Morgunblaðið - 31.08.2009, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
HHHH
„BESTA TARANTINO-MYNDIN
SÍÐAN PULP FICTION OG
KLÁRLEGA EIN AF BETRI
MYNDUM ÁRSINS.“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„EIN EFTIRMINNILEGASTA
MYND ÁRSINS OG EIN SÚ
SKEMMTILEGASTA“
S.V. - MBL
HHHH
- H.G.G, POPPLAND/RÁS 2
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG
STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA
Í REYKJAVÍK
SÝND MEÐÍSLENSKU TALI
EIN ALLRA BESTA DISNEY-
PIXAR MYND TIL ÞESSATVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR
MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD,
EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ
VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM
STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI
SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF
GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI
“BESTA MYND ÁRSINS”
HHHH
„SKEMMTILEG, HJARTNÆM
OG DREPFYNDINN“
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„HÉR ER ENN EITT
MEISTARAVERK FRÁ PIXAR,
SEM RYÐUR BRAUTINA
Í NÚTÍMA TEIKNIMYNDAGERÐ.“
- ROGER EBERT
100/100 – VARIETY
100/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK,
SELFOSSI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA
/ ÁLFABAKKA
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 5:30 - 8:30- 10:10 16 UP m. ensku tali kl. 83D DIGTAL 3D L
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10:10 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 3:40 - 5:50 - 8 LÚXUS VIP
DRAG ME TO HELL kl. 8 - 10:10 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L
PUBLIC ENEMIES kl. 8 - 10:40 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 L
G-FORCE m. ísl. tali kl. 3:30 - 5:50 L HARRY POTTER 6 kl. 5 10
THE PROPOSAL kl. 5:50 - 8 - 10:20 L HANGOVER kl. 3:40 síðustu sýningar 12
/ KRINGLUNNI
UP m. ensku tali kl. 63D - 83D - 10:103D L DIGITAL 3D
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L DIGITAL 3D
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
DRAG ME TO HELL kl. 8:20 - 10:30 16
PUBLIC ENEMIES kl. 10:10 16
G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 43D L DIGITAL 3D
THE PROPOSAL kl. 8 L DIGITAL
Fyrsta þrívíddarteiknimyndhinna margrómuðu Pix-ar-snillinga var frumsýndhér á landi um helgina og
óhætt er að segja að hún auki hróð-
ur þeirra enn frekar. Upp er allt í
senn ærslafengið ævintýri í anda
Indiana Jones, hugljúf ástarsaga og
gamansöm fjölskyldumynd. Hún er
einnig þrungin boðskap sem á er-
indi við alla aldurshópa og ætti því
að geta höfðað til flestra áhorfenda.
Myndin var opnunarmynd Cannes-
kvikmyndahátíðarinnar í ár og hef-
ur farið sigurför um heiminn síðan.
Sagan segir af óhefðbundinni
vináttu bitra ekkilsins Carls sem
kominn er á eftirlaun og ofurviljuga
skátans Russells sem bankar einn
daginn upp á hjá honum. Saman
lenda þessar ólíklegu hetjur í
óvæntum ævintýrum en í för með
fulltrúum æsku og elli slæst vina-
legur hundur sem einnig hefur ver-
ið skipað á hliðarlínuna í frama-
kapphlaupi vinnandi fólks. Russell
þráir ekkert heitar en viðurkenn-
ingu föður sem virðir hann ekki við-
lits og eiginkona Carls dó frá hon-
um áður en þau gátu látið drauma
sína rætast. Það rennur þó upp fyr-
ir Carl að mikilfenglegustu æv-
intýri lífsins gerast gjarna meðan
maður lætur sig dreyma um eitt-
hvað betra. Farsæl ástarsaga og lit-
ríkar minningar hjónakornanna eru
gulls ígildi og það eina sem hefur
aftrað þeim frá því að láta drauma
sína rætast er fastmótaður og jarð-
bundinn hugsunarháttur. Carl
hættir að trega glötuð tækifæri og
bölva ævi sem er að fjara út. Hann
hefur heimili sitt á loft með hjálp
aragrúa litríkra gasblaðra og flýgur
með laumufarþegann Russell á vit
framandi slóða.
Á vegi þeirra verða meðal ann-
arra æskuhetja Carls og hunda-
hjörð hans. Ævintýramaðurinn
Muntz er heltekinn af því að skapa
sína eigin goðsögn og því firrtur
allri mannlegri hlýju. Hundarnir
standa í sama slag og flestir þegnar
nútímasamfélags sem eru upp-
teknir af því að klífa stigveld-
isskiptan metorðastigann í velmeg-
unarkapphlaupi. Þeir eru hjörð sem
fylgir hirði í blindni og trássi við
innrætingu hjartans.
Frásögnin er spennandi og per-
sónusköpunin einstök, lífleg og trú-
verðug en mögnuð og vel heppnuð
tölvugrafík skiptir þar sköpum.
Áhorfandinn skilur hvatir söguhetj-
anna og tjáning þeirra skilar sér
jafnt í mæltu máli, atgervi og svip-
brigðum. Það telst myndinni einnig
til tekna að hún er ekki alveg syk-
urhúðuð því sagan er á stundum
ógnvekjandi og átakanleg. Áhorfið
er þó helst til stýrt. Framvindan er
formúlukennd og býður ekki upp á
margt órætt fyrir áhorfandann að
ráða í. Innlifunin er kerfisbundin
þar sem bitastæðir önglar kippa í
hvert bros og viðbragð óvirks
áhorfandans.
Hrífandi boðskapurinn er þó eft-
irminnilegur og upplífgandi – lífið
er samansafn ævintýralegra augna-
blika sem vert er að njóta. Carl
ferðast með svífandi blöðruhús sitt
því hann er ekki tilbúinn að sleppa
takinu af fortíðinni og óuppfylltum
væntingum. Minningarnar eru
ódauðlegar, þær veita honum byr
og hefja hann til flugs en á end-
anum áttar hann sig á að húsið er
umframfarangur sem aftrar honum
frá því að upplifa nýja drauma og
ævintýri.
Ævintýraleg upplyfting
Sambíóin Álfabakka og
Kringlunni, Smárabíó
Upp Leikstjórn og handrit: Pete Docter og
Bob Peterson. Leikraddir: Edward As-
ner, Christopher Plummer, Jordan
Nagai. Disney/Pixar 2009
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Upp „Frásögnin er spennandi og persónusköpunin einstök, lífleg og trú-
verðug en mögnuð og velheppnuð tölvugrafík skiptir þar sköpum.“
Eftir Dag Gunnarsson
dagur@mbl.is
„VIÐ höfum verið til og eitthvað að bralla allar
götur síðan um 1978 en höfum bara aldrei gef-
ið neitt út fyrr en núna,“ sagði Steingrímur
Eyfjörð Guðmundsson sem ásamt Sigurði K.
Þórissyni myndar tónlistardúóið Dívan
grimma. Þeir félagar hafa nýverið sent frá sér
geisladisk með þrettán lögum sem falla trúleg-
ast í flokk raftónlistar en þarna gætir einnig
áhrifa kvikmyndatónlistar og listrænna hljóð-
skúlptúra.
Elsta lagið á disknum er frá 1997. „Við eig-
um eldra efni en það er allt á einhverjum bönd-
um og er kannski svona frumstæðara,“ sagði
Sigurður í samtali við Morgunblaðið. „Við
ákváðum að gefa þetta út núna og taka síðan
svolítið nýja stefnu og fara að spila þetta meira
læf og fara kannski að hóa í einhverja menn til
að spila þetta með okkur,“ sagði Steingrímur.
Valtari og kirkjuklukkur
Nýi diskurinn heitir líkt og hljómsveitin,
Dívan grimmi, og á honum er notast við fleira
en hefðbundin hljóðfæri og tölvur. „Við notum
mikið upptökur af allskonar hljóðum, búum
líka til hljóð og leikum okkur með það,“ sagði
Sigurður. „Þarna eru upptökur af kirkjuklukk-
um og þarna er líka hljóð úr gömlum valtara
og þetta höfum við meðhöndlað og blandað uns
það er óþekkjanlegt,“ sagði Sigurður sem er
tónlistarmaður og tölvugrúskari.
Steingrímur starfar sem tónlistarmaður,
hann hefur spilað með mörgum áhugaverðum
hljómsveitum í gegnum tíðina samhliða því að
taka upp hljóð fyrir kvikmyndir og semja kvik-
myndatónlist. Hann er meðlimur í stórsveit-
inni Júpíters, afsprengi hennar Hópreið lem-
úranna og leggur einnig stund á sveitatónlist
með sveitinni Magnús Ferguson.
Lélegur á saxófón
„Við fengum gestaleikara með okkur á
þessa plötu, það er Eiríkur Stephensen sem
spilar á saxófón. Ég spila reyndar sjálfur á það
hljóðfæri í einu lagi en ég er svo lélegur á saxó-
fón að það er allt tekið í mikla meðferð í tölvu-
forritum,“ segir Steingrímur og hlær. Báðir
spila þeir Steingrímur og Sigurður á gítar á
plötunni en restin eru fundin hljóð, blönduð,
mixuð og búin til í tölvum. „Sigurður hefur
mjög mikið verið í því að búa til svona hljóð-
myndir eða sándskúlptúra í tölvunni og ég hef
verið að reyna að búa til skipulegan heim úr
því og svo er allur gangur á þessu. Við tökum
við hugmyndum hvor frá öðrum og bróderum
hluti saman,“ sagði Steingrímur.
Hafa þeir félagar stundað reglulega fundi
frá 1978? „Já, svona, þetta hefur legið niðri inn
á milli og maður fær samviskubit og svo kemur
að því að maður reynir að klára eitthvað,“
sagði Steingrímur. Þeir neita því að það sé ein-
hver saga á bakvið nafnið. „Ég man það varla
lengur, þetta er svo eldgamalt, við kölluðum
það sem við vorum að dútla saman í mennta-
skóla þessu nafni og það festist,“ sagði Sig-
urður. Næst á döfinni segja þeir félagar sé að
halda áfram með samstarfið og að vinna úr
þeim sjóði laga sem þeir eiga í sarpnum eftir
þetta áratugalanga samstarf. Diskinn gefa
þeir út sjálfir og vekur athygli hvað gripurinn
er fallegur en hönnun hans lá í höndum
Ámunda Sigurðssonar. „Við höfum kannski
ekki verið nógu duglegir að dreifa þessum
diski í verslanir, hann fæst í Tólf tónum,
Smekkleysu og Herrafataverslum Kormáks
og Skjaldar.
Agaður og grimmur grautur frá Dívan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grimmir? Steingrímur Eyfjörð og Sigurður K. Þórisson mynda tónlistardúóið Dívan Grimma.
Hljómsveitin Dívan grimmi hefur starfað
í mörg ár en ekki gefið út fyrr en nú
Í tónlist sinni notast Dívan við óvenjuleg
hljóð úr umhverfinu