Morgunblaðið - 23.09.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.09.2009, Qupperneq 44
 Lokatónleikar Proms-hátíðar Breska útvarpsins BBC þykja einn líflegasti listvið- burður Lundúna- borgar og eru óhemjuvinsælir. Tónleikarnir, sem haldnir voru í Hyde Park, voru sendir í beinni út- sendingu út um allan heim. Þrjár alþjóð- legar stjörnur voru kynntar til leiks; söngvararnir Katherine Jenkins og Garðar Thór Cortes og sérstakur gestur á tónleikunum, bandaríski söngv- arinn og lagasmiðurinn Barry Manilow, en honum skaut upp á stjörnuhimininn á áttunda áratugn- um með lögum á borð við Mandy og Copacabana. Í útsendingunni frá BBC mátti varla á milli sjá hvor karlstjarnan nyti meiri hylli, Manilow eða Garðar Thór, en mikil gleði ríkti í Hyde Park og áheyr- endur margir. Garðar Thór og Barry Manilow saman á Proms TÓNLIST MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 266. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»  „Það var radd- prófun í gær [fyrradag], og ég komst inn í kór- inn,“ segir Magn- ús Hlynur Hreið- arsson, blaðamaður og fréttaritari Sjónvarpsins á Suður- landi. „Ég fer í annan tenór,“ bætir hann við og upplýsir að aldrei hafi fleiri nýliðar mætt á fyrstu söng- æfingu Karlakórs Selfoss. „Við vor- um 14 nýir og allir komust inn, við vorum fleiri en sextíu á æfingu, því- líkt stuð,“ segir hann og hlær inni- lega. Magnús Hlynur hefur gengið með draum um að vera í kórnum í tíu ár. Hann fékk leyfisbréf um að fara í kórinn frá konunni sinni í fer- tugsafmælisgjöf. Hún hafði staðið gegn kórástundun Magnúsar, sök- um þess hversu önnum kafinn mað- urinn er. Verður annar tenór í Karlakór Selfoss KÓRSÖNGUR                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-./ +..-0* **1-++ +2-21* +*-.33 *4-.+. *+.-*/ *-,213 *01-+, *4*-00 5 675 ++# 89 6 +..0 *+,-,3 +.*-2. **1-13 +2-1+, +*-*+4 *4-./, *+.-1* *-,201 *01-4* *4+-1. +,2-+12. &  :8 *+,-31 +.*-40 **1-0. +2-101 +*-*0. *4-*+3 *+.-41 *-,1,2 *03-,0 *4,-.* Heitast 10 °C | Kaldast 5 °C Suðvestan 3-8, bjart á Norðaustur- og Aust- urlandi, annars víða skúrir. Hiti 5 til 10 stig. » 10 Jón Kalman opnar fyrirlestraröð þar sem þekktir rithöf- undar ræða um að- komu sína að skáld- skapnum. »35 BÓKMENNTIR» Úr engu í eitthvað BÓKMENNTIR» Hvernig er nýjasta verk Dans Browns? »38 Poppfræðingurinn Dr. Gunni gefur út nýja og endurbætta útgáfu af Eru ekki allir í stuði?... á næsta ári. »36 TÓNLIST» Uppfærð rokksaga TÓNLIST » Bubbi Morthens stofnar fyrirtæki. »36 AF LISTUM» Cave gefur út safn af kvikmyndatónlist. »40 Menning VEÐUR» 1. Þakið skarst af bílnum 2. Húsið fer ekki á útsölu 3. Klósettslanga loks handsömuð 4. Rekin fyrir að segja frá ofbeldi  Íslenska krónan veiktist um 0,02% »MEST LESIÐ Á mbl.is Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson  jbk@mbl.is „HANN er náttúrlega ein mesta goðsögnin í þessum kvikmyndaheimi og þegar hann mætti á tökustað sló þögn á mannskapinn,“ segir Snorri Sturluson, kvikmynda- og auglýsingagerðarmaður sem gerði nýverið auglýsingu með stórstjörnunni Dennis Hopper í Los Angeles. Snorri gerði auglýsinguna með félaga sínum, Eiði Snorra Eysteinssyni, en sam- an reka þeir fyrirtækið Snorri Bros. í New York ásamt Einari Snorra Einarssyni. Umrædd auglýsing var fyrir sjónvarpsþættina Crash sem Hopper fer með aðalhlutverkið í, en leikarinn góðkunni á að baki hlutverk í mynd- um á borð við Rebel Without a Cause, Giant, Apocalypse Now og Blue Velvet. | 36 Unnu með Dennis Hopper Reuters Nagli Dennis Hopper er án efa á meðal þekktustu leikara heims. HÓLMFRÍÐI Magnúsdóttur, lands- liðskonu í knattspyrnu, stendur til boða að spila í bandarísku atvinnu- mannadeildinni á næsta ári. Í gær- kvöld fór nýliðavalið fram og var Hólmfríður valin af Philadelphia Independence, sem verður nýliði í deildinni. Hólmfríður er á mála hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristi- anstad. | Íþróttir Hólmfríður var valin Á buningurinn.is segir um faldbúninginn að hann dragi nafn sitt af höfuð- búnaðinum, svonefndum faldi, sem lengi vel var gerður úr saman- brotnum klútum sem vafðir voru um höfuðið. Á seinni hluta 18. aldar tóku konur upp húfu við hversdagsbúning í stað falds, á 19. öld var búningurinn einkum notaður sem sparibúningur og á seinasta fjórðungi 19. aldar lagðist notkun faldbúnings af. Á seinasta skeiði faldbúningsins voru helstu hlutar hans pils, skyrta, upphlutur, treyja, stífur flatur kragi og faldur. Á pilsið var markað fyrir svuntu með leggingum. Tveir klútar voru jafnframt bornir við búninginn. Annar var vafinn um höfuðið og huldi neðsta hluta faldsins, hinn var bor- inn um hálsinn, undir kraganum. Dregur nafn sitt af höfuðbúnaðinum Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÞANN 29. ágúst síðastliðinn voru hjónin Guðni Páll Sæmundsson og Bryndís Geirsdóttir gefin saman í Reykholtskirkju. Athöfnin fór fram eftir Grallaranum og voru hjónin klædd eftir gamalli hefð. Sr. Geir Waage gaf hjónin saman og fylgt var gömlum íslenskum brúðkaups- siðum þar sem brúðhjónin mætast á miðju kirkjugólfi, bindast heitum sínum og setjast svo saman á brúð- arbekk, hlýða lestrum og fá fyrir- bæn og blessun. Móðir brúðgum- ans, Ólafía Margrét Magnúsdóttir, tók að sér að sauma brúðarklæðin. Guminn var klæddur í hefðbundin 18. aldar föt, hnésíðar buxur, hand- prjónaða sokka með spjaldofnum böndum, tvíhneppt vesti og jakka. Brúðurin var klædd faldbúningi sem mun hafa verið í tísku á 17. öld. Það tók Ólafíu þrjú ár að vinna klæðin enda mikil nákvæmnis- vinna. Flest vann hún sjálf en naut aðstoðar Guðnýjar Rósu Magn- úsdóttur við að sauma út í pilsið og Herdís Pétursdóttir sá um baldýr- inguna. Ólafía skráði sig á nám- skeið í faldbúningagerð hjá Heim- ilisiðnaðarfélaginu en um námskeiðaröð er að ræða sem tek- ur þrjú ár. Búningarnir eru allir handunnir. „Þetta er gert skref af skrefi og eru sérnámskeið fyrir alla hlutana sem mynda búninginn. Í raun er um að ræða tvo búninga; upphlut sem var eiginlega undirföt í gamla daga og faldbúning sem er aðalklæðin. Það er sér upphluts- námskeið þar sem kennt er að sauma gamla upphlutinn, svo getur maður haldið áfram og farið á fald- búningsnámskeið. Útlitið á faldbún- ingnum er nokkuð fjölbreytilegt. Hægt er að nota baldýringu, knipl, orkeringu, flauelsskurð, perlusaum og ýmiss konar útsaum.“ Aðspurð segist Ólafía sjálf hafa klæðst öllu nútímalegri fötum við giftinguna. „Ég á sjálf upphlut en var ekki í honum þar sem mér fannst að þau ættu að njóta sín í sínum búningum.“ Klæðin munu vera til sýnis í Reykolti næstu miss- eri. Giftu sig í íslenskum þjóðbúningum sem móðir brúðgumans saumaði Brúðkaup að gömlum sið Ljósmynd/Guðlaugur Óskarsson 18. aldar brúðhjón Bryndís Geirsdóttir og Guðni Páll Sæmundsson. Ákvað í barnæsku að hún skyldi ganga upp að altarinu í 18. aldar faldbúningi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.