Morgunblaðið - 29.09.2009, Side 28

Morgunblaðið - 29.09.2009, Side 28
20 pör og nú hefur annað eins bæst við,“ sagði Gulli rétt eftir hádegi í gær. Þeir sem taka þátt þurfa ekki að koma fram undir nafni, svo því sé haldið til haga, og Kaninn er ekki að óska eftir kynlífslýsingum heldur lýsingum á andlegum áhrifum hinnar miklu kynlífsiðkunar. Pörin verði líklega þrjú sem fylgst verði með og þurfi að blogga eða gefa þáttarstjórnendum skýrslu reglulega. „Við frumflytjum bloggið hjá okkur og síðan fer það inn á blogg- síðuna okkar,“ útskýrir Gulli. Þau Lísa ætli að velja pör í vikunni og hefja tilraunina sem fyrst. En hvernig stendur á áhug- anum, hinum miklu viðbrögðum? „Fólk er bara orðið svo þreytt eftir alla útrásina,“ segir Gulli. Nú þurfi það að líta inn á við og læra að njóta. GULLI Helga og Lísa Einarsdóttir, stjórnendur morg- unþáttar útvarpsstöðvarinnar Kaninn, lýstu fyrir sex dögum eftir pari eða pörum sem væru reiðubúin til þess að stunda kynlíf daglega í mánuð hið minnsta, í þeim tilgangi að sjá hvort það hefði jákvæð áhrif á samskipti para. Hugmyndina fengu Gulli og Lísa frá dagblaðinu The Sun sem stóð fyrir sam- bærilegri tilraun og bað breskt par, Söru og Alex, um að blogga daglega um árangurinn. Í seinustu færslu sinni segja Alex og Sara að sjálfstraust þeirra hafi aukist til muna og þau bera tilrauninni vel söguna. „Nú ætlar Kaninn að láta á það reyna og sjá hvort það hafi sömu áhrif á ís- lensk pör í miðri kreppu,“ segir í auglýsingu Gulla og Lísu á vefsíðu Kanans. Gulli segir viðbrögðin við auglýsingunni mikil, fleiri tugir para hafi boðið sig fram í þessa merku rannsókn. „Í morgun voru komin rúmlega Gulli Helga Riðið á vaðið á Kananum? Munu stunda kynlíf daglega fyrir Kanann Peter und Vlad er spennandi ævintýra- leikur fyrir alla fjölskylduna. Í honum segir af Sedov-bræðrum, Pétri og Valda, og baráttu þeirra við stjórn- lausa veðurvél á litlu setri í Þýska- landi. Valdi er uppfinningamaður sem sumir telja brjálaðan en aðrir uppátækjasaman. Nýjasta sköp- unarverk hans er framúrstefnuleg veðurvél sem getur gengið fyrir ull af kindum. Einn galli er á gjöf Njarðar, Valdi gleymdi að gera rofa til að slökkva á vél- inni. Af þeim sökum fer allt úr böndunum þegar vélin er sett í gang og leikmenn verða að hjálpa Pétri að koma sauðfénu í fjárhúsið áður en veðurvélin notar orkuna úr ullinni til þess að valda umhverfisslysi. Þannig er leiknum lýst í stuttu máli. Veðurvél og sauðfé Nánar upplýsingar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Spennandi ferð í samvinnu Express ferða og Borgar- leikhússins. Verð á mann í tvíbýli: 79.800kr. 5.000 kr. afsláttur fyrir kortagesti Borgarferð 6.–9. nóvember 2009 Leikhúsferð til Berlínar Fararstjóri: Magnús Geir Þórðarson F í t o n / S Í A F I 0 3 0 7 2 7 28 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009  Sá er þetta ritar segir það og skrifar, ósungnar hetjur hins ís- lenska nýbylgjurokks eru og verða naglbítarnir 200.000 sem komu eins og hvítur stormsveipur inn í ís- lenskt tónlistarlíf fyrir rúmum ára- tug eða svo. Hljómsveitin treður ekki oft upp og því er það sönn ánægja að greina frá því að hún verður með tónleika á Sódómu Reykjavík nú á laugardaginn. Slög- urum verður svipt upp auk þess sem nýtt lag verður frumflutt. Sjaldgæf heimsókn frá 200.000 naglbítum Fólk  Fríblaðið Limbó nýtur svo sann- arlega þeirrar athygli sem skríbent sá er hér ritar veitti því á dögunum, einkum fyrir allsérstaka grein um uppruna orðsins „pussy“ og illskilj- anlega stefnuyfirlýsingu sem komið hefur í ljós að var fengin að láni og því í raun ekki manifestó ritstjórn- ar Limbó. Ekki datt þeim skelegga skríbent er hér ritar í hug að at- huga hvort manifestóið væri frum- samið og fær fyrir vikið ákúrur þess efnis frá Limbó. „Stefnu- yfirlýsing Dziga Vertov um mynd- fléttuhreyfingu sovétmanna á þriðja áratugnum,“ segir í nýjasta leiðara Limbó. Þá segjast Limbó-menn hafa ákveðið að birta „aðra endurunna útgáfu af fyrirfram skrifaðri stefnuyfirlýsingu“ og botna leiðara sinn þannig: „Vofa gengur nú ljós- um logum um Ísland – vofa Limbó … Eða eigum við kannski bara að sleppa þessu?“ Nú er spurn- ingin þessi: Eru þessi örfáu orð hin nýja, endurunna útgáfa eða gleymdist að setja hana í blaðið? Reyndar er manifestó nefnt í efnis- yfirliti, með yfirskriftinni „Heldur hrokinn áfram?“ og sagt vera á bls. 4. En á bls. 4 er leiðarinn „Við erum Limbó og við stelum og stælum.“ Er þetta einhver einkahúmor Limbó- manna? Svo maður noti nú þann frasa sem Sue Ellen var hvað tam- astur: I’m so confused. Metnaðarfullir Limbó- menn njóta athyglinnar Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is NOKKURRA mánaða gamalt fyr- irtæki, tölvuleikjaframleiðandinn Dexoris, hannaði í sumar tölvuleik- inn Peter und Vlad og kom á mark- að fyrir Apple-græjurnar iPhone og iPod Touch. Leikurinn er nú til sölu í vefverslun Apple, Apple App Store. Einn af stofnendum og starfsmönnum fyrirtækisins, 22 ára gamall stærðfræðingur að nafni Jó- hann Þ. Bergþórsson, segir þann möguleika að geta sent inn slíka leiki til Apple til sölu á vefverslun fyrirtækisins, veita skapandi Íslend- ingum gríðarleg tækifæri. „Ég var að vinna hjá Landsbank- anum síðasta haust, í hlutastarfi með námi. Þegar bankinn féll var ég látinn fara. Í vor þegar ég útskrif- aðist úr stærðfræðinámi fór ég að hugsa hvað ég gæti gert skemmti- legt og ákvað að hóa í nokkra félaga mína og stofna tölvuleikjafyrirtæki. Og það er fyrirtækið Dexoris og þetta er fyrsti leikurinn sem var að koma út á föstudaginn,“ segir Jó- hann. Fyrirtækið stofnuðu þeir í júní. Unnu eins og brjálæðingar Þetta hefur gengið hratt fyrir sig? „Já, þetta er þessi Apple App Store, hún gerir manni kleift að vinna þetta svona hratt og örugg- lega. Síðan höfum við líka unnið eins og brjálæðingar. Leikirnir sem eru seldir í þessari búð eru smáir í snið- um, þetta eru afþreyingarleikir sem þú grípur í fimm til tíu mínútur í senn. Þannig að þetta þróunarferli er ekkert eins og hjá þessum stóru leikjum. Þetta er góður stökkpallur inn í tölvuleikjaheiminn, þessi leikur eins og við gerðum er eins og þver- skurður af stórum leik, hann inni- heldur allt sem stórir leikir inni- halda en allt er minna í sniðum.“ Starfsmenn Dexoris eru fimm, þó aðeins tveir í fullu starfi. Hinir þrír vinna um kvöld og helgar, uppteknir fjölskyldumenn. Menn eru með ýmsa menntun að baki: stærðfræði, grafíska hönnun, tölvunarfræði, kerfisfræði, sálfræði og MBA-nám. Fá 70% af sölutekjum Er ekkert mál að selja Apple svona leik? „Nei, það er nefnilega galdurinn við þetta. Þegar þeir hjá Apple gáfu út iPhone opnuðu þeir þessa App Store og opnuðu fyrir þriðja aðila. Þú borgar inngöngugjald og þá get- ur hver sem er sent til þeirra leik sem þeir fara yfir og síðan fer hann bara beint í búðina. Þeir taka 30% af sölu hvers leiks,“ segir Jóhann. Peter und Vlad kosti þrjá dollara í versl- uninni og því ólíklegt að Dexoris- menn verði milljónamæringar á næstunni. Enda stefnan tekin á að byggja upp vörumerkið Dexoris. Jó- hann segir samkeppnina gríðarlega í leikjaheiminum og því verði menn að vanda til verka. „Góður stökkpallur inn í tölvuleikjaheiminn“  Íslenskir leikjahönnuðir hafa komið á markað leik fyrir iPod- og iPod Touch, Peter und Vlad  Vefverslun Apple veitir skapandi Íslendingum mikil tækifæri Morgunblaðið/Kristinn Dexoris Pétur og Jóhann unnu eins og brjálæðingar að því að hanna leikinn sem er nú kominn á markað. Nánar má kynna sér leikinn á peter-und-vlad.com.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.