Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 4
Óhöpp af svipuðu tagi, þegar
flutningabifreiðar rekast í brýr,
koma reglulega fyrir. Yfirleitt er
um að kenna mannlegum mis-
tökum; kranar eru ekki festir
sem skyldi, pallar ekki settir í
neðstu stöðu og hurðir og hler-
ar ekki festir. Nokkrar brýr á
höfuðborgarsvæðinu hafa
skemmst af þessum sökum og
endar Hvalfjarðarganganna.
Mannleg mistök
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
sigrunerna@mbl.is
„ÉG man voðalega lítið eftir því sem
gerðist. Ég man eiginlega fyrst eftir
mér uppi á spítala,“ segir Jónína
Klara Pétursdóttir við Morgunblaðið,
en hún var á leiðinni í skólann í gær-
morgun þegar hliðarhleri flutninga-
bifreiðar skall á þaki fólksbifreiðar-
innar sem hún ók, með þeim
afleiðingum að framrúðan mölbrotn-
aði og þakið flettist að mestu af fólks-
bílnum.
Slysið átti sér stað um hálftíuleytið
í gærmorgun undir Höfðabakka-
brúnni í Reykjavík. Jónína, sem er 19
ára, var ein á ferð og á leiðinni í skól-
ann á bíl móður sinnar. Næst á undan
henni var flutningabifreiðin, sem ekið
var undir brúna með hliðarhlerann
opinn. Þykir mesta mildi að Jónína
Klara skyldi ekki stórslasast.
Jónína sagðist hafa séð bílinn í
frétt mbl.is um málið í gær og henni
brá við að sjá hversu illa hann var far-
inn.
,,Ég er bara rosalega glöð hvað ég
slapp vel,“ segir Jónína sem skarst þó
töluvert í andliti og er mikið saumuð.
Móðir Jónínu, Svanfríður Hjalta-
dóttir, sagði upplifunina þegar henni
var tilkynnt um slysið hafa verið
mjög hræðilega.
Þakka fyrir að hún sé á lífi
„Manni bregður alveg hræðilega.
En ég bara þakka fyrir að hún skuli
vera á lífi,“ sagði Svanfríður.
Eins og gefur að skilja fékk slysið
mikið á Jónínu.
„Ég er í rauninni ekki alveg búin
að gera mér grein fyrir þessu ennþá,“
sagði Jónína að endingu við Morg-
unblaðið en hún var þá nýkomin heim
af slysadeild Landspítalans í Foss-
voginum, þar sem gert var að sárum
hennar.
Morgunblaðið/Júlíus
Rifnaði Eins og sjá má rifnaði þak fólksbílsins af að mestu.
Glöð hvað ég slapp vel
Þak rifnaði af fólksbifreið þegar hleri flutningabifreiðar
þeyttist á hana Ökumaðurinn ungi man lítið eftir slysinu
Morgunblaðið/Júlíus
Hleri Hliðarhleri flutningabifreiðarinnar hafði ekki verið festur og losnaði
af. Hann þeyttist síðan á nálæga fólksbifreið undir brúnni.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
GYLFI Magnússon viðskiptaráð-
herra sagðist eftir ríkistjórnarfund í
gær ekki sjá neinn flöt á setningu
bráðabirgðalaga til að mæta óskum
Hollendinga og Breta og afgreiða
þannig Icesave-málið. Hann segir
ríkisstjórnina vera að fara yfir hvort
Alþingi þurfi að fjalla um Icesave-
málið að nýju eða hvort rúm sé fyrir
óskir þjóðanna í lögunum um ríkis-
ábyrgðina.
Spurður hvort dagsetning sé kom-
in á lok Icesave-málsins sagðist Gylfi
ekki geta sagt til um það, það yrði
hins vegar að gerast „alveg á næst-
unni“. Hann sagði ekki mikið bera á
milli en það þyrfti að koma í ljós
hvort næðist saman með þjóðunum.
„Ég vona það og
trúi því.“
Gylfi var eini
ráðherra ríkis-
stjórnarinnar
sem gaf sér meira
en augnablik til
að ræða við fjöl-
miðla eftir fund-
inn í gær. Fund-
urinn stóð
óvenjulega lengi,
hófst kl. 9.30 en lauk ekki fyrr en eft-
ir kl. 13. Á dagskrá voru meðal ann-
ars endurreisn fjármálakerfisins,
skuldir heimilanna og breytingar á
viðaukum og bókunum við EES-
samninginn. Einnig var rætt um
endurnýjun samnings um kolefnis-
jöfnun bílaflota ríkisins og ráðherra-
nefnd um efnahagsmál. Oddvitar
stjórnarflokkanna, Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son, héldu þegar á annan fund eftir
ríkisstjórnarfundinn og aðrir ráð-
herrar þutu framhjá fjölmiðlamönn-
um á miklum hraða og báru við
miklu annríki.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
ekki enn sett efnahagsáætlun Ís-
lands á dagskrá og óvíst hvenær
málefni landsins verða tekin fyrir.
Viðskiptaráðherrann segir Icesave-
málið valda vandræðum og telur
ekki að áætlun Íslands verði á dag-
skrá í þessum mánuði.
Þar spili þó einnig inn í væntan-
legur ársfundur AGS sem tefur önn-
ur mál. Gylfi telur líklegt að sjóð-
urinn geti tekið Ísland á dagskrá
fljótlega eftir ársfundinn, þá í næsta
mánuði.
Icesave verður að af-
greiða „á næstunni“
Ráðherra segist ekki sjá flöt á setningu bráðabirgðalaga
Gylfi
Magnússon
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„FÓLK hélt oft að það yrði auðsóttt
að fá vinnu. En maður stekkur ekki
inn í nýtt land mállaus og fær vinnu
eins og smellt sé
fingri,“ segir
Þórir Jökull
Þorsteinsson,
sendiráðsprestur
í Kaupmanna-
höfn. Hann segir
að síðasti vetur
hafi verið mörg-
um Íslendingum í
Danmörku mjög
erfiður og það
ástand hafi staðið
fram á sumar. Nú sé hins vegar að
hægjast um. Fólk sé farið að átta sig
á stöðunni og búið að sníða sér stakk
eftir vexti. „Í vetur voru það mest
lífeyrisþegar, Íslendingar sem ætl-
uðu sér að búa hér og lifa af lífeyri,
örorkubótum eða öðru í íslenskum
krónum, sem leituðu til okkar,“ seg-
ir Þórir. Margt af þessu fólki hafði
ekki áunnið sér rétt til greiðslna úr
félagslega kerfinu í Danmörku.
Leituðu til Hjálpræðishersins
„Þetta fólk var því margt bág-
statt, leitaði ekki bara til sendiráðs-
ins og mín, heldur til Hjálpræðis-
hersins og hinna og þessara
líknarfélaga.“ Fólk var þá komið í
vanskil með húsaleigu og rafmagn
og var við það að missa ofan af sér
þakið. „Það var þá stundum að leita
til okkar í von um að einhvers stað-
ar væri hægt að fá peninga, sem
auðvitað var ekki hægt.“ Um jólin
hafi þó verið hægt að hjálpa fólki,
með aðstoð styrktarsjóðs á vegum
íslenska safnaðarins. Hann segir
eitthvað um að fólk hafi flutt heim
til Íslands og þá jafnvel fengið fjár-
hagslega aðstoð við það, enda flutn-
ingskostnaður oft ærinn.
Í sumar var svo töluvert um að ís-
lenskar fjölskyldur kæmu til að setj-
ast að í Danmörku, en komust fljótt
að því að það væri hægara sagt en
gert. Sumt fólkið hafi ekki talað
dönsku og jafnvel ekki ensku held-
ur. Í Danmörku er efnahagsástand
ekki gott og atvinnuleysi töluvert.
Íslendingarnir voru því væntanlega
að keppa um störf við dönskumæl-
andi fólk. Þórir segist telja Noreg
mun vænlegri kost en Danmörku
núna, fyrir þá sem ætla að flytja ut-
an. „Fólk þarf aðeins að þreifa á
veruleikanum áður en það reynir
þetta,“ segir Þórir. Hann veit um
fjölskyldu sem kom til Danmerkur
en þurfti frá að hverfa og endaði í
Noregi. Þrjár aðrar fjölskyldur sem
hann þekki til hafi verið að reyna að
koma sér fyrir en gengið erfiðlega.
Síðastliðinn vetur ferðuðust
sendiherra og starfsfólk íslenska
sendiráðsins um Danmörku og
héldu fundi með Íslendingafélögum,
þar sem þau eru.
„Þar voru tekin niður nöfn hjá
fólki sem taldi illa fyrir sér komið.
Starfsmenn skiptu því svo á milli sín
að skoða hagi fólksins með því og
reyna að koma með einhverjar til-
lögur til úrbóta.“ Hann segir að tug-
ir fólks hafi fengið slíka aðstoð.
Það versta búið
hjá Íslendingum
í Danmörku
Sumir fluttu heim eftir gengishrunið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Köben Íslendingar eiga erfitt með
að fóta sig í Danmörku.
Í HNOTSKURN
»Fyrir hrun var álag ásendiráðinu vegna Íslend-
inga sem fóru til Danmerkur
og skemmtu sér úr hófi fram,
voru í fíkniefnaneyslu og end-
uðu á götunni eða í fangelsi.
»Þórir segir þessa farfuglanú sjaldséða, enda orðið of
dýrt fyrir þá að fara utan í
þessum erindagjörðum. Það sé
ákveðið lán í óláni.
Þórir Jökull
Þorsteinsson
Faxafeni 5 • Sími 588 8477
Tækifæri
Aðeins í örfáa daga
20-40% afsláttur
af sýningarvörum
Fyrstir koma – Fyrstir fá!