Morgunblaðið - 02.11.2009, Page 16
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
– meira fyrir áskrifendur
JÓLAGJAFIR FRÁ
FYRIRTÆKJUM
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan
16.00 mánudaginn 9. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn
í síma 569 1134 / 692 1010,
sigridurh@mbl.is
Glæsilegur blaðauki um
allt sem snýr að jólagjöfum
frá fyrirtækjum til starfs-
fólks og viðskiptavina
fylgir Viðskiptablaði
Morgunblaðsins
12. nóvember.
Þetta er handbókin í ár fyrir
stjórnendur sem eiga eftir að
ákveða hvað fyrirtækið ætlar að
gefa samstarfsaðilum, viðskipta-
vinum og eigin starfsfólki í
jólagjöf.
JESÚS Kristur
stofnaði kirkjuna,
hann er einnig við
stýrið og stefnir skip-
inu í örugga höfn.
Meðlimir kirkjunnar
eru ekki fullkomnir,
hvorki leiðtogar
hennar né hinn fjöl-
menni söfnuður.
Kirkjusagan er saga
sigra og ósigra, „allir
hafa syndgað og skortir Guðs
dýrð“, – segir í helgri bók. Það er
því kraftaverk að kirkjan skuli
hafa lifað af í 2000 ár þrátt fyrir
oft misvitra leiðtoga og meðlimi.
Þjóðkirkjan á Íslandi er traust og
öflug stofnun, hún er hluti af
kirkju Krists og leitast við að vera
biðjandi, boðandi og þjónandi
kirkja í íslensku samfélagi.
Starfsstöðvar kirkjunnar eru
um allt land, enda tilheyra flestir
Íslendingar þessu félagi, þiggja
þjónustu af ýmsum toga og taka
þátt eftir því sem á stendur
hverju sinni.
Ljóst er að safnaðarstarf hefur
aukist til mikilla muna síðustu ár
og áratugi. Þetta á við um allar
greinar kirkjustarfsins. Auk hefð-
bundins helgihalds er víða boðið
upp á fjölbreyttar kyrrðarstundir,
bænastundir, morgunmessur og
kvöldmessur. Barna- og unglinga-
starf er mjög öflugt, sérstaklega í
þéttbýli, reynt er að höfða til allra
aldurshópa, en fermingarund-
irbúningur skipar þar mikilvægan
sess. Foreldramorgnar er vinsælt
samkomuform sem margir nýta
sér, en mikill vöxtur hefur verið í
þessu starfi síðustu misserin þar
sem ég þekki til.
Fræðslustarf hefur aldrei verið
meira en nú, boðið er upp á fyrir-
lestra um áhugaverð efni, nokk-
urra kvölda námskeið, biblíulestra,
sjálfshjálparhópa svo eitthvað sé
nefnt.
Tónlistar- og listastarf er víða
mjög öflugt í kirkjunni. Mörg þús-
und manns á öllum aldri syngja í
barnakórum og kirkjukórum safn-
aðanna um allt land. Í nokkrum
kirkjum hafa verið stofnuð lista-
og listvinafélög, sem
skipuleggja öflugt og
fjölbreytt listastarf í
söfnuðunum, mörgum
til blessunar og gleði.
Kvenfélög safn-
aðanna eru rótgróin
og hafa starfað öt-
ullega í áratugi og
eru enn að. Kven-
félagskonur hafa ver-
ið óþreytandi við að
safna peningum til að
styrkja safn-
aðarstarfið.
Sérþjónusta kirkjunnar er fjöl-
breytt, en í Reykjavík eru t.d.
starfandi 16 sérþjónustuprestar og
4 djáknar á sjúkrahúsum og stofn-
unum. Þessir þjónar kirkjunnar
mæta þörfum skjólstæðinga sinna
með helgihaldi, samtölum,
fræðslu, hópastarfi o.fl. Þjóð-
kirkjan hefur einnig stofnað
Hjálparstarf kirkjunnar og Fjöl-
skylduþjónustu kirkjunnar, sem
hafa unnið ómetanlegt starf á und-
anförnum árum. Sjálfboðaliðar
hafa komið að kirkjustarfi alla tíð,
má þar nefna meðhjálpara og
kirkjuverði sem lengst af voru í
sjálfboðnu starfi. Síðustu þrjú árin
hefur nýtt form á sjálfboðnu starfi
orðið til, en það eru svokallaðir
messuþjónar.
Undirritaður sá hvernig messu-
þjónar störfuðu við einn söfnuð í
Lundi í Svíþjóð vorið 2006. Ég
kynnti mér þessa þjónustu og
sótti nokkrar messur þar sem
messuþjónar komu að þjónustunni
með prestunum. Þegar heim kom
stakk ég upp á því að við reyndum
þessa aðferð í Hallgrímskirkju og
nú hafa 9 söfnuðir á höfuðborg-
arsvæðinu bæst í hópinn.
Aðferðin er fólgin í því að stofna
4-5 messuhópa með 6-10 manns í
hverjum. Hóparnir skiftast á að
þjóna að messunni. Fyrir hverja
messu er undirbúningsfundur.
Messuhópurinn hittir prestinn um
miðja vikuna, þar er hlutverkum
skipt á messuþjónana, einhverjir
koma snemma og undirbúa mess-
una með starfsfólki kirkjunnar,
einn til tveir standa í kirkjudyrum
og taka á móti söfnuðinum, hóp-
urinn gengur með kross og ljós
inn kirkjugólfið við upphaf mess-
unnar, tveir lesa ritningarorð, aðr-
ir lesa kirkjubænina, aðstoða við
útdeilingu sakramentisins, hjálpa
til við að ganga frá eftir messu,
aðstoða við kirkjukaffið eða súp-
una ef boðið er upp á eitthvað
slíkt og þannig mætti lengi telja.
Hlutverkin þurfa ekki að vera eins
frá kirkju til kirkju, hver söfnuður
finnur sinn takt og raðar hlut-
verkum eftir því sem fólk kemur
sér saman um. Mælt er með að
hafa dreifðan aldur í hópunum. Á
undirbúningsfundinum eru textar
sunnudagsins lesnir og leiðir
presturinn samtal um textana sem
sannarlega nýtist honum við ræð-
ugerðina. Oft verða líflegar um-
ræður um ræðuefni dagsins, en
hver fundur endar með bæn fyrir
messunni.
Reynslan af þessu starfi er
mjög góð. Messuþjónarnir tala
gjarnan um að þetta nýja hlutverk
í kirkjunni hafi opnað nýja sýn á
messunni og kristinni trú almennt.
Messuþjónarnir hafa einnig kallað
eftir fræðslufundum og auknu
samfélagi. Síðastliðin tvö ár höfum
við endað vetrarstarfið með því að
boða alla messuþjóna prófasts-
dæmisins til messuþjónahátíðar
sem hefur verið mjög uppbyggileg
og góð samvera. Auk alls þessa
starfs, sem ég hef lauslega farið
yfir, er kirkjan í samstarfi við
marga aðila í þjóðfélaginu, bæði í
opinbera geiranum en einnig við
aðrar stofnanir, s.s. Ráðgjaf-
arstofu heimilanna, Rauða kross-
inn, aðrar kirkjudeildir og fulltrúa
annarra trúarbragða. Eftir að
hafa talað við marga presta,
djákna og fulltrúa sóknarnefnda í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra á
þessu hausti fullyrði ég, að kirkj-
an sé á góðri siglingu þetta haust-
ið.
Kirkjan á góðri siglingu
Eftir Jón Dalbú
Hróbjartsson » Í táknmáli kirkj-unnar er kirkjunni
gjarnan líkt við skip.
Skipið er á siglingu yfir
lífsins ólgusjó.
Jón Dalbú Hróbjartsson
Höfundur er sóknarprestur í Hall-
grímskirkju og prófastur í Reykjavík-
urprófastsdæmi vestra.
UNDANFARNAR
vikur hafa sprottið
upp umræður um upp-
byggingu atvinnutæki-
færa á Suðurnesjum.
Sitt hefur þar sýnst
hverjum, og kastað
hefur verið fram ýms-
um spurningum, og
mörgum svörum sem
erfitt hefur verið að
henda reiður á. At-
hyglinni hefur verið beint að
ákvörðun umhverfisráðherra um
Suðvesturlínur, og sagt að sú
ákvörðun tefji nú allar frekari
framkvæmdir. En minna hefur ver-
ið rætt um önnur mál, sem þrátt
fyrir allt skipta líka máli um fram-
gang þeirra verkefna sem nú eru í
burðarliðnum. Í þau mál þarf að fá
hreinar línur áður en áfram er
haldið.
Málefni Gagnavers Verne Hold-
ing er eitt þeirra mála sem dregin
hafa verið inn í umræðuna og sagt
að ríkið dragi varðandi fjárfest-
ingasamninga og að frestun
Suðvesturlínu tefji þá framkvæmd.
Þar hefur raforka verið tryggð, nú-
verandi kerfi tryggir þá orku, og
undirrituð hafa verið drög að
fjárfestingarsamningi. Þar eru
hreinar línur. Álver í Helguvík hef-
ur verið stóri ásteytingarsteinninn.
Þar virðast því miður flest ágrein-
ingsefnin vera. Það er rétt, að mikil
seinkun á Suðvesturlínu getur haft
áhrif á hraða fram-
kvæmdarinnar. Þar
virðist þó vanta svör
um, hvar á að fá þá
orku sem til þarf til að
knýja það álver, sem
nú í miðri kreppu hef-
ur verið stækkað upp í
360.000 tonna árs-
framleiðslu.
Áður hafði verið
samþykkt og gengið
frá samningum fyrir
álveri sem ætlað var
að framleiða allt að
250.000 tonn á ári, og gengið hafði
verið frá útvegun raforku til 1.
áfanga þess fyrir 150.000 tonn.
Ennþá vantar að gera grein fyrir
hvernig, hver og hvar menn ætla
að útvega þá orku sem upp á vant-
ar. Það er ekki nóg að segja bara
að hún sé til. Þar þarf meira til.
Þar þarf hreinar línur. Undirstaða
flestra þeirra framkvæmda er snúa
að atvinnuuppbyggingu á Suð-
urnesjum er sú höfn sem ætlað er
að þjónusta þau fyrirtæki sem
þangað hafa boðað komu sína.
Ljóst er að Reykjanesbær, sök-
um gríðarlegrar skuldsetningar,
getur ekki einn klárað það verkefni
sem höfnin er, og bæjarstjórinn
segir að kosta muni um það bil tvo
milljarða króna. Lán vegna hafn-
arinnar eru samt komin í rúmlega
3,6 milljarða. Þar vantar hreinar
línur og útskýringar á hvers vegna
svo er komið í framkvæmd sem
menn hafa gefið í skyn í mörg ár
að væri á hreinu, og var forsenda
þess í upphafi að samningar tókust
við Norðurál um staðsetningu ál-
versins.
Fyrir okkur íbúa á Suðurnesjum
snýst uppbygging á Suðvest-
urlínum fyrst og fremst um öryggi.
Núverandi línulagnir eru komnar
til ára sinna og fullnægja ekki
lengur þeim öryggissjónarmiðum
sem uppi eru. Hvar og hvernig hún
er lögð skiptir miklu máli fyrir
framtíðaruppbyggingu og lífsskil-
yrði þeirra sem seinna skulu njóta.
Þeim sjónarmiðum má ekki fórna á
altari þess að ekki hafi gefist tóm
til að hyggja að þeim.
Þrátt fyrir að nú liggi mikið á að
koma þeim verkefnum í gang sem
fyrir liggja skulum við samt gefa
okkur tíma til að sjá samhengi
hlutanna. Að ekki verði af stað far-
ið fyrr en ljóst sé að við náum þeim
leiðarenda sem að er stefnt. Að fyr-
ir liggi hreinar línur um hvað það
er sem við viljum til framtíðar, og
að ekki verði ráðist í stærri verk-
efni en ljóst er að við getum með
góðu móti sætt okkur við.
Hreinar línur
Eftir Hannes
Friðriksson » Að fyrir liggi hreinarlínur um hvað það er
sem við viljum til fram-
tíðar, og að ekki verði
ráðist í stærri verkefni
en ljóst er að við ráðum
við.
Hannes Friðriksson
Höfundur er innanhússarkitekt.