Morgunblaðið - 29.09.2009, Síða 35
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009
KONAN sem varð til þess að Bítlarnir sömdu
lagið Lucy In The Sky With Diamonds er látin,
46 ára. Hún hét Lucy O’Donnell. Þetta kemur
fram á vef breska dagblaðsins Independent.
Að sögn Julians Lennon, eldri sonar Bítilsins
Johns, voru þau Lucy saman á leikskóla þegar
hann teiknaði mynd af stúlkunni árið 1966 og
sýndi föður sínum. „Þetta er Lucy In The Sky
With Diamonds,“ kveðst Julian hafa sagt föður sínum þegar hann sýndi honum teikn-
inguna. Myndin varð John slíkur innblástur að lagið varð til, að sögn Julians.
Þetta lag þeirra Lennons og Pauls McCartney kom út á hinni byltingarkenndu
plötu Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band árið 1967 og vakti strax miklar deilur
vegna meintrar skírskotunar til ofskynjunarlyfsins LSD.
Fram kemur í frétt Independent að þessir fyrrverandi skólafélagar, Julian og
Lucy, hafi endurnýjað vináttu sínu nýlega sína eftir að sonur Bítilsins komst að því að
hún barðist við sjaldgæfan sjúkdóm sem herjaði á ónæmiskerfið.
„Lucy in The
Sky“ látin
Sýrðir Bítlarnir, 1967.
JOHNNY Depp bjargaði lífi Courtney
Love eitt sinn. Leikarinn þurfti að blása
lífi í söngkonuna þegar hún hné niður eft-
ir mikla fíkniefnaneyslu.
„Ég meina, ég var við það að deyja í
nokkur skipti. Johnny Depp lífgaði mig
við í eitt skipti. Það er það næsta dauð-
anum sem ég hef komist,“ sagði Love í
viðtali við Style tímaritið.
Love, sem er ekkja Kurt Cobain, sagði
líka að ókunnugir hefðu gefið henni pen-
inga þegar hún átti í fjárhagserfiðleikum
fyrr á þessu ári. Hún og 17 ára gömul
dóttir hennar og Cobain, Frances Bean,
búa á hóteli í New York á meðan verið er
að gera upp íbúð í borginni fyrir þær.
Depp blés
lífi í Love
Reuters
Courtney Love
Reuters
Johnny Depp
TÓNLISTARMAÐURINN Chris
Brown mun birtast aftur á sviði eft-
ir nokkurt hlé í næsta mánuði.
Brown hefur ekki komið fram á
tónleikum síðan hann beitti fyrr-
verandi unnustu sína, Rihanna, lík-
amlegu ofbeldi í febrúar. Hann ætl-
ar að koma fram á Power 105.1’s
Powerhouse ’09 tónleikunum ásamt
Keri Hilson, The-Dream, Trey
Songz, Mario, Day26 og Ginuwine
þann 27. október.
Innanbúðarmenn í tónlist-
arbransanum segja að Brown taki
skref niður á við með því að koma
fram á þessum tónleikum miðað við
hvernig viðburðum hann kom fram
á fyrir árásina. „Þetta er algjör C-
flokks hópur. Þetta er ekkert eins
og það tónlistarfólk sem hann kom
fram með fyrir ári síðan. Hann var
mjög stór og þetta eru tónleikar
sem hann hefði aldrei komið fram á
áður en hann kom sér í vandræði,“
sagði einn í bransanum.
Brown veit að hann þarf að
byggja feril sinn upp á ný. Tón-
leikahaldarar vita að þeir taka
miklu áhættu með því að bóka
hann. Ímynd hans er í molum en
þrátt fyrir að hann hafi játað að
hafa lagt hendur á unnustu sína
hafa ekki allir aðdáendur hans yf-
irgefið hann.
Brown játaði að hafa barið,
sparkað og hálfkæft Rihanna eftir
að þau sóttu partí fyrir Grammy
verðlaunin í febrúar. Hann var
dæmdur í fimm ára skilorðsbundið
fangelsi og sex mánaða samfélags-
vinnu í ágúst. Einnig var honum
bannað að hafa samband við eða
hitta Rihanna í fimm ár.
Reuters
Rihanna Á velgengni að fagna.
Reuters
Chris Brown Byggir upp ferilinn.
Byggir
upp feril-
inn að nýju