Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 1

Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. S E P T E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 258. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «HEIMILDARMYND UM HRÓARSKELDU TÖFRUM SLEGIN EN LÍKA ROSALEG «SPILAÐ OG MÁLAÐ Tónlistarhátíðin Réttir hefst í dag  SÍÐASTI vetur var mörgum Ís- lendingum í Dan- mörku mjög erf- iður að sögn Þóris Jökuls Þor- steinssonar sendiráðsprests í Kaupmannahöfn. Nú sé fólk hins- vegar farið að átta sig á stöðunni og farið að sníða sér stakk eftir vexti. Íslensku krón- urnar dugðu stundum skammt og lífeyrisþegar sem höfðu t.d. ekki áunnið sér rétt til greiðslna úr fé- lagslega kerfinu í Danmörku þurftu m.a. að leita sér aðstoðar í Hjálpræðishernum. »4 Íslendingar eiga erfitt með að fóta sig í Danmörku  KAUPÞING banki vissi þegar á vordögum 2008 af rekstrar- vandræðum Baugs. Fyrirséð var að fyrir- tækið myndi ekki greiða af skuldabréfum sem áttu að falla á gjalddaga um vorið. Þá var salan á Högum úr Baugi Group til eignarhaldsfélags- ins 1998 ehf. í júlí 2008 meðal ann- ars til þess fallin að draga úr skaða Kaupþings vegna lánveitinga bank- ans til Baugs. Jón Ásgeir Jóhannes- son sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins og birtist hún á mbl.is í gær. Þar segir hann að hann hafi aldrei átt hlutabréf í Baugi Group heldur hafi þau verið í eign Gaums ehf. »15 Kaupþing vissi af rekstrar- vandræðum Baugs Group Jón Ásgeir Jóhannesson Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÉG VAR að fara yfir hugmyndir sem við höfum verið að vinna með. Það er ennþá dálítil vinna eftir í að vinna úr þeim en við vonumst til að standa við að vera tilbúin fyrir mán- aðamót,“ sagði Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, eftir að hann kynnti tillögur um hugmyndir að lausn á skuldavanda heimilanna á sameiginlegum þingflokksfundi stjórnarflokkanna síðdegis í gær. „Við viljum bæði létta greiðslu- byrði fólks og svo auðvitað styrkja þessi sértæku úrræði og gera þau þjálli og auðveldari í notkun.“ Aðspurður hvort niðurfellingar- leið komi til greina, að fella niður hluta íbúðarlánaskulda, sagði Árni Páll reynt að vinna á þessum tveim- ur forsendum, að mæta erfiðleikum í greiðslubyrði og síðan greiða úr vanda erfiðari skuldamálanna. Hann útilokar ekki að lántakend- um verði gert kleift að laga afborg- anir að greiðslugetu sinni. Inntur eftir því hvort til greina kæmi að flytja íbúðalán frá bönk- unum yfir til Íbúðalánasjóðs – þar með talið myntkörfulán – sagði Árni Páll verið að horfa á kosti og galla slíkrar yfirfærslu í heild. Allt kæmi til greina en ekkert væri ákveðið. | 2 Styttist í greiðsluúrræði Félagsmálaráðherra segir ríkisstjórnina meta kosti og galla þess að flytja íbúðalán bankanna í heild til Íbúðalánasjóðs » Þingflokkar funduðu » Öll íbúðalán til ÍLS » Léttari greiðslubyrði » Lagað að getu fólks Morgunblaðið/G.Rúnar Íbúðir Lánin hafa snarhækkað. EINN ástsælasti söngvari sem Ísland hefur alið, sjálfur Ragnar Bjarnason, bauð þjóð sinni í afmælisveislu í gær í tilefni af 75 ára afmælinu. Gleðin átti sér stað í Laugardalshöll og var margt um manninn. M.a. sóttu góðir og gegnir félagar Ragnars í gegnum tíðina veisluna og tóku lagið saman, honum til heiðurs. Og að sjálfsögðu tók afmælisbarnið sjálft líka lagið. Afastrákarnir Aron Ragnar og Alex Evan knúsuðu afa. | 37 Morgunblaðið/Ómar „HANN Á AFMÆLI Í DAG!“ Raggi Bjarna fagnaði 75 ára afmæli sínu í Laugardalshöll  „Í DAG brosi ég á móti sólinni,“ segir Sigríður Vilhjálmsdóttir, sem hryggbrotnaði í umferðaróhappi árið 1990 og dvaldi í kjölfarið í end- urhæfingu á Grensásdeild í rúma fjóra mánuði. Eiginmaður hennar, Már Sigurðsson, hefur líka dvalið á deildinni og þriðji einstaklingurinn frá Hótel Geysi, Hákon Atli Bjarka- son, er þar nú í endurhæfingu. „Ég er núna kominn með litla göngugrind til að ganga í,“ segir Hákon Atli og bætir við að hann ætli sér að ganga fyrir jól. Sigríður segir að Grensásdeild sé besta sjúkrastöð landsins og allt starfsfólk Hótels Geysis ætli að þakka fyrir sig og leggja sitt af mörkum til söfnunarátaksins Á rás fyrir Grensás. Efnt verður til hátíð- arkvöldverðar 3. október og rennur allur ágóði til Grensásdeildar. »8 Brosir á móti sólinni og styrkir Grensásdeild Morgunblaðið/Golli Í hjólastól Hákon Atli Bjarkason. Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is KOSTNAÐUR við stofnun og rekstur sendi- ráðs Íslands í Tókýó í Japan hefur numið tæplega 1,5 milljörðum króna miðað við verð- lag hvers árs. Stofnkostnaður nam í fjár- lögum 2000-2001 alls 815 m.kr., að sögn Urðar Gunn- arsdóttur, fjöl- miðlafulltrúa utan- ríkisráðuneytisins. Í fjárlögum 2001- 2009 var sendi- ráðinu ætlað að fá í rekstrarkostnað 662,9 m.kr, eða um 73,7 m.kr. á ári að jafnaði. Kostnaður er reiknaður skv. fjárlögum á verð- lagi hvers árs og uppreiknaður kostnaður yrði talsvert hærri. Aðspurð hvort rekstur sendiráðs í Japan skili Íslandi nægj- anlega miklu til að forsvaranlegt sé að reka það segir Urður að hlutverk utanríkisþjón- ustunnar hafi aldrei verið mikilvægara en nú, þegar leita þarf allra leiða til að viðhalda og bæta samskipti Íslands við erlend ríki og búa í haginn fyrir íslenska aðila, fyrirtæki og aðra sem hyggi á viðskipti erlendis. „Þetta er langtímaverkefni utanríkisþjónustunnar, og þá ekki síst sendiráða í viðkomandi löndum,“ segir Urður og bendir á að Japan sé annað stærsta hagkerfi í heimi og í 8. sæti yfir helstu viðskiptalönd Íslands þar sem vöru- skiptajöfnuðurinn er hagstæður Íslandi. „Engu að síður þarf utanríkisráðuneytið, í ljósi efnahagsástandsins, að skera rekstrar- útgjöld verulega niður og hagræða eins og kostur er,“ segir Urður en m.a. hefur sendi- skrifstofum verið fækkað. Sendiráð upp á 1,5 milljarða Stofnkostnaður sendi- ráðs í Japan 815 m.kr. Í HNOTSKURN »Risavaxiðverkefni bíð- ur stjórnvalda að koma böndum á ríkisreksturinn. »Flatur nið-urskurður hefur verið vin- sælasta leiðin. »Þægilegastfyrir stjórn- völd, segir stjórn- málafræðingur.  Ráðstöfun ríkisfjár | 12-13

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.