Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 23

Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Spádómar               ! "#$   %&' ()*) +++,-$ ,  Nudd Temple Massage Whole Body Healing Massage based on Tantric principles. For men, women and couples. Tel. 698 8301. www.tantra-temple.com Húsnæði í boði Stúdíó 60 fermetrar Vesturbergi 195. Jarð- hæð sérinngangur. Kettir og hundar velkomnir, langtímaleiga. Íbúðin er ekki samþykkt sem íbúðarhúsnæði þar af leiðandi fást ekki húsaleigu- bætur. Kr. 70000, tveir mánuðir fyrir- fram, kr 140.000. Útsýni yfir höfuðborgina. Sími 861 4142 frá 10 til 17 en ekki á öðrum tímum. Atvinnuhúsnæði Bæjarlind 14-16 Til leigu verslunar- eða skrifstofu- húsnæði í Bæjarlind 14-16 á jarðhæð (neðstu) – norðurendi, 2-400 m². Innkeyrsludyr, næg bílastæði og góð aðkoma. Hagstæð leiga. Upplýsingar í síma 895 5053. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Velúrgallar Velúrgallar - ný sending Bómullar- og velúrgallar fyrir konur á öllum aldri. Margir litir. Stærðir S - XXXL Verið velkomin Sími 568 5170 Vandaðar og þægilegar herra- mokkasíur úr leðri og með skinnfóðri Litur: Svart. Stærðir: 41-46. Verð: 14.700.- Sportlegir og vandaðir herraskór úr mjúku leðri og með skinnfóðri Litur: Brúnt. Stærðir: 41-46. Verð: 17.550.- Vandaðir herraskór úr mjúku leðri og með skinnfóðri. Henta vel breiðum fæti og hárri rist. Litir: Svart og brúnt. Stærðir: 40-45. Verð: 14.700.- Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18, lau. 10 -14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Nýkomið – Bolir Einlitir, röndóttir. Litir: Svart, hvítt, lilla, app- elsínugult, fjólubátt, blátt. St. S – XXL. Sími 588 8050. Teg. 7273 - létt fylltur og mjög flottur í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-, Teg. 6579 - mjúkur og æðislegur í CDE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Eigum nýjar hvítar 80 x 200 innihurðir með karmi og gerektum á aðeins 24.000 með vsk. Húsgagnasprautun Gjótuhrauni 6, Hafnarfirði, sími 555-3759. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 KRINGLUBÓN ekið inn stóri- litli turn. Opið mán.-fös. 8-18, lau. 10-18. S. 534 2455 GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj. Firðinum (undir verslunarm.) Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái og leðurhreinsun Viðgerðir Bilhusid.is - bilhusid@bilhusid.is Varahlutir www.netpartar.is PARTASALA ...NOTAÐIR VARAHLUTIR Í NÝLEGA BÍLA 486 4499 486 4477 Handslípaðar kristalsljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið úrval. Frábær gæði og gott verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Námskeið Microsoft kerfisstjóranám Bættu Microsoft í ferilskrána. MCITP Server Administrator 2008 með Win- dows 7 hefst 2. nóv. Hagstætt verð. Rafiðnaðarskólinn, www.raf.is, sími 863 2186. Til sölu Nýir og notaðir vetrarhjól- barðar. Gott verð Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Smáauglýsingar augl@mbl.is Farðu inn á mbl.is/smaaugl ✝ Magnús ÞórarinnSigurjónsson fæddist í Kópavogi 31. ágúst, 1918. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. sept- ember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sigurjóns Ólafssonar, starfs- manns hjá Mjólk- urfélagi Reykjavíkur, f. 1889, d. 1946 og Önnu Pétursdóttur, f. 1890, d. 1958. Magnús átti systur, Kristínu, sem dó í æsku. Magnús kvæntist aldrei en eign- aðist fimm börn. 1) Ólafur, rafveitu- stjóri og skákmeistari, f. 1938, kvæntur Jónu Guðjónsdóttur. Þeirra sonur er Geir, í sambúð með Helgu Úlfsdóttur, þau eiga eina dóttur. 2) Jónína, f. 1940. Hún á sex börn. Með Geir Sigurðssyni á hún: Sigurð, kvæntan Jóhönnu Waage, þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn; Við- ar, kvæntan Jóhönnu Sævarsdóttur, þau eiga fjögur börn og tvö barna- börn; Hannes, kvæntan Ernu Arn- órsdóttur, þau eiga tvö börn. Með Jóhannesi Þórðarsyni á hún: Anton; lengi sjómaður, en á sjötta áratugn- um hóf hann störf á Keflavíkurvelli og starfaði þar um árabil, síðast sem verktaki. Seinna var hann fisksali í Vesturbæ og afgreiðslumaður í Málningu og járnvörum við Lauga- veg. Í Gistiskýlinu við Þingholts- stræti starfaði hann sem umsjón- armaður frá árinu 1969 uns hann lét af störfum fyrir aldurssakir árið 1985. Magnús var áberandi maður í bæjarlífinu og pólitíkinni. Hann var dyggur sjálfstæðismaður og um langt skeið virkur í starfi flokksins, stýrði meðal annars einu af hverfafé- lögunum og skrifaði fjölda blaða- greina. Árið 1973 gekkst hann ásamt nánum vini sínum, Hreggviði Jóns- syni, fyrir undirskriftasöfnun meðal áhrifamanna í sjávarútvegi til stuðn- ings kröfunni um yfirráðarétt yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu. Leiddi sú undirskriftasöfnun til pólitískra átaka og varð Magnús þá um tíma mjög áberandi í þjóðmálaumræð- unni. Margir munu minnast Magn- úsar vegna vináttu hans við Albert Guðmundsson, en þeir voru í hópi manna sem um árabil komu saman við hringborðið á Hótel Borg og ræddu landsmálin. Margir þeirra eru nú látnir og hópurinn hefur fyrir löngu fært sig á annað kaffihús í grenndinni, en þangað kom Magnús þó enn dag hvern til að hitta félag- ana þótt kominn væri á tíræðisaldur. Magnús verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, 29. september, og hefst athöfnin klukkan 15. Guðríði, gifta Jaap De- Wagt, þau eiga tvö börn; Guðjón, kvæntan Guðrúnu Péturs- dóttur, þau eiga fimm börn. 3) Gylfi Þór flug- maður, f. 1946. Hann á tvo syni með Krist- björgu Ástu Ingvars- dóttur: Ingvar Þór, í sambúð með Söru Huld Örlygsdóttur, þau eiga eina dóttur; Magnús Þór, í sambúð með Kristrúnu Ýr Óskarsdóttur. 4) Anna Sigurlaug kennari, f. 1948, gift Frí- manni Inga Helgasyni og eiga þau tvö börn: Helga, í sambúð með Svövu Gísladóttur og Örnu, í sambúð með Guðjóni Snæland Péturssyni. 5) Sig- urjón rithöfundur, f. 1955, kvæntur Helgu Tryggvadóttur, þeirra börn eru Kristín og Magnús Jökull. Magnús naut stuttrar skólagöngu en fróðleiksþorsti hans og vilji til mennta var mikill og sérstaklega hugleikin var honum saga þjóð- arinnar, ekki síst fyrstu aldir Ís- landsbyggðar, og þær bókmenntir sem þá urðu hér til. Framan af ævi gegndi hann ýmsum störfum, var Leiðir okkar Magnúsar lágu saman fyrir rúmum aldarfjórðungi þegar ég hóf sambúð með Sigurjóni, syni hans. Tókst þá með okkur vinátta sem hélst alla tíð svo aldrei bar skugga á. Börn- unum reyndist hann frammúrskar- andi afi, enda kunnu þau vel að meta leikgleðina og fjörið sem fylgdi hon- um. Enginn sem kynntist Magnúsi komst hjá því að hrífast af persónu- töfrum hans. Hann var gamansamur, greindur og skýr, með ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, og hrókur alls fagnaðar í fjölskylduboð- um. Ekki er hægt að minnast hans án þess að nefna áhuga hans á Íslend- ingasögunum og öðrum miðaldafræð- um. Hann gat rakið ættir fornkapp- anna og sagt frá afrekum þeirra af geysimikilli þekkingu. Iðulega mátti fjölskyldan búast við spurningum um það efni, og spunnust oft af því tilefni umræður á milli þeirra feðga sem fljótlega fóru að vekja forvitni hinna yngri svo uppeldisgildi þessa var ómetanlegt. Og hver veit nema nú hafi Magnús loksins fengið svar við spurningunni miklu, hver sé höfund- ur Njálu. Betri tengdaföður er vart hægt að hugsa sér. Lengi vel sá hann samviskusamlega um að ég eignaðist stellið Hearts and Flowers. Um hver jól bætti hann í safnið, og ekki lét hann þar við sitja því einhver glæsi- flík að vali tengdadótturinnar varð að fylgja með. En nú er langri ævi lokið og var það mikil gæfa fyrir okkur öll að hann skyldi halda fullri reisn og skýrleika allt til enda. Ég kveð tengdaföður minn með hlýju og þakklæti. Helga Tryggvadóttir. Kveðjustundin er runnin upp. Afi er dáinn og það er mikill missir því hann skipaði alla tíð stóran sess í lífi mínu. Nú streyma fram í hugann margar góðar minningar sem tengj- ast honum. Ég minnist þess úr æsku þegar við ferðuðumst saman um bæinn þveran og endilangan í strætisvögnum, gáf- um öndunum á Tjörninni brauð og röltum um Kolaportið. Hann var óspar á bíóferðirnar og voru það mikil forréttindi fyrir unga stelpu að hafa yfirleitt séð allar nýjustu kvikmynd- irnar. 17. júní fór hann lengi vel með mig niður í bæ og gætti þess þá að hafa áður kynnt sér skemmtidag- skrána vel svo að dagurinn yrði bæði viðburðaríkur og eftirminnilegur. Afi var einstaklega rausnarlegur og ég man vel eftir spennunni sem fylgdi því þegar hann kom heim úr sólarlandaferðum sínum og dró upp úr töskunni gjafir handa okkur í fjöl- skyldunni. Alltaf virtist hann vita hvað hver og einn vildi helst. Hann var líka góður sögumaður og oft spunnust umræður á heimilinu um eitt helsta áhugamál hans sem voru fornbókmenntirnar. Alltaf var stutt í glens og grín hjá honum, og það breyttist ekkert þótt árin færðust yf- ir. Að mörgu leyti var ótrúlegt hvað hann hélt sér vel á gamals aldri. Þrátt fyrir að kveðjustund sem þessi sé aldrei auðveld er þó gott að geta kvatt afa eins og ég vil muna eftir honum. Ég er þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Kristín Sigurjónsdóttir. Það hefur ávallt yljað mér um hjartarætur að hitta eldheita Vals- menn sem bera sanna umhyggju fyrir félaginu og láta aldrei sitt eftir liggja þegar leitað er til þeirra. Þessir ein- staklingar styðja félagið sitt í gegnum súrt og sætt og er auðvelt á sjá Vals- glampann í augum þeirra. Magnús Þórarinn Sigurjónsson var einn traustasti Valsmaður sem ég þekkti. Hann var fastagestur á vellinum þeg- ar ég sleit takkaskónum á Hlíðar- enda, ómissandi þáttur á leikdegi ásamt fleiri fræknum köppum sem höfðu sterkar skoðanir og létu í sér heyra. Slíkir kappar heyra nánast sögunni til, kappar sem létu aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. Stuðningur þeirra var ómetanlegur, þægileg nærvera og hávær hróp. Það að hlaupa inn á völlinn og sjá styrkustu stoðir Vals á hliðarlínunni gaf okkur Valsmönnum ákveðið forskot, innan vallar sem utan. Magnús Sigurjónsson var ein af perlum miðbæjarins, hnarreistur, fjallmyndarlegur, snyrtilega klædd- ur, ákveðinn, brosmildur, viðræðu- snjall og síðast en ekki síst sannur Valsmaður. Við hittumst oft á göngu eða á kaffihúsum og hann var ávallt skemmtilega sprækur og unglegur og forvitinn um okkar ástkæra félag. Hann og vinir hans áttu sín sæti á Hótel Borg árum saman enda þurfti að útkljá margt yfir kaffibolla, ráða lífsgátuna eða kitla hláturtaugarnar. Með Magnúsi er genginn merki- legur maður, traustur Valsmaður. Fyrir hönd leikmanna meistaraflokks Vals í knattspyrnu á níunda áratug síðustu aldar votta ég fjölskyldu hans samúð. Þorgrímur Þráinsson. Magnús Þórarinn Sigurjónsson  Fleiri minningargreinar um Magnús Þórarin Sigurjóns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.