Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 30

Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. Yfir 50.000 manns í aðsókn! AÐEINS 3 DAGA R EFTIR ! SÝND Í SMÁRABÍÓI Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Jennifer‘s Body kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Bionicle (ísl. tal) kl. 6 LEYFÐ The Ugly Truth kl. 8 B.i. 14 ára The Final Destination kl. 10 B.i. 16 ára STÚLKA N SEM L ÉK SÉR AÐ ELD INUM FRUMSÝ ND 2. O KTÓBER FORSAL A Í FULL UM GAN GI Á MI DI.IS HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL HHHH „Gargandi snilld allt saman bara.“ Þ.Þ – DV Íslens kt tal SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Blóðugur spennutryllir frá handritshöfundi Juno Hin sjóðheita Megan Fox leikur kynþokkafulla og vinsæla menntaskólastelpu sem vill aðeins óþekka stráka! Með Amanda Seyfried (úr Mamma Mia). SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Ekki fyrir viðkvæma „Afskaplega undarleg, gríðarlega óvenjuleg og skringilega fullkomin!“ - Damon Wise, Empire „Frammistaða Dafoe og Gainsbourg er óttalaus og flokkast sem hetjudáð.... Ég get ekki hætt að hugsa um þessa mynd. Þetta er alvöru kvikmynd og hún yfirgefur huga minn ekki. Von Trier hefur náð til mín og komið mér úr jafnvægi.“ - Roger Ebert Uppáhalds BIONICLE®-hetjurnar vakna til lífsins í þessari nýju og spennandi mynd 650kr. NORDISK PANORAMA 25–30 SEPTEMBER Í REGNBOGANUM DAGSKRÁ ER AÐ FINNA Á: NORDISKPANORAMA.COM HHHH „Verður vafalaust titluð meistarverk...“ – H.S., Mbl 600 k r. 600 k r. 600 k r. 600 k r. 600 kr . ATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS OG 3-D MYNDIR Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói e Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 á. Antichrist kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.18 á. Sólskinsdrengurinn kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Fyndið fólk er nýjasta myndhins athyglisverða spaug-ara, Judds Apatow, aðvenju er hann jafnframt höfundur handritsins. Þó að það liggi engin býsn eftir hann þá sanna verk- in að maðurinn er óumdeilanlega vel yfir meðaljóninn hafinn, Fyndið fólk skyggnist um í þröngum heimi uppi- standarans, þeir lifa á því að vera sniðugir og koma áhorfendum í gott skap. Apatow setur söguhetjuna sína hins vegar í ófyndna aðstöðu; George Simmons (Sandler), er víðfrægur skemmtikraftur sem fær að vita að hann á skammt eftir ólifað. Það hjálp- ar ekki grínaranum að hann á í fá hús að venda þegar á bjátar. Löngu frá- skilinn og þunnskipaður „vinahópur“ byggist á því hvernig honum vegnar. Hann gerir sér fulla grein fyrir því og af þeim sökum sækir hann sífellt meira í félagsskap Ira Wright (Rog- en), ungs manns sem er að byrja að koma undir sig fótunum í uppistandi og lítur á Simmons sem fyrirmynd. Simmons hefur séð neista í Wright og fær hann til að semja fyr- ir sig brandara. Smám saman verður Wright stoð hans og stytta í lífinu, ekki síst baráttunni við óttann sem ásækir á skemmtikraftinn í síaukn- um mæli, enda hefur læknirinn hans (Torsten Voges), verið vondaufur um að tilraunalyfið sem hann gefur honum, virki. Fyndið fólk nýtur góðs af vel kunnu skopskyni Apatows, sem sjálf- ur lagði út í skemmtanaheiminn sem uppistandari. Hann þekkir þetta umhverfi eins og fingurna á sér, ekki síst þversögnina sem fylgir því: Að lifa á því að koma fólki í stuð en vera sjálfur afsetinn þeirri ánægju, ein- samall í flissi aðdáenda, falslofi já- manna og öfundsjúkra keppinauta. Vinátta Wrights styttir honum stundirnar en veitir ekki viðvarandi lífsfyllingu frekar en annað í alls- nægtaheimi Simmons, það kemur í ljós í óvæntum endakafla Fyndins fólks. Sandler fær tækifæri til að teygja sig út fyrir rammann sem hann skóp sér í fyrstu myndunum, Simmons er ekki einn þeirra léttgeggjuðu gal- gopa heldur persóna sem maður fær samúð með og nær að tengjast í hans mjög svo jarðtengdu raunum. Rogen hefur vakið athygli sem slyngur gamanleikari sem sýnir á sér nýja hlið í Fyndnu fólki, þeir fé- lagar eru mun dýpri og alvarlegri en maður á að venjast eða átti von á og bæta myndina með þessari óvæntu breidd. Aukahlutverkin eru vel skrifuð og túlkuð, ekki síst lækn- irinn í höndum Voges og fyrrverandi eiginkona Simmons, sem er hlý og notaleg í skilningsríkum náðarfaðmi Leslie Mann. Þó að efnið sé grafalvarlegt lokar Apatow Fyndnu fólki á gamansaman og viðunandi hátt. Hann er nú einu sinni í hópi fyndnustu leikstjóra og handritshöfunda dagsins, en gægist jafnframt dýpra undir yfirborðið í leiðinni og hefur sjaldan tekist það betur en nú. Sambíóin, Laugarásbíó Funny People bbbbn Leikstjóri: Judd Apatow. Aðalleikarar: Adam Sandler, Seth Rogen, Leslie Mann, Eric Bana, Jonah Hill, Jason Schwartzm- an. 145 mín. Bandaríkin. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Funny People „Þó að efnið sé grafalvarlegt þá lokar Apatow Fyndnu fólki á gamansaman og viðunandi hátt.“ Glens er ekkert grín Í TILEFNI þess að rokksveitin Alice in Chains gefur út breiðskífu eftir langþráða bið verður blásið til Alice in Chains-heiðurstónleika á fimmtudaginn á Sódómu, Reykja- vík. Slíkir tónleikar voru haldnir í fyrra og var þá húsfyllir og vel það. Í þessari viku kemur út platan Black Gives Way To Blue, fyrsta plata sveitarinnar í fjórtán ár. Á sínum tíma var forsöngvari sveit- arinnar Layne nokkur Staley, en hann lést árið 2002 eftir fíkniefna- misferli. Saga hans var mikil sorg- arsaga og nýtur Staley svokall- aðrar költstöðu í rokkheimum í dag. Um flutning sjá Jens Ólafsson söngvari (Brain Police) Kristófer Jensson söngvari (Lights on the Highway), Franz Gunnarsson gít- arleikari (Dr. Spock), Bjarni Þór Jensson gítarleikari (Cliff Clavin), Þórhallur Stefánsson trommuleik- ari (Lights on the Highway) og Jón Svanur Sveinsson bassaleikari (Númer Núll). Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og er aðgangseyrir 1000 kr. Alice in Chains-heið- urstónleikar Sorgarsaga Layne heitinn Staley, söngvari Alice in Chains. Framleiðandinn, handritshöfundurinn, skemmtikrafturinn og leik- stjórinn Judd Apatow er aðeins rétt liðlega fertugur, en hefur komið ótrúlega víða við á framabrautinni og það með glæsilegum árangri. Gamanmál áttu jafnan hug hans allan og hóf Apatow að skemmta með uppistandi innan við tvítugt, síðan lá leið hans í UCLA, þar sem hann lagði stund á handritaskrif. Hann gerðist sjónvarpsþáttaframleiðandi um sinn (gerði m.a. hina margverðlaunuðu The Ben Stiller Show og Freaks and Geeks. Síðan tók við kvikmyndaframleiðsla mynda á borð við The Cable Guy (’96), með Jim Carrey og Leslie Mann (sem varð eiginkona hans og aðalleikkonan í Funny People). Anchorman: The Legend og Ron Burgundy (’04), sló hressilega í gegn og nú ákvað Apatow að taka alla stjórntauma í sína hendur: framleiðslu, handrit og leikstjórn, og úr varð The 40-Year-Old Virgins (’05), risasmellur hjá áhorfendum og gagnrýnendum. Sömu sögu er að segja af næstu mynd hans, Knocked Up (’06), og þá er aðeins fátt eitt talið. Afkastamaðurinn Apatow

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.