Morgunblaðið - 23.09.2009, Qupperneq 14
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Einbeittar Í leik á pæjumóti , en all-
ir flokkar KR hafa æft við Starhaga.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
KR-ingar gera sér vonir um að æf-
ingasvæði þeirra við Starhaga,
vestan við Suðurgötu, verði komið í
endanlega mynd eftir tvö til þrjú
ár. Þar eiga að vera á afmörkuðu
svæði tveir knattspyrnuvellir í
fullri stærð og minni sparkvöllur.
Jónas Kristinsson, framkvæmda-
stjóri KR, segir að unnið sé að
þessu verkefni í góðu samkomulagi
við borgaryfirvöld.
Breyting á deiliskipulagi þessa
fimm hektara svæðis við Starhaga
var auglýst í sumar. Svæðið er í
nágrenni við vinsælar göngu- og
hjólaleiðir meðfram Ægisíðu.
Vegna aukinnar umferðar á Ægi-
síðustígnum hefur verið bætt við
nýjum hjólareiðastíg.
34 minjastaðir
Í tengslum við deiliskipulags-
breytinguna og fyrirhugaðar fram-
kvæmdir var unnin sérstök forn-
leifaskráning á skipulagssvæðinu af
Minjavernd Reykjavíkur. Á svæð-
inu var býlið Þormóðsstaðir sem
var á sínum tíma hluti af Skild-
inganesjörðinni. Við skráningu
fornminjanna komu í ljós 34 minja-
staðir á skipulagssvæðinu og í ná-
grenni þess. Auk minja um bæj-
arstæði Þormóðsstaða er að finna
Sundskálann, lifrarbrennsluhúsið,
fiskverkun Alliance og her-
skálahverfið Camp Thornhill.
Ákveðin svæði skulu vernduð fyrir
jarðraski.
Deiliskipulagið hefur verið sam-
þykkt í skipulagsráði og borg-
arráði. Ein athugasemd barst á
auglýsingatíma og var henni svarað
með umsögn skipulagsstjóra.
Skipulagið er nú til yfirferðar hjá
Skipulagsstofnun ríkisins áður en
það verður auglýst í b-deild Stjórn-
artíðinda.
Stórbætt aðstaða KR við Starhaga
!"
"#!$#
#$! "
! "
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
„HANN var nú bara ungur drengur
á uppleið, hafði verið í Verkmennta-
skólanum í Neskaupstað og færði
sig svo yfir í Menntaskólann á Egils-
stöðum og var bara að taka á því,
vann að því að verða stór og sterkur.
Mataræði og tækjasalurinn var hans
líf og yndi,“ segir Óðinn Magnason,
faðir Guðlaugs Magna, sem lést í bíl-
slysi í Fáskrúðsfirði 16. maí sl.
Stofnaður hefur verið minning-
arsjóður um Guðlaug Magna og Óð-
inn segir markmiðið með stofn-
uninni vera að styrkja forvarnir
fyrir unga ökumenn í umferðinni
með opnum fundum í framhalds-
skólum og byggðakjörnum Austur-
lands og öðrum sambærilegum
verkefnum þar.
Guðlaugur Magni var farþegi í
bifreiðinni þegar hún fór út af vegi.
Samfélagið á Austfjörðum var í
miklu uppnámi í kjölfar slyssins og
er enn, segir Óðinn. „Við stofnuðum
sjóðinn vegna þess að þegar þetta
skall á lamaðist all samfélagið, allir
voru að kaupa blóm og fleira til að
minnast hans. Við vildum frekar að
peningarnir færu í eitthvað sem
gerði meira gagn og höfðum þá sam-
band við Umferðarstofu,“ lýsir
hann. Þar var ekkert fyrir hendi
sem hægt var að styrkja. „Og við
ákváðum að stofna þennan minning-
arsjóð sem er þá sérstaklega tileink-
aður forvörnum fyrir unga ökumenn
í umferðinni,“ segir Óðinn. Nú er
unnið að því að sjóðurinn nái
ákveðnu lágmarki og þá tekur við
honum þriggja manna stjórn sem
ákveður hvernig fjármununum verð-
ur varið.
Laugardaginn 3. október nk.
verða styrktartónleikar í Félags-
heimilinu Skrúð, Fáskrúðsfirði, og
dansleikur um kvöldið. Fjölmargir
tónlistarmenn gefa vinnu sína á tón-
leikunum og má þar nefna Jónsa og
hljómsveitina Í svörtum fötum og
Idolstjörnuna Hröfnu. Enginn að-
gangseyrir er á tónleikana en söfn-
unarkassi verður á staðnum fyrir
frjáls framlög í minningarsjóðinn.
Miðaverð á dansleik verður 2.500
kr. Reikningur sjóðsins er í Lands-
bankanum, 0171-15-630100, kt.
281060-3419. Einnig er hægt að
senda póst á sumarlina@simnet.is.
„Var ungur drengur á uppleið“
Stofnaður hefur verið minningarsjóður um Guðlaug Magna Óðinsson sem lést í bílslysi
16. maí sl. Markmið sjóðsins er að styrkja forvarnir fyrir unga ökumenn í umferðinni
Í HNOTSKURN
»Upphafleg hugmynd meðstofnun sjóðsins var að
farið yrði í átaksverkefni á
Austurlandi nk. vor, rétt áð-
ur en skólum lýkur.
»Jafnframt verða haldniropnir fundir í samráði við
Umferðarstofu og trygginga-
félögin.
»Nánar um dagskrá tón-leikanna verður að finna
á www.123.is/sumarlina
Í góðum gír Guðlaugur Magni Óðinsson á gamlársdag 2008.
SKÓLATÖSKUDAGAR Iðjuþjálfafélags Íslands
fara fram þessa dagana en í því felst að iðjuþjálf-
ar heimsækja grunnskólabörn, bjóða þeim upp á
fræðslu og vigtun á skólatöskum. Að sögn Helgu
Kristínar Gestsdóttur iðjuþjálfa verða börnin
frædd um hvernig fylla eigi skólatöskuna,
hvernig eigi að stilla hana miðað við líkama
þeirra og hvernig sé best að raða í hana. „Við
kennum líka hvernig á að bera skólatöskuna, t.d.
nota báðar axlarólarnar og spenna mittisólina.“
Að auki vigta iðjuþjálfarnir skólatöskur
barnanna en miðað er við að skólataska vegi
ekki meira en 10% af líkamsþyngd barnsins. Að
sögn Helgu er það því miður of algengt að
krakkar beri of þungar töskur á bakinu. Burður
of þungra skólataskna stóran hluta ársins geti
valdið stoðkerfisvanda, s.s. höfuðverk og vöðva-
bólgu, og það sé vaxandi vandamál. „Ef börnin
nota töskuna rétt minnka líkurnar á þessum
stoðkerfisvanda. Þar kemur líka inn í mikil kyrr-
seta, sem er aukinn álagsþáttur.“ ylfa@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
OF ÞUNGAR BYRÐAR VALDA STOÐKERFISVANDA
Allsherjarnefnd
Alþingis ræddi
stöðu fangelsis-
mála á fundi sín-
um í gær. Fyrir
liggur að ekki
verður ráðist í
byggingu nýs
fangelsis á næst-
unni og verður
bilið brúað með
leiguhúsnæði.
Um helgina var auglýst eftir hús-
næði til leigu undir fangelsi til
tveggja ára, með möguleika á fram-
lengingu, í nágrenni Litla-Hrauns.
Það svæði er valið svo að menntaðir
starfsmenn fangelsisins geti líka
starfað í leiguhúsnæðinu.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður allsherjarnefndar, segir
að gestir frá Fangelsismálastofnun,
dómsmálaráðuneytinu, Litla-
Hrauni og Fangavarðafélaginu hafi
mætt á fundinn í gær og farið hafi
verið yfir stöðuna. Ljóst sé að nú sé
ekki til fjármagn til að ráðast í
miklar aðgerðir en langtímavand-
ann verði að leysa á næstu árum
með byggingu nýs fangelsis á höf-
uðborgarsvæðinu. steinthor@mbl.is
Brúa bilið
með leigu-
húsnæði
Bygging nýs fang-
elsis langtímalausn
Formaður Stein-
unn Valdís