Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 28

Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 ✝ Helgi Hóseassonvar fæddur 21.11. 1919. Hann lést að dvalarheim- ilinu Grund, sunnu- daginn 6. september síðastliðinn. Helgi fæddist að Höskuldsstaðaseli í Breiðdal. Hann var sonur hjónanna Hóseasar Björnssonar, tré- smiðs, f. 25.12. 1885, d. 9.1. 1985, og Ingi- bjargar Bessadóttur, f. 22.3. 1894, d. 19.6. 1991. Helgi var næstelstur fjögurra systkina, en elstur þeirra var Kristinn, f. 17.2. 1916, d. 8.4. 2008, hann var giftur Önnu Þor- steinsdóttur og áttu þau 2 kjör- börn, þá kom Helgi, f. 21.11.1919, d. 6.9. 2009, næstyngst var Ragn- heiður, f. 3.6. 1921. Sambýlis- maður hennar var Björgvin Magn- ússon og eignuðust þau fjögur börn. Ragnheiður býr nú á Fá- skrúðsfirði. Yngst er svo Sigrún, f. 28.4. 1924, gift Sigurði Þor- steinssyni, búsett í Reykjavík og eiga þau tvö börn. Einnig ólust upp á heimilinu með þeim systkinum Ragnheiður og Hjördís Ragnarsdætur sem Hó- seas og Ingibjörg ólu upp sem sín hús í Skipasundi 48 í Reykjavík og bjuggu þar alla ævi. Helgi var lærður húsasmíðameistari og lauk námi frá Iðnskólanum í Reykja- vík. Helgi starfaði lengst af sem smiður. Helgi var einstaklega greiðvikinn maður og eru þeir ófáir sem Helgi aðstoðaði við smíðar eða önnur tilfallandi verk- efni. Þegar fátt var um vinnu í borginni, réð Helgi sig til starfa á millilandaskipi og einnig fór hann til Svíþjóðar til starfa við húsa- smíði. Helgi var mikill áhugamað- ur um land sitt og flóru og þreytt- ist hann aldrei á að fræða fjölskyldu sína um allt það er að náttúru landsins sneri. Helgi var ófeiminn við að miðla visku sinni til allra þeirra sem á hann vildu hlusta. Helgi hafði einnig mikinn áhuga á Íslendingasögunum og ferðaðist hann með fjölskyldu sinni á söguslóðir og rifjaði þar upp sögurnar. Helgi var mikill áhugamaður um íslenska tungu og sér í lagi forníslensku. Margt sem Helgi skrifaði var ritað á forníslensku og því var það ekki allra að lesa skrif Helga. Helgi var einnig frjór í notkun íslenskrar tungu og var ófeiminn að kasta fram nýyrðum í skrifum sínum. Þótt Helgi hafi búið öll sín bú- skaparár í Reykjavík, þá hafði hann alltaf sterkar taugar til sinna æskuslóða austur í Breiðdal. Útför fór fram fimmtudaginn 17. september í kyrrþey. eigin börn. Helgi giftist Jó- hönnu Jakobsdóttur frá Þverá í Miðfirði, f. 26.11. 1919, d. 11.3. 2003 og gengu þau í hjónaband á 25. afmælisdegi Jó- hönnu þann 26.11. 1944. Helga og Jóhönnu varð ekki barna auð- ið, en barngóð voru þau, og tóku þau að sér systrabörn Jó- hönnu og systra- barnabarn og ólu upp sem sín eig- in. Kjörbörn þeirra voru: Sigrún Harðardóttir, f. 4.11. 1950, Ástríð- ur Hjörleifsdóttir, f. 25.7. 1967, og Gísli Jónsson, f. 16.3. 1951. Hóseas og Ingibjörg, foreldrar Helga, bjuggu seinni hluta ævi sinnar hjá Helga og Jóhönnu í Skipasundinu. Börn Sigrúnar og Ástríðar litu á Helga og Jóhönnu sem afa sinn og ömmu, og bjuggu Hafdís Kristný, dóttir Sigrúnar, og Hafrún Ósk og Stefán börn Ástríðar hjá þeim til skamms tíma. Af þessu má sjá að Helgi og Jóhanna voru ávallt tilbúin að skjóta skjólshúsi yfir ættingja sína og er þessi listi alls ekki tæmandi. Helgi og Jóhanna byggðu sér Okkur systkinin langar í örfáum orðum að minnast afa okkar. Þær voru ófáar stundirnar sem við Stefán áttum í Skipasundi 48. Þar kynnt- umst við öðrum hlutum en við áttum að venjast heima hjá okkur. Helgi las fyrir okkur sögur, þar var lítið um sjónvarp og engir tölvuleikir, ónei. Við fórum með honum í gönguferðir niður í Laugardal þar sem við fórum oftast í sund eða í Húsdýragarðinn. Stundum fórum við með honum niður í bæ í Kolaportið og alltaf var hann með spjald með sér. Lengi reyndi Helgi afi að kenna okkur marías sem okkur fannst flókið og erfitt spil en aldrei gafst Helgi afi upp og hélt áfram að kenna okkur marías. Þetta segir okkur hvað hann gat verið þol- inmóður og staðráðinn í að láta ekki okkar heimsku trufla sig í að upp- fræða okkur. Það er kannski sorglegt að segja frá því að honum mistókst al- gjörlega að kenna okkur marías en hann reyndi svo sannarlega. Stundum fórum við í ferðalag með honum út á land. Eitt sinn fórum við með rútu út á land í heimsókn til ætt- ingja sem við höfðum aldrei hitt. Ekki gekk rútan alla leið og þurftum við að ganga drjúgan spöl frá þjóðveginum heim að bæ. Ég fékk vænt stuð á milli fóta þegar ég reyndi að klofa yfir raf- magnsgirðingu á leið heim að bænum sem við vorum að heimsækja. Sú minning lifir enn góðu lífi hjá okkur systkinunum. Sagan af þessari rútu- ferð lýsir Helga vel. Hann tók oft slík- ar skyndiákvarðanir og lagði bara af stað fyrirvaralítið. Eina stundina var maður að bíða eftir því að fá hádeg- ismat en áður en maður vissi var mað- ur lagður af stað út í óvissuna. Alltaf var afi að fræða okkur um allt mögulegt. Hvað fjöllin heita, hvað gerðist þar, hvað árnar heita, af hverju nafnið er tilkomið og hvað blómin og trén hétu o.s.frv. Hann var eins og alfræðiorðabók þegar kom að landinu okkar, gróðrinum og Íslend- ingasögunum. En efst í huga er minn- ing um barngóðan mann sem vildi allt fyrir okkur gera. Og ekki má gleyma Jóhönnu ömmu sem var stoð og stytta Helga afa alla sína tíð. Elsku afi, megir þú vera sáttur hvar sem þú ert niðurkominn og von- andi ertu búinn að finna hana Jó- hönnu þína. Hafrún Ósk og Stefán. Elsku Helgi minn. Með tár í augum kveð ég þig nú. Þó ég vissi að þú ættir ekki langt eftir, þá var ég engan veg- inn tilbúin að sjá þig fara. Hvað ég gæfi mikið fyrir að gefa þér eitt faðm- lag í viðbót, fyrir að segja þér einu sinni enn hvað mér þykir vænt um þig, fyrir að sjá þitt bros og finna þína hlýju. Þó við værum ekki blóðtengd, þá varstu mér alltaf alveg eins og afi. Sem barn var ég oft hjá ykkur Jó- hönnu á sumrin og á ég margar minn- ingar um þau sumur. Ég man eftir óteljandi ökuferðum, útilegum og berjatínslu. Man ég líka eftir því þegar að þú last fyrir mig Ís- lendingasögur og ævintýri og fórst með kvæði fyrir mig á hverri nóttu. Við spiluðum spil, við lékum í garð- inum, þú kenndir mér að lesa og synda, og fórum við í endalaust marga göngutúra í Laugardalinn. Man ég þó allra mest eftir Grasagarðinum. Þar sagðir þú mér hvað hver planta, jurt og tré héti og eyddum við tímunum saman þar. Þó Grasagarðurinn virðist ekki vera stór í dag þá fannst mér hann þá vera alger ævintýrafrum- skógur, þökk sé þér. Oftar en einu sinni í þessum göngutúrum fundum við tuttugu og fimm-eyring og man ég vel eftir því þegar þú, ótrúlegt nokk, virtist alltaf eiga auka tuttugu og fimm-eyring í vasanum og hvernig þú sýndir mér hvar við skyldum grafa þá saman niður, svo að þeir yrðu ekki einmana. Að vera hjá ykkur sem barn var algert ævintýri. Þegar ég flutti svo heim til Íslands aftur eftir nokkurra ára útlandsdvöl, tókst þú vel á móti mér og syni mín- um. Bauðst okkur þak yfir höfuðið og hjálpaðir okkur að koma fótum undir okkur aftur. „Sambúð“ okkar var ekki alltaf dans á rósum en þetta ár sem við áttum með þér þar er mér mikils virði. Þar fékk sonur minn að kynnast þér og er ég þér endalaust þakklát fyrir að hafa verið honum svo góður. Þakklát fyrir að þú last fyrir hann þær sömu sögur og þú last fyrir mig og það var sama hvenær eða hversu oft hann spyrði, alltaf varst þú tilbú- inn að leggja allt frá þér til að eiga stund með honum. Þú skipaðir stóran sess í okkar lífi. Ég veit að það var þér mjög erfitt, þegar Jóhanna féll frá og oftar en einu sinni sá ég þig gráta og óska þess að komast til sameinuðu þjóðanna, að komast til hennar. Núna ertu loksins búinn að fá það sem þú vildir. Núna ertu loksins kominn til Jóhönnu. Gefðu henni koss og stórt faðmlag frá mér, og passaðu upp á hana þangað til ég kem til ykkar. Við munum aldrei gleyma þér. Baráttu- og saknaðar- kveðjur. Þín Hafdís úr mömmuvík. Í um 60 vetur bjó Helgi í Skipa- sundi 48 þar sem hann byggði sér, Jó- hönnu, fósturbörnum þeirra og for- eldrum sínum gott húsnæði. Frá barnsaldri voru tengsl mín við ykkur hjónin sterk og þið alltaf boðin og búin að rétta lítilmagnanum hjálp- arhönd. Er ég á uppvaxtarárum heimsótti eða dvaldist með ykkur á þekktum eða framandi slóðum hafði umhyggja ykkar, atferli og álit ætíð djúp áhrif á óharðnaðan unglinginn. Helgi var húsasmiður en um tíma far- maður á Drangajökli og fyrir tilstilli ykkar fékk unglingurinn að sigla með Helga til Finnlands, Rússlands og Þýskalands. Mun sú ferð aldrei gleymast auk þess sem þið hjónin átt- uð þátt í fyrstu kynnum mínum af bú- skap þegar ferðast var til bústólpa í öllum landshlutum á Moskvits sem Jóhanna ók. Við flestum spurningum óþrosk- aðra unglinga þekkti Helgi svör og gaf þau fúslega og alla jafnan af vin- gjarnleik ef eftir var leitað. Sameig- inlega kunnuð þið lausnir á flestum vandamálum og réðuð mönnum ætíð heilt þótt fyrir kæmi að eftir sumum ráðum ykkar væri ekki farið. Man ég sérstaklega hvað þið lögðuð hart að mér að menntast og stunda heilbrigt líferni. Er ég lauk háskólanámi fann ég hversu stolt þið voruð af pilti enda áttuð þið vissa hlutdeild í honum. Við æskjum mannlífs, menntunar og starfa, svo megi öllum veitast umbun sú, að vita gott af lífi sínu leiða og landið gera betra en það er nú. (Þórhallur Einarsson.) Helgi var mjög sérstakur maður. Á unglingsárum felldi Helgi sig ekki að kenningum kristni og hóf fljótlega baráttu fyrir riftun skírnar og ferm- ingar en án árangurs. Í þeirri baráttu komst hann að raun um að sá sem skírður er til samfélags heilagrar þrenningar á þaðan ekki afturkvæmt. Þrautseigja Helga leiddi síðan til mót- mæla hans á öðrum vígstöðvum gagn- vart óréttlæti og yfirgangi í samfélag- inu og því óumburðarlyndi sem ríkir í garð þeirra sem aðhyllast annað en kristna trú. Helgi var einlæglega á móti ofbeldi og öll friðarmál voru Helga hugleikin. Stóran kafla í lífi sínu notaði Helgi til að grúska í textum ýmissa helgirita og fornsagna og notaði þann fróðleik til að sýna fram á ósamræmi í kristn- um kenningum. Helgi var bæði spak- mæltur og yrkinn og bera mótmæla- spjöld hans og ritverk þess merki. Almenningur hefur hrifist af baráttu- vilja, þrautseigju og staðfestu Helga, sem í áratugi hefur staðið fyrir bæði róttækum og hefðbundnum mótmæl- um, og gefið honum sæmdarheitið Mótmælandi Íslands. Á Íslandi eiga að ríkja málfrelsi og trúfrelsi og því eiga skoðanir Helga að hafa sama rétt og skoðanir annarra. Þótt Helga hafi ekki tekist það ætlunarverk sitt að fá skírnarsáttmála sínum rift og hann afmáðan úr opinberum skrám þá bera aðstandendur þá von í brjósti að yf- irvöld sjái að sér í þessu máli þótt Helgi sé allur. Helgi ber sér á báðum herðum blóðugan mótmælakrans og mótmæli eru ennþá á ferðum í anda hans. (Kristján Bersi Ólafsson.) Með þessum orðum kveð ég Helga og þakka fyrir allar þær stundir sem hann og Jóhanna gáfu mér og mínum í sínu lífi. Hvíl í friði. Steinar Harðarson. Mótmælandi Íslands, Helgi Hó- seasson, er látinn. Helgi hefur um áraraðir komið við hjörtu Íslendinga og hann varð landsmönnum öllum að fyrirmynd um staðfestu og baráttu fyrir almennum mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti manna. Helgi var gæddur miklum mann- kostum, var víðlesinn og fróður og mjög barngóður. Til að heiðra minningu Helga hafa Simmi og Jói samið ljóðið „Helgi Hóse“. Ljóðið, sem er 5 erindi, lýsir í grófum dráttum baráttu Helga fyrir sjálfsögðum mannréttindum og því mikilvægt að minningu hans verði haldið á lofti um ókomna tíð, sbr. síð- asta erindið: Hann vaktina stóð alltaf einn Á hornið mættur aldrei seinn Hann stóð þar beinn og knarreistur með skiltið Nú Langholtsvegur tómur er Því enginn Helga þar nú sér En allir munu minnast Helga Hóse/HelgiHóse (Simmi og Jói.) Nú þegar við kveðjum Helga hinstu kveðju við ævilok þökkum við fyrir lífshlaup hans og þeirra hjóna og megi Helgi hvíla í friði með látnum ástvinum hjá sameinuðu þjóðunum. Aðstandendum og vinum vottum við innilega samúð og megi von og kærleikur veita okkur öllum styrk, huggun og ró. Valdís og fjölskylda. Ég kynntist Helga ungur drengur þegar afi minn og amma fengu leigt í kjallaranum hjá þeim Jóhönnu í Skipasundi 48. Löngu síðar þegar ég þakkaði honum fyrir hve góð þau hefðu verið þeim, segir hann: Sjaldan veldur einn þá tveir deila ekki. Þetta er ein snjallasta nýsköpun í máli sem ég hef heyrt, enda Helgi afar málhag- ur og orðvís. Helgi Hóseasson var greiðvikinn og hjálpsamur svo af bar. Um það mætti nefna ótal dæmi en eitt er mér í fersku minni. Það sagði mér kona úr Mosfellssveit. Maður hennar veiktist skyndilega af botnlangabólgu og hún stóð uppi hjálparlaus með kúabúið og mörg ung börn. Hún vissi af manni að norðan sem var tíma- bundið í Reykjavík og datt í hug að hringja í hann. Hann var þá farinn aftur norður en Helgi svaraði í sím- ann og spurði hvort hún gæti ekki notast við sig. Kom hann svo til henn- ar og hugsaði um búið á meðan þess þurfti við. Þessi saga lýsir því vel hvern mann Helgi Hóseasson hafði að geyma. Nú er Helgi þekktur sem Mótmælandi Íslands og munu aðrir gera þeim þætti í ævi hans betri skil. Barátta hans fyrir mannréttindum og rík samúð með þjáðu fólki innanlands og utan verður skráð á spjöld sögunn- ar. Í mínum huga var Helgi Ingibjarg- arson sönn hetja. Þeir eru ekki margir sem hafa kjark til að fara gegn ríkjandi hefðum og venjum, efast um það sem öllum þorra manna hefur þótt sjálfsagt að hlýðnast. Flest leyfum við óréttlæt- inu að viðgangast vegna þess að okkur skortir dug til að berjast við ofureflið. Í baráttu sinni við geistleg og veraldleg yfirvöld til að fá viðurkenningu á því að hann hefði verið órétti beittur ómálga barn með skírninni og að fá skírnar- sáttmálanum rift var hann reiðubúinn að kosta öllu til. Og það gerði hann svo sannarlega. Hann setti líf sitt að veði og lét það að miklu leyti í þeim ólgusjó. Þar steytti hann á mennsku sinni. Það kemst enginn óskaddaður í gegnum það að vera úthrópaður og fyrirlitinn árum saman. Vinunum fækkaði og á þessum tíma átti hann sér ekki marga stuðningsmenn. Að sjálfsögðu setti það mark sitt á Helga. Hann einangr- aðist og gat verið erfiður í umgengni, orðljótur og ósveigjanlegur. Þeir emb- ættismenn sem véluðu um þetta hjart- ans mál Helga fá ekki góð eftirmæli. Það hefði nú ekki þurft stóran skammt af umburðarlyndi og kristilegum kær- leika til að leysa það mál. En merkilegt nokk virðist hafa verið hörgull á slíku hjá kirkjunnar mönnum í þessu tilfelli. Virðingarleysi þeirra og fálæti í garð Helga verður þeim til ævarandi skammar. Jæja, Helgi minn, þá er komið að leiðarlokum. Þú búinn að fá hvíldina. Leystur úr viðjum þjáningarinnar. Talar ekki ljótt framar. Það var mér vitandi eina syndin sem þú drýgðir, að tala ljótt um trú annarra. Finnist þeir himnafeðgar verða þeir örugglega fyrstir til að fyrirgefa ljót orð í sinn garð. Þeir ku þreifa meira til hjartans en munnsins. Ég kveð þig með djúpri virðingu. Far þú í friði, vinur. Eysteinn Björnsson. Haustið 1946 fluttum við fjölskyldan í hús sem faðir minn byggði í Skipa- sundi. Steinsnar frá því húsi hafði Helgi og fjölskylda fengið úthlutaða lóð. Efst á sinni lóð hafði Helgi komið upp bragga og þar bjuggu þau hjónin ásamt foreldrum Helga þar til lokið var byggingu húss neðar á lóðinni. Það var mikil húsnæðisskortur í Reykjavík á þessum árum, lán til íbúðabygginga var hvergi að fá og húsbyggingar gátu því dregist á langinn. Veturinn 1941-1942 var Helgi í Iðn- skólanum á Akureyri. Nemendum var bannað að reykja innan veggja skólans en skólastjóri og kennarar máttu reykja alls staðar, líka í tímum. Helgi ræddi þetta á fundi í bindindisfélagi skólans. Skólastjóranum líkaði mál- flutningur Helga illa og setti Helga þá úrslitakosti að biðjast afsökunar eða yrði rekinn úr skóla ella. Helgi gat ekki beðist afsökunar, því hann hafði ekkert gert af sér, og kaus að yfirgefa skól- ann. Það kostaði hann mikið fé að sjálf- sögðu en Helgi var fastur á sinni skoð- un. Helgi var mikill verkalýðssinni. Á árunum kringum 1950 var mikið at- vinnuleysi í Reykjavík. Helgi var í hópi trésmiða sem höfðu vinnu. Þegar reynt var að bæta svokölluðum „gervimönn- um“, þ. e. mönnum sem ekki höfðu réttindi húsasmiða, í þann hóp lét Helgi Trésmíðafélagið að sjálfsögðu vita, þótt hann mætti búast við að það kostaði hann vinnuna. Það mátti ekki reykja heima hjá Helga og ekki í bíl hans. Helgi átti oft- ast bíl og ók að sjálfsögðu „atkvæðum á kjörstað“ eins og þá var siður. Eitt sinn ætlaði atkvæðið að reykja í bílnum og tók upp sígarettu. Helgi tók eftir þessu og skipaði atkvæðinu að hætta við eða yfirgefa bílinn ella. Úr eldhús- glugganum heima blöstu við tröppurn- ar hjá Helga. Eitt sinn tókum við eftir manni á tröppunum sem stóð þar í langan tíma. Ég var sendur út að at- huga málið. Maðurinn var að reykja þarna, mátti ekki reykja inni. Helgi var þarna, eins og í mörgu öðru, langt á undan sinni samtíð. Þegar Guðmundur föðurbróðir minn var jarðaður stóð Helgi með spjald í brekkunni fyrir ofan kirkjuna en inn í kirkjuna fór hann ekki. Ég hitti Helga í Helgi Hóseasson                         

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.