Morgunblaðið - 23.09.2009, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
NÝVERIÐ hefur
mikið borið á fréttum
af skorti á fangelsis-
rými í landinu. Svo
langt gengur þetta að
dæmdir menn þurfa
að bíða, jafnvel í mörg
ár, eftir að geta setið
af sér dóma.
Höfundur man eftir
svona tilfelli fyrir
mörgum árum þar
sem ungur maður beið í ein þrjú ár
en var þá orðinn gerbreyttur mað-
ur. Á meðan hann beið sneri hann
frá villu síns vegar, fékk fasta vinnu
og eignaðist fjölskyldu. Þá bankaði
lögreglan uppá! Nú skilst manni að
svipuð biðstaða sé að koma upp.
Fangelsin yfirfull og jafnvel imprað
á að sumstaðar verði að hafa tvo í
sama klefa. Sér er nú hver gest-
risnin!
Lausnin, er sagt, á að felast í að
byggja, eða leigja hentugt húsnæði
undir fangelsi.
Skoðum fleiri
hliðar þessa máls
Í mörgum tilfellum er dvöl refsi-
vist til að sannfæra hinn brotlega
um að afbrot borgi sig ekki og hann
skuli ekki brjóta af sér aftur, það
sjónarmið á e.t.v. rétt á sér þegar
um Íslendinga er að ræða. Það sem
breyst hefur í áranna rás er hins
vegar það að eitt af hverjum fjórum
fangarýmum er notað fyrir erlent
fólk. Fólk hefur í vaxandi mæli nýtt
sér hina landamæralausu Evrópu
til að bregða undir sig betri fæt-
inum, flest í ferðamannahópum
vopnað myndavél og áhuga á fram-
andi menningu okkar sem betur
fer. En misjafn sauður leynist í
mörgu fé. Sumir hinna erlendu
ferðalanga hafa í pússi sínu hnífa,
hnúajárn og fíkniefni. Þeir hafa lít-
inn áhuga á lopapeysum, fallhæð
Dettifoss eða hvernig skyr er búið
til. Þeir eru hér í öðrum erinda-
gjörðum.
Hluti þessara manna næst og
þeir taka nú upp fjórðung fangelsis-
rýmis á Íslandi. Og nú á þjóðin að
nota meira af peningunum sem hún
ekki á til að fjölga gistirýmunum.
Af hverju þessi fjöldi?
Sagt er að auðvelt sé að fá Aust-
ur-Evrópubúa til að smygla fíkni-
efnum til Íslands. Þar
og víðar, s.s. suður í
Ameríku, eru fangels-
isyfirvöld ekki haldin
íslenskri gestrisni.
Klefi sem smíðaður
var fyrir fjóra hýsir
auðveldlega tuttugu.
Einhverjum „mat“ er
sjálfsagt gaukað að
föngunum þegar kokk-
urinn er í stuði, en líka
heyrist af því að fang-
arnir veiði sér til mat-
ar í klefunum; t.d.
kakkalakka. Þetta er jú allt prótín!
Nú er rétt að taka skýrt fram að
undirritaður er ekki að mæla með
betrunarvist af þessu tagi. En fyrr
má nú rota en dauðrota. Það er al-
vitað í Austur-Evrópu að vist í ís-
lensku fangelsi er á við hóteldvöl:
Hlý einmenningsherbergi, sjónvörp,
tölvur, læknisheimsóknir og ágætur
heitur matur nokkrum sinnum á
dag. Launuð vinna fyrir þá sem það
vilja og oft nám fyrir aðra. Í stuttu
máli sagt: Dvöl í íslensku fangelsi
er langtum betri en í Austur-
Evrópu. Jafnvel betri en á eigin
heimili þar – allavega ódýrari!
Fyrir margt austurevrópskt fólk
sem býðst að flytja fíkniefni til Ís-
lands er valið einfalt: Ef smyglið
heppnast er það vel borgað – ef
ekki bíður þess ókeypis „hóteldvöl“
við leik og störf á Íslandi. Er nokk-
ur furða að fátækir atvinnuleys-
ingjar sjái þetta sem tækifæri –
ekki áhættu. Við verðum að miða
afstöðu þessa fólks við aðstæður
þess.
Þessu ástandi, sem setur börn
okkar og unglinga í sívaxandi
hættu, mun ekki linna fyrr en við
breytum þeim móttökum sem þess-
ir sölumenn dauðans – og glæpa-
gengi – fá hér á landi.
Lausnin
Hluti vandans liggur í opnum
landamærum, en það út af fyrir sig
er efni í heila grein – grein sem
undirritaður reyndar skrifaði í Mbl.
fyrir tíu árum.
Erlendum smyglurum og glæpa-
mönnum á að snúa við ef þeir
þekkjast við komuna til landsins til
baka til lögreglu síns heimalands
með skilaboðum um að þeim sé um
alla framtíð óheimilt að koma til Ís-
lands. Þeir sem sleppa gegnum
flugvöllinn en nást við iðju sína í
landinu skulu strax færðir til dóm-
ara og eftir athæfi sínu sendir úr
landi án tafar – engar flótta-
mannabúðir eða áfrýjanir – eða
vistun í fangelsi hér.
Þá erum við komin að fangelsis-
skortinum. Þeir íslensku brotamenn
og útlendingar sem stunda ofbeldis-
glæpi og eitra fyrir æsku landsins
með fíkniefnum eiga ekki að búa í
„hótel-fangelsum“. Þeim skal finna
annan stað – og hann er til og nær
tilbúinn.
Uppi á hálendi Íslands, skammt
frá Kárahnjúkavirkjun, standa
vinnubúðir sem ríkið á. Þessar búð-
ir, sem töldust nógu góðar fyrir er-
lenda verkamenn í hundraðatali,
eru vissulega meira en nothæfar
fyrir ótínda glæpamenn.
Það þarf að styrkja læsingar,
girða svæðið eða hluta þess og hafa
þar nokkra vopnaða fangaverði.
Engin sjónvörp, engar tölvur, engin
þægindi – aðeins það lífsnauðsyn-
legasta.
Matargerð, þrif og þvotta annast
fangarnir sjálfir undir vopnuðu eft-
irliti. Þetta ætti að losa mörg af-
plánunarpláss í venjulegum fang-
elsum og þar með útrýma hinum
ósanngjörnu biðlistum.
Fari hrollur um einhvern sem
dettur í hug sovéska gúlagið, þá
skal minnt á til hvers þessir brota-
menn komu hingað. Lögum og er-
lendum samningum sem kunna að
standa í vegi fyrir þessu á að
breyta eða segja sig frá.
Númer eitt er að vernda land
okkar og þjóð. Endurhæfa þá Ís-
lendinga sem hægt er, halda hinum
frá almenningi og senda þá og út-
lendinga í „gúlagið“ og síðan heim
með þær fréttir að íslensk fangelsi
séu ekki eftirsóknarverðir dvalar-
staðir.
Fangelsavandinn leystur
Eftir Baldur
Ágústsson » Þessar búðir sem
töldust nógu góðar
fyrir erlenda verka-
menn í hundraðatali eru
vissulega meira en not-
hæfar fyrir ótínda
glæpamenn.
Baldur Ágústsson
Höf. er fv. forstjóri og frambjóðandi í
forsetakosningunum 2004. bald-
ur@landsmenn.is – www.lands-
menn.is.
ÞVÍ er iðulega beitt í
áróðri af hálfu Evrópu-
sambandssinna hér-
lendis, að þeir sem and-
vígir séu aðild að
auðvaldsklúbbnum
stóra í Brussel, séu
þröngsýnir og aðhyllist
einhver afgömul torf-
kofaviðhorf sem eigi
ekki við í nútímanum.
Því er til að svara að
þröngsýnin er þvert á móti bundin við
Brussel-sinna, sem sjá ekki skóginn
fyrir trjám fremur en heiminn fyrir
Evrópu. Það er því nokkuð hlægilegt
að heyra þá tala um víðsýni sem hafa
augun föst við skráargat skammsýn-
innar og einblína á Brusselklúbbinn
sem lausn allra mála.
Evrópa er vissulega þýðingarmikill
hluti af veröldinni en hún er engan
veginn allur heimurinn. Og Evrópu-
sambandið og Evrópa er heldur ekki
eitt og hið sama. Annarsvegar erum
við að tala um pólitíska valda-
samsteypu sem er þannig upp byggð
að hún getur ekki varað til langframa,
og hinsvegar erum við að tala um
heimsálfu sem á sér litríka sögu mik-
illa þjóðmenninga langt aftur í aldir.
Evrópusambandið sem slíkt hefur
hinsvegar ekki verið neinn hvati að
eflingu þjóðmenning-
arlegra gilda. Miðstýr-
ingarvaldið í Brussel
vill helst steypa öllum
þjóðum Evrópu í eitt
mót þannig að með-
færilegra sé að deila og
drottna. Sá andi sem
þar býr að baki er ekki
nýr og hefur sýnt sig í
ýmsum myndum gegn-
um aldirnar og aldrei
skilað sér til góðs fyrir
mannkynið.
En það er alltaf til
nóg af fólki sem sækist nánast eftir
því að falla fyrir blekkingum og það
vantar heldur ekki þá manngerð í
hjörðina sem lofsyngur Brussel-
báknið og heldur að þar sé verið að
hanna himnaríki á jörð.
En það sem í valdi því felst sem
Evrópusambandið hefur safnað að
sér með allskonar pólitískum hrossa-
kaupum og grímuklæddum yfirgangi,
á undanförnum árum, er ekkert ann-
að en það kúgunarinnihald sem við
Íslendingar höfum alltaf viljað forð-
ast. Við höfum bitra reynslu af er-
lendu valdi og þó að margir nú á tím-
um virðist halda að mannkynið sé
orðið upplýstara og betra en það hafi
nokkurn tíma verið, vil ég leyfa mér
að efast um að það sé rétt.
Því er ekki síður varasamt í dag að
gangast undir erlent vald og það var
hér áður fyrr. Undirrótin að ásælni
annarra þjóða er alltaf hin sama –
arðrán og kúgun þegar fram í sækir.
Fyrst er boðið upp á sætan rétt –
beitu sem ginið er við – svo koma
klærnar í ljós þegar bráðin er orðin
föst í netinu og þá er of seint að iðrast
eigin skammsýni og heimsku.
Það virðist sem sumir telji sérstakt
lag nú til að koma Íslandi inn í Evr-
ópusambandsdilkinn, þar sem ís-
lenska þjóðin hafi ekki náð vopnum
sínum á ný, eftir að sofandi stjórnvöld
létu gráðuga fjársýslumenn komast
upp með alla hluti, sem svo leiddi til
hruns og viðvarandi þjóðarógæfu.
Ég verð að lýsa þeirri skoðun
minni, að einkennilega séu þeir menn
innréttaðir til anda og sálar, sem virð-
ast helst hugsa um það við slíkar að-
stæður, að greiða þjóðlegu sjálfs-
forræði okkar banahögg.
Heimssýn eða Evrópusýn?
Eftir Rúnar
Kristjánsson »Miðstýringarvaldið í
Brussel vill helst
steypa öllum þjóðum
Evrópu í eitt mót þann-
ig að meðfærilegra sé að
deila og drottna.
Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður
á Skagaströnd.
– meira fyrir áskrifendur
Mannauður
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Verðmætasta auðlind allra
fyrirtækja er mannauðurinn.
Sá sem hefur besta fólkið
stendur best að vígi.
Í sérblaðinu Mannauðurinn
skoðar Viðskiptablað
Morgunblaðsins leiðir til að
bæta starfsandann og styrkja
starfsfólkið.
• Hvernig má efla hópinn á erfiðum tímum?
• Hvað þurfa stjórnendur að temja sér til að
ná því besta úr starfsfólkinu?
• Hvaða námskeið og hópeflislausnir eru í
boði?
• Hvernig getur símenntun og sjálfsstyrking
bætt mannauð fyrirtækisins?
• Hvað í vinnuumhverfi og kjörum skiptir
mestu máli?
• Hvernig má laða að - og halda í - hæfasta
fólkið?
Mannauðsmálin verða krufin til
mergjar í veglegu sérblaði 8. október.
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is
Auglýsendur!
Auglýsingapantanir eru í síma 569 1134
eða sigridurh@mbl.is til 5. október.