Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 17

Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 17
Minningar 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009 ✝ Elín Sverrisdóttirfæddist í Reykja- vík 27. júní 1948. Hún andaðist á heimili sínu í Brämhult í Svíþjóð 14. október sl. For- eldrar hennar eru Ingibjörg Marteins- dóttir húsfreyja, f. í Reykjavík 2. júní 1927, og Sverrir Hall- dórsson gullsmiður frá Stykkishólmi, f. 10. ágúst 1913, d. í Reykjavík 16. júní 1957. Stjúpfaðir El- ínar var Halldór G. Sigurðsson, f. 10. október 1921, d. 30. desember 1982. Elín giftist 11. nóvember 1967 Hilmari Þór Hálfdánarsyni lækni, f. 29. desember 1947, d. 22. desember 1993. Foreldrar hans voru Hálfdán V. Einarsson tollvörður, f. 31. maí 1917, d. 26. nóvember 2005, og Ingibjörg Er- lendsdóttir húsfreyja, f. 17. október 1919, d. 22. júní 2001. Börn El- ínar og Hilmars eru: Sverrir Þór læknir, f. 21. ágúst 1965, Hilm- ar Þór, tölvunarfræð- ingur, og tvíburabróð- ir hans, Hálfdán Þór, læknir, fæddir 4. ágúst 1972, Halldór Þór, byggingarverk- fræðingur, f. 16. ágúst 1979, og Erlendur Þór, byggingarverkfræðingur, f. 23. nóvember 1980. Elín starfaði lengstum hjá sveit- arfélaginu Brämhult, þar sem hún starfaði á fjármálasviði. Elín verður jarðsungin frá Graf- arvogskirkju í dag, 2. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku amma, takk fyrir allar samverustundirnar sem við höfum átt síðustu 13 árin. Það verður tómlegt að koma aftur til Svíþjóð- ar þegar þú ert ekki þar. En ég veit að þú ert á góðum stað núna og að þú vakir yfir okkur. Þegar ég rifja upp allar góðu og fallegu minningarnar um samverustundir sem ég átti með þér þá eru jólin efst í huga. Jólin sem voru alltaf haldin á Tyllgatan hjá ömmu. Þeg- ar komið var inn þá var allt svo hlýlegt og jólalegt, búið var að leggja á borð og þú búin að baka loftkökur og aðrar smákökur fyrir jólin. Elsku amma mín, ég á eftir að sakna þín mjög mikið. Takk fyrir allt. Minning þín er ljós í lífi okkar. Þín Sara Björk. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Höf. ók.) Það er svo ósanngjarnt og ótíma- bært að kveðja mágkonu mína svona fljótt. Ég var aðeins 11-12 ára þegar hún kom inn í líf mitt, þegar hún og Hilmar bróðir byrj- uðu saman, kornung. Fljótlega fæddist fyrsti gullmolinn þeirra, sá fyrsti af fimm, og fékk ég oft að passa eða öllu heldur leika mér með hann. Tvíburarnir fæddust sjö árum síðar og þá var gaman og alvöru- mömmuleikur tók við. Fjölskyldan flutti til Svíþjóðar árið sem strák- arnir urðu 12 og fimm ára, þegar Hilmar fór í framhaldsnám. Ég saknaði þeirra svo mikið að ég var komin í fyrstu heimsóknina aðeins nokkrum vikum eftir að þau fluttu. Í Svíþjóð bættust við tveir ynd- islegir strákar. Snemma var höggvið stórt skarð í þessa fjölskyldu þegar bróðir minn lést tæplega 46 ára, og þá var Ella fjarri öllum ættingjum ein með strákana sína. Ella helgaði þeim alla sína krafta og kom þeim öllum áfram til náms, hún var algjör of- urmamma, fylgdi þeim alltaf vel eftir í öllum þeirra áhugamálum og voru þeir alltaf það fyrsta sem talað var um þegar við ræddum saman í síma sem við gerðum mjög oft. Mér er alveg óskiljanlegt hvað lífið get- ur verið óréttlátt, þegar ungarnir eru flognir og farið að styttast í annan endann á vinnudeginum þá ríður þetta reiðarslag yfir, Ella hafði hugsað sér að vera meira heima á Íslandi að afloknum löngum vinnudegi og hafði fest kaup á íbúð á Íslandi en sá draum- ur rættist ekki. Við hjónin vorum í heimsókn í Svíþjóð hjá henni aðeins rúmum mánuði fyrir andlátið, okkur grun- aði ekki hvað stuttur tími var eftir, við fórum eitthvað á hverjum degi og hún alltaf með, síðasta daginn okkar keyrðum við hana í skoðun upp á sjúkrahús og ekkert hafði versnað, í dag sé ég hana fyrir mér koma labbandi þar út, há og grönn og alltaf stórglæsileg og vel til höfð, ekki síðri í þetta skiptið. Meðan við dvöldumst í Svíþjóð var farið að tala um fermingu Söru næsta vor og í hana ætlaði hún að koma. Einng var mikil tilhlökkun fyrir brúðkaupi Hálfdáns og Ann, sem stóð til næsta vor og var mikil tilhlökkun fyrir því, en þau létu draum hennar rætast og giftu sig á dánarbeði hennar að hennar ósk. Það var henni mikil gæfa að eiga svo góða fjölskyldu og tengdadótt- irin gerði allt sem í hennar valdi stóð til að gera síðustu stundirnar bærilegri. Ég hef mikið hugsað um það hver ræður veru okkar hér, þetta er svo stuttur tími sem þessi hjón fengu hjá börnunum sínum, hver er tilgangurinn? Ekki get ég svarað því, en eitt er ég alveg viss um, þau hafa nú hist á ný Ella og Hilmar, hún hafði saknað hans sárt öll þessi ár. Eins og við ræddum um fyrir rúmum mánuði, hvað hvarf hans var ótímabært, og nú þeirra beggja. Ég bið góðan Guð að vaka yfir strákunum og fjölskyldum þeirra, missir þeirra er mikill og móður hennar, að kveðja yngsta barnið sitt. Elsku Ella mín farðu í Guðs friði og þakka ég allar góðar samveru- stundir sem við áttum bæði hér heima og í Svíþjóð. Guðrún. Ella, mágkona mín, var ung að árum þegar hún trúlofaðist Hilmari bróður mínum. Hún hefur verið svona 16 ára, hann árinu eldri. Þá var fjölmenni á æskuheimili okkar, systir ömmu, amma rúmliggjandi, systkini mín, Erlendur og Guðrún, Hrefna, kærasta Kjartans bróður og tvö ung börn þeirra og við bætt- ist Sverrir, sonur Hilmars og Ellu. Ég var yngstur og ekki leiddist mér fjölmennið því að vinir og kunningjar eldri systkina voru tíðir gestir. Ella gerði ekki mun á fólki eftir aldri; eitt af því fyrsta sem ég gerði eftir að ég kynntist Regínu, konu minni, var að keyra með hana norður á Siglufjörð þar sem Hilm- ar, læknanemi á 3. ári, leysti af sem héraðslæknir, til að heimsækja þau. Þau tóku okkur menntaskólakrökk- unum fagnandi; eins og gamlir, góð- ir félagar hefðu komið í heimsókn. Hún kunni líka að skemmta sér og njóta lífsins án þess að nokkuð færi nokkurn tíma úr böndunum. Alltaf síðar þegar við hittumst fannst mér hún vera eins og þegar ég sá hana fyrst. Dætur okkar voru sama sinn- is. Þeim fannst gaman að koma til Borås að hitta frændur sína og Ellu sem voru þeim svo góðir vinir. Ella var fremur hávaxin, grönn og lagleg. Hún var afskaplega skap- góð og hláturmild og í minningunni man ég hana aldrei skipta skapi. Dugnaðarforkur var hún til vinnu og sá fyrir fjölskyldunni meðan Hilmar var við læknisfræðinám með skrifstofuvinnu. Síðar eftir að fjölskyldan flutti til Svíþjóðar, þar sem hún hefur öll búið síðan, varð hún sjúkraliði. Synir Ellu og Hilmars hafa feng- ið að kynnast sorginni. Hilmar dó á 45. aldursári eftir stutt veikindi. Síðan þá hefur líf Ellu snúist um syni sína og fjölskyldur þeirra. Fyr- ir tveimur árum dó Susie Rut, frænka þeirra, sem þeim þótti svo mikið vænt um. Og nú þetta. – Það lýsir Ellu vel að nú undir það síð- asta hvatti hún Halldór, son sinn, til ferðar sem hún hafði gefið hon- um. Það dró fljótt af henni þá fáu daga sem ferðin stóð. Hún hélt sér vakandi þar til hann kom og náði að kveðja mömu sína. Þá fyrst gat hún kvatt. Frændum mínum til huggunar vil ég segja þetta: Stuttu eftir lát Susie Rutar dreymdi bestu vinkonu henn- ar draum. Henni fannst Susie Rut sýna sér spiladós með fjórum lif- andi myndum. Enginn þekkti þær nema foreldrar hennar, reyndar bara annað okkar hvern atburð sem myndirnar sýndu, og Susie Rut sem vissi um einungis þrjár þeirra. Kristur sagði ekki ósatt og að vonin sem Guð gaf okkur um endurfundi er ekki byggð á sandi. Og vaktu nú, Guð minn, yfir sonum hennar, tengdadætrum, barnabörnum og móður hennar. Einar S. Hálfdánarson. Elín Sverrisdóttir  Fleiri minningargreinar um Elínu Sverrisdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Hlíf Gestsdóttirfæddist í Syðra- Garðshorni í Svarf- aðardal 13. maí 1916. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skóg- arbæ 18. október sl. Foreldrar hennar voru Gestur Vil- hjálmsson, f. 1894, d. 1985 og Sigrún Júl- íusdóttir, f. 1894, d. 1976. Systkini Hlífar voru Björn, f. 1918, d. 1997, Ríkarður, f. 1920, d. 1995, Jó- hanna María, f. 1925, d. 2003 og Kristín, f. 1930, d. 2008. Maki Hlífar var Sigurgeir Sig- fússon, f. 24.7. 1907, d. 1985. For- eldrar hans voru Sigfús Vigfússon, f. 1868, d. 1948 og Gróa Gests- dóttir, f. 1874, d. 1958. Börn Hlíf- maki Sigrún Guðmundsdóttir, f. 1950. Börn þeirra eru Rúnar og Ingunn. Hlíf ólst upp í Svarfaðardal, fyr- ir utan 2 ár á Ólafsfirði, hjá for- eldrum sínum og systkinum. Þau bjuggu lengst af í Bakkagerði. Sumarið 1936 kynntist hún eig- inmanni sínum. Bjuggu þau í Reykjavík, fyrst í miðbænum. Síð- an fluttu þau í Kleppsholtið, að Langholtsvegi 58. Hlíf var heima- vinnandi húsmóðir til fjölda ára, en upp úr 1960 fór hún út á vinnu- markaðinn. Hún vann lengi versl- unarstörf, bæði í KRON og Liver- pool og endaði starfsferilinn á saumastofunni Dúk. Eftir að Sig- urgeir lést flutti Hlíf fljótlega í íbúð í Ljósheimum og bjó þar þangað til heilsan fór að bila. Um tíma var hún með íbúð í Furu- gerði og síðustu mánuðina bjó hún á Skógarbæ. Útför Hlífar fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, 2. nóvember, kl. 13. ar og Sigurgeirs eru: 1) Unnur, f. 1937, d. 1979, maki Raymond La Croix, f. 1932. Þeirra börn eru Ant- hony, Marie, Diane og Michael Sigfús. 2) Gestur, f. 1938, d. 2008, maki Svala Ingimundardóttir, f. 1942. Þeirra börn eru Sigrún, Hlíf, Ingimundur og El- ísabet. 3) Sigfús, f. 1940, d. 1969, barns- móðir Anna Gréta Þorbergsdóttir, f. 1944. Dóttir þeirra er Kristín. 4) Gunnar, f. 1942, fyrri maki Sigrún Jóns- dóttir, f. 1940, sonur þeirra er Sigurgeir, Sigrún átti 7 börn fyrir, seinni maki Anna Guðmundsdóttir, f. 1945. 5) Vilhjálmur, f. 1949, Elskuleg tengdamóðir mín, Hlíf Gestsdóttir, er nú látin. Síðasta ár var henni erfitt. Fyrst missti hún yngstu systur sína og síðan son sinn, þriðja barnið sitt. Við þetta hvarf lífslöngun hennar. Hún var ekki sátt við að vera upp á aðra komin og geta ekki séð um sig sjálf eins og hún hafði gert alla tíð þar til fyrir einu ári. Ég kom inn á heimili Hlífar og Sigurgeirs þegar ég var 17 ára og var strax tekið opnum örmum. Börnin okkar Gests voru heimaln- ingar þarna og amma þeirra dekraði við þau alla tíð. Eftir lát Sigurgeirs flutti hún í Ljósheimana. Þar var hún alltaf með opið hús um áramót þar sem börn, tengdabörn, barna- börn og fleiri ættingjar komu. Ferðalög voru henni mikils virði og ferðuðumst við hjónin t.d. til Kaupmannahafnar með henni og ótal ferðir norður. Síðasta ferð var við jarðarför Kristínar systur henn- ar í fyrrahaust. Að endingu þakka ég henni fyrir vináttu í hálfa öld. Blessuð sé minning Hlífar Gests- dóttur. Svala Ingimundardóttir. Nú er hún amma fallin frá 93 ára að aldri. Aldrei ætlaði hún að verða svo gömul, en sú varð þó raunin. Hún amma okkar lifði tímana tvenna og mátti horfa á eftir 3 börnum sínum, eiginmanni og yngri systkinum áður en hennar tími kom. Það er margs að minnast. Þegar við systkinin vorum lítil áttum við heima í nágrenni við ömmu og afa á Langó, eins og við kölluðum þau. Var því oft gengið heim á Langó í ný- steiktar kleinur. Stundum fengum við að gista á flatsæng í stofunni. Þá var alltaf boðið upp á ömmudesert, þ.e. brytjaða ávexti blandaða saman við þeyttan rjóma, sem okkur þótti algjört sælgæti. Amma lét allt eftir okkur að sögn föðurbræðra okkar sem bjuggu þá heima. Við munum eftir hvað amma var alltaf fín og vel til höfð, með nagla- lakk og perlufestar sem gaman var að fá að punta sig með. Skápurinn hennar var fullur af háhæluðum skóm, höttum og öðru fíniríi sem litlum stúlkum þótti spennandi. Ekki var verra að amma vann lengi vel í Liverpool, helstu leikfangaverslun bæjarins. Þangað fórum við oft í skólafríum til að „hjálpa“ að verð- merkja og raða í hillur. Að launum fengum við kók og prins póló í næstu sjoppu. Þegar amma var í sumarfríi tók hún okkur með sér í bæinn, prúðbúin og bauð okkur á kaffihús. Áhugamál ömmu voru leikhús, listir, bók- menntir og ferðalög. Hún hafði þann sið að gefa okkur leikhúsmiða í af- mælisgjöf og bækur auk þess sem við fórum oft í ferðir með henni. Seinna gátum við endurgoldið henni það sem hún hafði kennt okkur að meta. Við tókum hana með í leikhús, á tónleika, í bíltúra og ferðir á ókann- aða staði. Amma hafði gaman af því að fræðast og vildi vita hvert hinir ýmsu vegir á landinu lægju. Það var gaman að gleðja ömmu með þessu, það þurfti ekki mikið til því hún var alltaf svo þakklát. Við höfum haft þann sið í stórfjölskyldunni að hitt- ast á aðventunni í yfir 20 ár og steikja laufabrauð, drekka heitt súkkulaði með rjóma og smakka á ótal smákökutegundum. Einnig er- um við vön að halda áramótin saman. Þessa siði munum við halda í þótt amma sé farin enda var það henni mikils virði að við ræktuðum frænd- semina. Amma var glaðvær og já- kvæð kona og það eru forréttindi að hafa haft hana svona lengi hjá okkur. Blessuð sé minning hennar. Sigrún, Hlíf, Ingimundur og Elísabet Gestsbörn. Reisn, stolt og seigla eru orðin sem fyrst koma upp í hugann um Hlíf frænku. Hún var elst systkina sinna og elsta barnabarn Bakka- hjónanna í Svarfaðardal, Kristínar og Vilhjálms, og mikið eftirlæti þeirra eins og oft vill verða með fyrsta barnabarn í stórum ættum. Þá naut hún þess að eiga að foreldrum eitthvert ástríkasta fólk sem unnt er að hugsa sér. Sennilega myndu margir velja Sigrúnu og Gest í Bakkagerði sem dæmið um einstakt hjónaband. Mér finnst að Hlíf hafi ávallt borið með sér tign svarfdælsku fjallanna og menningarvitund forfeðranna í dalnum. Hún var Svarfdælingur. Hlíf og fjölskylda voru þau skyld- menni úr móðurættinni sem bjuggu næst heimili foreldra minna og því nánari samgangur við þau en flest önnur ættmenni. Við gengum í Langholtsskóla og t.d. eru Gunnar og Eyjólfur bróðir jafngamlir. Fjöl- skyldur okkar voru frumbýlingar í Langholtshverfinu, vafalítið mynd- ast sterkari strengir meðal fólks og barna þegar hverfi eru að byggjast upp ekki síst í kjölfar stríðsára þegar skortur er á ýmsu. Hlíf vann alltaf mikið og stundaði saumaskap lengi heima við meðan börnin voru yngri. Við saumavélina naut sín meðfædd handlagni og sköpunargáfa. Mamma sat aftur á móti við prjónavél og síð- an höfðu þær vöruskipti á fatnaði. Þannig var Langholtshverfið um miðja síðustu öld. Ein sterk minning er þegar við Eyjólfur vorum send til fjölskyldunnar á Langholtsveginum að vetrarlagi þegar langvinnt verk- fall stóð yfir og skortur var á ýmsum matvörum. Okkur hafði áskotnast eitthvað af mjólk og vorum við syst- kinin send til að færa þeim smávegis, mikið fannst okkur þetta mikilvæg för sem við tókumst á hendur. Það er ekki hægt að segja að við Hlíf höfum verið í daglegum sam- skiptum en við hittumst alltaf á ein- um helgum degi á árinu – Þorláks- messu. Undanfarna áratugi höfum við átt þessa góðu stund saman ásamt Ingu frænku og fjölskyldu minni. Sérstakur strengur myndað- ist strax milli Ragnhildur dóttur minnar og Hlífar. Það er ekki vafa undirorpið að hún átti sæti ömmunn- ar í huga hennar. Hlíf frænka var tíguleg kona á velli og kunni að klæða sig. Það var eftir henni tekið þegar hún á sunnu- dögum gekk uppábúin um götur hverfisins á leið til kirkju. Hún studdi mjög allt starf Langholts- og Áskirkju, ekki síst lagði hún kven- félögunum lið með handavinnu. Sannarlega fór hún ekki varhluta af áföllum í lífinu. Þrjú af fimm börn- um hennar eru farin á undan henni og Sigurgeir missti hún fyrir áratug- um. Þegar hún elst systkina sinna var ein eftir og Gestur sonur hennar kvaddi var eins og lífsneistinn slokknaði. Hlíf var snemma efnileg og sagt er að hún og Kristján Eld- járn forseti hafi keppt um forystu í barnaskólanum í æsku þeirra í Daln- um. Hún hefði sómt sér í sæti fyr- irmanna. Gengin er stolt, glæsileg og hæfi- leikarík kona sem hélt ávallt reisn sinni og lét aldrei deigan síga eða bil- bug á sér finna. Slíkar konur eru sannar fjallkonur Íslands. Blessuð sé minning Hlífar Gestsdóttur. Sigrún Magnúsdóttir. Hlíf Gestsdóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdar- mörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.