Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 41

Morgunblaðið - 23.09.2009, Síða 41
Wivel segir helsta áhrifavaldinn á myndina hafa verið Frederick Wiseman, sem er þekktur fyrir heimildarmyndir sem hann hef- ur tekið upp í stofnunum í heimalandi sínu, Bandaríkj- unum. Myndirnar byggir hann upp dramatískt, en það er aldrei talað við neinn beint, áhorfand- inn verður að tengja á milli og draga ályktanir. „Ég setti Hróarskeldumynd- ina upp með svipuðum hætti,“ segir Wivel. „Enda má segja að hátíðin sé orðin að nokkurs kon- ar stofnun þar sem ákveðin lög- mál gilda. Þetta snýst um að sýna, en ekki segja („show, don’t tell“).“ Undir áhrifum frá Wiseman MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is TÓNLISTARHÁTÍÐIN Hróars- kelda er Íslendingum að góðu kunn og er hátíðin reyndar ein sú þekkt- asta í heimi, þykir búa yfir ein- stökum anda, nokkuð sem þeir sem þangað hafa farið þekkja gjörla. Í fyrra var frumsýnd heimild- armynd um hátíðina, sem ber ein- faldlega nafn hátíðarinnar. Leik- stjórinn, Ulrik Wivel, fór sumpart athyglisverðar leiðir í gerð mynd- arinnar en Wivel á sömuleiðis at- hyglisverðan feril að baki, var at- vinnulistdansari um árabil en sneri svo við blaðinu og einhenti sér í kvikmyndagerð. Heimur út af fyrir sig Wivel segist hafa ráðist í gerð myndarinnar fyrir forvitnissakir, fyrst og fremst. „Það er dáldið einkennilegt með mig, en ég upplifði hátíðina aldrei á unglingsárum eins og svo margir. Ég var í öguðu ballettnámi og því lítið svigrúm fyrir galsagang og fyll- erí. Þegar ég hætti í dansinum ákvað ég að ég þyrfti að upplifa þessa umtöluðu Hróarskeldustemn- ingu. Og ég, eins og svo margir, heillaðist upp úr skónum og hug- myndin um að kvikmynda hátíðina spratt skjótt upp.“ Wivel sá fljótt að hann þyrfti fleiri tökudaga en þá fjóra sem hátíðin stendur yfir. Alls safnaði hann því efni á átta hátíð- um þó að myndin sjálf sé sett upp eins og um eina samfellda hátíð sé að ræða. Her manns starfaði með honum og var fólk sett niður á dag- og næturvaktir. „Þessi hátíð er töfrum slegin – en um leið nokkuð rosaleg,“ segir Wiv- el. „Eiginlega hálfgert skrímsli, og í raun heimur út af fyrir sig. Hátíðin hefur í gegnum tíðina spilað áhrifa- ríka rullu í lífi fólks, sem verður ást- fangið þarna, hrynur í það í fyrsta skipti o.s.frv. Enda sá ég snemma að það væri lítið vit í að fókusera á tónlistina og tónlistarmennina. Þeir vippa bara upp hefðbundnum klisj- um. Málið var að leita uppi fólkið sem myndar þessa sérstöku stemn- ingu og fylgjast með því hvernig það ber sig að.“ Aldrei aftur í tjald – Það er undarlegt hvernig þú tal- ar um Hróarskeldu sem skrímsli. Flestir lýsa hátíðinni nefnilega sem mikilli friðar- og hamingjuveislu? „Hún getur verið það líka. Hátíð- in er svo margt og hún tekur sífelld- um breytingum. Hún er virk, ef svo mætti segja, og dýrkar upp ólík hughrif hjá ólíku fólki.“ Wivel hlær við þegar hann er spurður hvort hann sé ekki búinn með Hróarskeldukvótann fyrir lífs- tíð. „Ég fór þangað eftir að ég lauk við myndina, svona til að upplifa hana án þess að vera að vinna. Það var skrítið. Ég hvíldist já … en ég saknaði um leið samstarfsfélagana. En ég get sagt þér það, að ef ég fer þangað aftur á næstunni, þá ætla ég ekki að gista í tjaldi!“ Skelduskrímslið hamið  Heimildarmynd um Hróarskeldu- hátíðina sýnd á RIFF  Leikstjórinn sótti átta hátíðir til að safna efni RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK Skeldan „Þessi hátíð er töfrum slegin - en um leið nokkuð rosaleg,“ segir Ulrik Wivel, leikstjóri heimild- armyndarinnar Roskilde. Ulrik Wivel Myndin er sýnd í kvöld kl. 18.00 í Iðnó. Leikstjórinn svarar spurn- ingum um myndina í lokin. Nánar á www.riff.is Á laugardaginn var opnuð metnaðarfull sögusýning í Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi. Kallast hún Heilbrigð æska, pönkið og Kópavogurinn 1978-1983 en bærinn var mikil gróðrarstöð hvað þróun íslenskrar pönkmenningar áhrærði. Við opnunina léku nokkrar sveitir þeirrar gerðar, gamlar sem nýstofnaðar, og munir og ljósmyndir ýmiss konar frá tímabilinu voru til sýnis. Meira pönk! Orka Hið kolbrjálaða kennaraband Blóð lét pönkgamminn geysa. Morgunblaðið/Kristinn Gamalt, nýtt Árni Daníel og Ríkharður H. Frið- riksson skipa nú pönksveitina HFF. Við hæfi Þessi skrautlegi herra- maður mætti í sínu fínasta pússi, og sló óforvarandis í gegn. Pönkið lifir – í Kópavogi! ENDALAUSAR deilur á milli leik- kvennanna Söruh Jessicu Parker og Kim Cattrall ógna framtíð næstu Sex and the City-kvikmyndar sem nú er í tökum. Allt hljóp í kergju á milli þeirra þegar sjötta og síðasta serían af sjónvarpsþáttunum var tekin upp, kergjan var enn til staðar þegar fyrsta kvikmyndin var frumsýnd í fyrra. Parker og Cattrall er svo illa hvorri við aðra að þær neita að tala saman. Starfsmönnum á tökustað finnst það mjög óþægilegt. Þótt allt virðist vera í lagi á yfirborðinu er mikil óánægja kraumandi undir niðri og stemningin á tökustað mjög slæm. Parker, sem leikur Carrie Brad- shaw, verður stressaðri með hverj- um deginum. Hún reynir að sameina leikinn, uppeldið á sex ára syninum James og tvíburadætrunum Marion og Tabithu sem staðgöngumóðir fæddi í júní. Starfsfólk á tökustað kallar hana „Carrie Sadshaw“ eða „Carrie sorgmæddu“ því þegar hún er ekki fyrir framan myndavélina að leika er hún svo sorgmædd. Cattrall er líka stressuð og með- leikkonur hennar, Cynthia Nixon og Kristin Davis, kvíða því orðið að mæta í vinnuna út af andanum sem þar er. Talast ekki við Sex and the City F.v. Kim Cattrall, Cynthia Nixon, Sarah Jessica Par- ker og Kristin Davis. „EKKI FYRIRHÚMORSLAUSA“ HHH T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHH ÓHT RÁS 2. HHH AO ICELAND REVIEW FRÁBÆR SKEMMTUN – FRÁBÆRTÓNLIST “ÓVÆN TASTI S MELLUR ÁRSINS ” – J.F AB C HHH - EMPIRE HHH - ROGER EBERT ÓTRÚLEG UPPLIFUN Í 3D SÝND Í ÁLFABAKKA „DAZZLINGLY WELL MADE...“ VARIETY - 90/100 „HÚN VAR FRÁBÆR!“ NEW YORK MAGAZINE – 90/100 Venjulegt verð – 1050 kr. EIN ALLRA BES TA DISNEY-PIXAR MYND TIL ÞES SAHHHH - T.V. KVIKMYNDIR.IS HHHH - ROGER EBERT HHHH – H.S. MBL HHHH RÁS 2-HGG HHHH Ó.H.T. RÁS 2 Í REYKJAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI TVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD, EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM ÓNORÐIÐ PROPOSAL SÝND Í KRINGLUNNI ANDREW ÞOLIR EKKI YFIRMANN SINN EN TIL AÐ FÁ STÖÐUHÆKKUN ÞARF HANN AÐ TAKA BÓNORÐI HENNAR STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI “BESTA MYND ÁRSINS” / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI DISTRICT 9 kl. 8 16 REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 8 síðustu sýningar 16 DISTRICT 9 kl. 8 - 10:20 16 REYKJAVÍK WHALE WAT... kl. 8 16 DRAG ME TO HELL kl. 10:10 16 THE TAKING OF PELHAM 123 kl. 8 16 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 10 16 REYKJAVÍK WHALE WATCHING kl. 8 16 INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.