rós og var á
köflum svo hreinskiptin að manni
fannst nóg um! Hún mátti þó ekkert
aumt sjá og hlúði vel að ástvinum
sínum.
Ég þakka þér samfylgdina, elsku
Imma mín, og allan þann tíma sem
þú gafst lítilli stelpu sem verður aldr-
ei söm. Knúsaðu nú hann Magga fyr-
ir mig og segðu honum að ég sé (loks-
ins) búin að fatta að hann hafi alltaf
leyft mér að vinna svarta Pétur.
Þín
Brynhildur.
Imma föðursystir mín er látin,
mér hefur þótt skrítið að hugsa til
þess sl. viku. Í gegnum árin hefur
verið gott að koma við í Bakkagerð-
inu, vitandi að Imma var oftast
heima og tilbúin að spjalla svolítið og
drekka með mér kaffisopa við eld-
húsborðið. Oftar en ekki voru nýbak-
aðar pönnukökur eða annað bakk-
elsi, sem hún töfraði fram þrátt fyrir
að vera illa farin af gigt í skrokknum,
sem hamlaði henni seinni árin að
komast allra sinna ferða. Hún studd-
ist þá við göngugrind og sagði gjarn-
an að það amaði ekkert að sér, það
væru svo margir sem hefðu það
miklu verra og svo var það ekki rætt
meira.
Ég minnist margra ferða með
Immu, bæði innanlands og utan. Ég
varð t.d. þeirrar ánægju aðnjótandi
að fara sem fylgdarkona þeirra
Immu og mömmu, þegar þær fóru í
sína fyrstu utanlandsferð. Þegar við
lentum í Osló var sem þær hefðu
himin höndum tekið, sjálfstæðar og
karllausar á sextugsaldri, komnar á
vit ævintýranna. Við skoðuðum (í
endurminningunni) nánast allt í Osló
og nágrenni og oftar en ekki fannst
mér, sem við færum ekki hratt yfir,
slíkur var áhuginn hjá þeim stöllum.
Síðar áttum við eftir að ferðast oftar
saman erlendis og einkenndust þær
ferðir alltaf af því að skoða sig um og
fræðast sem mest að ógleymdum
ferðunum í búðirnar að kaupa sér
einhverjar tuskur, eins og Imma
sagði gjarnan. Það vakti ekki síður
hjá henni ánægju og áhuga að skoða
og kaupa sér föt í útlöndum. Hún
vann hjá pabba í mörg ár í Hanska-
gerðinni á Grensásveginum, við alls-
konar tösku- og leðursaum, sem lék í
höndunum á henni eins og allt annað,
sem hún tók sér fyrir hendur. Hún
tók bílpróf í seinna lagi og eftir það
héldu henni engin bönd, hún ferðað-
ist mikið um landið sitt, oft í samfloti
með fjölskyldunni minni. Ég á mörg
skemmtileg minningabrot frá upp-
vaxtarárum mínum frá þeim ferðum,
þegar Imma og Maggi voru í samfloti
með okkur á fólksvagninum og síðar
bara Imma eftir að Maggi féll frá.
Eitt sinn þegar við vorum á ferð á
Austurlandi og fórum yfir Hellis-
heiði eystri, þá sagði Imma okkur
þegar upp var komið á háheiðina að
bremsurnar á bílnum væru farnar að
svíkja sig. Þá voru góð ráð dýr og bíl-
arnir voru hengdir saman og niður
brattann fjallveginn fórum við með
Immu í Bjöllunni, í bandi og ekki
haggaðist frænka frekar en vant var
ef eitthvað kom upp á. Gjarnan var
haft á orði á ferðalögum að Imma
þyrfti aldrei að fletta upp í ferðakort-
um, hún kunni deili á flestu því sem
fyrir augu bar. Hún hafði mikla
ánægju af því að kynna sér stað-
hætti, las mikið af ferðabókum og
miðlaði svo til okkar hinna sögum
sem oft lifnuðu við í landslaginu og
náttúrunni. Elsku Imma, ég þakka
þér fyrir allar skemmtilegu stund-
irnar sem við erum búnar að eiga
saman í gegnum árin, þær ylja svo
sannarlega í söknuðinum.
Blessuð sé minning þín.
Árna, Björg, Magnúsi og þeirra
fjölskyldum sendum við Sigurgeir og
Guðrún Steinunn, okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guðrún Pétursdóttir (Lilla).
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 25 ágúst var spilað á
17 borðum. Meðalskor var 312. Úr-
slit urðu þessi í N/S
Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimars 361
Björn Pétursson – Gísli Hafliðason 355
Ólafur Ingvarss. – Sigurberg Elentínuss.354
Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 347
A/V
Ásgeir Sölvason – Helgi Sigurðsson 383
Ágúst Stefánsson – Helgi Einarsson 347
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 345
Nanna Eiríksd. – Bergljót Gunnarsd. 338
Föstudaginn 21. ágúst var spilað á
14 borðum. Meðalskor var 312. Úr-
slit urðu þessi í N/S
Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 379
Lilja Kristjánsdóttir – Ólöf Ólafsdóttir 371
Jóhann Benediktsson – Pétur Antonsson 345
Jón Sigvaldason – Ólafur Oddsson 331
A/V
Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónsson 392
Jóhannes Guðmannss. – Friðrik Jónss. 373
Jón Ól. Bjarnas. – Guðmundur Bjarnas. 341
Kristín Sigfúsd. – Guðríður Ingimarsd. 337
Frá og með 1. september hefst
spilamennska klukkan 12. í stað 13..