Morgunblaðið - 23.09.2009, Page 31
orðið heima á Selfossi. Siggi Kalla
var atkvæðamikill til allra verka,
hann byggði hægt en af hyggindum
traustan grunn að efnahag sínum og
afkomu og var sannkallaður gleði-
gjafi hvar sem hann kom, söngmað-
ur góður og hrókur alls fagnaðar,
traustur og vinfastur og vinmargur.
Langt um aldur fram er hann nú
kvaddur með virðingu og þökk. Sel-
fossbúar sjá hér á bak manni sem
setti svip á bæinn. Ástvinum sendi
ég hugheilar samúðarkveðjur.
Árni Valdimarsson.
Ég mun sennilega seint gleyma
þeim degi sem ég kynntist Sigurði
Karlssyni eða Sigga Kalla eins og
hann var jafnan kallaður. Það var
10. ágúst 2007, sama dag og lang-
þráður draumur minn um að verða
flugmaður rættist. Ég hafði tekið
prófið um morguninn og sat ég
seinna um kvöldið, nokkuð ánægður
með daginn, í götugrilli á Grænu-
völlum. Þar sem Siggi þekkti til for-
eldra minna og heyrði talað um flug-
ið gaf hann sig á tal við mig og var
það spjall mín fyrstu kynni af Sigga.
Eftir það rakst ég á hann öðru
hverju á flugvellinum og oftar en
ekki ræddum við um flug eða daginn
og veginn.
Næsta vor sem svo oft áður var ég
á vappi á Selfossflugvelli þegar
Siggi kemur þar við; eftir stutt spjall
spyr Siggi mig hvort ég sé ekki til í
að fljúga með hann um sumarið á
HAL-inu þar sem hann sökum veik-
inda sinna fékk ekki endurnýjað
læknisvottorð. Ég þurfti ekki að
hugsa mig um og sagði hiklaust já
og var það upphaf að þætti í lífi mínu
sem ég mun aldrei gleyma.
Allar hinar ógleymanlegu og
skemmtilegu stundir með Sigga,
hvort sem það voru flugferðir á borð
við stutta túra um flóann bara rétt
til að lyfta okkur upp, ferðir til Eyja
með uppstoppaða fugla sem brot-
lentu í jarðskjálftanum 2008 eða að
horfa á fótboltaleik, karmelluflug,
lágflug fram hjá kunningjum Sigga,
Akureyrarferð eða hinar fjölmörgu
stundir sem fóru í spjall meðan
stússað var í hinu og þessu.
Siggi var sérstaklega ljúfur og
skemmtilegur karakter sem vildi
alltaf gera öllum vel. Hann hugsaði
alltaf vel um náungann og lagði allt-
af sitt af mörkum. Þó að undir það
síðasta hafi hann getað gefið minna
af sínum líkamlegu kröftum fann
hann alltaf leið til að taka þátt. Get
ég ekki gleymt því þegar ég var að
vinna í Reykjavík og ákvað að fara
fljúgandi á Selfoss og til baka aftur
um morguninn. Svo vel vildi til að
Siggi var á flugvellinum þegar ég
lenti og fékk ég far hjá honum heim.
Þegar Siggi sá að allir bílar voru á
burt og ég var einn heima fór hann
fram á að ég kæmi út að borða með
honum og Ingunni. Eða þegar við
vorum að þrífa HAL-ið fyrir 17.
júní-útsýnisflug og ég þurfti að
skreppa til Reykjavíkur að máta
vinnuföt, þá stóð nú ekki á Sigga og
bauð hann mér að skjótast á vélinni
til Reykjavíkur. Sagði það vera
miklu þægilegra, skemmtilegra og
flottara að mæta á vélinni og komast
strax aftur heim.
Þegar ég fékk fréttirnar um að
Siggi væri farinn þá trúði ég því ekki
almennilega og tók það mig tölu-
verðan tíma að átta mig á því að
þetta væri satt. En eitt af því sem ég
lærði af Sigga og mun hafa í háveg-
um í framtíðinni er að lífið er stutt
og getur alltaf tekið óvænta stefnu
svo manni ber að nýta öll þau tæki-
færi sem gefast. Siggi Kalla mun
seint renna mér úr minni og fái ég
vott af góðmennsku og hlýleika hans
mun ég una sáttur við mitt. Nú hef-
ur Siggi lagt upp í sína síðustu flug-
ferð og þá lengstu hingað til og veit
ég að hann mun vera hjá okkur
áfram og líta yfir okkur.
Áki, Dagur, Gauti, Snorri og Ing-
unn, þið eigið mína dýpstu samúð og
megi Guð hjálpa ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Daníel Pétursson.
31AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Orlofshús til leigu miðsvæðis á
Akureyri. Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Verönd og heitur pottur. Glæsilegt
útsýni yfir Pollinn. Frítt internetsam-
band. Upplýsingar í síma 618-2800
eða www.saeluhus.is
AKUREYRI
Sumarhús (130 fm) til leigu við
Akureyri. 4 svefnherb. + svefnloft, 2
baðherb, rúm fyrir 11 manns, verönd
og heitur pottur, glæsilegt útsýni yfir
Akureyri. www.orlofshus.is eða
Leó, sími 897 5300.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám
Bættu Microsoft í ferilskrána. MCITP
Server Administrator 2008 með Win-
dows 7 hefst 2. nóv. Hagstætt verð.
Rafiðnaðarskólinn, www.raf.is,
sími 863 2186.
Tómstundir
Öflugir fjarstýrðir rafmagns- og
bensínbílar í miklu úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Til sölu
Nýir og notaðir vetrarhjól-
barðar. Gott verð
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Glæsilegt fullbúið raðhús
Þorlákshöfn - Til sölu 3ja herbergja
miðjuraðhús með 40 fm bílskúr.
Hellulagt bílaplan, tilbúinn garður
með flottum sólpalli. Afhendist við
kaupsamning. Upplýs. í s. 893-1901.
Glæsileg penthouse-íbúð 220
Hafnarfirði - 3 herbergja penthouse-
íbúð, sérsmíðaðar innréttingar, bað,
eldhús, þvottahús og fataskápar.
Uppþvottavél, amerískur ísskápur og
gardínur í öllum gluggum frá Z-braut-
um. Gegnheilt parket og flísar á gólfi,
gólfhiti. Stórar hellulagðar svalir.
Upplýsingar s. 893 1901.
Óska eftir
Óska eftir að kaupa
gott og vel útlítandi píanó, óskalitur
brúnt þó ekki skilyrði. Áhugasamir
sendi inn uppl. á agnesv@simnet.is
Vinsamlegast sendið mynd með, ef
tök eru á.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Ýmislegt
Þessi vinsæli BH nýkominn aftur í
BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-,
Fínlegur og flottur í BCD skálum á
kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-
Mjög gott snið og heldur vel í CDE
skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr.
1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vandaðar leðurmokkasíur
skinnfóðraðar með leðursóla.
Litir: svart og bordo.
Stærðir: 41 - 48.
Verð: 7.950.-
Mjúkir og þægilegir leðurskór
skinnfóðraðir á góðum sóla.
Litur: svart.
Stærðir 40 - 47.
Verð: 11.950.
Léttir og sportlegir herraskór úr
leðri, skinnfóðraðir. Góð breidd.
Litur: svart.
Stærðir: 41 - 48.
Verð: 12.650.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
TILBOÐ
Dömuskór úr leðri. Verð: 2.500.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Gína
Vantar gínu sem hentar vel fyrir
peysur og skartgr. og gínuhöfuð fyrir
húfur. Einnig fót fyrir sokka. Uppl. í
síma 843 5307 eða sendið uppl. á
ask@simnet.is
Eigum nýjar hvítar 80 x 200
innihurðir með karmi og gerektum á
aðeins 24.000 með vsk.
Húsgagnasprautun Gjótuhrauni 6,
Hafnarfirði, sími 555-3759.
Veiði
Litlá Kelduhverfi
Stór sjóbirtingur og laxavon, ódýr
veiðileyfi, fallegt umhverfi. Uppl. á
svfr.is eða í síma 568 6050, og hjá
Báru og Sturlu í Keldunesi í síma
465 2275. Gisting í boði þar.
Hinn 20. sept-
ember sl. varð Vil-
hjálmur Hjálm-
arsson níutíu og
fimm ára gamall.
Ég heimsótti þenn-
an ágæta frænda
minn í sumar ásamt
sonum, tengda-
dætrum og tveimur
afabörnum. Erindi
þeirra var að end-
urtaka gönguleið,
sem við hjónin
gengum sumarið
1949 milli heimila
foreldra okkar á
Norðfirði og Seyð-
isfirði. Það var okkar brúðkaups-
ferð. Ég ók hinsvegar að þessu
sinni yfir fjallvegina ásamt barna-
börnunum. Allur hópurinn gisti á
Brekku og Vilhjámur borðaði með
okkur. Það var sannarlega
ánægjulegt að hitta Vilhjálm og
hans fólk. Ekki bar mikið á, að
Vilhjálmur væri þetta gamall.
Hann fræddi okkur um sögu Mjóa-
fjarðar, sem ég var að vísu tals-
vert kunnugur. Ekki var að heyra,
að gleymska hrjáði Vilhjálm, enda
ótrúlega minnugur og sískrifandi.
Hann ekur ennþá m.a. yfir Mjóa-
fjarðarheiði og Fjarðarheiði, sem
hvor tveggja eru bæði háir og
miklir fjallvegir. Vilhjálmur lét af
þingmennsku fyrir 31 ári að eigin
ósk. Þá hafði hann setið á Alþingi
með nokkrum hléum í samtals 30
ár. Árin 1974-1978 var Vilhjálmur
menntamálaráðherra og gegndi
því starfi með sóma. Þegar Ólafur
Jóhannesson stakk upp á því við
Vilhjálm, að hann tæki að sér ráð-
herradóm færðist hann heldur
undan og sagðist ekki vera nægi-
Vilhjálmur Hjálmars-
son á Brekku, 95 ára
lega skólagenginn
til þess. „En þú ert
maður fólksins,“
svaraði Ólafur.
Þrátt fyrir stutta
skólagöngu er Vil-
hjálmur gagn-
menntaður maður,
víðlesinn og fróður.
Frásagnargáfa er
honum í blóð borin,
enda hefir hann
verið sískrifandi
síðan hann hætti
þingmennsku. Hefir
þegar gefið út
hvorki meira né
minna en 19 bækur
og er enn að gefa út. Hann skrif-
aði ævisögu Eysteins Jónssonar,
sem er gagnmerkt heimildarrit um
íslensk stjórnmál á 20. öldinni.
Einnig skrifaði hann um ráðherra-
árin. Þá hefir hann rakið mjög
skilmerkilega sögu Mjóafjarðar og
margt fleira mætti nefna. Í Mjóa-
firði bjuggu í eina tíð um 400
manns. Það er því sagnfræðilegur
fengur í að skrifa sögu byggð-
arlagsins. Og enn er hann að gefa
út bók. Ég hygg, að það sé nokk-
urt einsdæmi, að svo aldraður
maður skrifi bækur til útgáfu. Og
nú, þegar Vilhjálmur á Brekku
stendur á hálf tíræðu, senda vinir
hans og samherjar um allt land
honum og fjölskyldu hans inni-
legar afmælisóskir með kærum
þökkum fyrir vel unnin störf fyrir
samfélagið. Hið fjölmenna fræn-
dalið sendir nú hamingjuóskir að
Brekku. Ég og fjölskyldan sendum
sérstakar kveðjur og þökkum
liðnu árin, en ekki síst heimsókn-
ina að Brekku í sumar.
Tómas Árnason.
Ragnheiður
Hannesdóttir
✝ RagnheiðurHannesdóttir lést
á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð, Kópavogi,
4. sept. sl.
Hún fæddist í
Reykjavík 2. nóv-
ember 1926.
Ragnheiður var jarðsungin frá Bú-
staðakirkju fimmtudaginn 17. sept. sl.
Meira: mbl.is/minningar
Hrafnhildur
Vera Rodgers
✝ Hrafnhildur VeraRodgers var
fædd í Reykjavík 16.
apríl 1944. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu í
Holtsbúð í Garðabæ
þann 8. september
2009.
Útför Hrafnhildar fór fram í kyrrþey
þann 17. september síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Þorgrímur
Jónsson
✝ Þorgrímur Jóns-son tannlæknir
fæddist á Kleppjárns-
reykjum í Borgarfirði
2. janúar 1926. Hann
andaðist á St. Jós-
efsspítala laugardag-
inn 5. september.
Útför Þorgríms fór fram í kyrrþey 17.
september.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is