Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is FLESTIR landsmenn þekkja ein- hvern sem þurft hefur á aðstoð end- urhæfingarteym- isins á Grensás- deild að halda, jafnvel þó þeir hafi ekki dvalið þar sjálfir. Tengsl starfsfólks og eig- enda Hótels Geysis eru einnig sterk. En þau Sigríður Vil- hjálmsdóttir og Már Sigurðsson, sem eiga Geysi, hafa bæði dvalið á Grensásdeild. Þessar vikurnar nýtur svo Hákon Atli, sonur Bjarka Hilmarssonar, kokks á Hótel Geysi, aðstoðar endurhæfingar- teymisins. En Há- kon Atli, sem er 17 ára gamall, hryggbrotnaði í umferðarslysi í sumar. „Á Grensásdeild er gott starfsfólk sem vinnur óeigingjarnt starf,“ segir Sigríður. Hún lenti í umferðaróhappi í janúar 1990 þar sem hún bæði hæl- og hryggbrotnaði og var hryggbrotið opið brot í mænu. Eftir hálfsmán- aðardvöl á Borgarspítalanum var hún því flutt upp á Grensásdeild og dvaldi þar í rúma fjóra mánuði. Er hún fyrst kom upp eftir gat hún ekki snúið sér við í rúminu og þurfti á mikilli aðstoð að halda. „Bjalla var næld við dýnuna og mér fannst mikilvægt að hún væri við höndina. Í dag brosi ég á móti sól- inni,“ segir hún. Endurhæfing hófst strax og Sigríður tók fljótt fram- förum með daglegum æfingum, þó vissulega tæki þetta tíma. „Ég gat ekki lyft fætinum fyrst á eftir og það var skrýtin tilfinning. Hugurinn sagði eitt en fóturinn hlýddi ekki.“ Hugsað um sál og líkama Fyrir tveimur árum þurfti Már, maður Sigríðar, að leggjast inn á Grensásdeild í viku eftir að hafa mjaðmagrindarbrotnað. Þau kunnu ekki síður vel að meta aðstoðina sem þau fengu þá. „Már fékk þá að kynn- ast deildinni af eigin raun,“ segir Sig- ríður. Vel er hugsað um aðstandendur á Grensásdeild og þeir alltaf velkomnir þó rými sé af skornum skammti. Ekki er þó síður erfitt að vera sjúk- lingur en aðstandandi. „Við sem dett- um út úr lífinu erum nefnilega ekki þátttakendur á meðan aðstandandinn þarf að hugsa um sjúklinginn og allt það daglega. Álagið verður tvöfalt.“ Grensásdeild er líka að hennar mati besta sjúkrastöð landsins. „Þar er hugsað um allar þarfir – ekki bara þær líkamlegu, það er líka fylgst með sálartetrinu og félagslegu þátt- unum.“ Allt starfsfólk Hótels Geysis hefur fullan hug á að þakka fyrir þá aðstoð sem fólk nýtur á Grensásdeild með því að leggja sitt af mörkum til söfn- unarátaksins Á rás fyrir Grensás. Þannig verður efnt til hátíðar- kvöldverðar á Hótel Geysi 3. október nk. þar sem starfsfólk gefur vinnu sína og allur ágóði rennur til Grens- ásdeildar. „Þegar Gunnlaugur Júlíusson hljóp norður til Akureyrar, þá sögð- um við hér heima: Nú er komið að okkur að gera eitthvað. Mér fannst þetta svo frábært framtak. Ég upp- lifði þetta mjög sterkt þar sem við höfum verið á Grensásdeild og sonur Bjarka dvelur þar núna. Það var því fullur einhugur í starfsfólkinu að leggja þessu málefni lið. Það eru allir tilbúnir að taka þátt.“ „Nú er komið að okkur“ Morgunblaðið/Golli Ákveðin í að ganga á ný Hákon Atli mætir í sjúkraþjálfun tvisvar til þrisvar sinnum á dag á Grensás.  Hjónin á Hótel Geysi þekkja af eigin raun endurhæfingarstarfið sem fram fer á Grensásdeild  Nú liggur sonur kokksins á Hótel Geysi á deildinni Einhugur í starfsfólki að leggja málefninu lið FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is REIKNAÐ er með fundi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í dag um úrræði varðandi skuldavanda heim- ilanna. Miðstjórn ASÍ fundar einnig í dag og ganga má út frá því að tillögur um aðgerðir til að létta á greiðslu- vanda heimila verði þar efst á baugi. Innan launþegahreyfingarinnar eru menn á einu máli um að aðgerðir sem samkomulag varð um við gerð stöð- ugleikasáttmálans gangi mjög hægt fyrir sig. Það styttist í endurskoðun kjarsamninganna 1. nóvember. Þó viðmælendum á vinnumarkaði og innan lífeyrissjóðanna beri saman um að nokkur hreyfing sé komin á viðræður um verklegar stór- framkvæmdir liggur enn ekkert fyrir um hvaða verk verða fyrir valinu. Undirhópar eru að störfum en upp- haflega var sett það mark að viðræð- unum yrði lokið 1. september. Þá er í stöðugleikasáttmálanum skýrt kveðið á um að engar hömlur skuli vera í vegi fyrir nýjum fjárfest- ingum í atvinnulífinu 1. nóvember. „Menn þurfa að taka sig verulega á ef klára á öll þessi mál,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. „Við gengum algjörlega út frá því að stýrivextirnir yrðu komnir í eins stafs tölu 1. nóvember og að vaxta- stig hefði lækkað samsvarandi. Sú áætlun sem Seðlabankinn lagði fram um gjaldeyrishöftin er afar metn- aðarlítil. Það sýnir sig að þau fara al- gerlega eftir kennslubókinni og virka alls ekki. Öll viðleitni til að herða þau mun ekki heldur virka. Þess vegna þarf að afnema þau og með miklu kraftmeiri hætti en Seðlabankinn lagði fram,“ segir Vilhjálmur. Hann segir lífsnauðsyn að koma á eðlileg- um fjármagnsviðskiptum og flæði gjaldeyris inn og út úr landinu til að ná gengi krónunnar til baka. „Við munum leggja okkur fram um að vinna með okkar samningsaðilum og ríkisstjórninni að ná því fram sem þarf svo þetta gangi eftir en það er sannarlega verk að vinna.“ „Þurfa að taka sig veru- lega á ef klára á öll mál“ Ræða greiðsluvanda í dag Viðræður um stór verk þokast » Stýrirvextir Seðla- banka undir 10% » Staða lántakenda verði bætt til muna » Hindrunum verði rutt úr veginum » Framkvæmdir í gang Stöðugleikasáttin náðist í júní. ÓÞOLINMÆÐI meðal stétt- arfélaga og atvinnurekenda fer vaxandi dag frá degi en nokkur stórmál sem gengið var frá við gerð stöðugleikasáttmálans í júní eru enn á eftir áætlun. Hákon Atli Bjarkason hefur dvalið á Grensásdeild frá því í sumar. „Ég sofnaði undir stýri og bíllinn valt fjóra- fimm hringi áður en ég skaust út úr honum eina 10-20 metra,“ segir hinn 17 ára gamli Hákon Atli og viður- kennir að lífið hafi óneitanlega tekið miklum breyting- um við slysið. Hákon Atli braut þrjá hryggjarliði, skaddaði mænuna og er nú í hjólastól sem hann ferðast fimlega um í á milli deilda á Grensási. Hákon Atli hefur mikinn mátt í fótum niður að ökkla og er harðákveðinn í að vera far- inn að ganga með ökklaspelkum fyrir jól. Hann mun þó væntanlega alltaf þurfa að styðja sig að einhverju leyti við hjólastólinn. „Ég ætla að labba,“ segir Hákon Atli. Hann hefur dvalið á legudeild Grensáss í ellefu vikur og mætir í sjúkraþjálfun tvisvar til þrisvar dag hvern. Og æfing- arnar ganga vel, þótt árangurinn komi í stökkum, frek- ar en jafnt og þétt. „Ég er núna kominn með litla göngugrind til að ganga í,“ segir Hákon Atli sem nýtur við það aðstoðar sjúkraþjálfa. Harðákveðinn í að vera farinn að ganga fyrir jól Már Sigurðsson Sigríður Vilhjálmsdóttir Kynningarfundur Umbætur í virðiskeðju matvæla Hvað er hægt að gera til að draga úr sóun við framleiðslu og dreif- ingu matvæla? Hverju skilar bætt meðferð og bætt upplýsingaflæði milli aðila í virðiskeðjunni? Samtök iðnaðarins, Tækniþróunarsjóður, Norðlenska, Sláturfélag Suðurlands, Kaupás, AGR, Matís og Rannsóknarsetur verslunarinnar, boða til opins fundar þar sem kynntar verða niðurstöður þróunar- verkefnis um þetta efni. Staðsetning: Setrið, Grand Hótel Reykjavík Tími: Fimmtudagur 24. september kl. 15-17 Dagskrá: Ávinningur af bættri meðferð og þekkingu á matvælum• Þóra Valsdóttir, matvælafræðingur, Matís Notkun upplýsingakerfa til að bæta framleiðslustýringu og• minnka birgðakostnað Einar Karl Þórhallsson og Hlynur Stefánsson, verkfræðingar AGR Vörustjórnun ferskra matvæla – fordæmi og reynsla• Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar Almennar umræður• Fundarstjóri: Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar, SI Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið mottaka@si.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.