Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 22
22 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÁTTURINN Í KVÖLD VERÐUR FRÁBÆR! EÐA ER ÞAÐ ÞÁTTURINN Á MORGUN? BÍDDU... Í KVÖLD? Á MORGUN? Í KVÖLD? Á MORGUN? GREINILEGA EKKI Í KVÖLD, FÉLAGI KOMSTU HONUM Á ÓVART? HELD ÞAÐ VAR HANN ÁNÆGÐUR? JÁ, ÉG ER NOKKUÐ VISS UM ÞAÐ HRÓLFUR, AF HVERJU ERTU MEÐ ÖLL ÞESSI VOPN? ÉG VAR AÐ KOMA AF VÍGVELLINUM VARSTU AÐ KOMA FRÁ ENGLANDI? NEI, ÚR BIÐ- STOFUNNI ÞINNI PASSAÐU ÞIG Á ÞESSUM. EIGANDI HANS VINNUR Í BANKA EF ÞÚ SNERTIR HANN ÞÁ HENDIR HANN ÞÉR BEINT Á HAUSINN MÉR LÍKAR EKKI HVERNIG ÞESSI PÍTSA ER ELDUÐ. VILTU HITA NÝJA FYRIR MIG? KEMUR EKKI TIL GREINA ÞAÐ ÞÝÐIR EKKI AÐ VERA SVONA MATVÖND. EF ÞÚ VILT EKKI NEITT ÞÁ GETUR ÞÚ BARA FENGIÐ ÞÉR SAMLOKU Í KVÖLDMATINN! ALLT Í LAGI! HVAÐA OSTUR ER ÞETTA? EF KÓNGULÓARMAÐURINN HEFÐI BARA GETAÐ STÖÐVAÐ VULTURE! ÉG LOFAÐI M.J. AÐ VERA HEIMA ÞANGAÐ TIL ÉG ER LAUS VIÐ FLENSUNA EN HVAÐ EF ÉG ER SÁ EINI SEM GETUR STÖÐVAÐ ÞENNAN GLÆPAMANN? Yngsta kynslóðin unir sér jafnan glöð í öruggum höndum innan girðingar leikskólans síns. Þessum börnum sem eru í leikskólanum við Hlíðarbraut í Hafnafirði lék þó forvitni á að vita hvað færi fram utan girðingar þegar ljósmyndari átti þar leið um. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikskólavinir Útigangsfé MIG langar að þakka fyrir leiðarann í Morg- unblaðinu 30. október síðastliðinn, um sauðféð sem hefur hingað til bjargað sér sjálft, án þess að valda neinum skaða eða troða nokkr- um um tær, en má það ekki lengur. Margar kindur hafa í gegnum árin verið á vetrar- útigangi og menn hafa dáðst að seiglu þeirra við að lifa af hörð vetr- arskilyrði landsins. En nú ætla menn að „bjarga“ fé frá veðri og fjalla- óbyggðum með því að lóga því. Rökin eru að þær brjóti gegn reglugerðum. Er til meiri rökleysa? Í öðrum lönd- um ganga geitur og fleiri dýrateg- undir frjálsar um víðáttur, auðnir og fjöll, og lifa það af án þess að vera slátrað fyrir vikið. Það verður eftirsjá að þessum íslensku útilegukindum, kraftmiklum fórnarlömbum skamm- sýnna manna. Svo velti ég fyrir mér hvers önnur dýr sem ganga úti á Íslandi eiga að gjalda, t.d. refir og mýs. Verður ekki að bjarga þeim líka frá því að þurfa að bjarga sér sjálf ef lífsbjörgin reyn- ist þeim eitthvað erfið? Með góðri kveðju og þökk fyrir að taka upp hanskann fyrir frjálsa fjallaféð sem mér finnst kjarkmikið, harðduglegt og aðdáunarvert. Gunnar Hrafn Birgisson. Þvílík rausn ÉG vissi ekki hvort ég ætti heldur að hlæja eða gráta þegar ég heyrði aug- lýsingu Kaupþings um nýjasta fram- lag þeirra til æsku þessa lands. Kaupþing er búið að rústa fjárhag margra foreldra og framtíðarmögu- leikum margra barna, en nú á vænt- anlega ekki að leita sökudólga og sýta það liðna heldur horfa fram á veginn og kaupa sér syndaaflausn með því að gefa æsku landsins heilt endurskinsmerki sem kostar heilar 10,50 kr. í framleiðslu. Það er aumk- unarvert þegar menn ekki skynja skilsmun skammar og heiðurs. Ja þvílíkt. Jón Símon Gunnarsson. Foreldrastyrkur HVERNIG má það vera á tímum nið- urskurðar í leikskóla- og skólakerfinu að for- eldrum séu borgaðar 35.000 kr. á mánuði fyr- ir það eitt að sitja heima með barnið sitt? Á þetta við ef barnið er 9 mán- aða eða eldra og er ekki vistað á leikskóla eða hjá dagforeldri. Finnst mér þessum peningum betur varið til að styrkja aðstöðu í skól- um borgarinnar. Væri gaman að vita hvort fólk viti almennt um þessar greiðslur. Sólveig Antonsdóttir. Heilræðavísur Í ÖLLU því neikvæða umfjöllunar- efni sem dynur á þjóðinni um þessar mundir er ekki úr vegi að lofa fólki að heyra örlítið jákvætt. Þessar vísur bögglaði ég saman þegar mér fannst bölmóðurinn úr hófi kominn í fjölmiðlum. Eitt bros getur dáðleysi í dugnað breytt. Eitt bros getur tárum af hvörmum þér eytt. Eitt bros getur huglitlum hugrekki veitt. Eitt bros er svo kröftugt og kostar ei neitt. Eitt orð getur saklausan sárlega meitt. Eitt orð getur oft framhjá átökum sneitt. Eitt orð getur einnig til illinda leitt. Eitt orð er svo öflugt og andskoti beitt. Að gleðja er gjöf, sem öllum er fær. Að gleðja er gjöf, er að hjartanu nær. Að gleðja er gjöf, er á sérhyggju slær. Að gleðja er gjöf, sem öllum er kær. Hafsteinn Sigurbjörnsson. Ást er... ... þegar þið sjáið eftir því einu að hafa ekki látið til skarar skríða fyrr. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30, útskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 8-15-16, handavinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, kaffi/dagblöð, leikfimi með Emmanuelle Sólveigu byrjar í dag kl. 13. Anna Kristine les upp úr bók sinni Milli mjalta kl. 14.15. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids og kaffitár kl. 13, línudanskennsla kl. 17.30 og samkvæmisdans kl. 18.30 kennari Sig- valdi. Blásarasveit FEB æfing kl. 19.30. Félagsheimilið Gjábakki | Gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og 13, boccia kl. 9.30, leiðb. í handavinnu til hádegis, lom- ber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17, tréskurður kl. 18, skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulíns- hópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, vatnsleikfimi í Breið- holtslaug kl. 10.50. Spilasalur opinn frá hádegi, kóræfing kl. 15. Á morgun kl. 9 er leikfimi í ÍR heimilinu v/Skógarsel, staf- ganga kl. 10.30. Uppl.í s. 575-7720. Háteigskirkja | Félagsvist í Setrinu kl. 13- 16, verðlaun. Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10, Gafl- arakórinn kl. 10.30, gler og tréskurður kl. 13, boccia og félagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30, opin vinnustofa kl. 9, brids kl. 13, kaffi. Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50, Stefánsganga kl. 9.10, listasmiðja kl. 9, fé- lagsvist kl. 13.30. Ókeypis leiðb. á tölvu kl. 13, kaffi kl. 15, skapandi skrif kl. 16. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga hjá Korp- úlfum í Egilshöll kl. 10, gott að hafa göngustafi meðferðis. Á morgun kl. 9.30 er sundleikfimi í Grafarvogslaug. Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9-15.30, boccia kl. 10, söngur og samvera með djákna kl. 14. Vesturgata 7 | Jólafagnaður verður fös- tud. 4. des. kl. 17.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.