Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 24. nóvember í 25 nætur
á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábært
stökktu tilboð þar sem þú bókar flugsæti
og gistingu og fjórum dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir (stökktu tilboð
með „öllu inniföldu“ jafnframt í boði).
Einnig bjóðum við frábært sértilboð á Club
Green Oasis smáhýsunum með öllu inni-
földu á hreint ótrúlegum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð frá kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi /
stúdíó / íbúð í 25 nætur. Stökktu
tilboð 24. nóvember. Aukalega m.v.
stökktu tilboð með „öllu inniföldu“
kr. 50.000. Aukalega m.v. 2 í smáhýsi
á Club Green Oasis með „öllu inni-
földu“ kr. 70.000.
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Kanarí
24. nóv. – 25 nætur
frá kr. 99.900
Frá kr. 149.900 – með „öllu inniföldu“
ÍSLENSKA viðburðafyrirtækið
Practical og Hilton Nordica hótel í
Reykjavík hlutu á laugardag hin
virtu, alþjóðlegu CRYSTAL–
ferðaþjónustuverðlaun ásamt
bandarísku viðburðafyrirtæki.
Verðlaunin hlutu fyrirtækin fyrir
200 manna hvataferð á vegum
bandarísks lyfjafyrirtækis hingað
til lands.
Að sögn Marínar Magnúsdóttur,
framkvæmdastjóra Practical, var
yfirskrift ferðarinnar Land and-
stæðnanna. „Þetta var fjögurra
daga ferð sem innihélt dagsferðir,
hátíðarkvöldverð o.fl.,“ segir Marín.
„Einn daginn gat fólk valið sér ferð
eftir áhugasviði og þá var m.a. í
boði að fara í flúðasiglingar, hesta-
ferð, skoðunarferð um Reykjavík
og Gullna hringinn. Annan dag var
farið með allan hópinn upp á jökul í
jeppum og á vélsleðum, svo utan-
umhaldið var mikið.“ Practical sá
um alla skipulagningu ferðarinnar
hér á landi en gestirnir gistu á Hil-
ton Nordica, þar sem hátíðarkvöld-
verðurinn fór einnig fram.
Stærstu fyrirtæki í heimi
Marín segir CRYSTAL–verð-
launin mikinn gæðastimpil fyrir ís-
lenska ferðaþjónustu en þau eru
veitt af SITE-samtökunum, sem í
eru um 2000 fyrirtæki á sviði ferða-
þjónustu og skipulagningar við-
burða. „Maður fann strax á laugar-
dag fyrir mjög miklum áhuga á því
sem við gerum. Við erum greinilega
komin á kortið. Ferðaskrifstofurnar
í samtökunum vinna fyrir stærstu
fyrirtæki í heimi svo þetta skiptir
virkilega máli fyrir okkar við-
skipti.“ ben@mbl.is
Á bólakafi Ferðalöngum gafst færi á að velja sér ferð eftir áhugasviði.
„Erum komin á kortið“
Íslensk ferðaþjón-
ustufyrirtæki fá
alþjóðleg verðlaun
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
UMTALSVERÐIR fordómar eru á Íslandi gagn-
vart einstaklingum með geðræn vandamál, en al-
mennt þó minni en í öðrum löndum. Þetta sýna
niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem kynnt
verður á morgun en rannsóknin er hluti alþjóð-
legrar könnunar á viðhorfum til geðrænna vanda-
mála.
Íslensku rannsóknina gerðu þau dr. Sigrún
Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Boston-
háskóla, og dr. Jón Gunnar Bernburg, dósent í
félagsfræði við Háskóla Íslands. Að sögn Sigrún-
ar voru rúmlega þúsund Íslendingar heimsóttir
árið 2006 til 2007 þar sem þeir voru spurðir staðl-
aðra spurninga um viðhorf sitt til fólks með geð-
ræn vandamál. Á sama tíma voru sambærilegar
kannanir gerðar í öðrum löndum og nú liggja fyr-
ir niðurstöður úr 14 þeirra.
„Niðurstöðurnar sýna verulega fordóma á Ís-
landi gagnvart fólki með geðræn vandamál og
mælast meiri fordómar gagnvart geðklofa en
þunglyndi,“ útskýrir Sigrún. „Hins vegar koma
Íslendingar tiltölulega vel út í alþjóðlega saman-
burðinum en þeir virðast vera með minni for-
dóma en almenningur í hinum þátttökulönd-
unum.“
Niðurstöður eru reiknaðar út frá hverri spurn-
ingu fyrir sig. „T.d. telja tæplega 20% Íslendinga
að einstaklingur með geðklofa sé líklegur til að
vinna öðrum mein, og þegar einn fimmti allra Ís-
lendinga er þessarar skoðunar hlýtur það að telj-
ast umtalsvert. Meðaltöl annarra landa eru þó
mun hærri en Ísland kemur lægst út á þessari
mælingu,“ segir Sigrún en undirstrikar að það sé
misjafnt eftir spurningunum. „Ísland er sjaldan
yfir miðju hvað varðar fordóma en það er heldur
ekki neðst í öllum spurningunum.“
Umræðan hafi áhrif
Hún segir staðalmyndirnar afar slæmar fyrir
einstaklinga sem glíma við geðræn vandamál.
„Þessum viðhorfum mæta þeir í samfélaginu.
Fordómarnir leiða m.a. til þess að við kynnumst
viðkomandi ekki á hans eigin forsendum heldur
notum við staðalmyndirnar til að búa okkur til
mynd af því hvers konar einstaklingur þetta er.“
Ekki liggja fyrir neinar rannsóknir á því hvers
vegna Íslendingar koma betur út varðandi for-
dóma en margar aðrar þjóðir. „Menn geta velt
því fyrir sér hvort sú umræða sem hefur verið á
Íslandi frá árinu 2000 hafi haft einhver áhrif,“
segir Sigrún og vísar þar m.a. til Geðræktarverk-
efnisins, geðfræðslu Hugarafls og þess að fólk
hafi komið fram og greint opinberlega frá glímu
sinni við geðsjúkdóma. „Ísland er líka tiltölulega
lítið og einsleitt samfélag og við vitum út frá fé-
lagslegum kenningum að oft er minna um for-
dóma í slíkum samfélögum, því það er minni
munur á milli samfélagshópa.“
Rannsóknin verður kynnt á opinni ráðstefnu á
vegum Hugarafls á morgun, í Háskóla Íslands.
Fordómar minni á Íslandi
Stór rannsókn á viðhorfum Íslendinga til fólks með geðræn vandamál kynnt
á ráðstefnu á morgun Rannsóknin hluti alþjóðlegrar könnunar á fordómum
Morgunblaðið/Golli
Fræðimenn Sigrún og Jón Gunnar segja meiri fordóma gagnvart fólki með geðklofa en þunglyndi.
„ÞAÐ er búið að vera brjálað að
gera og fólk hefur verið mjög
ánægt,“ segir Jón Garðar Ögmunds-
son, eigandi veitingastaðarins
Metro, sem var opnaður í gær. „Bið-
raðir hafa verið miklar, og röðin að
bílalúgum ekki styttri en 50 metrar í
allan dag.“ Jón Garðar var eigandi
McDonald’s á Íslandi, en eins og
kunnugt er hefur útibúum McDo-
nalds hér á landi verið lokað og
Metro opnað í þeirra stað. Jón Garð-
ar segir að síðustu viku hafi um 100
til 110 þúsund manns snætt á McDo-
nald’s-útibúunum á Íslandi.
Nýr Metro
fer vel af stað
FRÁFARANDI fulltrúi mennta-
málaráðuneytisins í KÍM, Fríða
Björk Ingvarsdóttir, segir það ekki
rétt að hún hafi hafnað sáttatillögum
frá menntamálaráðuneytinu vegna
kröfu Steingríms Eyfjörð, eins og
hann hélt fram í Morgunblaðinu um
helgina. Greint var frá því að hann
hyggst höfða skaðabótamál gegn
KÍM (Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar) vegna skemmda á lista-
verkum sem hann sýndi á Feneyja-
tvíæringnum árið 2007.
Sagði Steingrímur að mennta-
málaráðuneytið hefði haft milli-
göngu um sáttatillögu sem Fríða
Björk, þáverandi stjórnarformaður
KÍM og fulltrúi ráðuneytisins, hefði
hafnað.
Steingrímur hafnaði sáttum
„Ég hef ekki hafnað sáttatillögum
frá menntamálaráðuneytinu vegna
kröfu Steingríms Eyfjörð,“ segir
Fríða Björk. „Þvert á móti hefur ríkt
eining á milli mín, sem fulltrúa ráðu-
neytisins í KÍM, og ráðuneytisins,
um að leita sátta í málinu. Þeim sátt-
um hefur Steingrímur hafnað.“
Hún segir öll gögn málsins hafa
verið lögð fyrir stjórn KÍM allt frá
því að það kom upp en þar eigi
myndlistarmenn tvo fulltrúa meðal
annarra. „Það hefur ríkt einhugur í
stjórninni um hvernig hægt væri að
bregðast við kröfum Steingríms og
eftir þeim samþykktum hefur verið
farið.“
Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur
hjá menntamálaráðuneytinu, vill lít-
ið um málið segja. „Að vísu kom ég
að þessu en það voru óformlegar til-
raunir til að leiða menn saman.“ Að-
spurður segir hann að ekki hafi kom-
ið fram formleg sáttatillaga frá
ráðuneytinu í málinu. „Nei, enda er
þetta ekki mál ráðuneytisins.“
Hafnaði
engum sátta-
tillögum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
ÖLLUM forstöðumönnum félagsmiðstöðva í Hafn-
arfirði verður sagt upp á næstunni, en uppsagn-
irnar eru liður í skipulagsbreytingu hjá bænum.
Einhverjum þeirra verður boðið aftur starf, en
óljóst er hversu mörgum.
Ólafur Stefánsson, forstöðumaður Setursins, er
mjög ósáttur við hvernig að málinu hefur verið
staðið, og segir sama gilda um fleiri forstöðumenn.
Hann segir forstöðumennina hafa fyrst heyrt af
málinu eftir að Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæj-
arfulltrúi Samfylkingar, tjáði einum þeirra óform-
lega að til stæði að segja þeim öllum upp.
Mikil óvissa er meðal starfsmannanna, segir
Ólafur, enda hafi þeim ekki verið formlega tilkynnt
hvaða breytingar standi fyrir dyrum. „Við for-
stöðumenn vitum ekkert hvort okkur verður sagt
upp, né hvenær. Þegar er búið að skera gríðarlega
mikið niður. Það er mjög erfitt að halda fullu þjón-
ustustigi þegar við vitum í fyrsta lagi ekki hvort við
verðum áfram við störf og í öðru lagi hvar verður
skorið niður næst.“
Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi
Samfylkingar, segir að fundur með forstöðumönn-
um sé fyrirhugaður, þar sem farið verði yfir skipu-
lagsbreytingarnar.
Hún segir ekki rétt að hún hafi sagt forstöðu-
manni að uppsagnirnar stæðu til, enda sé það ekki í
hennar verkahring. „Mér hefur verið tjáð að það
hafi verið farið ítarlega yfir þetta með for-
stöðumönnum,“ segir Margrét Gauja. Hún segir að
gert sé ráð fyrir því að forstöðumönnunum verði
sagt upp fyrir 1. febrúar og að breytingarnar taki
að fullu gildi næsta haust.
Forstöðumönnum sagt upp
Öllum forstöðumönnum félagsmiðstöðva í Hafnarfirði verður sagt upp
Forstöðumaður er ósáttur við hvernig að málinu er staðið