Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 22
22 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Sudoku
Frumstig
4 9 6
4 3 5
6 5 9
8 2
5 2
1 4
2 4 6
9 1
8 7
9 7
8 7 1 5 3
4
6 4 9
7 9 2 8
4 7 8 1
2 3
5 4 3
8 9 7
2 5
9 6
3 1 4
9 7 8 3
5 6
6 9
1 3
5 4 3 2
8 3 5 2 9 7 6 4 1
6 1 2 4 3 5 9 8 7
4 9 7 8 6 1 2 5 3
1 2 3 6 5 9 8 7 4
7 4 9 3 1 8 5 2 6
5 8 6 7 4 2 3 1 9
2 6 1 9 8 4 7 3 5
9 5 8 1 7 3 4 6 2
3 7 4 5 2 6 1 9 8
7 6 5 8 9 3 2 4 1
9 8 4 6 1 2 5 3 7
3 2 1 5 7 4 8 9 6
6 4 3 1 8 9 7 5 2
8 7 2 4 6 5 9 1 3
1 5 9 2 3 7 6 8 4
5 9 7 3 2 1 4 6 8
4 3 6 7 5 8 1 2 9
2 1 8 9 4 6 3 7 5
3 7 4 9 6 2 5 8 1
8 9 5 3 4 1 7 6 2
1 6 2 7 8 5 4 9 3
9 5 3 2 7 4 8 1 6
4 8 7 1 9 6 2 3 5
6 2 1 8 5 3 9 4 7
2 4 9 6 3 7 1 5 8
7 3 8 5 1 9 6 2 4
5 1 6 4 2 8 3 7 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 31. ágúst,
243. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Víkverji hefur óbeit á fólki sembirtist með þurrt hár, í þurr-
um sundfötum og jafnvel með and-
litsfarða og ilmvatn á sundlaugar-
bökkum. Þessu fólki fjölgar á
Íslandi á sumrin þar sem fjöldi er-
lendra ferðamanna virðist ekki
átta sig á íslenskum reglum um
líkamsþvott í sundlaugum.
Sundlaugarstarfsmenn eru mis-
árvökulir, margir sinna starfi sínu
þó af mikilli sannfæringu. Víkverji
fylgdist með því síðasta sumar, sér
til mikillar ánægju, þegar sund-
laugarvörður í Laugardalslauginni
birtist sótrauður á sundlaug-
arbakkanum og öskraði á ensku-
mælandi konu allt þar til hún lét
segjast og fór lúpuleg upp úr laug-
inni. Hún hafði nefnilega ekki farið
í sturtu og ýmislegt benti til þess
að hún hefði átt í útistöðum við
sundlaugarvörðinn við sturturnar
en náð að lauma sér út í laug.
Víkverji fór í sund í sömu laug á
laugardaginn var og taldi þar all-
nokkra erlenda ferðamenn sem
fóru ofan í án þess að hafa baðað
sig – nema þeir hafi þurrkað sér
og blásið hárið áður en þeir fóru
ofan í.
x x x
Víkverji bjó um skeið í Þýska-landi og fór ógjarna í sund af
ofangreindum ástæðum. Þar er
fólk víðast litið hornauga sem fer
úr sundfötunum í sturtu og engin
sápa er í sturtunum, ekki gert ráð
fyrir sápuþvotti. Ástandið mun þó
vera betra í karlaklefum en
kvennaklefum þar sem karlarnir
þvo sér iðulega skammlaust skýlu-
lausir.
Víkverji man sérstaklega eftir
einu atviki sem varð til þess að
ekki var farið í sund í langan tíma
á eftir. Víkverji verslaði iðulega í
sömu versluninni þar sem einn
starfsmaður vakti athygli fyrir sér-
staka framkomu og mikinn líkams-
daun. Einn sumardag fór Víkverji
svo með fjölskyldunni í hverf-
islaugina og hver birtist á bakk-
anum? Jú, verslunarmaðurinn,
þurr og í skraufþurri sundskýlu.
Langt var í næstu sundferð.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gjörvileg, 8
andar, 9 snaginn, 10
slyng, 11 fiskur, 13 ná-
lægt, 15 káta, 18 vísa, 21
lengdareining, 22 fæða
handa skepnum, 23
kyns, 24 skreiðar.
Lóðrétt | 2 kjökrar, 3
nirfill, 4 ásynja, 5 reiður,
6 spilum, 7 vendi, 12
tímabil, 14 í uppnámi, 15
rola, 16 gera auðugan,
17 ákveð, 18 herði, 19
þverneita, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 málug, 4 skjól, 7 neita, 8 úlfur, 9 fár, 11 traf, 13
maur, 14 lokka, 15 skrá, 17 logn, 20 hné, 22 mokar, 23
takið, 24 asann, 25 mænið.
Lóðrétt: 1 mennt, 2 leika, 3 graf, 4 skúr, 5 jafna, 6 lúrir,
10 álkan, 12 flá, 13 mal, 15 summa, 16 rukka, 18 orkan,
19 níðið, 20 hrín, 21 étum.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. Dd2 b5 8.
f3 Rbd7 9. O-O-O Bb7 10. Bd3 Hc8
11. g4 b4 12. Rce2 d5 13. Rg3 Re5 14.
g5 Rxd3+ 15. Dxd3 dxe4 16. Db3
Rd5 17. Rh5 Da5 18. fxe4 Rxe3 19.
Dxe3 Dxa2 20. Rb3 Be7 21. Rxg7+
Kf8 22. Hd7 Bxe4 23. Rxe6+ fxe6 24.
Hf1+ Ke8
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir nokkru í Martuni í
Armeníu. Armenski stórmeistarinn
Samvel Ter-Sahaykyan (2.480) hafði
hvítt gegn alþjóðlega meistaranum
Rinat Jumabayev (2.550) frá Ka-
sakstan. 25. Hxe7+! Kxe7 26. Dxe4
Dxb3 27. Db7+ Kd6 28. Hd1+ Ke5
29. Dg7+ Ke4 30. Dd4+ Kf5 31.
Df6+ Kg4 32. Hg1+ og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Óvænt endalok.
Norður
♠K742
♥8
♦87532
♣1098
Vestur Austur
♠G53 ♠ÁD10
♥D97653 ♥G42
♦ÁKDG ♦10964
♣– ♣543
Suður
♠986
♥ÁK10
♦–
♣ÁKDG762
Suður spilar 5♣.
Þessi þraut er á opnu borði, sem
þýðir að vinningsleiðin lýtur engum
skynsemiskröfum – hún þarf bara að
virka, eins og legan er. Útspilið er
♦Á.
Lauftvisturinn er í lykilhlutverki og
hann þarf að spara til síðari tíma. Út-
spilið er því trompað hátt (með ásn-
um til að sýna samstöðu), síðan er í
tvígang farið inn í borð á tromp til að
stinga tígul – auðvitað hátt. Næst er
ÁK í hjarta breytt í slagi og ♥10
trompuð í borði. Þá er tígull stunginn
í fjórða sinn, sem þýðir að fimmti tíg-
ullinn í borðinu er orðinn frír. Kemur
sér nú vel að hafa geymt lauftvistinn
til mögru áranna, því lokahnykkurinn
er að senda austur inn á lauf og láta
hann spila frá ♠Á. Fyrir trompslag-
inn fást tveir aðrir: einn á ♠K og
annar á frítígul.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Breytingar í fjármálum eða
varðandi sameiginlegar eignir geta
komið þér á óvart í dag. Ekki vera of
fljót/ur að afskrifa hlutina.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu ekki hugfallast og mundu að
hver er sinnar gæfu smiður. Vinsældir
þínar eru meiri en nokkru sinni fyrr.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú verður að geta þagað yfir
leyndarmáli, ef þú vilt halda vináttu
gamals félaga. Láttu allar óþarfa
áhyggjur lönd og leið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er spenna í samskiptum þín-
um við vini og kunningja. Eins og oftast
skiptir fólkið sem hjálpar þér meira
máli en fundurinn sjálfur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Reyndu af fremsta magni að forð-
ast að vera þrjóskur í deilum við ein-
hvern nákominn þér. Breytingatímar
eru framundan og þú skalt búa þig und-
ir eitthvað nýtt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Yfirburðaárangur næst vegna
framúrskarandi frammistöðu þinnar.
Framlag þitt fer ekki framhjá yf-
irmönnum þínum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Notaðu daginn til þess að flagga
dyntum þínum. Endurskoðaðu málflutn-
ing þinn því orsökin liggur hjá þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú verður ekki lengur und-
an því vikist að taka ákvörðun varðandi
starfsvettvang. Reyndu að auka þekk-
ingu þína og skilning á framandi hug-
myndafræði og menningu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það getur komið sér vel að
eiga trúnaðarvin sem getur deilt með
þér bæði gleði og sorg. Í dag er ágætur
dagur til að slappa af og skemmta sér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú talar þínu máli og veist að
enginn getur gert það fyrir þig.
Tryggðu þér sæti í fremstu röð, þar
sem menn veita þér og þínum málum
athygli.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert að reyna eitthvað nýtt
og ert orðin góð/ur, en kannski ekki frá-
bær. Hugsaðu vel þitt ráð og hvað þú
vilt að gera.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Brettu upp ermarnar og láttu
verða af að gera eitthvað inni á heimili
þínu sem hefur dregist aðeins of lengi.
Slíkum tíma er vel varið og kemur þér í
gott skap.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
31. ágúst 1947
Septembersýningin var opn-
uð. Þar sýndu átta listmál-
arar og tveir myndhöggv-
arar, sem síðar voru nefndir
Septem-hópurinn.
31. ágúst 1980
Silfursjóður, að öllum lík-
indum frá landnámsöld,
fannst við Miðhús á Fljóts-
dalshéraði. Fjórtán árum síð-
ar var mikið deilt um aldur
silfursins.
31. ágúst 1994
Lengstu viðureign íslenskrar
skáksögu lauk með jafntefli
eftir 183 leiki. Þetta var skák
Jóhanns Hjartarsonar og
Jóns Garðars Viðarssonar á
Skákþingi Íslands í Vest-
mannaeyjum. Eldra met var
frá 1988, 163 leikir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Erla Guðrún Hrafnsdóttir, Atli
Snær Jóhannsson og Alexander
Heiðarsson söfnuðu 1.668 kr. til
styrktar Rauða krossinum. Á
myndinni eru Erla Guðrún ásamt
bróður sínum Breka Hólm, þau af-
hentu Rauða krossinum peningana.
Hlutavelta
Kristín Tómasdóttir, Íris Birna
Kristinsdóttir og Harpa Mukta
Birgisdóttir stóðu fyrir kökuhapp-
drætti og söfnuðu með því 9.618
krónum sem þær styrktu Rauða
krossinn með.
Hlutavelta
„Ég á alltaf afmæli á djasshátíð,“ sagði Vern-
harður Linnet, kennari og djassáhugamaður
sem er 65 ára í dag. Hann sagðist vera ánægð-
ur með þetta. Hann hefði aldrei gert mikið úr
afmælishaldinu sjálfu, en djassinn væri hins
vegar líf sitt og yndi og því færi vel á því að
gleðjast á þessum tímamótum með því að hlusta
á nokkra af okkar bestu tónlistarmönnum spila
djass.
Á afmælisdaginn stendur Vernharður fyrir
Jazz Quiz í Djúpinu. Átta lið keppa og nú eru
fjögur lið eftir. Vernharður spyr um viðburði í
djasssögunni, en einnig er hann með tóndæmi og fleira. Í fyrra
sigraði lið Stórsveitar Reykjavíkur og nú er spurningin hvort lið-
inu tekst að verja titilinn. Úrslitakeppnin fer fram á morgun í
Djúpinu, en þá lýkur djasshátíðinni.
Vernharður er ánægður með djasshátíðina. „Það er búin að
vera ótrúleg aðsókn. Það hefur verið fullt á öllum viðburðum.“
Vernharður sagði að áhugi á djassi væri ekkert að minnka.
Áhugi á menningu væri sem betur fer almennt mikill. Umrót í
viðskiptalífinu og stjórnmálum breytti engu um það. egol@mbl.is
Vernharður Linnet kennari og djassáhugamaður
Á alltaf afmæli á djasshátíð
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is