Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 23

Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 23
Umræðan 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Í Morgunblaðinu 9. september sl. var greint frá niðurstöðum skýrslu vistheimilisnefndar um aðbúnað barna á stofn- unum ríkisins á seinni hluta síðustu aldar. Þar kemur fram að hluti vandans virðist hafa verið kerfislægur og liggja í skorti á eftirliti. Á þeim tíma sem um ræðir var vitneskja um að illa væri farið með börn þögguð niður og þeir sem létu annað í ljós voru ekki teknir trúanlegir. Und- anfarin ár hefur þekkingu fleygt fram vegna þverfaglegrar samvinnu ólíkra fagstétta og nýrra rannsókn- araðferða. Nú er vitað að ill meðferð á börnum hefur áhrif á þroska heila- og taugakerfis og heilsu þeirra í framtíð- inni. Ill meðferð og áföll í æsku skaða einstaklinginn og hindra hann í að njóta þess sem lífið, í samfélagi við annað fólk, hefur upp á á bjóða. Barn þarf á jákvæðu viðmóti að halda til að byggja upp hæfni sína til að njóta og gleðjast. Það þarf að hafa notið góðr- ar umönnunar og öryggis fyrstu árin hjá fólki sem það treystir svo heilinn þroskist eðlilega og geti svarað slíku áreiti, með framleiðslu dópamíns og endorfíns, sem framkalla vellíðan. Sú staðreynd að heila- þroski barna verður fyrir miklum áhrifum frá umhverfinu á fyrstu mánuðum og árum æv- innar, bæði góðum og slæmum, gerir kröfur til okkar sem störfum með foreldrum ungra barna í heilbrigðis- og félagskerfinu. Kröfur um að sú þekking sem er fyrir hendi nýtist þeim sem þjónustunnar njóta. Í okkar góða forvarnarkerfi heilsu- gæslunnar, meðgöngu-, ung- og smá- barnavernd hafa verðandi foreldrar og foreldrar með ung börn tíð sam- skipti við heilbrigðiskerfið. Hvernig getum við nýtt þessi tíðu samskipti betur til að stuðla að bættum hag barna og bættri lýðheilsu lands- manna? Ljósmæður og hjúkr- unarfræðingar eru þær fagstéttir sem hitta svo til alla verðandi og ný- orðna foreldra. Standa þarf vörð um þá þjónustu sem veitt er í dag og tryggja að hún byggist á gagnreyndri þekkingu um hvað eflir þroska og heilbrigði barna og fjölskyldna. Finna þarf þá einstaklinga sem eru við- kvæmir og í áhættuhópi og þarfnast sérhæfðari þjónustu en veitt er í heilbrigðiskerfinu á þessum tímamót- um. Við þekkjum áhættuþættina og þurfum að bregðast við á fyrstu stig- um. Fyrir suma getur lítið inngrip gert gæfumun en aðrir þurfa meiri stuðning yfir lengri tíma. Ég hvet stjórnvöld, núna þegar máli skiptir hvernig hverri krónu er varið, til að hafa hugrekki til að efla frumþjónustu heilsugæslunnar og styðja þannig við verðandi og ný- orðna foreldra. Með breyttum áherslum geta ljósmæður og hjúkr- unarfræðingar stutt enn betur við þann hóp sem þarf stuðning til heilsu- eflandi atferlis, fundið þann hóp sem þarf sérhæfðari þjónustu og vísað honum á viðeigandi úrræði. Við viljum ekki að þau börn sem eru að fæðast í dag segi við okkur eft- ir 40 ár að við höfum brugðist þeim. Börn geta ekki beðið. Mun kerfið bregðast börnum? Eftir Stefaníu Birnu Arnardóttur » Þroski barns byggist m.a. á því að það njóti góðrar umönnunar og öryggis fyrstu árin hjá fólki sem það treystir og nýtur samvista við. Stefanía Birna Arnardóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur. AÐ UNDAN- FÖRNU hefur verið nokkur umfjöllun um niðurskurð á fjár- framlögum til háskóla og meðal annars fjallað um framlög til ríkisháskóla í sam- anburði við aðra há- skóla. Í grein í Morg- unblaðinu eftir dósent í Háskóla Íslands hinn 14. september síðastliðinn var vegið ómaklega að menntamálaráðherra sem hefur verið að reyna að vinna sem best úr þröngri stöðu. Hér verður látið nægja að leiðrétta stað- reyndavillur sem komu fram í þeirri grein. Það er staðreynd að rík- isskólar fá mun meiri fjárframlög beint og óbeint frá rík- inu en aðrir háskólar og þeir síðarnefndu þurfa því að taka skólagjöld til að ná endum saman í rekstri. Því er haldið fram að það kosti nærri milljón krónum meira að mennta einn viðskipta- fræðing í einkareknum háskóla, en sé það gert við HÍ. Mikilvægt er í allri umræðu um fram- lög ríkisins til háskóla að horft sé á öll framlög, bæði til kennslu og rannsókna. Rannsóknir eru óaðskiljanlegur hluti háskóla- starfs og því nauðsynlegt að skoða fjármögnun þeirra eins og allra þátta starfsins. Framlög ríkisins til háskólanna vegna kennslu eru vissulega jafn há á hvern nemanda í tilteknu fagi, en það er mikill munur á framlögum ríkisins til háskólanna vegna rannsókna og reyndar fleiri hluta. Samkvæmt fjárlögum 2009 er heildarframlag ríkisins til Háskól- ans í Reykjavík tæpir 2,2 milljarðar króna, og skv. vef Hagstofu Íslands voru nemendur þar 2.974 árið 2008. Framlag á hvern nemanda að með- altali er því um 731.000 krónur á árinu. Framlag ríkisins til Háskóla Íslands er á bilinu 10-11 milljarðar (eftir því hvort sjálfstæð framlög til stofnana og sjóða sem tengjast HÍ eru talin með eða ekki), og þar voru nemendur 11.847 á árinu 2008 skv. Hagstofuvefnum eða 844.000- 929.000 krónur á hvern nemanda. Heildarframlag ríkisins á hvern nemanda er þannig 15-27% hærra hjá HÍ en HR. Munurinn skýrist að miklu leyti af rannsóknasamningi ríkisins og Háskóla Íslands, en einkareknir háskólar hafa ekki sam- bærilega rannsóknasamninga og þurfa því í mun meiri mæli að fjár- magna sínar rannsóknir með skóla- gjöldum og rannsóknastyrkjum. All- ur samanburður á milli háskóla og mismunandi rekstrarforma er vand- meðfarinn og taka þarf tillit til fjöl- margra þátta. Sá samanburður verður ekki skýrður með einni blaðagrein. Hér má m.a. nefna að auk beinna fjárframlaga frá rík- issjóði nýtur Háskóli Íslands þess að hafa einkarétt á peningahapp- drætti sem skilar mörg hundruð milljónum króna á ári til há- skólabygginga, auk þess sem hann fær bein framlög í vinnumatssjóð prófessora, skattahlunninda vegna VSK mála og nýtur í raun rík- isábyrgðar. Af ofangreindu er ljóst að það er rangt að það kosti milljón meira að mennta hvern nemanda í einkareknum háskóla hér á landi en í ríkisreknum háskóla á borð við HÍ. Í raun fá aðrir háskólar en ríkishá- skólar lægra framlag frá ríkinu og þurfa skólarnir að bæta sér það upp með skólagjöldum. Kostnaður rík- isins yrði því enn meiri ef öll há- skólastarfsemi í landinu væri rík- isrekin án skólagjalda. Misvísandi umræða um bruðl í háskólarekstri Eftir Þorkel Sigurlaugsson »Kostnaður ríkisins yrði enn meiri ef öll háskólastarfsemi í land- inu væri ríkisrekin án skólagjalda og aðeins einn valkostur fyrir nemendur og kennara Þorkell Sigurlaugsson Höfundur er framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR. Í BYRJUN tutt- ugustu aldar var svo komið á Íslandi að víða horfði til land- auðnar vegna upp- blásturs og jarðvegs- eyðingar. Íslendingar sneru vörn í sókn og ótrúlega gott starf hefur verið unnið við að binda jarðveginn. En þótt skógrækt og uppgræðsla eigi rétt á sér hefur stundum viljað brenna við að menn gleymi ís- lensku jurtunum og telji þær ekki gróður eða að minnsta kosti lítils virði miðað við stórvaxnari erlend- ar jurtir. Það eru sorgleg mistök en nú er svo komið að víða hafa ágengar plöntur lagt undir sig stór landsvæði og kæft íslensku jurt- irnar. Þetta eru einkum kerflar, lúpína og risahvönn sem svona fara að. Risahvönnin er sérstaklega varasöm því hún er eitruð og get- ur brennt húð fólks illa. Það er safi sem lekur af blöðum hennar og stönglum í samspili við sólarljós sem veldur og dæmi eru um að menn hafi hlotið alvarleg brunasár vegna þessa. Ungt íslenskt barn sem var að leik í garði afa síns og ömmu á indælum sólardegi fékk að reyna þetta því stór hluti líkama barnsins var þakinn annars stigs brunasárum. Í Lettlandi og Litháen er risa- hvönnin hálfgerð plága því henni var plantað þar í stórum stíl til skepnueldis. Fljótlega kom í ljós að hún reyndist ekki vel til þess brúks því anísbragð kom af mjólk og kjöti þeirra dýra sem alin voru á hvönninni. Þá var hins vegar orðið of seint að snúa þróuninni við og nú hefur risahvönnin lagt undir sig stór landsvæði í blómleg- um landbúnaðarhéruðum. Menn geta ekki lengur gengið yfir engi eða gegnum skóga því þá eiga þeir á hættu að safi jurtarinnar sitji eftir á útlimum þeirra og brenni bera bletti sem sólin nær að skína á. Hvannir eru merkilegar plöntur að því leyti að þær skapa samfélag ef svo má að orði komast. Þær eru ótrúlega fljótar að sá sér, breiða sig yfir stór svæði og það er mjög erfitt að uppræta þær. Af þessum ástæðum er risahvönn á bannlista í Bandaríkjunum og annars staðar á Norðurlöndunum og víða eru sjálf- boðaliðar kallaðir saman á hverju ári til að rótstinga eða skera blóm- krónurnar af. Hver blómhaus get- ur borið um 5.000 fræ sem geta spírað allt að fimm árum eftir að þau eru þroskuð og falla til jarðar. Það er því við ramman reip að draga og betra að stemma stigu við útbreiðslunni eins fljótt og auðið er. Þetta eiga skóg- arkerfill og spán- arkerfill sameiginlegt með hvönn. Þeir voru ræktaðir í görðum hér á landi og notaðir til að krydda mat. Nú hafa þeir náð að brjóta af sér allar girðingar og vaxa villtir víða og eru farnir að breiða sig yfir stór svæði. Hið sama má segja um lúp- ínuna, hina hentugu uppgræðslu- jurt, sem í stað þess að hörfa sæk- ir stöðugt í sig veðrið. Hvort í ergelsi út í þessar plöntur fylgi einhvers konar mis- munun er erfitt að segja. Ég kýs að líkja þessu við þaulsætna gesti. Þeir geta verið velkomnir fyrst þegar þeir koma en ef geispi, klukkuskoðun og ræskingar gest- gjafa duga ekki til að hrekja þá burtu er kominn tími til að grípa til sterkari meðala. Það má hafa ánægju af flestum jurtum og víst er gaman að lífga upp á umhverfi sitt með fallegum plöntum. En við verðum að virða það sem fyrir er. Það er okkar arfleifð og íslenskar jurtir eiga sameiginlega sögu með íbúum þessa lands. Þessi saga glatast ef við spornum ekki við fót- um. Á friðuð og vernduð svæði á landinu eiga aðrar jurtir en þær íslensku heldur ekkert erindi. Þar ber okkur skylda til að halda öllu í horfinu og skila af okkur þessum stöðum lítt eða óbreyttum til af- komenda. Ísland er eyjan þar sem víðsýnið skín og okkar einstaka út- sýni ber að vernda. Það er ein af auðlindum þessa lands. Æskilegar og óæskilegar plöntur Eftir Steingerði Steinarsdóttur Steingerður Steinarsdóttir » Íslenskar plöntur eru hluti af menn- ingararfleifð okkar. Á friðuð og vernduð svæði á landinu eiga því aðrar jurtir en þær íslensku ekkert erindi. Höfundur er leiðsögumaður. www.rannis.is/visindavaka Magnús Árni Magnússon forstöðumaður Félagsvísindastofnunar HÍ fjallar um umræður um ESB aðild Íslands og rökin sem notuð eru í henni af fylgjendum og andstæðingum. Umræðan er borin saman við umræðuna á Möltu og skoðað hvað er líkt og ólíkt með umræðunni á eyjunum tveimur. er í kvöld Þriðja VÍSINDAKAFFIÐ Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Menntamálaráðuneytið Iðnaðarráðuneytið föðurlandssvikara Harðsnúin klíka 23.september kl. 20:00 - 21:30 Súfistinn Iðuhúsinu Allir velkomnir. Láttu sjá þig! H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.