Morgunblaðið - 23.09.2009, Qupperneq 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
✝ Svanberg TeiturIngimundarson
fæddist í Keflavík 21.
des. 57. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 14.
sept. sl.. Hann var
sonur hjónanna Jónu
Hjaltadóttur, f.
10.10. 1934, og Ingi-
mundar Péturs-
sonar, f. 16.7. 1925,
d. 8.1. 1977. Systkini
Teits eru Sigurdís, f.
7.7. 1953, búsett í Gol
í Noregi, Sigbjörn
Guðni, f. 25.7. 1955, búsettur í
Keflavík, Særún, f. 24.4. 1960,
maki Hlynur T. Tómasson, búsett í
Mosfellsbæ, Sævar Már, f. 21.1.
1963, búsettur í Bamberg í Þýska-
landi.
Teitur giftist 4.7.
1981 Elsu Ingibjörgu
Svavarsdóttur, f.
25.5. 1961. Börn
þeirra eru Fjóla
Kristín, f. 15.8. 1983,
d. 9.8. 2000, og Haf-
þór Ingi, f. 20.4. 1985.
Þau skildu. Teitur var
í sambúð með Lilju
Matthíasdóttur, f.
25.6. 1964, dóttir
þeirra Sóley Ingunn,
f. 16.7. 1992. Þau slitu
samvistum 2008. Teit-
ur lauk vélstjóranámi
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Hann starfaði við vélstjórn og önn-
ur tengd störf.
Útför Teits fer fram frá Graf-
arvogskirkju í dag, 23. september,
og hefst athöfnin kl. 13.
Nú er komið að kveðjustund, Teit-
ur mágur og vinur er fallin frá eftir
erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm þó
uppgjöf hafi aldei verið til í hans
huga. Teitur lifði í núinu og tók þátt í
lífinu til hinstu stundar. Naut sam-
veru með vinum og ástvinum fram á
síðasta dag og lét sig hvergi vanta
hversu veikur sem hann var. Hann
var alltaf bjartsýnn á hlutina og ekk-
ert volæði í gangi og alltaf jafngott að
hitta hann.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem.)
Leiðir okkar Teits lágu fyrst sam-
an um það leyti er við Særún fyrst
kynntumst. Stóru amerísku bílarnir,
rúnturinn og allt gamanið sem var í
gangi á þessum árum var ofarlega í
huga okkar þá. Man alltaf eftir græna
flotta LTD Fordinum þínum sem við
rúntuðum á. Já ýmislegt var brallað.
Eina vorvertíð vorum við líka á sjó
saman á gömlum 40 tonna eikarbát í
Keflavík sem valt eins og korktappi –
jafnvel í blanka logni.En svo er haldið
á veg alvörunnar.
Við báðir urðum uppteknir við að
stofna fjölskyldur, börnin, þak yfir
höfuðið og allt sem því fylgir. Þú ætíð
boðinn og búinn að hjálpa í húsbygg-
ingunni eða bara í því sem verið var
að gera hverju sinni – aldrei neitt
mál. Leiðir okkar skildu um tíma, ég
hélt til náms erlendis og ílengdist þar.
Þú flytur til Raufarhafnar og finnur
þar nýjan flöt á lífi þínu. En árin liðu
og hugur þinn lá aftur hér suður til
vina og ættingja. Fjölskyldutengslin
voru treyst. Allar heimsóknirnar,
jólaboðin og svo hin árvissu fjöl-
skyldu gamlárskvöldsboð með risa
kalkún máltíð.
En lífið var ekki alltaf jafngott.
Einn sumardag í ágúst árið 2000
fékkst þú fréttir sem ekkert foreldri
vill fá, að hún Fjóla Kristín dóttir þín
hefði dáið í hörmulegu bílslysi. Þetta
voru erfiðir tímar en þú horfðir bara
fram á veginn og varst viss um bjart-
ari tíma. Þegar Þjórsárdalurinn kom
inn í myndina hjá okkur Særúnu, í
kringum 2002 þá varst þú þar mættur
til að hjálpa við uppbyggingu og
smíðar. Fljótlega búinn að taka ást-
fóstri við þennan fallega stað og
mættir þar hverja þá stund er hægt
var til að geta verið með vinunum,
glaðst á góðri stundu og ætíð tilbúinn
að hjálpa öllum.
Ein af þínum síðustu ferðum út
fyrir bæjarmörkin var einmitt farin
þangað núna í enda ágúst ásamt
systkinum og móður. Það var orðið
ljóst þessar síðustu vikur að veikindin
voru að draga úr þér allan mátt þótt
enn héldir þú í vonina. Sunnudaginn
13. september sl. þá mættir þú að
vanda til að horfa á formúluna með
okkur félögunum þó svo að orkan og
krafturinn væri alveg að þverra. Að-
eins 12 tímum seinna ert þú farinn frá
okkur og komin á guðs vegu.
Í dag er hugurinn hjá Sóley og
Haffa sem hafa misst svo mikið. Megi
góður Guð gefa ykkur styrk í dag og
alla daga.Minningin um Teiti mun
svo lifa í huga okkar.
Hlynur Trausti Tómasson.
Svanberg Teitur
Ingimundarson
Margs er að minnast, margt er
að þakka. Hafðu þökk fyrir allt
og allt, kæri vinur.
Kveðja,
Helgi og Erna.
HINSTA KVEÐJA
Á kveðjustund við
útför Einars Gísla-
sonar langar okkur í
vinahópi hans að
þakka honum fyrir einstaklega góð
kynni undanfarin mörg ár.
Við vorum sex samstarfskonur á
Sjúkrahúsi Akraness sem fórum að
hittast reglulega utan vinnutíma, og
þá helst sem saumaklúbbur. Góð
vinátta myndaðist með hópnum og
fljótlega fóru makarnir að taka þátt í
félagsskapnum. Sérstaklega eru
minnisstæðar ánægjulegar ferðir
okkar til ýmissa borga Evrópu; m.a.
Einar Gíslason
✝ Einar Gíslasonfæddist á Akra-
nesi 7. nóvember
1944. Hann lést á
heimili sínu, Brekku-
flöt 2 á Akranesi, 15.
september sl. og var
útför hans gerð frá
Akraneskirkju 22.
september.
Meira: mbl.is/minningar
er í minnum höfð ferð
Saumaklúbbsins Bót-
hildar ásamt Brunalið-
inu til Kaupmanna-
hafnar árið 2007. Þar
var gengið um slóðir
Jónasar Hallgríms-
sonar og heimsóttir
margir frægir staðir
svo sem Hviids
Vinstue, Skinbuksen
og fleiri slíkir, einnig
Nýhöfnin og Strikið.
Þarna urðu til margar
skemmtilegar uppá-
komur, ekki síst fyrir
tilverknað hins fjölhæfa Einars.
Við félagarnir tókum sérstaklega
eftir því að meðan við stöldruðum
við á uppáhaldsstað Jónasar, Hviids
Vinstue, lifnaði yfir Einari og virtist
sem honum fyndist hann loksins
hafa uppfyllt einhverja ósk, sem
hann hefði lengi borið í brjósti. Sjúk-
dómur sá sem að lokum dró Einar til
dauða var þarna farinn að gera tölu-
vert vart við sig, en hann gaf sig
hvergi og sýndi mikinn dugnað í
þessari ferð okkar um Kaupmanna-
höfn.
Einar var hrókur alls fagnaðar í
þessum ferðum. Þekking hans á hin-
um fjölbreyttustu sviðum var
óbrigðul, og húmorinn aldrei langt
undan, eins var honum létt að kasta
fram fyndnum athugasemdum eða
vísum á þeim skemmtilegum stund-
um sem voru daglegt brauð á þess-
um ferðum okkar. Seinustu mánuð-
irnir í lífi Einars hafa verið eins og í
ferðinni til Kaupmannahafnar,
æðruleysi og mikill kjarkur allt fram
á seinasta dag. En fyrst og síðast
naut hann frábærrar umhyggju eig-
inkonu sinnar og fjölskyldu, en sú
góða hjúkrun sem Auður veitti hon-
um síðustu mánuðina gerði honum
kleift að dvelja heima með fjölskyldu
sinni til hinstu stundar, ósk sem
honum var svo mikils virði.
Einar var góður félagi, sem við
söknum. Hans pláss verður vand-
fyllt. Við sendum eiginkonu hans,
Auði, og fjölskyldunni allri samúðar-
kveðjur okkar.
Guðfinna og Gylfi, Helga og
Guðmundur, Inga og Jón, Jónína
og Ásmundur, Sólveig og Þórir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir, afi, langafi og bróðir,
HAUKUR HALLGRÍMSSON
málmsuðukennari,
Kleppsvegi 6,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn
18. september.
Pálína A. Lórenz.,
Guðleif Helgadóttir,
Aðalheiður G. Hauksdóttir, Ágúst V. Árnason,
Hallgrímur L. Hauksson, Ingveldur María Tryggvadóttir,
Ása Hauksdóttir, Benóný Ægisson,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
GUÐLAUGUR JÓNSSON,
Gulli,
hárgreiðslumeistari,
Seljavegi 19,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn
25. september kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Svan Gunnar Guðlaugsson, Inese Babre,
Alísa Svansdóttir,
Alda Svansdóttir,
Tinna Svansdóttir,
Mikella Rós Svansdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir okkar,
tengdafaðir og afi,
DAVÍÐ KR. GUÐMUNDSSON,
Grænumýri 12,
Seltjarnarnesi,
andaðist í Kaupmannahöfn sunnudaginn
20. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Geirlaug Helga Hansen,
Guðmundur Pétur Davíðsson, Kristjana Ólafsdóttir,
Guðjón Ómar Davíðsson, Sigurlín Baldursdóttir,
Kristín Davíðsdóttir, Ólafur Jón Kristjánsson,
Úlfar Þór Davíðsson,
Einar Björgvin Davíðsson,
Sverrir Davíðsson,
Guðrún Helga Guðbjörnsdóttir,
Selma Guðbjörnsdóttir, Sveinn Anton Sveinsson,
Regína Hansen Guðbjörnsdóttir, Svanur Kristinsson,
Hildur Guðbjörnsdóttir, Kristján Örn Jónsson,
Björk Þráinsdóttir, Hlynur Sigurjónsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
KARL KARLSSON
bóndi,
Klaufabrekknakoti,
Svarfaðardal,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugar-
daginn 19. september.
Útför hans fer fram frá Urðakirkju laugardaginn
26. september kl. 13.30.
Lilja Hallgrímsdóttir,
Halla Soffía Karlsdóttir, Atli Friðbjörnsson,
Jónasína Dómhildur Karlsdóttir, Gunnlaugur Einar Þorsteinsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Systir okkar og frænka,
AUÐUR RÚTSDÓTTIR,
Hlíðarvegi 25,
Kópavogi,
lést sunnudaginn 20. september.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðrún Finnbogadóttir,
Sigrún Finnbogadóttir,
Sesselja Friðriksdóttir
og systrabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BENEDIKT SIGURJÓNSSON
vélvirki,
Mánagötu 24,
Reykjavík,
lést mánudaginn 21. september.
Sigríður Sigurðardóttir,
Ingi Gunnar Benediktsson, Drífa Konráðsdóttir,
Sigrún Björk Benediktsdóttir, Valtýr Valtýsson
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargreinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á netfangið
minning@mbl.is.
Minningargreinar