Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 %&' %&'     ( ( %&' )'     ( ( * +,  - .      ( ( 012 *3'      ( ( %&' %&'4     ( ( FRÉTTASKÝRING Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is BAUGUR Group var kominn í vand- ræði á vordögum 2008 og fyrirséð var að fyrirtækið myndi ekki greiða af skuldabréfum sem áttu að falla á gjalddaga. Til dæmis 11 milljarða króna skuldabréfaútgáfa sem var á gjalddaga í mars sama ár. Salan á Högum úr Baugi Group til eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. í júlí 2008 var m.a. til þess fallin að vernda hagsmuni Kaupþings og draga úr tjóni bankans vegna lánveitinga til þessa móðurfélags stærstu verslana- keðja á Íslandi, samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins. Greiðsluvandræði Í Íslenska efnhagsundrinu, bók Jóns Fjörnis Thoroddsen, kemur fram að forstöðumaður skuldabréfa- miðlunar Kaupþings hafi kallað miðlara bankans á fund til sín og til- kynnt þeim að Baugur myndi ekki geta greitt af skuldabréfum, en fyr- irtækið hafði gefið út skuldabréf á Íslandi fyrir marga milljarða. Þetta var hinn 19. mars 2008. Kaupþing banki bjó því yfir vitneskju um rekstrarvandræði félagsins á þess- um tímapunkti. Þetta hefur ekki verið vefengt af stjórnendum bankans opinberlega. Kaupþing banki naut góðs af Söluverðið á Högum, 30 milljarðar króna, skiptist í tvennt. Helmingur- inn var notaður til að kaupa eigin bréf af hluthöfum Baugs Group sem notuðu síðan söluandvirðið til að greiða niður eigin ógjaldfallnar skuldir við Kaupþing. Kaupþing banki naut á endanum góðs af þessu og hluthafarnir einnig, því þeir losn- uðu við skuldir við bankann og hluta- bréf í Baugi Group. Eftir það átti Baugur Group meira en 20% af eigin bréfum. Leiðrétta hefði þurft þá stöðu með því að selja hlutabréfin eða færa hlutafé niður, í samræmi við 60. og 61. gr. laga um hlutafélög. Það var hins vegar ekki gert, en Baugur Group var í viðræð- um við erlenda fjárfesta um sölu þessara hlutabréfa lungann úr árinu 2008, að sögn Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar. Því er gefið að fyrirtækið reyndi að haga sér í samræmi við fyrrnefnd ákvæði, þótt það hafi ekki gengið eftir. Hinn helmingurinn af söluverðinu á Högum var nýttur, eins og fram hefur komið, til að greiða 10 millj- arða skuld Baugs við Kaupþing og fimm milljarða veðskuld við Glitni. Þrotabú Baugs mun krefjast fé- bóta frá Nýja Kaupþingi og hluthöf- um Baugs vegna sölunnar á Högum. Fyrrverandi hluthafa Baugs, Nýja Kaupþing og skiptastjóra þrotabús- ins greinir hins vegar á um þessar kröfur og því má teljast líklegt að úr þeim verði leyst fyrir dómstólum. Salan á Högum dró úr tjóni Kaupþings Í HNOTSKURN »Baugur Group fékk Út-flutningsverðlaun forseta Íslands hinn 23. apríl 2008, rúmum mánuði áður en til- kynnt var að fyrirtækið myndi ekki greiða af skuldabréfum. »Hagar er langstærstaverslunarfyrirtæki lands- ins en meðal eigna þess eru m.a. Hagkaup, Bónus, 10-11, Útilíf og fleiri verslanir. Baugur Group var kominn í vandræði á vordögum 2008 Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is FÁIR virðast gera ráð fyrir því að peningastefnunefnd Seðla- banka Íslands lækki stýrivexti bankans á vaxtaákvörðunardegi hans á morgun, þótt flestir voni það eflaust. Vextirnir eru nú 12,0%, og eru með því hæsta sem þekkist. Í helstu viðskiptalöndum eru vextirnir í sögulegu lág- marki, víða nálægt núlli. Seðlabankinn tók upp verð- bólgumarkmið í mars 2001 og fór þá að beita stýrivöxtum til að freista þess að hafa hemil á verð- bólgunni. Þegar þenslan í þjóð- félaginu hófst fyrir alvöru árið 2004 hækkaði bankinn stýrivext- ina, meðal annars með þeim af- leiðingum að erlendir spákaup- menn fjárfestu í íslenskum krónum, krónan styrktist og al- menningur jók mikið lántökur í erlendri mynt, sem hefur komið illa við marga eftir fall krón- unnar. Á meðfylgjandi teikningu má sjá þróun verðbólgunnar, geng- isvísitölu krónunnar og stýrivexti Seðlabankans og samanburð á þeim við vextina í völdum lönd- um. Stýrivextir verða líklega áfram hæstir hér á landi Flest bendir til þess að vextirnir verði óbreyttir .5  6 . 7 6 . 7+++8"8 ( 9 9  9  9 4 9 " 9 # 9 : 9 $ 9 ;  (<  ( = (>    2 8   8 ) ). < !  "#   $  %&  " $  ( $ # 4  $ # 4  # 4   $ # 4  EYJÓLFUR Sveinsson, fyrrverandi blaðaútgefandi og framkvæmda- stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, hefur nýtt sér heimild í lögum um gjald- þrotaskipti um greiðsluaðlögun og hefur því forðað sér frá persónu- legu gjaldþroti. Ákvæði um greiðsluaðlögun voru lögfest í mars sl. en þrotabú Eyjólfs var tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2002. Að sögn Sigurðar Gizurarsonar, skiptastjóra í þrotabúi Eyjólfs, hef- ur hann fengið bú sitt til umráða að nýju. Eyjólfur hafði heimild til að leita nauðasamninga þegar lögum var breytt og hafði þegar náð sam- komulagi við lánardrottna sína. Eyjólfur var í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldum fyrirtækja sinna, en heildarfjárhæð lýstra krafna í þrotabú hans, sem samn- ingar náðust um við lánardrottna, var rúmlega 477 milljónir króna. Þar á meðal eru kröfur norska pappírsframleiðandans Norske Skog vegna útgáfu Fréttablaðsins, en Eyjólfur var í ábyrgðum fyrir þeim. thorbjorn@mbl.is Eyjólfur Sveinsson fékk greiðsluaðlögun Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðlögun Eyjólfur Sveinsson ÞETTA HELST... ● ÚRVALS- VÍSITALAN í Kaup- höllinni á Íslandi hækkaði um 0,9% í gær og er lokagildi hennar 805 stig. Viðskipti með hluta- bréf voru hins vegar lítil, því þau náðu ekki þremur millj- ónum króna. Gengi hlutabréfa Icelandair hækkaði um 20% í einum viðskiptum. Gengi krónunnar veiktist um 0,2% í gær og er gengisvísitalan 233,35 stig, samkvæmt upplýsingum frá Íslands- banka. Dollarinn kostar 123,13 krónur og evran 182,20 krónur. gretar@mbl.is Hækkun í Kauphöllinni en veiking krónunnar ● ÞORSTEINN Már Baldvinsson, fyrr- verandi stjórnarformaður Glitnis, segir í yfirlýsingu að fullyrðingar um hugs- anlegt lögbrot er Glitnir lagði lítinn hluta lána bankans til sjávarútvegsfyr- irtækja að veði fyrir láni hjá Seðlabanka Evrópu séu byggðar á misskilningi. Sjávarútvegsfyrirtækjum sé heimilt að taka lán hjá erlendum aðilum og hafi gert í tugi ára. Á sama hátt sé lána- stofnunum heimilt að setja kröfur sínar á hendur íslenskum sjávarútvegsfyr- irtækjum að veði til tryggingar. „Komi til þess að erlendir aðilar þurfi að ganga að veðum í íslenskum fiski- skipum er þeim hins vegar óheimilt að gera þau út og þurfa að selja þau innan tiltekins tíma.“ bjorgvin@mbl.is Fullyrðingar um veðlán byggðar á misskilningi ÁRNI Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, kynnti á fundi kröfuhafa á Hil- ton Hóteli í Reykjavík í gær hvernig uppgjöri á milli bankans og Íslandsbanka væri háttað. Jafnframt voru kynntir þeir möguleikar sem kröfuhafar standa frammi fyrir: Að eignast allt að 95 prósent beint í bankanum eða fá greiðslu í formi skuldabréfs sem út- gefið er af Íslandsbanka og kauprétt á allt að 90 prósentum í bankanum á árunum 2011 til 2015. Fulltrúar allra stærstu kröfuhaf- anna voru mættir til að gæta að hagsmunum umbjóðenda sinna. Var meðal annars gagnrýnt á grundvelli hvers kröfuhafar ættu að taka af- stöðu og hvernig sú afstaða endur- speglaðist í endanlegri ákvörðun skilanefndar. Þá kom fram samkvæmt fundar- manni að Fjármálaeftirlitið hefði skipað skilanefndir og ríkið hefði í raun verið að semja við sína fulltrúa um uppgjörið. bjorgvin@mbl.is Skilanefnd Glitnis var gagnrýnd Aðkoma kröfuhafa að ákvörðun er óljós Árni Tómasson Fáðu úrslitin send í símann þinn • 91 53 4 P IP A R • S ÍA • VELKOMIN TIL BARCELONA Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is Ný viðskiptatækifæri Útflutningsráð Íslands undirbýr ferð viðskipta- sendinefndar til Barcelona, sem er stór og mikilvægur markaður á Spáni. Þar bjóðast tækifæri sem áhugavert er fyrir íslensk fyrirtæki að kanna og fræðast nánar um. Viðskiptasendinefndin verður í Barcelona 4.-6. nóvember. Viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki eru m.a. í lyfjaiðnaði, hátækni, matvæla- iðnaði, ferðaþjónustu og samstarfi háskóla. Viðskiptafundir verða skipulagðir með aðstoð þarlendra ráðgjafa. Nánari upplýsingar og skráning hjá Elsu Einarsdóttur, elsa@utflutningsrad.is, sími 511 4000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.