Morgunblaðið - 29.09.2009, Side 33

Morgunblaðið - 29.09.2009, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 BÓNORÐIÐ THE PROPOSAL SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA FRÁ FRAMLEIÐANDANUM PETER JACKSON KEMUR EIN BESTA MYND ÞESSA ÁRS! HHHH “DISTRICT 9 ER EIN AF ÞES- SUM MYNDUM SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ.” “KEMST Á BLAÐ MEÐ ALLRA SKEMMTILEGUST VÍSINDASKÁLDSÖGUM Á HVÍTA TJALDINU FRÁ UPPHAFI.” BIO.BLOG.IS HHHHH „MADLY ORIGINAL, CHEEKILY POLITICAL, ALTOGETHER EXCITING DISTRICT 9.“ ENTERTAINMENT WEEKLY HHHH “IT’S A GENUINELY EXCITING AND SURPRISINGLY AFFECTING THRILLER.” EMPIRE HHHH „EIN AF BESTU MYNDUM SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÞESSU ÁRI.“ „ÞRÆLSKEMMTILEG... SVARTUR HÚMOR... OG STANSLAUS SPENNA.“ T.V - KVIKMYNDIR.IS HHHHH „A GENUINELY ORIGINAL SCIENCE FICTION FILM THAT GRABS YOU IMMEDIATELY, NOT LETTING GO UNTIL THE FINAL SHOT.“ THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHH SAN FRANCISCO CHRONICLE HHHHH „DISTRICT 9 IS A TERRIFIC ACTION THRILLER, IT’S A BLAST. . . .“ LOS ANGELES TIMES BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM ÓHUGNALEG MYND ÞAR SEM ÓÚTSKÝRÐIR HLUTIR ÁTTU SÉR STAÐ Í GÖMLU ÚTFARARHEIMILI SUMA HLUTI ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA ATH. ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA SÝND Í KRINGLUNNI, OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI HHHHH WASHINGTON POST eftir William Shakespeare All’s Well That Ends Well frumsýnt 1. október í 2009 SAMbíóin Kringlunni kl. 18.00 National Theatre, London. Frá sviði á hvíta tjaldið, HÁSKERPA OG 5.1 HLJÓÐ! BEIN BÍÓÚTSENDING kynntu þér málið á http://ntlive.sambio.is SÝND Í ÁLFABAKKA / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ... kl. 6 - 8 L HAUNTING IN CONNECTICUT kl. 8 - 10:10 16 G-FORCE m. ísl. tali kl. 6 L KARLAR SEM HATA KONUR kl. 10:10 Í síðasta sinn 16 ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ... kl. 6 - 8 L THE UGLY TRUTH kl. 10 14 UPP m. ísl. tali kl. 5:50 L BANDSLAM kl. 8 L INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10:10 16 kl. 6 - 8 L kl. 8 - 10 12 kl. 6 L kl. 10:40 16 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR 26.09.2009 27 30 31 32 37 5 0 2 8 2 2 6 6 6 4 14 23.09.2009 10 27 28 38 39 42 84 9 ÍSLENSKA barnamyndin Algjör Sveppi og leitin að Villa byrjar mjög vel sína fyrstu helgi í sýn- ingu. Myndin var langmest sótta myndin í íslenskum bíóhúsum um helgina og átti fjórðu stærstu opn- unina það sem af er árinu, á eftir Harry Potter, Karlar sem hata konur og Hangover. Augljóst að ungviðið hefur beðið spennt eftir að fá eitthvað íslenskt fyrir sig á hvíta tjaldið. Enda sagði Sæbjörn Valdimarsson gagnrýnandi um myndina í Morgunblaðinu síðasta sunnudag: „Það er mikil kúnst að halda athygli barnanna óskiptri í barnatímum (eins og raun ber vitni), hvað þá í langri bíómynd. Galdurinn er sá að Sveppi og fé- lagar bera fulla virðingu fyrir áhorfendunum sínum og vita greinilega hvað þeir vilja, það gerir gæfumuninn.“ Skemmtilegt fólk Í öðru sæti kemur myndin sem var efst í síðustu viku, rómantíska gamanmyndin The Ugly Truth. Funny People var frumsýnd fyr- ir helgi og nær að skila þriðju hæstu tekjunum í kassann í þetta skiptið. Myndin mun vera hin besta skemmtun og fær fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins á annarri síðu hér í blaðinu í dag. Næst á Bíólistanum koma þrjár myndir sem hafa verið tvær til tíu vikur í sýningu; District 9, Up og Karlar sem hata konur. Megaskvísan Megan Fox leikur svo aðalhlutverkið í myndinni í sjö- unda sæti, Jennifeŕs Body. Myndin var frumsýnd fyrir helgi. Í henni segir frá menntaskólastúlku sem verður fyrir því óláni að djöfullinn sjálfur tekur sér bólfestu í líkama hennar. Myndin er sögð frábær og gamansöm hrollvekjuspennumynd frá handritshöfundi Juno, Diablo Cody. Bíólistinn er þéttsetinn af nýjum myndum þessa vikuna. Í níunda og tíunda sæti eru tvær nýjar; The Haunting in Connecticut og Bion- icle: Goðsögnin snýr aftur, og mega þær vel við una. Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum Algjör Sveppi Það er mikill hasar að leita að Villa.        )+-)   .                      ! "# $" %&  '( )  *+ (&, # - & ./  (, # -&" 0 12 3( 4&5 6 &" &"( 4( 5( !# 7"  8&))" 4&)  9&( (: 2"           Flestir sáu Algjöran Sveppa Leiksýningin Harry og Heimirer frábær, í einu orði sagt.Það kom mér eiginlega á óvart, ef satt skal segja, að mér fyndist það. Ég bjóst ekki við miklu þegar ég lagði leið mína í Borg- arleikhúsið laugardaginn sl., hélt ég myndi kannski brosa út í annað, að ég væri vaxinn upp úr Harry og Heimis-húmor. Annað kom á dag- inn. Spaugstofuþríeykið Kalli, Örn og Siggi fer hreinlega á kostum á litla sviði Borgarleikhússins og slíkum hamförum að farsar virka nánast rólegir í samanburði við lætin í þeim. Hlutverkaskiptin eru gríð- arlega hröð allan tímann og ýmsar leikhúsbrellur nýttar, þá ekki síst hljóð ýmiss konar, lýsing og skugga- myndir. Þá er útvarpsleikritsform- inu fléttað listilega saman við hið hefðbundna sviðsetta leikrit. Leik- myndin er af einföldustu gerð með hurð til að skella, hurðarhúni til að hrista og tilheyrandi. Þannig eru áhorfendur minntir á það hver fyr- irmyndin er, útvarpsleikritin sem þeir félagar hlustuðu á dolfallnir í æsku. Töfraheimur sem er þeim hugleikinn. Eins og Örn sagði í samtali viðMorgunblaðið er sýningin tæknilega flókin og það eru orð að sönnu. Inn í sýninguna fléttast svo ný- liðnir atburðir, nýr ritstjóri Morg- unblaðsins kemur skemmtilega við sögu, að sjálfsögðu í túlkun Arnar. Davíð býður mönnum frábært áskriftartilboð. Siggi Sigurjóns á svo stórleik sem Heimir Scnhitzel, vitgrannur aðstoðarmaður Harrys Rögnvalds. Aulahúmorinn fer auð- vitað algjörlega yfir strikið líkt og í útvarpsleikritinu og það er spreng- hlægilegt. Eitt atriði stendur upp úr í minn- ingu undirritaðs. Siggi fer úr einu hlutverki í annað svo ört að áhorf- endur rétt ná að fylgjast með og þar koma við sögu skrímslið Rúrik, Heimir, Kristján Ólafsson og Ragn- ar Reykás. Siggi gerir sér lítið fyrir og drepur þá Kristján og Ragnar, til að fá einhvern frið. Spurningin hvort þeir rísa upp frá dauðum í Spaugstofunni í vetur? Þetta atriði má auðvitað líka skilja sem svo að Siggi sé orðinn hundleiður á þessum persónum, fastur í gríninu enda- laust. Í því sést vel hversu frábær gamanleikari Siggi er, að hinum tveimur ólöstuðum að sjálfsögðu. Örn bregður sér í allra kvikinda líki og reynir m.a.s. að fara í splitt!    Það merkilega er að í þær 90 mín-útur eða svo sem þessi hama- gangur gekk yfir þá rugluðust þeir félagar aldrei í ríminu. Fagmenn út í gegn, enda reynslan töluverð. Það er í raun merkilegt að Karl, sá sem minnsta reynslu hefur á sviði af þre- menningunum, skuli standa sig al- veg jafn vel og félagar hans. Þeir jafnaldrar mínir sem ég hef sagt frá þessari skemmtilegu sýn- ingu eiga dálítið erfitt með að trúa því. Þeir sjá bara fyrir sér ofnotaðar persónur í Spaugstofunni og aula- brandara sem oft missa marks. Kannski hlustuðu þeir aldrei á Harry og Heimi, útvarpsleikritin sem nutu gífurlegra vinsælda á sín- um tíma. Hér sýna Kalli, Örn og Siggi hvers þeir eru megnugir, meistarar orða- leikja og skrípaleiks. Aðdáendur Harrys og Heimis mega ekki láta þessa sýningu framhjá sér fara. Það væri glæpsamlegt. Meistarar skrípaleiksins » Þannig eru áhorf-endur minntir á það hver fyrirmyndin er, útvarpsleikritin sem þeir félagar hlustuðu á dolfallnir í æsku. Siggi, Örn og Kalli Standa sig frábærlega og eru stórfyndnir í Borgarleik- húsinu í leikritinu Harry og Heimir – með öðrum morðum. AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.