Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009
✝ Guðrún Guð-mundsdóttir fædd-
ist í Breiðamýrarholti
22. apríl 1916. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 17. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðmundur Ei-
ríksson, f. á Sól-
heimum í Hruna-
mannahreppi 26.4.
1887, d. 9.5. 1971, og
Ingveldur Þóra Jóns-
dóttir, f. á Stokkseyri
3.5. 1890, d. 14.5.
1966. Systkini Guðrúnar eru Ingv-
eldur, f. 25.10. 1919, og Jón Ingi-
bergur, f. 20.10. 1923, d. 22.4. 2001.
Uppeldisbróðir Guðrúnar er Gunnar
Helgason, f. 27.12. 1927.
Hinn 17. júní 1944 giftist Guðrún
Kristófer Guðleifssyni húsasmið, f.
28.4. 1904, d. 7.2. 1989. Foreldrar
hans voru Guðleifur Hannesson, f.
15.9. 1869, d. 13.11. 1947, og Sigríð-
28.4. 1956, í sambúð með Guðríði
Ólafsdóttur, f. 8.2. 1950. Börn þeirra
eru Kristófer, Haukur og Hjalti. 6)
Helgi, f. 29.7. 1958, kvæntur Guð-
rúnu Eysteinsdóttur, f. 8.1. 1957.
Börn þeirra eru Eysteinn, Kristján
og Ína Björk. 7) Fyrir hjónaband
eignaðist Kristófer Valgerði Eygló,
f. 12.12. 1934, hún er gift Birni Sig-
urðssyni, f. 5.3. 1944, d. 30.12. 1996.
Dóttir ValgerðarEyglóar er Guð-
björg Dóra og á hún þrjú börn. Val-
gerður Eygló dvaldi oft hjá Guðrúnu
og föður sínum og var það sem
hennar annað heimili.
Aðalstarfsvettvangur Guðrúnar
voru húsmóðurstörf og uppeldi
barna ásamt því að sinna gest-
kvæmu heimili. Að loknu uppeldis-
hlutverkinu starfaði hún meðal ann-
ars sem starfsstúlka á gjörgæslu
Landspítalans.
Útför Guðrúnar fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 29. september, kl.
13.
Meira: mbl.is/minningar
ur Eiríksdóttir, f.
25.12. 1874, d. 14.12.
1955. Guðrún og Krist-
ófer eignuðust sex
börn sem eru: 1) Guð-
mundur Ingvar, f.
12.2. 1945, kvæntur
Ósk Davíðsdóttur, f.
1.1. 1948. Börn þeirra
eru Guðrún, Ingvar og
Anna María og eru
barnabörnin átta. 2)
Guðríður, f. 26.4. 1948,
gift Hallgrími Jón-
assyni, f. 10.7. 1947.
Börn þeirra eru Jónas
og Kristrún Þóra og eru barnabörn-
in þrjú. 3) Sigurður, f. 17.2. 1951,
kvæntur Hjördísi Árnadóttur, f. 22.4.
1952. Fósturdóttir Sigurðar og dótt-
ir Hjördísar er Brynhildur Jóns-
dóttir og eru barnabörnin þrjú. 4)
Ingveldur Þóra, f. 10.8. 1953, gift
Helga Má Guðjónssyni, f. 2.12. 1951.
Börn þeirra eru Guðjón og Þóra og
eru barnabörnin tvö. 5) Hannes, f.
Í dag kveð ég með söknuði
tengdamóður mína Guðrúnu sem ég
hitti fyrst fyrir um 45 árum, þegar
ég kynntist eiginmanni mínum Guð-
mundi syni hennar og Kristófer rétt
að verða 17 ára, ég bjó hjá þeim í
1½ ár og brúðkaupsveislan okkar
var heima hjá þeim árið eftir. Guð-
rún var yndisleg tengdamóðir, mjög
góð við mig eins og alla og aldrei
varð okkur sundurorða, hún skipti
sér aldrei að neinu hjá okkur. Hún
var myndarleg húsmóðir og bar hag
fjölskyldunnar fyrir brjósti, hún gaf
sig óskipta að húsmóðurhlutverk-
inu, var góð eiginkona og móðir sex
barna, góður uppalandi, frábær
amma og langamma.
Minningin um hana mun bera
hátt í hugum allra þeirra sem áttu
vináttu hennar. Þegar ég var 18 ára
og ófrísk af frumburðinum nöfnu
hennar vildi hún hafa mig hjá sér
síðasta mánuðinn fyrir fæðingu, en
við bjuggum í Árbænum og ekki
hægt að fá síma tengdan í þá daga
því það tók marga mánuði, því flutt-
um við til þeirra í Safamýrina í
stuttan tíma. Það voru ófáar ferð-
irnar sem við fórum saman meðan
hún bjó í Seljahlíð niður í Ramma-
gerð að selja lopapeysur sem hún
prjónaði fyrir þá þar. Hún fór líka
oft áður með strætó með poka fulla
af peysum, hún var svo dugleg og
vildi ekki láta hafa fyrr sér. En ég
hafði gaman af því að fara með
henni, þetta voru best prjónuðu
peysur sem þeir höfðu séð og alltaf
var verið að hæla henni fyrir þær.
Ég held að flestir fjölskyldumeðlimir
eigi lopapeysu, vettlinga og sokka
eftir hana.
Eftir bæjarferð var komið heim og
var alltaf veisluborð fyrir mig, aldrei
kom maður í heimsókn nema að
þiggja veitingar og alltaf var hlað-
borð. Það var oft glatt á hjalla, spilað
og hlegið þegar stórfjölskyldan kom
saman.
Mikið þótti henni gaman að aka
með okkur austur fyrir fjall á æsku-
stöðvarnar að Keldnakoti, á Stokks-
eyri, Eyrarbakka og Selfoss. Þá
sagði hún okkur hvað hefði verið
gaman að vinna í Tryggvaskála þeg-
ar hún var ung og ógift. Hún var for-
dómalausasta manneskja sem ég hef
þekkt og sá alltaf eitthvað gott í öll-
um. Henni fannst mjög gaman að
spila bingó á Hrafnistu og fór með
Ingu systur sinni og öðrum konum á
sinni deild og var dugleg að vinna
harðfisk sem hún gaf öllum af.
Fyrir 3 árum brást heilsan og
henni hrakaði, en hún gat samt
Guðrún Guðmundsdóttir
Fleiri minningargreinar um Guð-
rúnu Guðmundsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
prjónað peysur með hjálp Ingu
dóttur sinnar og einnig fékk hún
hjálp hjá frábærum konum á handa-
vinnustofunni á Hrafnistu, þökk sé
þeim. Mæt kona er gengin á vit æv-
intýranna í öðrum heimi og hefur
hitt ættingja og vini sem eru farin.
Ég þakka henni samferðina og fyrir
alla aðstoðina í gegnum árin. Örlög-
unum tók hún með æðruleysi og
hugrekki og var sátt við að fara.
Takk fyrir allt og guð geymi þig.
Samúðarkveðja til ættingja og vina.
Þín tengdadóttir,
Ósk Davíðsdóttir.
✝ Jakob Valdimars-son vélvirki fædd-
ist í Hraunsholti í
Garðahreppi í Gull-
bringu- og Kjós-
arsýslu 17. september
1928. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Holtsbúð í Garðabæ
22. september 2009 en
hann var áður til
heimilis að Löngufit
18 í Garðabæ. Jakob
var sonur hjónanna
Sigurlaugar Jak-
obsdóttur frá Hrauns-
holti, f. 14. október 1898, d. 18. ágúst
1992 og Valdimars Péturssonar, f. á
Setbergi í Garðasókn 15. júlí 1902, d.
30. mars 1995. Bræður Jakobs voru
Guðmundur Helgi, f. 1926, d. 1951,
Pétur, f. 17. september 1928, d.
1985, og Ástráður, f. 1935, d. 2007.
Jakob var tvíkvæntur, fyrri kona
hans heitir Halldóra Gísladóttir, f.
1927, þau skildu.
Seinni kona var Fjóla Sigurjóns-
dóttir frá Steinavöllum í Flókadal í
ágúst 2001. Stjúpbörn Jakobs eru
Þráinn Hleinar Kristjánsson, f. 23.
febrúar 1943 og Almveig Lára Berg-
rós Kristjánsdóttir, f. 27. október
1945, gift Grétari Geirssyni, börn
þeirra eru; Anna, Brynja, Elín og Er-
lingur.
Jakob ólst upp með bræðrum sín-
um við sveitastörf í Hraunsholti hjá
foreldrum sínum. En snemma kom í
ljós áhugi hans og vit á öllum vélum,
hvaða nafni sem þau kunnu að nefn-
ast. Um tvítugt hóf hann nám í vél-
virkjun hjá Hamri og lauk meist-
araprófi í sömu iðn 10. okt. 1952.
Fyrstu árin eftir lok sveinsprófs vann
hann hjá Hamri, svo hjá Steypustöð-
inni og Straumsvík við uppsetningu á
ýmsum vélum. Einnig var hann oft
sendur út á land að setja upp túrb-
ínur eða færibönd í frystihúsum
o.þ.h. 1970 fór hann og nokkrir fé-
lagar hans til Malmö í nokkra mán-
uði þegar kreppa var hér á landi og
að síðustu var hann við störf hjá
Skipasmíðastöðinni Stálvík en þar
var hann lengst af sinni starfsævi,
eða þangað til hann þurfti að hætta
vegna heilsubrests 1984.
Útför Jakobs fer fram frá Garða-
kirkju í Garðabæ í dag, 29. sept-
ember, kl. 15.
Skag., f. 12. júní 1921,
d. 18. júlí 2003. Þeim
var tveggja barna auð-
ið, þau eru: a) Sig-
urlaug, f. 26. sept-
ember 1958, maður
hennar var Bragi Már
Bragason, f. 7. sept.
1961, þau skildu, börn
þeirra eru Katrín
Fjóla, f. 3. júlí 1996 og
Karl Jakob, f. 15. des-
ember 1997 og b)
Valdimar Guðmundur,
f. 2. október 1959, d.
27. júní 2006. Fóst-
urbörn Jakobs eru Björk Kristjáns-
dóttir, f. 29. nóvember 1953, hennar
maður var Henry Keith Beaumont,
þau skildu, sonur þeirra er Ágúst
Smári, f. 26. ágúst 1976 og Sigríður
Stefanía Kristjánsdóttir, f. 30. apríl
1956, gift Ásgeiri Þór Hjaltasyni, f. 9.
mars 1953, synir þeirra; Hjalti Hauk-
ur, f. 31. október 1973, d. 20. júní
2002, Ásgeir Þór, f. 10. nóvember
1977, d. 9. janúar 2006, og Birkir
Þór, f. 10. nóvember 1977, d. 12.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín dóttir,
Sigurlaug.
Afi var einn af þessum mönnum
sem geta gert allt í höndunum. Það
var skemmtilegt að tala við hann um
allt milli himins og jarðar. Og hann
var góður afi. Þegar ég var pínulítill
og var í heimsókn hjá afa í Hraun-
dalnum var ég að dást að rúbín-
hringnum sem hann átti og bar alltaf
á hendinni og sagði afa frá því hvað
mér fannst hann fallegur. Þá sagði
hann við mig: „Kalli minn, þú mátt
eiga hann eftir minn dag.“ Og ég
minnist þess alltaf þegar hann heim-
sótti okkur á Laufrima, alltaf á laug-
ardögum eldsnemma, og gaf okkur
systur minni kóngabrjóstsykur og
laumaði stundum pening í lófa.
Elsku afi, ég veit að þú ert þarna
uppi á himnum og ég vona að þér líði
betur.
Þinn dóttursonur,
Karl Jakob.
Jakob Valdimarsson
Fleiri minningargreinar um Jakob
Valdimarsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskulegi bróðir okkar,
STEFÁN STEINÞÓR ÓSKARSSON,
Skólavegi 46,
Holti,
Fáskrúðsfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
fimmtudaginn 24. september.
Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju föstu-
daginn 2. október.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag
Austurlands.
Arndís Óskarsdóttir,
Páll Óskarsson,
Jóna Björg Óskarsdóttir, Víglundur Gunnarsson,
Sonja Berg, Sverrir Sigurðsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
STEINÞÓR RUNÓLFSSON,
Laufskálum 7,
Hellu,
lést á dvalarheimilinu Lundi laugardaginn
26. september.
Guðrún Pálsdóttir,
Runólfur Smári Steinþórsson, Þórunn Björg Guðmundsdóttir,
Pálmi Sigurður Steinþórsson, Inga Jóna Óskarsdóttir,
Anna Steinþórsdóttir, Gunnlaugur V. Sigurðsson,
Berglind Jóna Steinþórsdóttir, Hermann B. Sigursteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HALLGRÍMUR ÓLAFSSON,
Dalbraut 29,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn
26. september.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
2. október kl. 14.00.
Guðný Sigurðardóttir,
Guðmundína Hallgrímsdóttir, Matthías Pálsson,
Ólafur Hallgrímsson, Sigþóra Gunnarsdóttir,
Hörður Hallgrímsson, Geirlaug Jóna Rafnsdóttir
og afabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GÍSLI M. GÍSLASON
skipstjóri og netagerðarmaður,
lést á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði
sunnudaginn 27. september.
Sigurveig Anna Stefánsdóttir,
Aðalsteinn Stefán Gíslason, Iouliia Vorontsova,
Gísli Gíslason, Anna Einarsdóttir,
Björn Valur Gíslason, Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir,
Kristín Jónína Gísladóttir, Steingrímur Bjarni Erlingsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuð eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
HERDÍS HERGEIRSDÓTTIR,
Móaflöt 49,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn
26. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Einar H. Ágústsson,
Davíð Einarsson, Ragnhildur Óskarsdóttir,
Hergeir Einarsson, Pálína Hallgrímsdóttir,
Hafsteinn Már Einarsson, Kristín Jóna Kristjánsdóttir,
Einar Örn Einarsson, María Erla Marelsdóttir,
Valur Freyr Einarsson, Ilmur María Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800