Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 6

Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 6
Eftirlitsstofnunin Transparency International, sem berst gegn spillingu, telur Danmörku minnst spillta ríki heims í nýjustu rannsókn sinni, en niðurstöður hennar eru birtar árlega og vekja jafnan athygli. Heimild: Transparency International SPILLING MÆLD LISTI YFIR MAT Á SPILLINGU Raðar 180 ríkjum á lista eftir því hve spilling á hverjum stað er talin mikil. Niðurstaðan er byggð á mati sérfræðinga og skoðanakönnunum. 10,0 9,5 9,0 8,5 MINNST SPILLT Danmörk 9,3 Nýja-Sjáland 9,3 Svíþjóð 9,3 Singapúr 9,2 Finnland 9,0 Sviss 9,0 Ísland 8,9 Holland 8,9 Ástralia 8,7 Kanada 8,7 1. 4. 5. 7. 9. 2,0 1,5 1,0 0,5 0 MEST SPILLT Austur-Kongó 1,7 Miðbaugs- Gínea 1,7 Tsjad 1,6 Gínea 1,6 Súdan 1,6 Afganistan 1,5 Haítí 1,4 Írak 1,3 Búrma 1,3 Sómalía 1,0 171. 173. 176. 177. 178. 180. ÍSLAND deilir 7. sætinu yfir minnst spilltu ríki heims á nýjum, árlegum lista stofnunarinnar Transparency International. Spilling mælist minnst í Dan- mörku. Niðurstaðan fyrir Ísland er byggð á 5 könnunum en til sam- anburðar gerði stofnunin 9 kann- anir í Singapúr, þar sem spilling mælist minni en hér. Tekið er fram að Ísland og Holland eigi það sameiginlegt að í hegningarlögum ríkjanna sé ekki skýrt kveðið á um mútur þar sem milligöngumenn koma við sögu, en að bæði ríki telji núver- andi lagaramma ná yfir slík brot. Skýrslan, sem er 496 síður, er aðgengileg á vef stofnunarinnar, transparency.org. baldura@mbl.is Spillingin mælist lítil á Íslandi 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 ÁRNI Páll Árna- son félagsmála- ráðherra segir kostnað ríkis og fjármálafyr- irtækja við að lækka greiðslu- byrði lána og lengja lánstíma þeirra ekki liggja fyrir, það muni m.a. fara eftir þróun efnahagsmála næstu árin. Kostnaðurinn fyrir rík- ið eigi þó að vera viðráðanlegur. „Allir átta sig á því að til einhvers kostnaðar þarf að koma við end- urskipulagningu skulda, miðað við þær aðstæður sem eru uppi.“ Árni Páll segir það hlutverk rík- isins að ganga á undan með góðu fordæmi um að skapa greiðslubyrði í samræmi við getu fólks. Íbúða- lánasjóður sé tilbúinn að endur- fjármagna íbúðalán bankanna. FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÁÐUR en Alþingi kemur saman á fimmtudag hyggst félagsmálaráð- herra kynna áform um lækkun á greiðslubyrði íbúða- og bílalána. Á þetta við um öll verðtryggð og gengistryggð lán, óháð því hvort lántakendur eru komnir í vanskil með lánin eða ekki. Verður greiðslubyrðin færð aftur til þess sem var í maí á síðasta ári og framvegis tekið mið af svonefndri greiðslujöfnunarvísitölu, sem sam- anstendur af launavísitölu og at- vinnustigi í landinu. Gætu mánaðarlegar afborganir lána lækkað að jafnaði um fjórð- ung, og þá fyrst 1. nóvember nk., gangi áætlun stjórnvalda eftir. Fyrir þau heimili sem greiða stór- ar fjárhæðir af bæði íbúða- og bíla- lánum getur greiðslubyrðin lækkað um tugi þúsunda króna á mánuði. Endanleg útfærsla á þessu ligg- ur þó ekki fyrir en félagsmálaráð- herra mun leggja fram frumvarp á fyrstu starfsdögum Alþingis sem gera á fjármálafyrirtækjum kleift að breyta fyrirkomulagi afborgana. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins er ekki verið að tala um að lækka höfuðstól verðtryggðra lána, líkt og Íslandsbanki hyggst gera og greint var frá í blaðinu í gær. Er sú leið talin geta farið saman með áformum stjórnvalda, þá helst fyrir þá sem eru í söluhugleið- ingum, en aðrir bankar hafa ekkert gefið upp hvort þeir fara sömu leið og Íslandsbanki. Fyrst og fremst miða aðgerðir stjórnvalda að því að létta greiðslu- byrðina tímabundið. Ef ekki verður búið að greiða íbúðarlánin niður í lok lánstímans, sem er allt að 40 árum, verða þau mögulega fram- lengd í skamman tíma. Að þeim tíma loknum verða lánin vænt- anlega afskrifuð ef með þarf. Grænt ljós um samráð Ekki stendur til að afskrifa er- lend bílalán heldur lengja þau um allt að þrjú ár. Margir bíleigendur hafa nýtt sér möguleika á að frysta afborganir af þeim lánum en greiðslubyrðin gæti engu að síður lækkað með boðuðum breytingum. Flest öll fjármálafyrirtæki sem veitt hafa þessi lán hafa fengið kynningu á áformum stjórnvalda; bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir og eignaleigur, sem og aðilar vinnumarkaðarins og Hagsmuna- samtök heimilanna. Samkeppnisyf- irvöld hafa fyrir sitt leyti gefið grænt ljós á að fjármálafyrirtækin hafi samráð í þessum aðgerðum. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka líf- eyrissjóða, var meðal þeirra sem áttu fund með félagsmálaráðherra um helgina. Hrafn segir lífeyr- issjóðina vera jákvæða gagnvart því að koma til móts við lántak- endur. Fyrst og fremst muni sjóð- irnir skoða þann skuldahala sem eftir verður, þ.e. hvort og hve mik- ið þarf að afskrifa af íbúða- lánunum. Erfitt sé að segja til um fjárhæðir í þessu sambandi. Greiðslubyrði allra lána lækkuð  Lokahönd lögð á aðgerðir stjórnvalda til lækkunar á afborgunum lána  Aðrir bankar en Íslandsbanki ekki ákveðið lækkun höfuðstóls  Lán lengd eða afskrifuð Mánaðarleg greiðslubyrði íbúða- og bílalána gæti lækkað um tug- þúsundir króna. Óljóst er hver kostnaðurinn verður fyrir ríki og fjármálafyrirtæki. HAUSTBLÍÐAN lék við malbikunarmenn í höf- uðborginni í gær. Þar var m.a. unnið við mal- bikun stofnbrauta eins og á hluta Sæbrautar og á hluta Miklubrautar. Stórvirkar vinnuvélar byrjuðu að fræsa upp Sæbraut milli Skeiðarvogs og Reykjanesbrautar fyrir birtingu í gærmorgun. Svo komu tröllsleg tæki og fylltu í sárið með nýju malbiki. Sömu sögu var að segja af Miklubrautinni þar sem malbiksslitlög voru endurnýjuð. Malbik- unarvélin mjakaðist þar áfram undir dyn gaslog- anna sem héldu bikinu rjúkandi heitu. Skipt um malbikslag á hlutum stofnbrauta í höfuðborginni Morgunblaðið/Ómar Malbiksmenn bæta nýju lagi á Miklubraut Eftir Andra Karl andri@mbl.is TELPAN sem ráðist var á með hnífi á sunnudagsmorgun var í gærdag flutt af gjörgæsludeild Landspítala yfir á Barnaspítala Hringsins. Henni heilsast eftir atvikum vel. Konan sem réðst á hana var í gær úrskurð- uð í gæsluvarðhald í eina viku og verður henni gert að sæta geðrann- sókn. Hending virðist hafa ráðið því að atlagan fyrirlitlega beindist gegn telpunni. Konan, sem er 22 ára, bankaði að dyrum heimilis telpunnar og virðist án undanfara hafa lagt til hennar með hnífi þegar hún opnaði dyrnar og stóð í gættinni. Telpan hlaut stungusár á brjósti. Konan hljópst hins vegar á brott. Allt að sextán ára fangelsi Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu Suðurnesja beindist grunur fljótlega að konunni. Hún var hand- tekin á heimili sínu og fannst hníf- urinn við húsið. Konan gekkst við verknaðinum við yfirheyrslur, en hún hefur áður komið við sögu lög- reglunnar. Ekki fengust þó upplýs- ingar um eðli þeirra afbrota. Alda Jóhannesdóttir, staðgengill lögreglustjóra, segir ekki tilefni til að ætla að konan hafi verið í ann- arlegu ástandi þegar árásin var gerð. Engu að síður fer fram lyfjarann- sókn, líkt og í viðlíka málum. Að öðru leyti segir hún rannsókn miða vel. Alda vildi ekkert gefa upp um hvort og þá hvers kyns samskipti hefðu verið á milli konunnar og foreldra telpunnar fyrir árásina. Sé konan sakhæf mun hún að öll- um líkindum vera ákærð fyrir tilraun til manndráps og til vara fyrir stór- fellda líkamsárás. Viðurlög eru allt að sextán ára fangelsisvist. Konan úrskurðuð í gæsluvarð- hald og til að sæta geðrannsókn  Telpan útskrifuð af gjörgæsludeild  Flutt á Barnaspítala Hringsins Í HNOTSKURN »Telpan sem fyrir árásinnivarð er fimm ára. Heimili hennar er í Reykjanesbæ. »Foreldrar telpunnar voruheima og eldri systir. Þau fluttu hana á slysadeild. »Telpan fór í kjölfarið íaðgerð á Landspítala og var í gær útskrifuð af gjör- gæslu. Kostnaður viðráð- anlegur fyrir ríkið Árni Páll Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.