Morgunblaðið - 02.11.2009, Side 1
M Á N U D A G U R 2. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
296. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«HREKKJAVÖKUPARTÍ Á NASA
KÚREKAR, NUNNUR
OG BLEIKI PARDUSINN
«LISTASKÓLI BARNA
Undur og gersemar
í myndverkunum
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
Til stendur að segja forstöðu-
mönnum allra félagsmiðstöðva í
Hafnarfirði upp. Félagsmiðstöðv-
arnar eru sex talsins. Ólafur Stef-
ánsson, forstöðumaður Setursins,
er mjög óhress með hvernig að mál-
inu hefur verið staðið. Forstöðu-
mennirnir hafi heyrt af málinu
fyrst eftir að bæjarfulltrúi tjáði ein-
um þeirra óformlega hvað stæði til.
Mikil óvissa ríki, enda hafi þeim
ekki formlega verið kynnt hverjum
verði sagt upp né hvenær. „Það er
mjög erfitt að halda fullu þjón-
ustustigi þegar við vitum í fyrsta
lagi ekki hvort við verðum áfram
við störf og í öðru lagi hvar verður
skorið niður næst.“ »4
Forstöðumönnum
allra félagsmið-
stöðva sagt upp
Morgunblaðið/RAX
Skatttekjur
Borgarbyggðar
skerðast um 100
milljónir króna í
ár og um 50
milljónir á næsta
ári. Í róttækustu
niðurskurðar-
tillögum stjórn-
enda sveitarfé-
lagsins, sem
kynntar verða íbú-
um næstu daga, er gert ráð fyrir að
þremur af fimm grunnskólum sveit-
arfélagsins verði lokað og tíminn
sem leikskólar eru opnir verði
styttur.
Byrjað verður að kynna tillög-
urnar í kvöld. »9
Verður þremur
grunnskólum lokað?
Leikskólinn á
Hvanneyri
Trú íslenskra kennara á eigin
getu er með því besta sem gerist.
Mikill meirihluti kennara telur sig
hafa afgerandi áhrif á menntun
nemenda sinna, og að þeir geti náð
góðum árangri, jafnvel með erf-
iðustu nemendur. Gott andrúmsloft
í kennslustofunni, ásamt góðu sam-
starfi við nemendur og foreldra,
skipti og meira máli fyrir starfs-
ánægju kennara en einkunnir nem-
enda. Þetta eru niðurstöður Talis,
alþjóðlegrar samanburðarrann-
sóknar sem unnin var fyrir mennta-
málaráðuneytið í samvinnu við
OECD. »14
Gott samstarf talið
mikilvægara en einkunnir
Morgunblaðið/ÞÖK
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
FINNUR Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings,
segir í samtali við Morgunblaðið að engar afskriftir hafi
enn átt sér stað á skuldum 1998 ehf., eigenda smávöru-
verslanakeðjunnar Haga. Finnur játti því hvorki né neit-
aði að afskriftir myndu mögulega eiga sér stað hjá 1998, í
samtali við Morgunblaðið. Í verklagsreglum Nýja Kaup-
þings um úrlausnir á skuldavanda fyrirtækja segir, að
áframhaldandi þátttaka eigenda og stjórnenda byggist á
því að þeir njóti trausts og þyki mikilvægir fyrir framtíð
fyrirtækisins. Finnur segir að innan bankans sé í einu og
öllu farið eftir áðurnefndum verklagsreglum. Jafnframt
segir hann 1998 ekki njóta sérmeðferðar hjá Nýja Kaup-
þingi við úrlausn sinna skuldamála.
Skuld 1998 við Nýja Kaupþing nemur 48 milljörðum
króna, en skuldin stofnaðist þegar 1998 keypti Haga af
Baugi á síðasta ári. Hagar eru eina eign 1998, en Hagar
skulduðu 22 milljarða króna í lok ágúst 2008 sé miðað við
árshlutauppgjör frá þeim tíma. Högum var því vænt-
anlega ætlað að standa undir sínum eigin skuldum sem
og skuldum 1998, en þær nema á áttunda tug milljarða.
Stjórn bankans þögul sem gröfin
Erna Bjarnadóttir, stjórnarformaður Nýja Kaup-
þings, sagðist ekki vilja tjá sig um einstök mál innan
bankans. Hins vegar væri ávallt unnið að því að hámarka
virði bankans. Enginn þeirra stjórnarmanna Nýja Kaup-
þings sem í náðist við vinnslu fréttarinnar vildi tjá sig um
málefni 1998. Greint var frá því í fréttum í gær að Jón Ás-
geir Jóhannesson, ásamt öðrum fjárfestum, gæti eignast
60% í Högum með því að koma inn með 7 milljarða af
nýju hlutafé. Nýja Kaupþing myndi síðan eignast 40%
hlut á móti. Í áðurnefndum verklagsreglum bankans seg-
ir að skuldir fyrirtækja séu ekki felldar niður eða þeim
breytt í hlutafé nema önnur úrræði séu fullreynd eða
ekki talin líkleg til árangurs. Jafnframt er kveðið á um að
samkeppnissjónarmið og gagnsæi skuli höfð að leiðar-
ljósi í ákvörðunum er varða skuldaniðurfellingar.
Tugmilljarða afskriftir?
Morgunblaðið/Golli
Bankaleynd Hvorki bankastjóri Nýja Kaupþings né stjórn bankans tjáir sig um málefni eigenda Haga.
Forsvarsmenn Nýja Kaupþings játa hvorki né neita því
að tugir milljarða verði afskrifaðir hjá eigendum Haga
Engin sérmeðferð | 6
„ÉG myndi vilja
fá betri útskýr-
ingar á því
hvers vegna fyr-
irtækið er ekki
losað undan
stjórn þeirra
sem hafa keyrt
það í þrot,“ seg-
ir Lilja Mós-
esdóttir, þing-
maður VG og
formaður viðskiptanefndar, um
fréttir þess efnis að Jón Ásgeir
Jóhannesson og viðskiptafélagar
hans muni eignast 60% hlut í Hög-
um, gegn því að leggja fram 7
milljarða.
Ræða þarf skilyrði
fyrir afskriftum
Ljóst er að Kaupþing þarf að
afskrifa tugi milljarða, ef þetta
verður niðurstaðan. Lilja segir að
meiri umræða þurfi að fara fram
um það hvaða skilyrði eigi að
setja þegar skuldir sem þessar
eru afskrifaðar. „Þetta er málefni
sem betur þarf að ræða, bæði inn-
an ríkisstjórnarinnar og eins á Al-
þingi.“
Vill frekari
útskýringar á
viðskiptunum
Lilja
Mósesdóttir
Snorri Steinn Guðjónsson er
ánægður með lífið hjá Rhein-
Neckar Löwen í Þýskalandi. Hann
kveðst vera kominn í mikið æv-
intýri sem hann ætli sér að njóta.
Snorri er ánægður
hjá RN Löwen
Framkonur eru komnar í sextán
liða úrslitin í Áskorendabikarnum í
handknattleik eftir tvo sigra í
Tyrklandi um helgina. Þær ætla sér
lengra í keppninni.
Framkonur unnu
tvisvar í Tyrklandi
Njarðvíkingar sigruðu Íslands-
meistara KR og Stjarnan lagði ÍR
að velli á Íslandsmóti karla í körfu-
bolta. Njarðvík og Stjarnan eru á
toppnum með fullt hús stiga.
ÍÞRÓTTIR
Njarðvík og
Stjarnan eru efst