Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 32

Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 „MISKU NARLA US SKEMM TUN“ SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG AKUREYRI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN ALLRA BESTA DISNEY- PIXAR MYND TIL ÞESSA Í REYKJAVÍK ÓTRÚLEG UPPLIFUN Í 3D SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK FRÁ LEIKSTJÓRA 40 YEAR OLD VIRGIN OG KNOCKED UP. STÓRKOSTLEG GRÍNMYND MEÐ ÞEIM ADAM SANDLER, SETH ROGEN OG ERIC BANA. A REACH FOR EXCELLENCE THAT TAKES BIG RISKS.“ 100/100 – SAN FRANCISCO CHRONICLE „IT’S THE WORK OF A MAJOR TALENT.“ 88/100 - ROLLING STONES. „CAREFULLY WRITTEN DIALOGUE AND CAREFULLY PLACED SUPPORTING PERFORMANCES -- AND IT’S ABOUT SOMETHING.“ 88/100 – CHICAGO SUN-TIMESSÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI / KRINGLUNNI ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 6D - 8:10D L DIGITAL HAUNTING IN CONNECTICUT kl. 8 - 10:10 16 DISTRICT 9 kl. 8:10 - 10:30 16 FINAL DESTINATION kl. 10:103D 16 DIGITAL 3D UPP (UP) m. ísl. tali kl. 6 L UP m. ensku tali kl. 63D L DIGITAL 3D / ÁLFABAKKA ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 6D - 8D L DIGITAL BANDSLAM kl. 5:45 - 8 L FUNNY PEOPLE kl. 5 - 8 - 10 12 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L DISTRICT 9 kl. 8 - 10:20 16 DRAG ME TO HELL kl. 10:50 16 DISTRICT 9 kl. 5:50 - 8 - 10:20 LÚXUS VIP THE PROPOSAL kl. 10:50 L REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 10:20 16 HARRY POTTER kl. 5 - 8 10 ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... FUNNYPEOPLE UPP(UP) m. ísl. tali DISTRICT9 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR FJÖLDI fólks safnaðist saman í Stokkhólmi í gær þar sem 339 munir úr eigu kvikmyndaleik- stjórans Ingmars Bergmans voru boðnir upp. Margir munanna seldust á rúmlega tíföldu viðmið- unarverði. Munirnir voru allir af heimili Bergmans á eyjunni Fårö í Eystrasalti en hann mælti svo fyrir í erfðaskrá sinni að mun- irnir yrðu boðnir upp til að koma í veg fyrir deilur erfingja um eignir hans. Bergman eignaðist 9 börn með sex konum. „Ég er undrandi á því hvað munirnir seljast á,“ sagði Tom Österman, uppboðshaldari, við AFP þegar hlé var gert á upp- boðinu síðdegis. „Nú sjáum við hve Bergman var í raun mikils metinn.“ Módel af sviðsmynd, sem metið var á 15 þúsund sænskar krónur, seldist á 1.025.000 krónur, jafn- virði rúmlega 18 milljóna ís- lenskra króna. Mynd af Bergman með rússneska tónskáldinu Ígor Stravinskí, sem metin var á 2000 sænskar krónur, seldist á 27 þús- und krónur. Auglýsingaspjald fyrir myndina Fanny och Alex- ander, sem var metið á 4 þúsund krónur seldist á 22 þúsund sænskar krónur. Þá seldist mynd eftir norska málarann Edvard Munch af sænska skáldinu Aug- ust Strindberg á 540 þúsund sænskar krónur. Boðið var í hlutina gegnum síma, tölvupóst og netið og einnig gátu viðstaddir boðið á uppboð- inu. Bergman lést 30. júlí 2007, 89 ára að aldri. Hann leikstýrði yfir 40 kvikmyndum á rúmlega hálfr- ar aldar ferli sínum. Breska uppboðshúsið Christie’s mun bjóða upp hús Bergmans á Fårö. Eftirsóttur Ingmar Bergman. Gríðarlegur áhugi á munum Bergmans Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is STÓRSÖNGVARINN ástkæri Ragnar Bjarna- son hélt tvenna tónleika á laugardaginn var í Laugardalshöllinni. Tilefnið var 75 ára afmæli kappans og glöddust bæði áhorfendur og fjöldi hljómlistarmanna með Ragnari. Óhætt er að segja að söngvarinn sé fyrir löngu orðinn nokkurs kon- ar þjóðareign og heillandi fas hans og smitandi lífsgleði hittir landsmenn í hjartastað, hvort held- ur þeir eru fimm ára eða 95. Mugison tók ekki Nirvana „Ég er ennþá í 30.000 feta hæð!“ segir Ragnar og hlær sínum innilega hlátri þegar hann spurður um líðanina eftir tónleikana. „Hann Ómar verður bara að koma upp og sækja mig á Frúnni!“ Og nú tekur söngvarinn bakföll af hlátri. Ragnar er auðheyranlega afar sáttur við hvern- ig til tókst enda ekkert til sparað að gera tón- leikana sem veglegasta og þannig var stöðugur straumur af gestum upp á svið sem tók með hon- um lagið, allt frá Bó og Megasi til Mugisons, Þórð- ar húsvarðar og Óla Gauks. „Það er varla hægt að lýsa þessu,“ segir Raggi. „Þetta var alveg æðisgengið og ég var með tárin í augunum þetta kvöldið – margsinnis.“ Raggi tiltekur að þegar hann hafi sungið lagið „Minningar“ hafi kökkurinn í hálsinum orðið hvað stærstur. „Svo komu þeir Mugison og Megas og voru al- gerlega óborganlegir. Ég hafði ætlað að syngja þetta „Smells like Teen Spirit“ þarna með Mug- ison en þá hafði hann, upp á sitt eindæmi, valið sér lag sjálfur; „Vertu sæl mín kæra“, sem ég söng ’65. Hann söng þetta einn með gítar og trompet- leikara. Við föðmuðumst eins og lávarðar í end- ann. Hann er góður drengur, hann Mugison. Al- veg yndislegur hreint. Megas og Raggarokkið Nú svo var komið að honum Megasi,“ segir Raggi hlæjandi og er kominn á skrið. „Hann spilaði svokallað „Raggarokk“ þar sem hann tíndi til hin og þessi textabrot úr lögum sem ég hef gert fræg. Hann vildi að ég fraseraði með honum og við höfðum æft okkur dálítið en maður lærir ekki að frasera með Megasi á einum degi! (hlær hátt). En svo kláruðum við þetta með glans að sjálfsögðu.“ Raggi segir að það hafi nefnilega síst skort á galsann þetta kvöldið, alls kyns „djók“ og gleymska hafi flotið með og stemningin hafi verið innileg og heimilisleg. „Elskan mín …“ segir hann reffilega. „Sumar- gleðin kom þarna t.d. eins og hún lagði sig og við sungum þessi vitleysingalög eins og „Prinspóló“. Ragnar segir að þessum degi muni hann aldrei gleyma svo lengi sem hann lifi. „Ég söng 87 lög alls þennan dag! Tvennir tón- leikar, klukkan fjögur og níu, og svo generalprufa um morguninn. Ég var ekkert svo þreyttur í rödd- inni þó, aðallega í bakinu af því að ég var búinn að standa svo lengi. Svo voru skórnir að drepa mig og hún konan mín yndisleg sá til þess að ég skipti um þá þegar leið á síðari tónleikana. Gerði það á spani á milli númera!“ Morgunblaðið/Eggert Heimilislegt Niðjar Ragga létu sig ekki muna um það að syngja með honum lag eða tvö við góðar undirtektir áheyrenda. „Ennþá í 30.000 feta hæð!“  Raggi Bjarna er skýjum ofar eftir vel heppnaða afmælistónleika  Söng 87 lög á tvennum tónleikum á einum degi, 75 ára gamall maðurinn Afmælisfögnuður Ragga er svo varðaður með glæsilegri safnplötu, þremur geislaplötum sem spanna árin 1953-2009, alls 69 lög. Gnótt ljós- mynda fylgir, auk grein- argóðs yfirlits yfir ferilinn sem Þorgeir Ást- valdsson hefur tekið saman. Er það Sena/Íslenskir tónar sem gefur út. „Ég hafði svona aðeins puttana í þessu,“ segir Raggi hógvær. „Þetta voru um 300 lög sem þurfti að fara í gegnum.“ Raggi segir að m.a. séu þarna tvö lög sem séu nokkuð söguleg, það er fyrstu tvö lögin sem hann hljóðritaði. Þetta var árið 1953 og Ragnar ekki nema átján ára. Lagið „Ég býð þér koss, mín kæra“ söng hann með stór- söngvaranum Sigurði Ólafssyni en hitt, „Blómarós frá Barcelona“, söng hann einn síns liðs. „Þetta var að undirlagi pabba,“ rifjar Raggi upp. „Ég skalf og nötraði en það sem bjargaði mér var að skrifstofa FÍH, sem pabbi stofnaði ’32, var eldhúsið heima. Þannig að menn eins og Alfreð Clausen og Haukur Morthens voru tíðir gestir. Ég var því orðinn vanur því að um- gangast stórsöngvara,“ segir stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason og hlær. Yfir hálfrar aldar ferill

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.